Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 82
82 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ÞRJÁR íslenskar hljómsveitir koma fram á tónleikum í Central Park í New York í sumar. Hljómsveitirnar sem um ræðir eru Singapore Sling, Orgelkvartettinn Apparat og Trabant en Steindór Andersen verður enn- fremur með rímnasmiðju til að kynna íslenska rímnahefð. Tónleikarnir eru hluti af tónleika- röðinni Summer Stage. Hátíðin var sett á laggirnar árið 1985 og er þetta því átjánda sumarið, sem garðgestum gefst tækifæri til að hlýða á tónlist undir beru lofti, útskýrir Magnús Bjarnason, starfandi aðalræðismaður í New York og viðskiptafulltrúi í Bandaríkjunum. Fjölmargir lista- menn hafa komið fram á Summer Stage-tónleikunum í gegnum árin og má nefna Wycleaf Jean, Erykah Badu, Craig David, Asian Dub Foundation, Joni Mitchell og James Brown. Eingöngu íslensk tónlist Laugardagurinn 28. júní verður eingöngu helgaður íslenskri tónlist. Tónleikarnir standa yfir á milli 15 og 19 en rímnasmiðjan er á dagskrá á undan. „Þetta þykir vera meiriháttar mál að spila í Central Park. Það er ekkert öllum boðið að spila hérna,“ segir Magnús og nefnir að á svipuðum tíma í sumar spili Sonic Youth, Elvis Costello og The White Stripes í garð- inum. Magnús segir að viðræður hafi staðið yfir við New York-borg í marga mánuði vegna þessa. „En það sem okkur finnst svo skemmtilegt við þetta er það að áhugi borgarinnar er mikill og hefur tónlistarstjóri hátíð- arinnar gríðarlega mikla þekkingu á íslenskri tónlist,“ segir hann. Tónlistarstjórinn, Walter N. Durk- acz, sá um að velja hljómsveitir á tón- leikana, auk þess sem hann hefur áhuga á því að fá hljómsveitir frá Ís- landi á fleiri tónleika í framtíðinni í samstarfi við Iceland Naturally-verk- efnið, útskýrir Magnús, sem er enn- fremur einn forsvarsmanna áður- nefnds verkefnis. Fleiri viðburðir tengdir Íslandi Tónleikarnir eru hluti af atburðum, sem Iceland Naturally er að skipu- leggja í New York í næsta mánuði, en verkefnið er rekið af viðskiptaskrif- stofu utanríkisráðuneytisins og ferða- málaráði Íslands í New York. „Þemað á þessum tónleikum er Ís- land og þess vegna kom upp hug- myndin að hafa íslenskar rímur þarna með,“ segir Magnús og því rúmast bæði nútímatónlist og íslenskar hefð- ir inni í þessu síðdegi í Miðgarði en rímnasmiðjan verður í stóru tjaldi í garðinum. Tónleikarnir verða kynntir undir nafninu „Music from Iceland Nat- urally in Central Park“. „Þetta er náttúrulega gríðarlega mikil kynning fyrir tónlist á Íslandi fyrst og fremst en líka fyrir Ísland. Við erum að nota þessa tónleika með öðrum atburðum, sem við erum að skipuleggja á Íslandi í júní. Við erum með gestakokka hérna á veitingastöðum og ýmislegt fleira.“ Þrjár íslenskar hljómsveitir spila á sumartónleikum í Central Park Ísland í Miðgarði Orgelkvartettinn Apparat er á meðal þeirra íslensku sveita sem spila á tón- leikum í Central Park í New York í sumar. TENGLAR ..................................................... www.icelandnaturally.com ingarun@mbl.is KJÓSIÐ X-MEN Í DAG Miðasölur opnar frá kl 13.30 15.000 manns á 10 dögum Gagnrýnendur eru sammála: "X2 er æsispennandi,... frá fyrstu mínútu til þeirrar síðustu, æsileg skemmtun fyrir alla " "X-Men 2 er mynd með boðskap, brellur og brjálaðan hasar.." "Fyrsta stóra hasarmynd sumarsins og gæti hæglega endað sem ein sú besta" "Ævintýraleg skemmtun" "Tvöfalt húrra" Fréttablaðið  DV  Kvikmyndir.com MBL Kvikmyndir.is HUGSAÐU STÓRT EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS kl. 1.40, 3.45, 5.50, 8 og 10.10. 400 kr Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 14. Miðasala opnar kl. 13.30 kl. 3, 6 og 9. Sýnd kl. 2, 4 og 6. ísl. tal. 400 kr. Sýnd kl. 2, 5, 8 og 10.40. B.i. 12 Kvikmyndir.is Sýnd kl 2 og 4. B.i. 12 Ertu nokkuð myrkfælinn? Búðu þig undir að öskra. Mögnuð hrollvekja sem fór beint á toppinn í Bandaríkjunum. Sýnd kl. 6, 8 og 10. B.i. 16. KJÓSIÐ X-MEN UM HELGINA  HK DV SV MBL  Kvikmyndir.com "Tvöfalt húrra" Frétta- blaðið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.