Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 62
UMRÆÐAN 62 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ EINU sinni bjuggu höfðingjar á eyju norður í höfum. Þeir þóttust ráða yfir henni og að eyjan réði ekk- ert yfir þeim svo þess vegna heyrðu þeir aldrei í eyjunni. Það var líka fólk í landinu sem þeir réðu yfir og fólkið réð ekkert yfir þeim svo þeir heyrðu aldr- ei í fólkinu. Höfðingjarnir hugsuðu mest um hver réði yfir hinum og töpuðu loks eyjunni til kóngs í útlöndum. Þeir heyrðu ekkert um það og settust við eldinn til að segja sögu hver af öðr- um. Til þess hjuggu þeir skóginn því þeir réðu yfir skóginum og skóg- urinn réð ekkert yfir þeim. Þess vegna heyrðu þeir aldrei í skóginum. Þeir réðu yfir hafinu og sögðu að hafið réði ekkert yfir þeim og þess vegna heyrðu þeir aldrei í hafinu. Svo réðu þeir yfir öræfunum og öræfin réðu ekkert yfir þeim svo þeir heyrðu aldrei í öræfunum. Og þeir réðu yfir heyrninni í sér og heyrnin ekkert yfir þeim svo þeir heyrðu aldrei í sjálfum sér. En héldu áfram að segja söguna og réðu svo yfir sögunni að þeir heyrðu aldrei í sögunni. Þannig gat sagan aldrei sagt þeim neitt. Og þess vegna heyrðu þeir ekki þegar fólkið setti konu í söguna. Hefurðu heyrt söguna? Eftir Elísabetu Jökulsdóttur Höfundur er rithöfundur. ÞAÐ má ekki verða niðurstaða al- þingiskosninganna að Halldór Ás- grímsson og Jónína Bjartmarz nái ekki öruggri kosn- ingu sem þingmenn Reykvíkinga á Al- þingi. Því miður er það svo, að þrátt fyr- ir að Framsókn- arflokkurinn hafi sótt í sig veðrið í skoðanakönnunum undanfarna daga getur það enn ekki talist öruggt að Jónína og Halldór nái öruggri kosn- ingu. Reykvíkingar þekkja störf þess- ara öflugu stjórnmálamanna í þágu þjóðarinnar undanfarin ár. Jónína hefur komið öflug inn í forystusveit flokksins og reynst öflugur tals- maður, ekki síst í velferðarmálum, heilbrigðismálum, jafnréttismálum, menntamálum og málefnum fjöl- skyldunnar. Halldór Ásgrímsson þekkir ís- lenska þjóðin mætavel af löngu og farsælu starfi í þágu lands og þjóðar. Það væri stórslys í íslenskum stjórn- málum ef reykvískum kjósendum yrði það á að hafna þessum öfluga, skynsama og hófsama leiðtoga Framsóknarflokksins í kosning- unum í dag. Leggjumst öll á eitt, Reykvíkingar, til að tryggja Hall- dóri og Jónínu trausta kosningu í Reykjavík. xB. Við þurfum á Halldóri að halda Eftir Jóhannes Bárðarson Höfundur er gullsmiður og bankamaður og varaborg- arfulltrúi R-listans. KOSNINGAR til Alþingis eru í dag. Mikill undirbúningur er við- hafður hjá stjórnmálaflokkunum og gert út á ágæti flokkanna hvað varð- ar stefnu eða per- sónur. Ég hef verið að velta því fyrir mér hversu lágt og á óskammfeilinn hátt fulltrúar stjórn- arandstöðuflokkanna ráðast að for- ystu Sjálfstæðis- og Framsókn- arflokksins í kosningabaráttunni. Þrátt fyrir að tölur og staðreyndir segi fyrir um hagvöxt og góðæri í af- komu ríkissjóðs reyna talsmenn stjórnarandstöðunnar að lesa þetta allt á nótum svartnættis. Stöð- ugleiki, skuldalækkanir ríkissjóðs og vegabætur eru þægindi sem allir landsmenn koma til með að njóta í nútíð og framtíð. Farsæl og samhent ríkisstjórn hefur augljóslega ríkt hér síðustu kjörtímabil. Ekki entist fyrrverandi borg- arstjóri til að bíða eftir að svipaðar aðstæður næðust hjá borgarsjóði. Ingibjörg Sólrún sá sig knúna til að breyta til og gerast baráttumann- eskja fyrir því að fella farsæla rík- isstjórn. Engin kraftaverk eru sýnileg í út- spilum Samfylkingarinnar en þeim mun meira lagt upp úr því að vekja athygli á forsætisráðherraefninu og þeim óhefðbundnu baráttuaðferðum sem hún viðhefur. Aðferðirnar byggjast á persónulegum árásum á forsætisráðherra og reynt er af öll- um mætti að vega að heiðri hans. Þegar allt bendir til að Reykjavík- urborg hlaði upp skuldum öll síðustu árin á sama tíma og ríkissjóður greiðir niður skuldir verkar áróður borgarstjórans fyrrverandi og Sam- fylkingarinnar ekki sannfærandi. Þolir þetta fólk ekki sólskin það sem komið er inn í þjóðlífið og blasir við hvert sem auga lítur? Það hefur aldrei þótt gáfulegt í okkar þjóðfélagi að segja upp vönum og aflasælum skipstjóra til að ráða í staðinn reynslulausa og ósamhenta áhöfn. Við Íslendingar vitum hvað við höfum varðandi stjórn landsins og teflum því ekki stöðu okkar í tvísýnu til að hleypa glundroðanum að. Vitum hvað við höfum Eftir Árna Helgason Höfundur er fv. fréttaritari Morgunblaðsins í Stykkishólmi. FORSÆTISRÁÐHERRA Davíð Oddsson telur að hann sé hundeltur af pólitískum andstæðingum sínum með ómálefnalegum málflutningi. Þessi þrautarganga ráð- herrans á rætur að rekja til hans eigin umræðna um menn og málefni í sam- félaginu. Hægt er að tína til tugi tilvika þar sem ráðherra notar valdastöðu sína til að ráðast að tilefnalausu á fyrirtæki, embætt- ismenn, dómstóla, rithöfunda, Mæðrastyrksnefnd, fréttamenn, Samkeppnisstofun o.fl. Það verður að gera þær kröfur til ráðherrans að hann komi skoðunum sínum á framfæri með rökvísi og á skilvirkan hátt og sýni samborgurum sínum fulla virðingu, kurteisi og heil- indi. Það er mjög alvarlegt mál að ráðherra skuli sniðganga þessi mannlegu gildi en velja þess í stað að hamast á fólki sem hefur andstæðar skoðanir og vilja ekki lúta hans forsjá eða eru honum þóknanlegir. Það er þekkt að vald spillir mönnum og því fylgir yfirgangur og hroki. Það mikla vald sem Davíð hefur sem for- maður stærsta stjórnmálaflokks landsins og sem forsætisráðherra í áratug gefur honum víðtækt vald og aðstöðu til íhlutunar á mörgum veigamiklum málaflokkum í þjóð- félaginu. Það forustuhlutverk verður hann að umgangast við þjóð sína af virðingu. Því miður hefur hann eink- anlega á síðari árum farið að beita valdhroka og yfirgangi, sem þjóðin hefur tekið eftir. Forsætisráð- herraefni Samfylkingarinnar, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, hefur mál- efnalega gagnrýnt forsætisráðherra fyrir framgöngu hans að beita áhrifa- mætti sínum til að deila og drottna, umbuna og refsa, eins og hún orðaði það í sinni landsfrægu Borgar- nesræðu. Forsætisráðherra og skjól- stæðingar hans væla og kvarta um skítkast þegar framkoma hans er til umræðu fyrir þessar kosningar og að andstæðingar hans séu að koma sér undan málefnalegum umræðum um landsmálin. Forsætisráðherra getur engum öðrum en sjálfum sér um kennt að hann lenti í farvegi þessara um- ræðna, hann gaf tilefnið og er höf- undur þeirra, það er slæmt að vera fjötraður af sinni eigin fyrirmynd, hún eru ekki tilviljunum háð, heldur hans eigið val. Ingibjörg Sólrún er þekkt fyrir málefnalegan málflutning og rökvísi og hún er fundvís á illgresi sem þarf að rífa upp og hreinsa. Sú miskunn- arlausa rógsherferð ósanninda íhaldsins og reyndar Framsókn- arflokksins líka gegn Ingibjörgu Sól- rúnu mun hitta þá verst fyrir sem hæst láta. Því hástemmdari sem þeir Davíð og Halldór verða í ósanninda- vaðlinum um Ingibjörgu, því hærra verður fall þeirra á kosningadag. Sigur Samfylkingarinnar er sigur þjóðarinnar. Sjálfsvirðing forsætisráðherra Eftir Kristján Pétursson Höfundur er fv. deildarstjóri. mbl.isFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.