Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 10.05.2003, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ NORSKIR fjölmiðlar telja síld- arstríð í uppsiglingu milli Íslands og Noregs í kjölfar yfirlýsinga Davíðs Oddssonar, forsætisráð- herra, og Árna M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra, þess efnis að Ísland telji sér fyllilega heim- ilt að veiða síld innan vernd- arsvæðisins við Svalbarða. Og jafnframt að Íslendingar myndu fara með málið til fyrir al- þjóðlega dómstóla myndu Norð- menn koma í veg fyrir veiðar okkar þar. Talsmaður norska utanrík- isráðuneytisins, Karsten Kleps- vík, sagði í gær í samtali við norska Ríkisútvarpið, að norsk stjórnvöld óski þess að fá við- ræður um nýjan síldveiðisamning sem allra fyrst, en það sé enginn vafi á yfirráðum Norðmanna yfir verndarsvæðinu umhverfis Sval- barða. Einhliða kvóti Íslendingar og Norðmenn náðu ekki samkomulagi um nýtingu síldarstofnsins, enda fólu tillögur Norðmanna í sér verulega aukn- ingu hlutdeildar þeirra á okkar kostnað. Því gaf sjávarútvegs- ráðherra út aflakvóta til ís- lenzkra fiskiskipa í samræmi við ráðleggingar Alþjóða hafrann- sóknaráðsins í lok síðustu viku. Ráðherrann sagði þá að Íslend- ingar hefðu rétt til að veiða á al- þjóðlega hafsvæðinu milli lög- sagna Íslands, Noregs og Færeyja, Síldarsmugunni svoköll- uðu, innan lögsögu Færeyja og við Svalbarða. Afstaðan ítrekuð Davíð Oddsson, forsætisráð- herra, ítrekaði þessa afstöðu Ís- lendinga á fundi með erlendum fréttamönnum nú í vikunni. Því er svo slegið upp í norskum fjöl- miðlum að síldarstríð sé að hefj- ast milli þjóðanna og það fullyrt að fyrst að ekki hafi náðst sam- komulag um síldveiðarnar megi Íslendingar ekki veiða síld á verndarsvæðinu við Svalbarða. Norsk stjórnvöld hafa ekkert tjáð sig um málið í fjölmiðlum og hafa engar athugasemdir gert við ís- lenzk stjórnvöld, eftir að þau gáfu einhliða út síldarkvóta til ís- lenzkra fiskiskipa. Norsk lög gilda ekki Verndarsvæðið svokallaða við Svalbarða heyrir í raun ekki und- ir norska lögsögu og norsk lög gilda ekki innan 200 mílna lög- sögu Svalbarða. Þar gildir þess í stað samningur sem þær þjóðir sem mestra hagsmuna hafa þar átt að gæta komu sér saman um fyrir fjölda ára. Markmið fisk- verndunar á svæðinu er að vernda ungfisk, en uppeld- isstöðvar margra mikilvægra fiskitegunda eru við Svalbarða. Engu að síður eru leyfðar veiðar á svæðinu í töluverðum mæli. Norska ríkisútvarpið, NRK, hefur það eftir prófessor Geir Ulfstein, sem er fremsti sérfræð- ingu Noregs í fiskveiðiréttindum, að norsk stjórnvöld geti ekki meinað Íslendingum að veiða síld á verndarsvæðinu. Norskir útgerðarmenn eru á öðru máli. Telja hugsanlegar veiðar Íslendinga á verndarsvæð- inu ólöglegar og hvetja norsk stjórnvöld til að láta hart mæta hörðu. NRK hefur það eftir for- manni samtaka sjávarútvegsins á Sunnmöre og Romsdal, að ekki sé nokkur leið að sætta sig við síld- veiðar Íslendinga á verndarsvæð- inu. Hann vill ekki að norsk stjórnvöld gefi eftir í málinu og að íslenzk skip sem veiði á svæð- inu verði tekin og færð til hafnar. Dagblaðið Nordlys í Tromsö hefur eftir Auðun Maraak, for- manni útvegsmannafélags Nor- egs, að landhelgisgæzlan verði að taka þau skip sem stundi ólögleg- ar veiðar á verndarvæðinu. Óvissa um yfirráð Á fréttavef NRK kemur meðal annars fram að ekkert land hafi viðurkennt norsk yfirráð yfir verndarsvæðinu og lagaleg staða þess sé mjög óörugg. Fari deila af þessu tagi fyrir alþjóðlega dómstóla eigi Norðmenn það á hættu að missa stjórn á nýtingu fiskistofna umhverfis Svalbarða. Þess vegna hafi Noregur forðast deilur um verndarsvæðið til að hvetja ekki til þess að þær lendi hjá dómstólum. Maraak er ósam- mála þessari afstöðu og segir í samtali við NRK: „Nú verða Norðmenn að vera harðari og ekki láta undan hót- unum Íslendinga. Íslendingar hafa alltaf verið með hótanir til að ná sem mestum árangri í fisk- veiðum. Það gerðu þeir þegar þeir sóttu sér þorskveiðiheimildir í Barentshafið. Það er komið að því að Noregur segi stopp.“ Þegar Íslendingar fóru að sækja í þorskveiðar í Smugunni í Barentshafi á fyrrihluta síðasta áratugar var unnin lögfræðileg álitsgerð um það hvort okkur væri heimilt að stunda þorsk- veiðar við Svalbarða. Nið- urstaðan varð sú að svo væri ekki, enda hefðum við ekki slíka veiðireynslu á svæðinu. Í fullum rétti „Hvað síldina varðar gengir öðru máli,“ segir Árni M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra. „Þar er um að ræða síldarstofn sem er undir veiðistjórn og við búum yfir veiðireynslu á svæðinu. Norðmenn geta ekki mismunað þeim þjóðum sem eru aðilar að sáttmálanum um verndarsvæði með því að banna einni þeirra veiðar. Þeir geta heldur ekki nýtt sér yfirráð sín þar til að byggja upp eigin stöðu og styrkja sig í fiskveiðideilu við aðra þjóð,“ seg- ir Árni. Hann segir ennfremur að ekk- ert hafi heyrzt frá Norðmönnum síðan kvóti til íslenzku síldarskip- anna var gefinn út. „Við göngum út frá rétti okkar til veiða á verndarsvæðinu og munum nýta hann verði þess þörf. Við gerum ekki ráð fyrir því að Norðmenn beiti okkur þar einhverjum órétti, en geri þeir það munum við ganga eins langt og þörf kref- ur til að fá réttlætinu fullnægt.“ Norðmenn vilja ræða nýjan síldarsamning                                                  !"  # $ %&         /   $   #  0/ # '      Fremsti sérfræð- ingur Noregs í fiskveiðiréttind- um segir Norð- menn ekki geta meinað Íslend- ingum síldveiðar við Svalbarða DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra, og Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, leggja mikið upp úr því að ná samningum við Norðmenn um síldveiðar við Svalbarða. Í norskum fjölmiðlum kemur fram að Davíð Oddsson sé að æsa til síldarstríðs en hann segir það ekki rétt í samtali við Morgunblaðið. „Við reyndum og teygðum okkur langt til þess að ná samningum, en kröfur Norðmanna og Evrópu- sambandsins voru með öllu óásættanlegar og ekki þannig að við gætum við þær unað,“ segir Davíð og bætir við að íslensk stjórnvöld séu tilbúin að taka eigin ákvarðanir í þessu máli séu þau beitt órétti. Sanngirni mikilvæg Davíð Oddsson segir að Norðmenn hafi ekki rétt til þess að segja Íslendingum fyrir verkum í þessu efni. Um sé að ræða ákveðið vernd- arsvæði en ekki fiskveiðistjórnunarsvæði þeirra og þeir taki sér vald sem þeir hafi ekki. „Við höf- um mjög lærðar vísindagreinar fyrir okkur í því að þeir séu að helga sér rétt sem þeir hafa ekki,“ segir Davíð. Forsætisráðherra segir að vilji sé til þess hjá Íslendingum að ná samningum, „en þeir verða að byggjast á sanngirni af beggja hálfu“, segir hann og áréttar að Halldór Ásgrímsson, utan- ríkisráðherra, og Árni M. Mathiesen, sjáv- arútvegsráðherra, hafi beitt sér mjög til að ná sáttum um samninga. „Við sóttum á þá um samninga. Okkar embættismenn margtóku málið upp, en það virtist ekki vera neinn vilji hjá norskum yfirvöldum að ganga til samninga.“ Uppnám alvörumál Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, seg- ist alltaf hafa lagt á það áherslu að ná nið- urstöðu með samningum. „Þegar ég kom í rík- isstjórn 1995 var Smugan í uppnámi og síldarmálið var í uppnámi. Við náðum samn- ingum um Smuguna, við náðum samningum um síldina, við náðum samningum um línuna milli Færeyja og Íslands og milli Grænlands og Ís- lands og ég tel það vera mikið alvörumál ef við missum samskiptin við Noreg í uppnám á nýjan leik. Ég hef rætt þetta mál alloft við utanrík- isráðherra Noregs og ég trúi því að það muni takast að leysa þetta mál með samningum. Ég er þeirrar skoðunar að ef það gerist ekki sé mik- illi vinnu kastað fyrir borð. Það tók okkur lang- an tíma að ná niðurstöðu í þessum málum og Norðmenn og við gerum okkur góða grein fyrir því að það yrði miklu fórnað ef þessi mál fara í uppnám. Það er hins vegar ljóst að kosninga- baráttan hér á Íslandi hefur orðið til þess að við höfum ekki haft þann tíma í utanríkisþjónust- unni sem við hefðum gjarnan viljað hafa til að sinna þessu máli, en það er eitt af þeim verk- efnum sem blasa við að loknum kosningum að verði mikið forgangsmál. Samskiptin við Noreg annars vegar og samskiptin við Bandaríkin hins vegar eru málefni sem ný ríkisstjórn þarf að hafa í forgangi.“ Spurning um pólitíska lausn Aðalatriðið er að réttindi skipanna á svæðinu séu virt, að sögn utanríkisráðherra. Úrskurður Alþjóðadómstólsins í þessu máli taki langan tíma og það sé engin lausn á bráðum vanda. „Ég trúi því að Norðmenn muni virða okkar rétt á Svalbarðasvæðinu, en aðalatriðið er að menn nái samningum um þessi mál og á það þarf að leggja höfuðáherslu,“ segir Halldór. „Ég trúi því ekki að Norðmenn vilji að þessi mál fari í uppnám. Ég vil það ekki heldur. Þetta er ekki spurning um hvað útvegsmenn vilja í þessu máli heldur er þetta spurningin um pólitíska lausn. Þegar Smugudeilan var leyst var það pólitísk lausn sem var umdeild í Noregi og umdeild á Ís- landi. Þegar síldarmálið var leyst var það póli- tísk lausn sem var umdeild í Noregi og ekki síð- ur á Íslandi. Sú lausn var gagnrýnd, bæði af útvegsmönnum hér og ekki síst af stjórnarand- stöðunni. Nú þykir sú lausn hafa verið af- skaplega góð, bæði af útvegsmönnum á Íslandi og stjórnarandstöðunni, og það sýnir af- skaplega vel hvað pólitískar lausnir eru mik- ilvægar og að menn nái niðurstöðu eftir bestu vitund.“ Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson um síldveiðar við Svalbarða Mikilvægt að ná samn- ingum við Norðmenn FORMENN stjórnarandstöðuflokkanna á Al-þingi segjast styðja aðgerðir ríkisstjórn-arinnar ef í hart fari gagnvart Norðmönnum vegna síldveiða við Svalbarða. Formenn Sam- fylkingarinnar og Frjálslynda flokksins segja að íslensk stjórnvöld hafi átt að vera búin að útkljá málið fyrr. Guðjón A. Kristjánsson, formaður Frjáls- lynda flokksins, segist vera fyllilega sammála Davíð Oddssyni, forsætisráðherra, um að Ís- lendingum sé heimilt að veiða síld við Sval- barða. Svo geti þó farið að reyna þurfi á það fyrir dómstólum. „Ég tel okkur hafa rétt á að veiða innan Svalbarðalögsögunnar. Hefðin er þó þannig seinni árin að við höfum ekki verið að veiða þarna nema samkvæmt samningum við Norð- menn. Við höfum hins vegar aldrei viðurkennt að Norðmenn réðu lögsögunni við Svalbarða og ég held að hið sama megi segja um Rússa. Norðmönnum er trúandi til að fara í stríð við okkur þó að Rússar hafi ekki viðurkennt lög- sögu þeirra norsku og komist upp með það,“ segir Guðjón. Hann telur að íslensk stjórnvöld hafi átt að láta reyna á þennan veiðirétt fyrr. Þá væri samningsstaðan betri í dag. Illa hafi gengið að ná samningum við Norðmenn og líklega séu þjóðirnar of líkar til að ná saman. „Svo getur farið að átök verði á milli þjóð- anna og þá er ekkert annað í stöðunni en að fá úr þessu skorið með dómi,“ segir Guðjón. „Óþolandi ef Norðmenn ætla að beita valdi“ Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylk- ingarinnar, segist jafnframt vera sammála Davíð Oddssyni í þessu máli. Norðmenn hafi ekki fullveldi yfir Svalbarða þó að þeir hafi með margvíslegum hætti reynt að sölsa svæðið undir sig, allt frá því að þeim var falinn Sval- barði til sérstakrar varðveislu í tengslum við Versalasamninginn í lok fyrri heimsstyrjald- arinnar. Öll aðildarríki þess samnings hafi rétt til að athafna sig á svæðinu. „Við Íslendingar erum aðilar að Svalbarða- samningnum og höfum þess vegna fullan rétt til að athafna okkur þarna. Það er algjörlega óþolandi og fráleitt ef að Norðmenn hyggjast beita ofbeldi til að taka íslensk skip sem eru þarna á síldveiðum, fullkomlega löglegum að mínu mati. Sá kvóti sem Íslendingar hafa tekið sér einhliða, 110 þúsund tonn, er fjarri því að vera ósanngjarn. Því má aldrei gleyma að þótt Norðmenn haldi hinu gagnstæða fram voru það ekki Íslendingar sem að drápu norsk- íslenska stofninn með veiðum á fullorðinni síld, heldur Norðmenn með gegndarlausri rán- yrkju á ungsíld í norskum fjörðum. Þetta hafa meira að segja norskir vísindamenn fallist á í dag. Þess vegna var ég alltaf mótfallinn þeim samningum sem gerðir voru, við fengum of lít- inn skerf og núverandi stjórnvöld sýndu lin- kind í málinu. Því gleður það mig að rík- isstjórnin hafi loksins tekið á sig rögg og ákveðið að sýna Norðmönnum fulla hörku. Ég styð íslensku ríkisstjórnina fullkomlega ef hún grípur til þess ráðs að kæra Norðmenn til Al- þjóða dómstólsins í Haag, ef þeir gerast svo ósvífnir að reyna að beita valdi gagnvart ís- lenskum síldveiðiskipum. Ég efast þó um að þeir leggi í það. Yfirráð þeirra eru ákaflega vafasöm. Þarna er um að ræða tilraun Norð- manna til landvinninga og við eigum hvergi að hopa undan þeim,“ segir Össur. „Allt í lagi að ýta við þeim“ Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, segir að Norðmenn hafi sett fram óaðgengilega kosti með því að stórlækka hlutdeild Íslendinga í nýtingu síldarstofnsins. Því sé rétt af íslensk- um stjórnvöldum að gefa út einhliða kvóta og láta reyna á rétt sinn. „Við eigum okkar rétt til veiða í Jan Mayen- lögsögunni samkvæmt samkomulagi frá árinu 1976. Þegar kemur svo að verndarsvæðinu við Svalbarða höfum við aldrei skrifað upp á það að Norðmenn hafi þar rétt til 200 mílna lög- sögu. Það er óútkljáð þjóðréttarlegt deilumál og hefur aldrei farið fyrir dómstól. Oft bar þetta á góma varðandi Smugudeiluna og ég geri ráð fyrir að Davíð Oddsson sé að vísa til þess. Mér finnst allt í lagi að ýta við Norð- mönnum í þeim efnum, líkt og gert var á dög- um Smugudeilunnar. Það er eðlilegt að við fáum sanngjarna hlutdeild við nýtingu þessara auðlinda,“ segir Steingrímur. Stjórnarandstaðan styð- ur aðgerðir stjórnvalda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.