Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 59
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 59
FULL ástæða er til að vekja at-
hygli á hinum veigamiklu umbótum
sem ríkisstjórn Davíðs Oddssonar
hefur beitt sér fyrir
til að jafna stöðu
kynjanna, en um
síðustu áramót var
stigið lokaskrefið til
að jafna rétt mæðra
og feðra til fæðing-
arorlofs þannig að
karlar hafa nú jafnan rétt til fæð-
ingarorlofs og konur.
Frá og með 1. janúar 2003 eiga
foreldrar rétt á 9 mánaða fæðing-
arorlofi. Mæður og feður fá sjálf-
stæðan rétt til þriggja mánaða fæð-
ingarorlofs hvor; að auki fá
foreldrar sameiginlegan rétt til
þriggja mánaða orlofs sem þau
geta skipt á milli sín að vild. Megin
markmið þessara laga er að
tryggja barninu samvistir bæði við
föður og móður og gera foreldrum
kleift að samræma fjölskyldu- og
atvinnulíf.
Mikið vatn hefur
runnið til sjávar
Í mínum huga er þessi ákvörðun
ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar
einn merkasti áfangi sem náðst
hefur í jafnréttismálum um langt
árabil. Þegar ég horfi til baka þá
rifjast upp fyrir mér atvinnuviðtal
sem ég fór í fyrir tæpum tíu árum.
Þá hafði ég nýlokið háskólaprófi,
full af orku og tilbúin til að takast
á við krefjandi verkefni. Í lok við-
talsins var ég spurð þeirrar spurn-
ingar hvort ég ætlaði nokkuð að
eignast fleiri börn á næstu árum.
Mér var að sjálfsögðu brugðið og
trúði varla mínum eigin eyrum að
þessi spurning hefði verið borin
upp, enda nýkomin frá Ameríku
þar sem spurningar að þessu tagi í
atvinnuviðtali varða við lög. Sem
betur fer hefur mikið vatn runnið
til sjávar og mikilvæg viðhorfs-
breyting átt sér stað á vinnumark-
aði; atvinnurekendur geta ekki
lengur litið á karlmenn sem örugg-
ari starfskraft en konur, bæði kyn-
in geta horfið af vinnumarkaði um
tíma til töku fæðingarorlofs.
Erum ekki komin á endastöð
Því er ekki að neita að jafnrétt-
isbaráttunni er alls ekki lokið. Mik-
ilvægir sigrar hafa áunnist en þó
nokkuð er eftir. Þrátt fyrir ára-
langa baráttu er það staðreynd að
konur njóta almennt ekki sömu
launa og karlar fyrir sömu vinnu.
Stefna Sjálfstæðisflokksins er að
eyða allri mismunun á milli kynja
og fyrirbyggja það mögulega ójafn-
rétti sem skapast. Breyta þarf við-
horfum og hugsanagangi. Auka
þarf áhrif kvenna í atvinnulífinu,
bæði hjá hinu opinbera og á al-
mennum markaði. Það er mik-
ilvægt að fyrirtæki vinni enn frekar
að jafnréttismálum og að samræm-
ingu fjölskyldu- og atvinnulífs. Það
mun stuðla enn frekar að jafnari
stöðu kynjanna.
Árangur í jafn-
réttismálum
Eftir Auði Björk Guðmundsdóttur
Höfundur hefur starfað með Sjálf-
stæðum konum og er í 10. sæti á
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins í Reykjavíkurkjördæmi suður.
KOSNINGAVAKA Í
HEITT Á KÖNNUNNI
Velkomin í kosningakaffi í öllum kosningaskrifstofum
Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Suðvesturkjördæmi frá kl. 10 – 22
Þar verður hægt að fá upplýsingar um kjördeildir og kjörstaði
og panta akstur á kjörstað.
Kosningaskrifstofan í Bæjarlind 12, Kópavogi
símar 555 6990 / 555 6991
Kosningaskrifstofan Fjarðargötu 11, Hafnarfirði
símar 544 4530
Kosningaskrifstofan í Háholti 14, Mosfellsbæ, 2. hæð
símar 555 6990 / 555 6991
IÐNÓ
Í kvöld fjölmennum við á sameiginlega kosningavöku VG
í Reykjavík og Suðvesturkjördæmi í Iðnó.
Húsið verður opnað klukkan 21:00.
Magga Stína og Hringir halda uppi stuðinu.
Góða skemmtun!
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.