Morgunblaðið - 10.05.2003, Page 60
UMRÆÐAN
60 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MÁLSTAÐUR er ekkert án
leiðtoga. Því ástandi má líkja
við velbúið skip, albúið til sjó-
sóknar, en skipstjórinn við
stjórnvöllin er hvergi. Hversu
mörg skip sækja sjóinn ein-
göngu með liðsheild en stjórn-
andann í brúna vantar? Jafn-
aðarmenn hafa málstað frelsis,
jafnréttis og samvinnu í nest-
ispokanum inn í nýja framtíð.
Leiðtoginn er baráttukona sem
hefur stýrt liðsheild Reykjavík-
urborgar, sem er stærsta „fyr-
irtæki“ landsins og gert góða
borg betri. Gerum gott Ísland
enn betra fyrir fólkið sjálft.
Samfylktu með jafnaðarmönn-
um, hvar sem þú ert, á sunnu-
dag getur þú sagt: já, ég átti
þátt í breytingunni! Með stuðn-
ingi ykkar um allt land getum
við fært landið inn í öld nýrra
tíma og tækifæra. Saman ráða
atkvæði okkar úrslitum, tæki-
færið er núna! Þess vegna styð
ég Ingibjörgu Sólrúnu til að
vera fremsta meðal jafningja.
Vertu með!
Pálmi Pálmason
Tækifærið
er núna!
Höfundur er jafnaðarmaður og
starfar sem markaðsstjóri.
EINN dag á fjögurra ára fresti ert
þú, ég og öll hin sem náð höfum til-
skildum aldri spurð um það hverjir
skuli sitja Alþingi Ís-
lendinga – við erum
spurð aðeins þennan
eina dag. Nú nálgast
þessi „fjögurra ára
dagur“, að vísu við
gjörbreytta, ólánlega
kjördæmaskipan,
þar sem hið nána persónulega sam-
band, sem gat verið milli þingmanna
og kjósenda, hverfur vegna stærðar
hinna nýju kjördæma.
Margt hefur einkennt yfirstand-
andi kosningabaráttu og nefni ég að-
eins fjögur atriði.
1) Samfylkingin vill koma hér á
tveggja flokka kerfi og segir að
kosið sé á milli sín og Sjálf-
stæðisflokksins og það rétt eins
og engir séu í framboði nema
Ingibjörg Sólrún og Davíð
Oddsson. Slíkt tveggja flokka
kerfi leiddi af sér pólitískt lit-
leysi, þar sem ótrúlega litlu
mundi skipta hvor þessara
tveggja flokka stýrði rík-
isstjórn hverju sinni.
2) Sjávarútvegsmálin hafa verið
mjög í umræðunni. Engin sátt
verður um núverandi fisk-
veiðistjórnunarkerfi sem nauð-
syn er að breyta, en það verður
vandasamt að vinda ofan af því.
Verði óbreytt ríkisstjórn að
loknum kosningum verður lítið
hróflað við því kerfi.
3) Mikla undrun vekur loforða-
flaumur, bæði stjórnar og
stjórnarandstöðu, einmitt núna
rétt fyrir kosningarnar. Nú á
að lækka ýmsa skatta, bora
jarðgöng, byggja hallir og fara
í vegaframkvæmdir. Nefndu
það bara. Það hlálega við þetta
er, að þetta minnir á hasafengið
bögglauppboð, þar sem ein-
hverjir spjátrungar með fullar
hendur fjár eru í glenshita að
keppast um hver getur boðið
hærra. (Ég hélt að sumir
stjórnmálamenn væru ábyrgari
en svo, að þeir tækju þátt í
svona „hringdansi“).
4) Mest áberandi eru sjónvarps-
auglýsingar sem eru hannaðar
af sérfræðingum auglýs-
ingastofanna. Þar er leiðbeint
um hvað skuli segja, um klæðn-
að, snyrtingu, raddhreim og
fas. Svo birtast frambjóðend-
urnir á skjánum, sællegir eins
og guðlegar verur, með silki-
hreim í röddinni og silfurbros.
Þetta er sama fólkið og stund-
um hefur sést með yggldan
svip og öfuga skeifu á vör.
Kostnaðurinn við þetta, auk
annarra fjölmiðlaauglýsinga og
útgáfu bæklinga er svo gíf-
urlegur að bakhjarlarnir eru
ekki neinir venjulegir „bisness-
menn“. Hverjir greiða kostn-
aðinn? Kannske hinn almenni
neytandi að lokum í formi vöru-
verðs eða þjónustugjalda. Hvað
um „sægreifana“? Hætt er við
að viðkomandi stjórn-
málaflokkar telji sig skuld-
bundna þeim er láta fjárfúlg-
urnar af hendi rakna. Máttur
þessara auglýsinga er mikill, en
þar sitja ekki öll framboðin við
sama borð, því sum þeirra
hljóta ekki náð fyrir augum
auðmagnsins. Eru íslensk
stjórnmál að þróast út í það, að
þeir einir geti farið í framboð
sem hljóta fjárframlög mjög
sterkra fésýsluafla líkt og sum-
staðar erlendis? Ef svo er, þá
er lýðræðið á Íslandi í hættu.
Viðbrögð okkar ættu því að
vera: Kjósum alls ekki fram-
boðin sem mest auglýsa.
Sumir flokkarnir tóku viss mál út
af dagskrá, eftir að skoðanakannanir
sýndu lítinn stuðning við viðkomandi
mál. Þannig fór fyrir umræðunni um
inngöngu Íslands í Evrópusam-
bandið (skammstafað ES). Þetta er
ekki pólitík heldur hentistefna en
slíkt vill henda þá flokka sem „hasla
sér völl“ á miðju stjórnmálanna.
Yrðu það örlög Íslands að ganga
inn í ES, þá er það ekkert hugs-
anlega, heldur alveg borðleggjandi,
að þjóðin glataði fullveldi sínu og
yrði – er fram liðu stundir – einskis
spurð/ hefði ekkert að segja um
ákvarðanir í eigin málefnum. Við
yrðum áhrifalaust útkjálkahérað
sem stjórnað yrði frá Brussel. Til
hvers var þá verið að berjast fyrir
því að losna undan Dönum og stofna
lýðveldi 1944, ef nú á að „varpa full-
veldinu fyrir róða“?
Eini stjórnmálaflokkurinn sem
lýst hefur því yfir að ganga beri til
viðræðna við ES um inngöngu, er
Samfylkingin. Enginn fer til slíkra
viðræðna með annað lokatakmark en
það að hljóta inngöngu. Það er því
líkast sem Samfylkingin hafi erft það
frá Alþýðuflokknum að ganga flokka
lengst í svikráðum við fullveldi þjóð-
arinnar, enda „dró sá flokkur lapp-
irnar“ í aðdraganda lýðveldisstofn-
unar 1944. Formaður
Framsóknarflokksins lýsti því yfir í
vetur að aðildarviðræður gætu kom-
ið til greina. Það er í samræmi við
starfshætti þess flokks „að vera op-
inn í báða enda“ og opna nú þannig á
væntanlegt samstarf við Samfylk-
inguna, ef ríkisstjórnin félli.
Látum vera þótt flokkar sýni
hentistefnu og hringl varðandi sum
innlend dægurmál, en það er glæp-
samlegt að vilja fórna fullveldinu,
sem er fjöregg þjóðarinnar, fyrir
(hugsanlega) einhverja efnahagslega
stundarhagsmuni. Slíkir stjórn-
málamenn eru þjóðníðingar og land-
ráðamenn sem heiðvirt fólk á að
hafna. Kjósum því hvorki Framsókn
né Samfylkingu. Í þessum kosn-
ingum er áhrifaríkast að kjósa þá
sem ákveðnastir eru í því að vernda
fullveldi lands og þjóðar. Kjósum því
Vinstri-græna. Þeirra rödd verður
að heyrast á komandi þingi.
Fjármál flokk-
anna og fullveldi
þjóðarinnar
Eftir Gunnar Guðmundsson
Höfundur er fv. skólastjóri og var
lengi gæslumaður í Veiðivötnum.
ÞEGAR Alþýðubandalagið,
Kvennalistinn og Alþýðuflokkurinn
hættu starfsemi og Samfylkingin var
stofnuð, þá var það
gert á þeim for-
sendum að þar myndi
fólk úr öllum flokk-
unum starfa saman á
jafnréttisgrundvelli.
Framboðslistar
Samfylkingarinnar í
Reykjavík segja meira en mörg orð
um hvernig okkur jafnaðarmönnum
hefur reitt af í flokknum. Þegar litið
er yfir pólitískan bakgrunn sex efstu
manna Samfylkingarinnar, það er að
segja væntanlegra þingmanna og
varaþingmanna í höfuðborginni, sést
að þar hafa frambjóðendur verið sótt-
ir í alla aðra flokka en Alþýðuflokk-
inn. Í Reykjavík norður er enginn
frambjóðandi sem á rætur sínar í Al-
þýðuflokknum. Þrír koma úr Alþýðu-
bandalaginu, tveir úr Kvennalistanum
og einn úr Sjálfstæðisflokknum. Í
Reykjavíkurkjördæmi suður á aðeins
einn frambjóðandi rætur í Alþýðu-
flokknum, Jóhanna Sigurðardóttir,
sem reyndar sýndi flokknum ekki
meiri hollustu en svo að hún klauf
hann eftir að hafa beðið þar lægri hlut
í formannskjöri. Jóhanna er fulltrúi
Þjóðvaka í Samfylkingunni, en ekki
Alþýðuflokksins og þó að hún hafi í
áranna rás barist fyrir mörgum góð-
um málum er greinilegt að henni er
nú haldið utan við alla ákvarðanatöku
í Samfylkingunni og hún aðeins sýnd
rétt fyrir kosningar til að veiða at-
kvæði ákveðinna hópa. Í Samfylking-
unni á annað fólk að erfa landið.
Framboðslistar Samfylkingarinnar í
Reykjavík sýna að hvorki Alþýðu-
flokksmenn né hugsjónir þeirra eiga
upp á pallborðið hjá Samfylkingarfor-
ystunni. Á meðan engum jafn-
aðarmanni er treyst til að vera of-
arlega á lista Samfylkingarinnar, eru
þar hins vegar þrír gamlir ritstjórar
Þjóðviljans! Eins og staðan er nú,
stendur Sjálfstæðisflokkurinn miklu
nær hugsjónum frjálslyndra jafn-
aðarmanna en Samfylkingin. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur í senn eflt vel-
ferðarkerfið og tryggt öflugt
atvinnulíf, hvort tveggja brýn bar-
áttumál okkar jafnaðarmanna. Í þess-
um málum er Sjálfstæðisflokkurinn
einfaldlega orðinn miklu trúverðugri
en þeir sem nú ráða Samfylkingunni.
Jafnaðarmenn, nú stöndum við
með hugsjónum okkar og styðjum
Sjálfstæðisflokkinn. Við eigum engan
annan kost.
Samfylkingin
hafnar krötum
Eftir Huldu Kristinsdóttur
Höfundur er krati.
ÞAÐ hefur verið athyglisvert að fylgjast með umræðunni um
skattamál í aðdraganda kosninganna. Stjórnarflokkarnir riðu á vað-
ið með hugmyndir sínar að skattalækkunum og flestir aðrir flokkar
hafa fylgt í kjölfarið á einn eða annan hátt. Mér hefur
þótt merkilegt að hlýða á fulltrúa Samfylkingar og
Vinstri-grænna. Þar hafa frambjóðendur stigið fram
hver á fætur öðrum og lýst því yfir með hinni sér-
stöku blöndu af þótta og hneykslun sem ávallt hefur
einkennt uppdráttarsjúka vinstrimenn að tillögur
stjórnarflokkanna séu ekki réttlátar. Þeir halda því
fram að það sé ekki réttlátt að lækka hátekjuskattinn
sem lagður hefur verið sérstaklega á þær fjölskyldur
sem hafa meðalháar eða háar tekjur.
Helstu rökin eru þau að þeir sem hafi hærri tekjur eigi að greiða
ekki bara hærri heldur hlutfallslega hærri skatt en samborgararnir.
Ávallt er dregin upp sú mynd að hér sé um að ræða einhverja ofur-
milljónamæringa sem viti ekki aura sinna tal og muni þar af leið-
andi ekkert um að borga meira til samfélagsins. Vissulega eru slíkir
til en þeir eru því miður alltof fáir. Staðreyndin er hinsvegar sú að í
mjög mörgum tilfellum er hér um að ræða venjulegt launafólk þar
sem báðir aðilar eru langskólagengnir og vinna fulla vinnu. Þetta
fólk er að koma sér upp húsnæði og eignast börn. Auk þess kostn-
aðar sem því fylgir þá er þetta fólk að greiða sem nemur einum
nettó mánaðarlaunum hvort í afborganir af námslánum. Vinstri-
mönnum finnst sjálfsagt að leggja sérstakt gjald á þetta fólk í formi
ofurskatta. Ekki má gleyma því að persónuafslátturinn einn sér ger-
ir það að verkum að skattprósentan fer hækkandi með hækkandi
launum.
Furðulegt viðhorf virðist einkenna sýn Samfylkingarinnar á
skattamál og tekjur ríkisins. Kristján Möller frambjóðandi Samfylk-
ingarinnar lét hafa eftir sér í Silfri Egils að stjórnarflokkarnir væru
að reyna kaupa kjósendur til fylgilags við sig með fjármunum rík-
isins. Ábúðarfullur á svip hneykslaðist hann á þessari ósvinnu. Hér
endurspeglast það viðhorf sem algengt er á meðal Samfylking-
arinnar að í raun séu allar tekjur eign ríkisins sem svo af náð sinni
leyfir skattborgurunum að halda eftir hæfilegum vasapeningum.
Hér hefur hlutunum verið snúið gersamlega við. Auðvitað eru tekjur
einstaklinganna þeirra eigin og skattarnir framlag þeirra til sam-
neyslunnar. Ef ríkið vill auka álögur á einstaklingana og þannig
taka til sín stærri hluta ráðstöfunartekna þeirra þá verða að vera
fyrir því sterk rök.
Ef ríkinu hefur verið vel stjórnað og árferði gott þannig að mynd-
arlegur afgangur myndast í ríkissjóði þá ber ríkinu að lækka skatta
á þegnana. Í það minnsta þegar árangurinn er langvinnur. Enginn
efast um að stjórnmálamenn geta fundið sér ótal gæluverkefni til
þess að eyða umfram skatttekjum en það er ekki það sem er efst í
huga þeirra sem í dag greiða hátekjuskatt.
Við höfum einnig séð að stjórnmálamenn hika ekki við að hækka
skatta ef þeir eyða um efni fram. Þessu til staðfestingar nægir að
líta til borgarstjóratíðar Ingibjargar Sólrúnar sem hefur stór-
hækkað álögur á borgarbúa.
Tillögur sjálfstæðismanna í skattamálum eru bæði réttlátar og
sanngjarnar. Þær lækka skatta á alla þjóðfélagshópa og refsa ekki
því launafólki sem oft á tíðum leggur á sig mikla vinnu til þess að
mæta útgjaldasamasta tímabili ævinnar.
Ég hvet landsmenn til þess að kjósa Sjálfstæðisflokkinn í þessum
kosningum þannig að unnt verði að halda áfram á sömu braut. Við
skulum ekki gleyma því að vinstristjórnir hafa aldrei lækkað skatta
og eru ekki líklegar til þess í framtíðinni. Kristján Möller hefur af-
hjúpað forsjárhyggju Samfylkingarinnar í skattamálum.
Áfram Ísland!
Af sköttum og réttlæti
Eftir Arnar Þórisson
Höfundur er viðskiptafræðingur og MBA.
KOSNINGAR snúast sem betur
fer aðallega um málefni og í kosn-
ingabaráttunni sem nú stendur yfir
hefur lítil áhersla
verið lögð á alþjóða-
mál. Kunningi minn
benti á að það væri
vegna þess að flestir
væru í raun sammála
um málaflokkinn, þ.e.
að enginn reg-
inmunur væri á stefnu flokkanna
varðandi veruna í NATO (utan
Vinstri grænna) og umræðan um
stöðu Íslands gagnvart Evrópu væri
mismunandi en vel þekkt.
Mig langar hins vegar að gera af-
stöðu íslenskra stjórnmálaflokka til
Sameinuðu þjóðanna að umfjöllunar-
efni. Vegna þess að hún virðist langt
frá því að vera ljós eða þekkt. Rík-
isstjórnin með Sjálfstæðisflokkinn í
broddi fylkingar og Framsókn-
arflokkinn í rassvasanum skipaði sér í
sveit með Bandaríkjunum varðandi
innrásina í Írak fyrr á árinu, án nokk-
urs samráðs við okkur íbúa þessa
lands. Um leið má líta svo á að stjórn-
arflokkarnir hafi tekið þátt í því að
veikja stöðu Sameinuðu þjóðanna á
alþjóðlegum vettvangi án þess að um
það hafi farið fram nokkur umræða
hér á landi.
Ljóst er að stjórnvöld í Bandaríkj-
unum hafa lengi séð ofsjónum yfir
umsvifum og umfangi Sameinuðu
þjóðanna og að þau hafa beitt þær
beinum og óbeinum þvingunum með
því t.d. að greiða ekki tilskilin fjár-
framlög til starfseminnar. Clinton var
sagður hafa klórað í bakkann en árið
2001 skulduðu þau sem svaraði tæp-
lega þriggja ára framlagi. En með því
er einungis hálf sagan sögð því
stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa látið
í veðri vaka við þjóðir Rómönsku Am-
eríku, sem margar hverjar eru mjög
háðar fjárhagsfyrirgreiðslu frá
norðrinu, að það sé ekki forgangsmál
að standa skil á greiðslum til Samein-
uðu þjóðanna, aðrar efnahags-
skuldbindingar hafi þar forgang.
Staða Íslands sem smáþjóðar í
samfélagi þjóðanna og samskipti við
umheiminn er mikilvægur þáttur í
starfsemi Alþingis og sýn flokkanna
til framtíðar á að vera öllum ljós. Því
vil ég benda á að Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, þingkona og fulltrúi Sam-
fylkingarinnar í utanríkismálanefnd
þingsins, hefur á undanförnum árum
talað máli Samfylkingarinnar og lagt
áherslu á mikilvægi þess að Samein-
uðu þjóðirnar séu bæði stórar og
sterkar. Þær eru sá vettvangur sem
allar þjóðir hafa til að koma málum
sínum á framfæri og það tæki sem
hugsað er til að tryggja réttláta máls-
meðferð alþjóðlegra mála, hvort held-
ur eru alvarleg ágreiningsmál eða
hversdagslegri úrlausnarmál.
Ísland í samfélagi
þjóðanna!
Eftir Hólmfríði Garðarsdóttur
Höfundur er háskólakennari og fram-
bjóðandi Samfylkingarinnar í Reykjavík.
VERKSTJÓRI efnahags-
mála okkar, Davíð Oddsson,
boðar stöðugleika í fjár-
málum. Þess njóta helst þeir
sem eiga undir högg að sækja,
aldrað fólk og öryrkjar. Við-
skiptahalli er lítill, verðbólga
er lág, hagvöxtur er þannig að
við fáum meira fyrir laun okk-
ar nú en fyrr. Skuldir við út-
lönd eru að hverfa.
Stöðugleiki hefur jákvæð
áhrif á heilsufar þjóðar.
Óðaverðbólga fyrri stjórna
er nokkuð sem aðeins eldra
fólk man eftir.
Þess vegna styð ég Davíð.
Jón Gunnar
Hannesson
Stöðugleiki
Höfundur er læknir.
mbl.is
STJÖRNUSPÁ