Morgunblaðið - 10.05.2003, Síða 65
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 65
✝ Hafsteinn Tómas-son fæddist í Haf-
steini á Stokkseyri 1.
nóvember 1960. Hann
lést á krabbameins-
deild Landspítalans
við Hringbraut 3. maí
síðastliðinn. Foreldr-
ar Hafsteins eru
Bjarnfríður Símonar-
dóttir húsmóðir, f. 26.
desember 1921, og
Tómas Karlsson, út-
gerðarmaður og skip-
stjóri, f. 20. nóvember
1923. Systkin Haf-
steins eru: 1) Viktor
Símon f. 10. ág. 1948, kvæntur Ás-
rúnu Sólveigu Ásgeirsdóttur, þau
eiga fjögur börn. Þau eru búsett á
Stokkseyri. 2) Karl Magnús, f. 28.
des. 1952, kvæntur Önnu Sigríði
Hafsteinn slitu samvistum. 2)
Fóstursonur Hafsteins, Ingiberg-
ur Friðrik Kristinsson, f. 1. jan.
1977, d. 24. mars 2002. Móðir
hans Sóley Margrét Ármannsdótt-
ir, sambýliskona Hafsteins, f. 3.
júní 1957. Börn Hafsteins og Sól-
eyjar eru 3) Fjóla Karen, f. 14.
mars 1988, og 4) Tómas Ármann,
f. 30. júní 1994. Hafsteinn og Sól-
ey slitu samvistum síðastliðinn
vetur.
Hafsteinn ólst upp á Stokkseyri
og gegndi síðan ýmsum störfum,
þó var sjómennska hans aðalstarf.
Hann reri ýmist frá Stokkseyri,
Þorlákshöfn,Vestmannaeyjum,
Reykjavík eða Grindavík. Þess ut-
an vann hann t.d. hjá Vita- og
hafnamálum við bryggjusmíði,
hjá RARIK við línuvinnu, hjól-
barðaverkstæðinu Barðanum, hjá
Vörumerkingu í Hafnarfirði og
nú síðast vann hann við pípulagn-
ir hjá Braga Benediktssyni.
Útför Hafsteins verður gerð frá
Stokkseyrarkirkju í dag og hefst
athöfnin klukkan 13.30.
Pálsdóttur, þau eiga
fjögur börn. Þau eru
búsett í Garðabæ. 3)
Kristín, f. 29. nóv.
1954, gift Guðsteini
Frosta Hermunds-
syni, þau eiga fjögur
börn. Þau eru búsett
í Villingaholts-
hreppi. 4) Símon
Ingvar, f. 11. jan.
1959, kvæntur Þór-
dísi Sólmundsdóttur.
Þau eru búsett á Sel-
fossi. Símon á fjögur
börn frá fyrri sam-
búð og hjónabandi
en Þórdís tvö frá fyrri sambúð.
Börn Hafsteins eru fjögur: 1)
Stefán Ágúst, f. 23. nóv. 1981.
Móðir hans, Alda Agnes Sveins-
dóttir er búsett í Reykjavík. Þau
Hann Hafsteinn mágur minn er
látinn, eftir stutt en erfið veikindi.
Ég man vel þegar við Hafsteinn hitt-
umst fyrst þegar við Kalli byrjuðum
að vera saman. Ljúfur 12 ára hnokki
sem varð strax vinur minn. Hann
var sífellt í kringum okkur Kalla og
ekki fækkaði samverustundunum
þegar Eygló dóttir okkar Kalla
fæddist og hann var alltaf tilbúinn að
gæta hennar. Þannig var hann líka
alltaf; brosandi, hvers manns hug-
ljúfi og ætíð tilbúinn að rétta hjálp-
arhönd þegar einhver þurfti með.
Þegar hann fór svo að vinna í
Reykjavík bjó hann á tímabili hjá
okkur, bæði á Háaleitisbrautinni og í
Garðabænum, og var alveg eins og
einn af fjölskyldunni og hjá börn-
unum var hann alltaf í miklu uppá-
haldi.
Hann fór svo sjálfur að búa og
eignast börn en ekki minnkaði sam-
bandið mikið við það. Hann var oft
hjá okkur með Stefán Ágúst og þeg-
ar hann og Sóley fóru að búa í
Garðabænum léku Tómas og Ingi
sér saman og Fjóla Karen og Vikt-
oría hafa verið vinkonur frá upphafi.
Fleira tengdi okkur saman og má
þar helst nefna sameiginlegt áhuga-
mál Hafsteins og Kalla sem var
ferðalög og veiði, aðallega veiði. Þeir
urðu forfallnir flugukallar og fóru
saman á kastnámskeið og fluguhnýt-
inganámskeið, og smituðu hina
bræðurna líka af dellunni, og alltaf
var talað um veiði þegar þeir hittust,
svo ekki var verandi nærri þeim
þegar fjölskyldurnar komu saman.
Hafsteinn greindist með krabba-
mein í nóvember sl. og barðist hetju-
lega við þennan erfiða sjúkdóm.
Hann var alltaf bjartsýnn um að það
tækist og taldi annað óhugsandi.
Jafnvel þegar illa gekk gat hann
ekki stillt sig um að segja brandara
eða spauga á eigin kostnað. Útlitið
var gott um tíma en að lokum varð
hann þó að lúta í lægra haldi.
Elskulegs drengs er sárt saknað,
ég og fjölskylda mín kveðjum hann
með miklum og djúpum trega og
sendum Sóleyju, börnum hans og
öllum ástvinum innilegustu samúð-
arkveðjur.
Anna.
HAFSTEINN
TÓMASSON
Elsku afi.
Núna ertu kominn á
betri stað og líður ef-
laust miklu betur.
Þú tókst alltaf svo
vel á móti okkur þegar við komum í
heimsókn og áttir alltaf Macintosh
handa okkur. Þú varst líka duglegur
í að kynna okkur fyrir ýmsum stór-
furðulegum mat eins og t.d. áli, há-
meri, nautatungu og ýmsu fleiru.
Okkur finnst gott að vita af þér
þarna uppi og við vitum að þú átt eft-
ir að vaka yfir okkur og passa okkur.
KJARTAN
FRIÐBJARNARSON
✝ Kjartan Frið-bjarnarson
fæddist í Siglufirði
23. nóvember 1919.
Hann lést á St. Jós-
efsspítala í Hafnar-
firði 29. apríl síðast-
liðinn og var útför
hans gerð frá Foss-
vogskirkju 8. maí.
Okkur hrakfallabálkun-
um veitir ekki af smáað-
stoð að ofan. Takk fyrir
allt.
Hin langa þraut er liðin,
nú loksins hlauztu friðinn,
og allt er orðið rótt,
nú sæll er sigur unninn,
og sólin björt upp runnin
á bak við dimma dauðans nótt.
(Valdimar Briem.)
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(Valdimar Briem.)
Elsku amma Alida og aðrir ætt-
ingjar, við sendum okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Barnabörnin
Erna Björg, Bjarki og
Alida Ósk.
Í morgun sastu hér
undir meiði sólarinnar
og hlustaðir á fuglana
hátt uppí geislunum
minn gamli vinur
en veist nú í kvöld
hvernig vegirnir enda
hvernig orðin nema staðar
og stjörnurnar slokkna
(Hannes Pétursson.)
Nú er stundaglas Óla frænda míns
ÓLAFUR
BJARNASON
✝ Ólafur Bjarnasonfæddist á Patreks-
firði 29. september
1963. Hann lést á líkn-
ardeild Landspítalans
í Kópavogi laugardag-
inn 3. maí síðastliðinn
og var útför hans gerð
frá Patreksfjarðar-
kirkju 9. maí.
tæmt. Nú veit hann
hvar vegirnir enda og
stjörnurnar slokkna.
Fuglarnir sem hann
hlustaði á munu halda
áfram að vera til undir
geislum sólarinnar líkt
og minning hans. Á
kveðjustund verður
eftir mynd í huga þess
sem þekkti þann sem
kvaddur er. Ósérhlíf-
inn, hófsamur og hug-
rakkur kom Óli mér
fyrir sjónir, þrátt fyrir
erfiðan sjúkdóm var
hann staðráðinn í því að gefast ekki
strax. upp. Óspar var Óli á falleg orð
þegar hann lýsti þakklæti sínu fyrir
það sem gert var fyrir hann. Ævin er
hraðfleygar mínútur, klukkustundir,
dagar og ár. Á þessum stundum gef-
ast okkur hin mörgu verkefni og gull-
in tækifæri. Verkefni Óla um ævina
voru mörg, en lífstarf hans tengdist
þó fyrst og fremst sjómennsku líkt og
margra annarra sem búa við sjávar-
síðuna og gullnu stundirnar í lífi Óla
frænda míns hafa efalaust verið þeg-
ar drengirnir hans, Kristinn og Frið-
rik, fæddust. Gullfallegir og myndar-
legir drengir sem bera föður sínum
gott vitni.
Æðruleysi og dugnað sýndi Óli síð-
ustu stundir lífs síns. Hann virtist
gera sér grein fyrir því að hverju
stefndi. Hann vissi að sumarlandið
biði hans.
Kveðjuorð Friðriks til föður síns
hafa komið oft upp í huga mér síðustu
dagana þegar hann sagði við dánar-
beð hans: ,,Nú líður þér vel. Ég veit að
það hefur verið tekið vel á móti þér.“
Undir þessi orð tek ég. Eilífa ljósið
hefur lýst upp veg þinn, kæri frændi,
og opnað faðm sinn á móti þér.
Ég kveð þig fallegi frændi minn og
hafðu þökk fyrir það sem þú gafst
mér.
Mínar dýpstu samúðarkveðjur til
allrar fjölskyldu Óla og ættingja.
Fjóla frænka.
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda-
móðir, systir og amma,
KOLBRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR,
Gullsmára 9,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi föstudaginn
9. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Viggó M. Sigurðsson,
Guðmundur Björnsson, Ósk Hilmarsdóttir,
Egill Viggósson, Guðrún Guðmundsdóttir,
Jóhanna Lovísa Viggósdóttir, Þorsteinn Barðason,
Sigurður Viðar Viggósson,
Auður Guðmundsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför elskulegrar fóstur-
móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
MÍNERVU KRISTINSDÓTTUR,
Hraunbúðum,
Vestmannaeyjum.
Sérstakar þakkir til starfsfólks Hraunbúða og
Sjúkrahúss Vestmannaeyja fyrir kærleiksríka
umönnun.
Sigríður Mínerva Jensdóttir, Kristinn Skæringur Baldvinsson,
Sigurjón Kristinsson,
Þórir Kristinsson, Auður Hermannsdóttir,
Baldvin Kristinsson, Áslaug Þórdís Gissurardóttir
og langömmubörn.
Okkar ástkæra móðir og tengdamóðir, amma
og langamma,
ÓLÖF GUÐRÚN GUÐBJÖRNSDÓTTIR
frá Straumi, Skógarströnd,
síðast til heimilis
í Skólatúni 4,
Bessastaðahreppi,
lést á St. Jósefsspítala fimmtudaginn 8. maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Guðmundur Sverrisson, Ásta Grímsdóttir,
Ólafur Sverrisson, Ósk Jóhannesdóttir,
Hulda Sverrisdóttir, Egill Tyrfingsson,
Þórdís Sverrisdóttir, Einar Jakobsson,
Bjarnfríður Sverrisdóttir, Snorri Þorgeirsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR SÓLEY SVEINSDÓTTIR
frá Þykkvabæjarklaustri,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð mið-
vikudaginn 7. maí.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Viðar Karlsson, Adda Ingvarsdóttir,
Svanhildur Karlsdóttir,
Hrafnhildur Karlsdóttir, Ómar Guðmundsson,
Guðmundur Karlsson, Sigrún K. Sigurjónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir,
afi, bróðir, mágur og frændi,
GUNNAR KRISTINN ALFREÐSSON
Eyrarholti 4,
Hafnarfirði,
andaðist á Landspítalanum við Hringbraut
fimmtudaginn 8 maí.
Jarðarförin auglýst síðar.
Sigrún Sigurðardóttir,
Guðrún Magnea Gunnarsdóttir, Gunnar Sigurðsson,
Bára Dís Guðjónsdóttir,
Bjarki Dagur Guðjónsson,
Friðgeir Már Alfreðsson,
Friðjón Alfreðsson, Margrét Jónsdóttir
og frændfólk.
www.solsteinar.is sími 564 4566
Legsteinar
í Lundi
við Nýbýlaveg, Kópavogi
Sérfræðingar
í blómaskreytingum
við öll tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 551 9090.