Morgunblaðið - 10.05.2003, Side 72
FRÉTTIR
72 LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
NÁTTÚRUVERNDARSAMTÖK
Íslands gagnrýna að umhverfisráð-
herra skuli ekki hafa kveðið upp úr-
skurð vegna kæru samtakanna á út-
gefið starfsleyfi Umhverfisstofnunar
vegna álvers Alcoa í Reyðarfirði.
Telja samtökin að ráðherra sé þar
með að brjóta eigin reglugerð. Krafa
samtakanna var að í starfsleyfi
skyldi gert ráð fyrir vothreinsibún-
aði. Ráðuneytisstjóri í umhverfis-
ráðuneytinu segir það hafa misfarist
að tilkynna samtökunum um töf á úr-
skurðinum þar sem ráðherra hafi
ákveðið að nýta sér allt að átta vikna
afgreiðslutíma.
Náttúruverndarsamtökin kærðu
útgáfu starfsleyfisins 28. mars og
segja að samkvæmt reglugerð, sem
umhverfisráðherra hafi á sínum tíma
gefið út, hafi ráðherra borið að kveða
upp úrskurð vegna kærunnar í síð-
asta lagi hinn 25. apríl sl.
Krafa samtakanna er að í starfs-
leyfi skyldi gert ráð fyrir vothreinsi-
búnaði. Segja samtökin að staðfesti
umhverfisráðherra útgefið starfs-
leyfi megi ætla að það leiði til þess að
losun brennisteinsdíoxíðs út í and-
rúmsloftið verði 12 sinnum meiri en
Alþjóðabankinn telur að ný álver
komist af með að losa.
„Samkvæmt gr. 33.4 í reglugerð
um starfsleyfi átti umhverfisráð-
herra að kveða upp úrskurð vegna
kærunnar í síðasta lagi hinn 25. apríl
sl. Í umfangsmiklum málum er ráð-
herra þó heimilt að taka sér lengri
frest en þá skal hann tilkynna hlut-
aðeigandi um töf á afgreiðslunni.
Ráðherra hefur enn ekki kveðið upp
úrskurð sinn og hefur heldur ekki til-
kynnt Náttúruverndarsamtökunum
um tafir á afgreiðslu málsins,“ segir í
tilkynningu frá samtökunum.
Magnús Jóhannesson, ráðuneytis-
stjóri í umhverfisráðuneytinu, segir
það rétt hjá Náttúruverndarsamtök-
unum að almennt séð hafi ráðherra
átt að hafa kveðið upp úrskurð innan
fjögurra vikna. Það hafi hins vegar
legið fyrir frá upphafi að um veiga-
mikið mál sé að ræða og því hafi ráð-
herra ákveðið að nýta sér tíma, sam-
kvæmt reglugerð, í allt að átta vikur
til að skila úrskurði. Því miður hafi
það farist fyrir í ráðuneytinu að til-
kynna kæranda um þá ákvörðun.
Magnús segir að það verði gert nú
þegar og úrskurðar ráðherra sé að
vænta um eða upp úr 20. maí næst-
komandi.
Náttúruverndarsamtök Íslands telja ráðherra brjóta eigin reglugerð
Misfórst að
tilkynna um
töf á úrskurði
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar,
TF-LÍF fór þrjú sjúkraflug á
Reykjaneshrygg á einni viku, í ís-
lenskan, þýskan og norskan tog-
ara sem þar voru á úthafskarfa-
veiðum.
Á fimmtudagskvöld var skip-
verji sem hafði slasast alvarlega
á hendi sóttur um borð í Þerney
RE. Togarinn hafði verið á veið-
um við 200 sjómílna mörkin en
sigldi til móts við þyrluna eftir
slysið. Fokker-flugvél Landhelg-
isgæslunnar, TF-SYN fylgdi þyrl-
unni í öryggisskyni, að sögn
Dagmar Sigurðardóttur, upplýs-
ingafulltrúa gæslunnar. Flugvélin
fylgir ekki alltaf þyrlunni heldur
er hvert tilvik metið hverju sinni.
Ákvörðunin nú byggðist m.a. á
því að veður var óhagstætt vegna
skýjafars. Um borð í TF-SYN er
björgunarbúnaður sem hægt er
kasta út.
Samkvæmt upplýsingum frá
Landhelgisgæslunni voru þrettán
af 63 skipum sem voru á veiðum
á Reykjaneshrygg í gær frá ríkj-
um sem eru ekki aðilar að Norð-
austur-Atlantshafsfiskveiðinefnd-
inni (NEAFC) og stunda því
ólöglegar veiðar. Fimm skip eru
frá Litháen, eitt frá Lettlandi,
fimm frá Dóminíska lýðveldinu
og tvö frá Belíse. Einnig voru tvö
erlend olíuskip á svæðinu. Tíu ís-
lensk skip voru að veiðum rétt
innan við íslensku lögsögumörkin
og hluti af erlendu skipunum
„dansaði“ á línunni.
Þrjú sjúkraflug á einni viku
63 skip að
veiðum á Reykja-
neshrygg
ALLIR flokkar styðja eða taka já-
kvætt í stofnun þjóðgarðs norðan
Vatnajökuls sem taki til alls vatna-
sviðs Jökulsár á Fjöllum að því er
kemur fram í svörum stjórnmála-
flokkanna við spurningum Náttúru-
verndarsamtaka Íslands um um-
hverfis- og náttúruverndarmál.
„Á næsta kjörtímabili má vænta
að tekist verði á um framtíðarnýt-
ingu hálendisins enda hefur tals-
maður Landsvirkjunar nýlega lýst
því yfir að ástæða þess að Ísland
vilji laða til sín álfyrirtæki sé sú að
orka væri stærsta vannýtta auðlind
landsins. Ósjaldan er orkuna að
finna á svæðum sem hafa mikið
náttúruverndargildi,“ segir í til-
kynningu Náttúruverndarsamtaka
Íslands.
Þá segjast allir flokkar styðja
rammaáætlun um virkjanakosti á
hálendi Íslands, „en þó hefur ekk-
ert tillit verið tekið til þeirra nið-
urstaðna sem þegar liggja fyrir við
ákvörðun um virkjanaframkvæmd-
ir. Niðurstöður verða ekki kynntar
fyrr en í júní í sumar en stefnt var
að ljúka fyrsta áfanga rammaáætl-
unarinnar fyrir lok 2002.“
Þjóðgarður norðan
Vatnajökuls
Allir flokk-
ar eru
jákvæðir
SIGRÚN Reynisdóttir, formaður
Samtaka gegn fátækt, segir að
Björk Vilhelmsdóttir, formaður fé-
lagsmálaráðs Reykjavíkurborgar,
fari með rangt mál, þegar hún segi
að Félagsþjónustan vísi fólki ekki
til góðgerðarstofnana. „Félagsmála-
yfirvöld hafa gert þetta í mörg ár,“
segir Sigrún.
„Mér finnst það alveg fráleitt og
að auki rangt að halda því fram að
Félagsþjónustan í Reykjavík sé að
vísa fólki á góðgerðarstofnanir,“
sagði Björk á fundi á dögunum.
Sigrún segir að þegar viðmiðun-
armörkin voru skorin niður fyrir
nokkrum árum hafi staðan versnað.
Þau séu ekki nema um 67 þúsund
krónur og þurfi fólk á einhverju að
halda sé því hreinlega neitað um að-
stoð. „Því er bara, mörgu hverju,
bent á að leita til hjálparstofnana,“
segir Sigrún.
Að sögn Sigrúnar er mikið hringt
til Samtaka gegn fátækt. Fólk
kvarti vegna þess að það hafi ekki
fengið hjálp hjá félagsþjónustunni
og því sárni þegar því sé beint til
hjálparstofnana. „Ég vil að fé-
lagsþjónustan standi sig í því sem
henni ber skylda til. Auðvitað veit
ég að fátæktin er orðin stórt og
mikið vandamál og ég veit að þetta
er þeim erfitt en sem afl þarf þjón-
ustan að gera meira en hún gerir.
Það gengur ekki að fólki sé vísað
frá þurfi það til dæmis gleraugu,
leysa út lyf eða að það veikist.“
Formaður Samtaka
gegn fátækt
Félagsþjón-
ustan vísar
á hjálpar-
stofnanir UNNIÐ verður að því að efla
markaðsstarf erlendis fyrir íslensk-
ar ullarafurðir, en skrifað var undir
samkomulag um stuðning við
markaðsátakið í Gamla bænum í
Laufási við Eyjafjörð. Það eru iðn-
aðarráðuneytið, Útflutningsráð Ís-
lands og Fagráð textíliðnaðarins
sem taka þátt í átakinu.
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra sagði að þótt
huga þyrfi að nýsköpun þyrfti einn-
ig að hlúa að hefðbundnum grein-
um, en í núgildandi byggðaáætlun
væri lögð áhersla á að auka þekk-
ingu og nýsköpun í hefðbundnum
greinum.
„Þetta er afar mikilvægt fyrir
sauðfjárbændur sem ekki haft haft
úr miklu að spila og eins mun þetta
markaðsátak vonandi hafa jákvæð
áhrif á ímynd Íslands og ferðaþjón-
ustunnar,“ sagði Valgerður. Bent
er á nauðsyn þess í byggðaáætlun
að stefna stjórnvalda gagnvart at-
vinnugreinum sem eru þýðingar-
miklar á landsbyggðinni, líkt og á
við um landbúnað, dragi ekki úr
nýliðun, frumkvæði og fjárfesting-
um í fámennari byggðarlögum þar
sem fárra annarra atvinnukosta er
völ. Eitt af sóknarfærunum í land-
búnaði tengist útflutningi á íslensk-
um ullarafurðum og er þess vænst
að með endurskipulagðri markaðs-
setningu ullarafurða megi ná um-
talsverðum árangri.
Samkomulag aðilanna þriggja er
byggt á þessum grunni, en það er
til tveggja ára og mun iðnaðarráðu-
neytið leggja fram 8,5 milljónir
króna á þessu ári og því næsta, en
Útflutningsráð hefur umsjón með
fjárhagshlið þess auk þess að und-
irbúa framkvæmda- og kostnaðar-
áætlanir og hafa yfirumsjón með
framvindu þess. Eins mun ráðið
veita þeim sem þátt taka í átakinu
þjónustu á vegum Útflutningsráðs,
s.s. aðstoð við þátttöku á vörusýn-
ingum, val á umboðsmönnum er-
lendis, markaðsfræðslu og ráðgjöf.
Helga Valfells hjá Útflutnings-
ráði sagði mikilvægt að skipuleggja
átakið vel, en greinilegt væri á fjöl-
mörgum fyrirspurnum sem bærust
frá útlöndum um íslenskar ullar-
vörur að áhugi á þeim væri fyrir
hendi.
Guðjón Kristinsson hjá Fagráði
textíliðnaðarins sagði ullariðnað
vissulega hafa átt erfitt uppdráttar,
„en menn sjá sóknarfæri og og við
bindum miklar vonir við að þetta
tveggja ára átak muni skila góðum
árangri,“ sagði Guðjón.
Átak iðnaðarráðuneytis, Útflutningsráðs og Fagráðs textíliðnaðarins
Markaðsátak fyrir íslensk-
ar ullarvörur í útlöndum
Morgunblaðið/Kristján
Guðjón Kristinsson frá Fagráði textíliðnaðarins, Valgerður Sverrisdóttir,
iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og Helga Valfells frá Útflutningsráði Ís-
lands, undirrituðu samninginn í Gamla bænum í Laufási.
Á LIONSÞINGI, sem haldið
var í Hafnarfirði dagana 25.
til 26. apríl, var kjörinn nýr
fjölumdæm-
isstjóri og
tveir um-
dæmisstjór-
ar.
Fjölum-
dæmisstjóri
er Hörður
Sigurjóns-
son, Lions-
klúbbnum
Nirði í Reykjavík.
Hörður Sigurjónsson fædd-
ist í Reykjavík 31. ágúst 1946.
Hann hóf nám í framreiðslu-
iðn á Hótel Sögu 1996 og út-
skrifaðist 1969. Vann sem
framreiðslumaður á Hótel
Sögu til 1980 að undanskild-
um tveimur árum sem hann
var hótelstjóri í Stykkishólmi.
Hann var yfirframreiðslumað-
ur á Broadway 1981 og starf-
aði þar og á Hótel Íslandi til
1990 þegar hann flutti sig í
Veitingahúsið Naust og er nú
markaðsstjóri og veitinga-
stjóri þar. Hörður gekk til liðs
við Lionshreyfinguna 1975,
svæðisstjóri á svæði 1 109 B
1998 til 1999.
Hörður er Melvin Jones-fé-
lagi og hann hlaut nýlega við-
urkenningu frá f.v. alþjóðafor-
seta Lions, Frank Moore,
fyrir vel unnin störf sem um-
dæmisstjóri 109 B 2001-2002.
Eiginkona Harðar er Rann-
veig Ingvarsdóttir.
Umdæmisstjóri 109A er
Þórunn Gestsdóttir, Lions-
klúbbnum Eir, Reykjavík.
Umdæmisstjóri 109 B er Ein-
ar Þórðarson, Lionsklúbbnum
Fjörgyn, Reykjavík.
Nýr fjöl-
umdæmis-
stjóri Lions