Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 79

Morgunblaðið - 10.05.2003, Qupperneq 79
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. MAÍ 2003 79 FÓLK  HELGA Magnúsdóttir verður eftirlitsmaður Handknattleikssam- bands Evrópu á fyrri leik Svíþjóðar og Austurríkis í undankeppni Evr- ópumóts kvenna, en leikurinn fer fram í Stokkhólmi 25. maí.  KJARTAN Steinbach hefur einn- ig verið skipaður eftirlitsmaður í undankeppni EM kvenna. Kjartan fylgist með framkvæmd viðureignar Þjóðverja og Búlgara í Trier 1. júní.  BJÖRGVIN Rúnarsson, hand- knattleiksmaður, leikur ekki með FH á næstu leiktíð. Það varð að samkomulagi milli hans og FH að segja upp tveggja ára samningi sem í gildi var, en hann var gerður í fyrra með ákvæði um að segja mætti honum upp eftir eitt ár. Björgvin segir óráðið hvort og þá hvar hann leiki á næstu leiktíð.  KR-INGAR hafa lánað þrjá knatt- spyrnumenn til 1. deildarliða. Það eru Arnljótur Ástvaldsson, sem fer til Þórs, Grétar Sigurðarson, sem fer til Víkings, og Henning Jón- asson, sem fer til Aftureldingar.  SIGURVIN Ólafsson skoraði þrennu í síðari hálfleik þegar KR vann HK í æfingaleik í Kópavogi í gærkvöld, 5:0. Arnar Gunnlaugs- son og Kristinn Hafliðason skoruðu hin tvö mörkin.  ÞÓRSARAR lögðu Grindvíkinga óvænt í Grindavík, 2:1, með mörk- um frá Alexandre Santos og Orra Frey Hjaltalín. Mark Grindavíkur gerði Ólafur Örn Bjarnason.  JOHN Gregory hefur verið leyst- ur frá störfum knattspyrnustjóra hjá Derby eftir 15 mánuði í brúnni. Gregory hefur verið í leyfi frá störf- um undanfarnar sjö vikur en í gær ákvað stjórn Derby að stíga skrefið til fulls og segja Gregory að taka hatt sinn og staf. Ekki er ljóst hver tekur við starfinu en að undanförnu hefur George Burley stýrt liðinu.  PETER Reid var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Leeds, en hann hefur stýrt liðinu síðustu vikur eftir að hann gerði tímabundinn samning við félagið. Undir stjórn Reids tókst Leeds að forðast fall úr ensku úr- valsdeildinni, en staða liðsins var af- ar veik þegar hann tók við af Terry Venables fyrir skömmu.  QUINTON Fortune hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Manchester United. Fortune hefur aðeins leikið 15 leiki með félaginu á leiktíðinni og er meginástæða þess að hann fótbrotnaði í desember.  KLAUS Toppmöller, fyrrverandi þjálfari Bayer Leverkusen, hefur áhuga á að taka við knattspyrnu- stjórn hjá Fulham en hann mun vera einn átta þjálfara sem forráða- menn Fulham hafa rætt við upp á síðkastið. Louis van Gaal hefur engan áhuga á starfinu að sögn manna sem standa honum nærri.  OLEG Luzhny hefur ekki verið boðinn nýr samningur hjá Arsenal en núverandi samningur hans við félagið rennur út á næstu vikum. Talið er sennilegt að Luzhny gangi til liðs við Charlton. DANSKA knattspyrnufélagið Randers, sem leikur í 1. deild, hefur sýnt áhuga á að fá Pétur Krist- jánsson úr Þór á Akureyri í sínar raðir. Pétur hefur undanfarnar vikur spilað með Vorup í dönsku 3. deildinni en hann er væntanlegur til Akureyrar á næstunni og leikur með Þór í sumar. Pétur lék á dögunum tvo leiki með 21-árs liði Randers og stóð sig vel. „Ég hef mikinn áhuga á að spila í Dan- mörku og með Randers. Ef ekkert verður af samn- ingi, kem ég allavega aftur til Vorup í haust,“ sagði Pétur í samtali við staðarblaðið Randers Amtavis í gær. Hann er tvítugur og hefur spilað með meist- araflokki Þórs frá 17 ára aldri. Hann lék tvo leiki í úrvalsdeildinni í fyrra en var síðan lánaður til Leifturs/Dalvíkur í 1. deild. Randers hefur áhuga á Pétri JIMMY Floyd Hasselbaink, sóknarmaður Chelsea, segir að það sé sér og Eiði Smára Guðjohnsen að kenna að Chelsea skuli ekki vera búið að tryggja sér sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili. Chelsea og Liverpool heyja hreinan úrslitaleik um 4. sætið í ensku úrvalsdeildinni og þar með sæti í Meistaradeildinni, í lokaumferðinni á morgun. Hasselbaink hefur skorað 11 mörk í vetur og Eiður 10. „Hugsið ykkur bara ef við Eiður hefðum átt gott tímabil. Hugsið ykkur hvar við værum þá. Ég hef því miður ekki staðið mig eins vel og áður. Ég hef ekki skorað úr þeim marktækifærum sem ég var áður vanur að nýta,“ sagði Hasselbaink, fé- lagi Eiðs í framlínu Chelsea, við enska blaðið The Sun í gær. „Mér og Eiði að kenna“ GUÐMUNDUR Karlsson, lands- liðsþjálfari frjálsíþrótta, tilkynnir væntanlega á morgun um val á landsliðinu sem tekur þátt í Smá- þjóðaleikunum á Möltu um næstu mánaðamót. Búist er við að um 20 frjálsíþróttamenn taki þátt í leik- unum. Reiknað er með að Guð- mundur upplýsi hverjir verði fyr- ir valinu fljótlega að loknu fyrsta stigamóti FH-inga sem fram fer í á frjálsíþróttavellinum í Kapla- krika í dag og á morgun. Þetta er fyrsta stóra frjálsíþróttamót sum- arsins og jafnframt fyrsta mótið í röð fjögurra sem FH-ingar standa fyrir í sumar, en mótaröðinni, sem kennd er við Coca-Cola, var hleypt af stokkunum í fyrrasum- ar. Þar er keppt í fyrirfram ákveðnum keppnisgreinum og stig veitt fyrir árangur allra þátt- takenda samkvæmt stigatöflu. Árangur þriggja bestu mótanna hjá keppendum og er talinn til stiga og í loka síðasta mótsins fá stigahæstu keppendur vegleg verðlaun. Guðmundur velur Smá- þjóðaleikaliðið Eggert sagði í gær að Atli hefðihaft samband við sig eftir vin- áttulandsleikinn við Finna ytra um miðja síðustu viku og óskað eftir því að láta af störfum. Eftir nokkra umhugsun ákvað Eggert að fallast á ósk Atla. Í sameiginlegri yfirlýsingu frá Atla Eðvaldssyni og KSÍ segir: „Atli Eðvaldsson hefur ákveðið að draga sig í hlé og láta af starfi sínu sem þjálfari A-landsliðs karla. Mikil og neikvæð umræða hefur verið um störf Atla með landsliðið sem í raun hefur haft slæm áhrif á gengi liðsins. Atli dregur sig í hlé í þeirri von að liðinu takist að snúa blaðinu við og fá stuðning þjóð- arinnar í komandi leikjum sem eru gríðarlega mikilvægir fyrir ís- lenska knattspyrnu.“ Engin uppgjöf, en ákvörðun tekin af raunsæi Atli sagði við Morgunblaðið í gær að hann hefði vakið máls á því fljótlega eftir heimkomuna frá Finnlandi í byrjun mánaðarins að hann myndi hætta með liðið. „Mér var strax sýndur fullur skilningur og skil við starfið í fullri sátt við stjórn KSÍ og allt starfsfólk, sem hefur reynst mér frábærlega öll þessi ár sem ég hef starfað fyrir sambandið. Þar hefur aldrei borið skugga á og mun aldrei gera. Auð- vitað er mjög svekkjandi að málin skyldu þróast á þennan veg en ég geng úr þessu starfi sáttur við mína ákvörðun. Þeir sem þekkja mig vita að ég gefst aldrei upp og ég lít ekki á þetta sem uppgjöf af minni hálfu, en ég tel mig hafa tek- ið þessa ákvörðun af raunsæi. Ef leikmenn ná ekki að sýna sitt besta í leikjum er þeim skipt útaf og ef þjálfari nær ekki því besta fram í sínu liði er best að hann víki til hliðar,“ sagði Atli. Skora á þjóðina að styðja við bakið á liðinu Hann sagði að neikvæð umræða um landsliðið og sig hefði átt stór- an þátt í ákvörðun sinni. „Öll um- ræða um liðið hefur að undanförnu snúist alltof mikið um mig og mína persónu. Það var orðið ljóst að liðið fengi aldrei þann stuðning sem það þarf á að halda meðan ég væri við stjórnvölinn. Þetta var því besta lausnin, nú er ég farinn og þá ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að veita leikmönnunum þann stuðning sem þeir eiga skilið. Það eru þýð- ingarmiklir leikir framundan hjá landsliðinu og ég skora á þjóðina að styðja við bakið á því, það getur gert útslagið um að það nái þeim árangri sem allir vonast eftir,“ sagði Atli Eðvaldsson. Atli hefur starfað hjá KSÍ sem þjálfari í tæp átta ár, fyrst í fjögur ár með landslið leikmanna 21 árs og yngri og síðan með A-landsliðið frá nóvember 1999, er hann tók við af Guðjóni Þórðarsyni. Mitt verkefni að auka sjálfs- traust leikmanna á ný Ásgeir Sigurvinsson sagði að auk næstu leikja landsliðsins væri það sitt verkefni að auka sjálfs- traust leikmanna á nýjan leik; fá þá til að öðlast trú á sjálfan sig á nýjan leik. Fyrsti landsleikur Ís- lands undir stjórn Ásgeirs er við- ureign við Færeyinga í undan- keppni Evrópukeppni landsliða á Laugardalsvelli 7. júní. „Það verð- ur krafa að vinna Færeyinga,“ sagði Ásgeir sem telur að nauðsyn- legt sé að fá a.m.k. sjö stig úr næstu þremur leikjum, helst vinna þá alla og fá níu stig, til þess að eiga möguleika að blanda sér í keppni efstu liða í riðlinum. Eftir leikinn við Færeyinga sækir ís- lenska landsliðið Litháen heim hinn 11. júni og því næst sækir það Færeyinga heim 20. ágúst. „Við verðum að leggja allt í sölurnar í þessum leikjum,“ sagði Ásgeir Sig- urvinsson. Ásgeir Sigurvinsson leysir Atla Eðvaldsson af hólmi þar til erlendur þjálfari finnst „Umræðan snerist of mikið um mig og mína persónu“ ATLI Eðvaldsson hætti í gær störfum sem landsliðsþjálfari karla í knattspyrnu eftir að hafa stýrt landsliðinu frá árslokum 1999. Ásgeir Sigurvinsson, landsliðsnefndarmaður og tæknilegur ráðgjafi KSÍ, tekur tímabundið við starfinu og mun hann stýra landsliðinu þar til framtíðarþjálfari verður ráðinn. Eggert Magnússon, formaður KSÍ, sagði að leitað yrði eftir út- lendingi í starfið og hefði sér verið veitt umboð til þess af stjórn KSÍ að leita að erlendum þjálfara í starfið. Myndi hann gefa sér góðan tíma til þeirrar leitar enda að mörgum atriðum að hyggja, ekki síst fjárhags- legum. Ásgeir Sigurvinsson og Atli Eðvaldsson.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.