Morgunblaðið - 17.05.2003, Side 6
FRÉTTIR
6 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Þjónustuverið er opið.
Síminn er 5 500 600
Þjónustuverið er opið virka daga frá 9-17, laugardaga frá 10-16
og sunnudaga frá 11-15. Þú getur einnig skoðað og bókað á IcelandExpress.is
eða komdu á söluskrifstofuna Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga.
Lág fargjöld. Enginn bókunarfyrirvari. Engin lágmarksdvöl og engin hámarksdvöl.
Söluskrifstofa Suðurlandsbraut 24, opið 9-17 virka daga I Sími 5 500 600 I www.IcelandExpress.is
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
BORGARFULLTRÚI Sjálfstæðisflokks var rek-
inn úr ræðustól í miðri ræðu á borgarstjórnarfundi í
fyrradag þegar síðari umræða um ársreikning
Reykjavíkurborgar 2002 fór fram. Sjálfstæðismenn
mótmæltu úrskurði varaforseta borgarstjórnar
harðlega og lögðu fram bókun um atvikið.
Umræðan um ársreikninginn var hálfnuð þegar
Guðrún Ebba Ólafsdóttir kom í ræðustól. Gerði hún
að sérstöku umtalsefni málaflokk innan Fé-
lagsþjónustu Reykjavíkurborgar, sem hún sagði að
hefði haldið sig innan fjárhagsramma 2002. „Ég er
hér að tala um félagsstarf aldraðra. Ég þarf varla
að rifja það upp með borgarfulltrúum, að Reykja-
víkurlistinn ætlaði engu að síður að skera niður fé-
lagsstarf aldraðra og leggja það algjörlega niður í
fimm þjónustumiðstöðvum,“ sagði hún.
Sagði hún að þessu hefði verið harðlega mótmælt
og hefði R-listinn séð að sér og flutt tillögu vegna
fjárhagsáætlunar fyrir árið 2003, þess efnis að
fresta áformum í starfsemi Félagsþjónustunnar.
Las borgarfulltrúinn tillöguna sem hljóðaði upp á
10 milljónir króna til að mæta tillögunni. Sagði hún
að það hefði því komið sér og félögum hennar á
óvart að „niðurskurðurinn væri á fullu“. Skömmu
síðar stöðvaði Steinunn Valdís Óskarsdóttir vara-
forseti málflutninginn og vakti athygli borgar-
fulltrúans á því að til umræðu væri ársreikningur
Reykjavíkurborgar.
Sagðist vera að gera grein
fyrir niðurskurði
Borgarfulltrúinn mótmælti og sagðist hafa verið
að gera grein fyrir niðurskurði á lið sem var tæp 6%
undir fjárhagsáætlun.Varaforseti féllst ekki á þessa
túlkun og bað borgarfulltrúann um að ræða efn-
islega um ársreikninginn ellegar fara úr ræðustól.
Enn mótmælti borgarfulltrúinn og var honum í
kjölfarið vísað úr ræðustól.
Björn Bjarnason, borgarfulltrúi Sjálfstæðis-
flokks, mótmælti úrskurðinum. „Ég tel að þetta sé
ómálefnalegur úrskurður,“ sagði hann. „Hér eru
reikningarnir til umræðu. Hér hefur verið vakið
máls á einum þætti reikninganna og rökstutt hvers
vegna það sé ástæða til að velta fyrir sér fram-
kvæmd mála og ég mótmæli þessum úrskurði for-
seta borgarstjórnar og tel að hann sé með öllu órök-
studdur og sé tilraun til að hefta málfrelsi hér í
borgarstjórninni.“
Varaforseti ítrekaði að ársreikningurinn væri til
umræðu. „Sá borgarfulltrúi sem kom hér upp í
ræðustól áðan var að ræða efnislega atriði sem að
lúta að rekstri Reykjavíkurborgar á þessu ári og
eiga ekkert efnislega skylt við ársreikning Reykja-
víkurborgar fyrir árið 2002 og forseti ítrekar að það
er hann sem hefur vald hér til að stýra fundum og
hlýtur að mótmæla því að hér sé um að ræða skerð-
ingu á málfrelsi.“ Enn gerði Björn Bjarnason at-
hugasemd við fundarsköp og taldi varaforsetann
hafa heft málfrelsi borgarfulltrúans af ótta við það
efni sem hann var að ræða.
Varaforseti benti borgarfulltrúum á 19. gr. í
fundarsköpum Reykjavíkurborgar sem kveður á
um að borgarfulltrúa sé skylt að lúta valdi forseta í
hvívetna er að því lýtur að gætt sé góðrar reglu.
„Forseti lítur svo á að hann sé eingöngu að gæta
hér góðra reglna á fundunum og gæta hér að fund-
arsköpum og gæta að því að menn ræði það sem er
á dagskrá fundarins,“ sagði Steinunn Valdís.
Árni Þór Sigurðsson, forseti borgarstjórnar,
lagði fram bókun síðar á fundinum þar sem úr-
skurður varaforseta var staðfestur og lögðu sjálf-
stæðismenn þá fram bókun og mótmæltu enn.
Umdeilt atvik á borgarstjórnarfundi í fyrradag þegar rætt var um ársreikning
Borgarfulltrúi rekinn úr
ræðustól í miðri ræðu
ÞÝSKA flugfélagið LTU mun annast
vikulegt áætlunarflug á milli Egils-
staða og Düsseldorf í sumar. Að sögn
Víðis Guðmundssonar, sölustjóra hjá
Terra Nova-Sól, umboðsaðila félags-
ins hér á landi, verður sami háttur
hafður á þessu áætlunarflugi í ár og í
fyrra, en þá hófst í fyrsta sinn áætl-
unarflug erlends flugfélags til Egils-
staðaflugvallar.
Ferðum fjölgað um tvær til
Egilsstaða miðað við síðasta ár
Nú hefur verið ákveðið að fjölga
ferðum um tvö flug til Egilsstaða
miðað við seinasta ár. Fyrsta flugið
verður 6. júní og að sögn Víðis mun
áætlunarflugið standa til 12. septem-
ber. Flogið verður á milli Egilsstaða
og Düsseldorf á föstudagskvöldum
og millilendir vélin í Keflavík á leið-
inni út.
„Þetta gengur nokkuð vel. Bókan-
ir ganga ágætlega og betur en í
fyrra. Þarna er bæði um hópa að
ræða og einstaklinga, sem sjá kosti
þess að geta flogið beint inn í Mið-
Evrópu,“ segir Víðir.
Áætlunarflug LTU til Egilsstaða
sem hófst 7. júní á síðasta ári og var
um sameiginlegt verkefni Þróunar-
stofu Austurlands, Terra Nova-Sólar
og Ferðaskrifstofu Austurlands að
ræða, eftir þriggja ára undirbúning.
Flug þýska félagsins LTU milli
Egilsstaða og Düsseldorf í sumar
Flogið vikulega
fram í september
ÓLAFUR Dýrmundsson, ráðunaut-
ur hjá Bændasamtökunum, segir að
nýgert samkomulag milli sveitar-
stjórnar Húnaþings vestra og Vega-
gerðarinnar sýni að fyrst verði að
girða og síðan banna lausagöngu bú-
fjár.
Undirritaður hefur verið samning-
ur milli sveitarstjórnar Húnaþings
vestra og Vegagerðar ríkisins um
friðun þjóðvegar nr. 1 í gegnum
sveitarfélagið ásamt Hvammstanga-
vegi nr. 72 og hluta Miðfjarðarvegar
nr. 704 norðan Laugarbakka.
Vegagerðin girðir nýjar girðingar
þar sem þess er þörf og yfirtekur
þær girðingar sem fyrir eru eigi síð-
ar en 1. mars 2004. Þá verða sett rist-
arhlið á tengivegi sem ekki eru nú
þegar komin með þau. Húnaþing
vestra auglýsir síðan bann við lausa-
göngu búfjár á þessum vegum eigi
síðar en 1. júlí 2004. Með þessum
samningi eru allar girðingar með-
fram áðurnefndum vegum komnar
að fullu í umsjón Vegagerðar ríkisins
og með aðgerðunum verður komið í
veg fyrir lausagöngu búfjár á þjóð-
vegi 1 í gegnum Húnaþing vestra.
Girt frá Kömbum
að Hveragerði
Í Morgunblaðinu í fyrradag var
haft eftir Jónasi Snæbjörnssyni, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar, að
Vegagerðin hefði ekki sett upp girð-
ingu milli Kjalarness og Kjósar
vegna þess að búfjársamþykktin
sem bannar lausagöngu búfjár á
Kjalarnesi væri óstaðfest og benti
hann á lög í því sambandi. Ólafur
Dýrmundsson segir að í viðkomandi
lagagrein segi „enda sé lausaganga
búfjár á viðkomandi vegarkafla
bönnuð“ og ekki komi fram hvort
banna eigi á undan eða eftir girðing-
unni. Raunveruleikinn sé sá að fyrst
verði að uppfylla skilyrði til þess að
hægt sé að koma í veg fyrir lausa-
göngu búfjár, sem gerist með girð-
ingu, og síðan komi bannið. Annars
yrði þetta ábyrgðarlaust, því þá gæti
enginn treyst á neitt og búfjáreig-
andinn væri í slæmri réttarstöðu
vegna þess að það eitt að auglýsa
lausagöngubann gjörbreyti réttar-
stöðu hans. Það verði til þess að hann
geti þurft að greiða tjón sem verði á
bifreið en gengið hafi nokkrir dómar
þar sem menn hafi þurft að greiða
allt að milljón krónur vegna slíks.
Að sögn Svans Bjarnasonar, um-
dæmisstjóra Vegagerðarinnar á Sel-
fossi, hefur verið tekið ákvörðun um
að tengja enda girðingar í Kömbum
við girðingu í Hveragerði. Girðing-
arstæðið verður valið í næstu viku og
síðan verður hafist handa.
Fyrst að
girða og
síðan að
banna
SLÖKKVILIÐSMENN frá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins voru við
vatnsöflunaræfingar á Reykjarvíkurflugvelli í gær en slökkviliðið hefur í
allan vetur haldið úti endurmenntunarnámskeiðum fyrir starfsmenn sína
um hina ýmsu þætti starfsins.
Námskeiðin hafa meðal annars fjallað um neyðarakstur, slökkvi- og
björgunarstarf á Reykjavíkurflugvelli og hættuleg efni auk vatnsöfl-
unarnámskeiða þar sem farið er yfir skipulag vatnsöflunar við slökkvi-
störf.
Morgunblaðið/Júlíus
Slökkviliðið æfir á Reykjavíkurflugvelli