Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 48
MINNINGAR 48 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Lilja Ólafsdóttirfæddist í Vatna- dal í Súgandafirði 27. júlí 1923. Hún lést í Heilbrigðisstofnun Bolungarvíkur 6. maí síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Ólaf- ur Þórarinn Jónsson, sjómaður og bóndi, f. í Reykjafirði í Arnar- firði 10.2. 1881, d. 3.11. 1960, og kona hans Jóna Margrét Guðnadóttir, f. á Kvíanesi við Súg- andafjörð 24.6. 1888, d. 19.11. 1963. Lilja giftist 28. apríl 1951 Krist- jáni Ibsen skipstjóra á Suðureyri við Súgandafjörð, f. 24.4. 1920, d. 2.11. 1963. Kristján og Lilja bjuggu allan sinn búskap á Suður- eyri og eignuðust fjögur börn. Fyrir átti Lilja soninn Ingv- ar Bragason. f. 24.8. 1949. Börn Kristjáns og Lilju eru Lovísa Rannveig, f. 17.1. 1951, Erna, f. 29.1. 1952, Guðmundur Hafþór, f. 20.11. 1957, og Kristján Víðir, f. 20.10. 1962. Útför Lilju verður gerð frá Suð- ureyrarkirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. Mig langar til að minnast Lilju og okkar góðu kynna gegnum árin sem aldrei bar skugga á. Ég kynnt- ist henni á Suðureyri hjá Binnu vin- konu minni (sem nú er látin). Lilja var verkstjóri í frystihúsinu, hörku- dugleg svo um var talað, og síðar vann hún hjá Suðureyrarhreppi. Svo liðu árin og ég varð kokkur í fjallaferðum. Eitt skipti spurði Lilja hvort ekki væri hægt að kom- ast í eina ferð með mér. Ég sagði að ég gæti alveg athugað það, ef það vantaði stúlku. Fljótlega kom að því að mig vantaði stúlku, ég tal- aði við Lilju og sagði að hún gæti komið ef hún vildi. Hún sagðist hafa sagt þetta meira í gríni. En svo kom hún og var í sjö sumur með mér, eina til tvær ferðir á hverju sumri. Þetta var hennar sumarfrí. Við sváfum alltaf í tjaldi hvernig sem viðraði í sól, rigningu, roki og logni. Hún var alltaf mjög ánægð og mjög dugleg. Seinna fórum við nokkrar ferðir til útlanda og alltaf var gaman. Hún var orðin lasin í haust og við fórum að skoða myndir úr ferðunum okkar. ,,Svo fer maður ekki neitt,“ sagði hún. Ég sagði við hana að við ættum svo góðar minn- ingar með þessu góða fólki sem vann með okkur og um alla fallegu staðina sem við fórum á. Þetta voru góðir tímar úti í náttúrunni. Þetta voru hennar dýrðardagar. Ég votta börnum hennar og fjöl- skyldu mína innilegustu samúð. Far þú í Guðs friði. Með vinarkveðju, Helga Sigtryggsdóttir. LILJA ÓLAFSDÓTTIR ✝ Sigurður Guð-mundur Sigurðs- son fæddist í Reykja- vík 23. desember 1942. Hann lést á heimili sínu í Reykja- vík 9. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Sigurður Guð- brandsson skipstjóri, f. 25.4. 1886, d. 22.6. 1943, og Eyríður Árnadóttir húsmóð- ir, f. 30.6. 1896, d. 8.8. 1983. Systkini Sigurðar voru Odd- björg, f. 1915, Sigur- jón, f. 1916, d. 1982, Katrín, f. 1921, og Hermann, f. 1923, d. 1997. Sigurður var tví- kvæntur. Fyrri kona hans, 1973 til 1979, er Sigurbirna Oli- versdóttir, f. 7.12. 1952. Börn þeirra eru: Sigríður G., f. 1975, og Sigrún B., f. 1977, gift Oliver Edvardssyni, börn þeirra eru Viktoría Katrín, Áróra Björk og Skarphéðinn Hin- rik. Seinni kona Sig- urðar, 1980 til 1982 er Sigríður Gylfa- dóttir, f. 21.11. 1946. Útför Sigurðar var gerð 15. maí í kyrrþey að ósk hins látna. Ég hef stundum íhugað á síðari ár- um hvað gefi lífinu einkum gildi. Ég hef svo sem ekki komist að neinni sérstakri niðurstöðu. Ég er þó alltaf að styrkjast í þeirri trú að stórfjöl- skyldan sé einn af þeim þáttum sem ráði miklu um hamingju okkar. Ég hef átt því láni að fagna að umgang- ast mikinn og fjölbreyttan frænd- garð sem hefur haft djúp áhrif á líf mitt og tilveru. Einn af þessum áhrifavöldum er nú fallinn frá, nefni- lega frændi minn og vinur, Sigurður Guðmundur Sigurðsson. Hann lést 8. maí síðastliðinn, langt um aldur fram, eftir stutt veikindi. Sigurður var rétt rúmlega sextugur að aldri, fæddur á Þorláksmessu árið 1942 í Reykjavík. Hann var sonur hjónanna Eyríðar Árnadóttur húsmóður og Sigurðar Guðbrandssonar skipstjóra sem stýrði lengst af Kveldúlfstogar- anum Snorra goða. Þeim varð fimm barna auðið og var Siggi frændi þeirra langyngstur. Elst systkinanna var Oddbjörg húsmóðir. Eftir henni kom Sigurjón útgerðarmaður en þau voru bæði flutt að heiman þegar Siggi frændi kom í heiminn. Móðir mín, Katrín, sú þriðja í röðinni, hefur eins og systir hennar verið húsmóðir alla sína tíð. Næstyngstur var Her- mann frændi minn sem síðar varð verslunar- og skrifstofumaður í Reykjavík. Á milli hans og Sigga frænda voru tuttugu ár. Þetta var samheldinn hópur og traustur sem haslaði sér völl á suðvestur horni landsins, að mestu í Reykjavík. Þær systur Oddbjörg og Katrín lifa nú bræður sína þrjá. Ég minnist þess sem barn að það var mikið tilhlökkunarefni þegar von var á Sigga frænda í heimsókn. Hann var sannkallaður hornsteinn í lífi okkar frændsystkina, alltaf til staðar og reiðubúinn að gera okkur eitthvað gott – eitthvað til skemmtunar. Með góðvild sinni og nærveru laðaði hann okkur að sér og varð um leið ákveðin fyrirmynd í lífinu. Ég hef oft hugsað til þessara stunda með frænda mín- um þegar ég hef sjálfur staðið í sömu sporum með mínum bróðurbörnum. Það er ekki svo lítils virði að geta dregið úr sjóði reynslunnar atferli og hugsun sem hafa haft góð áhrif á skilninginn á lífinu. Sú mannvirðing sem ég nam hjá frænda mínum hefur setið eftir í huganum vegna þess að ég var snortinn af henni sem barn. Ef ég á þess kost að deila þeirri tilfinn- ingu með bróðurbörnum mínum eða öðrum sem verða á vegi mínum í framtíðinni þá held ég að ég geti með góðu móti litið á sjálfan mig sem gæfumann. Mannkostir eiga sér oftast aðdrag- anda og sögu. Sumir einstaklingar eru þó þannig af guði gerðir að þeir búa yfir gæsku og siðferðisþreki sem þeir þurfa lítið að fóstra. Slíkir eig- inleikar eru þeim einfaldlega með- skapaðir. Flest erum við þó þannig að það þarf töluvert átak til að vinna að mótun okkar innri manns. Að- stæður og umhverfi geta ráðið þar miklu um hvernig til tekst. Frændi minni kom í heiminn á fertugasta og sjöunda aldursári ömmu minnar. Eins og áður sagði var hann lang- yngstur systkina sinna og hefur fyr- irfram örugglega ekki verið búist við fæðingu hans. Þó að mótttökurnar hafi verið hátíðlegar og allir fagnað þessum nýja fjölskyldumeðlimi þá dró brátt ský fyrir sólu. Sigurður afi minn lést af slysförum sex mánuðum eftir að frændi minn fæddist og var hann skírður í höfuðið á föður sínum við kistu hans. Hér höfðu orðið mikil tíðindi hjá konu á miðjum aldri sem nýverið hafði fætt son sinn í heiminn. Að standa uppi sem ekkja á fyrri hluta tuttugustu aldar með kornung- an son á framfæri var ekki sérlega gæfulegt. Móðir mín var enn á heim- ilinu, tuttugu og tveggja ára, þegar þessir atburðir áttu sér stað og tók þátt í uppeldi frænda míns fyrstu ár- in. Þegar hann var fimm ára giftist mamma föður mínum, Magnúsi Helgasyni, framkvæmdastjóra í Reykjavík, og fluttu þau í ágæta íbúð á Grenimel 20 í Vesturbæ. Í næsta nágrenni, nánar tiltekið á Reynimel 41, bjó amma með frænda mínum. Síðar fluttu þau í sömu götu og for- eldrar mínir í hús númer 17. Það þarf því ekki að koma á óvart að samgang- ur milli heimilanna var gríðarlega mikill. Frændi minn var daglegur gestur í foreldrahúsum mínum og ekki er ofsögum sagt að við Helgi bróðir höfum litið á hann sem okkar stóra bróður. Þannig kom hann alltaf fram; hann var okkar frændi, vinur og velgjörðarmaður. Það myndi æra óstöðugan að telja upp þau atvik og samskipti sem tengja má við Sigga frænda. Ég man þegar hann fór með mig og Áslaugu Björgu frænku mína á skíði helgi eft- ir helgi fyrir ofan Reykjavík einn vet- urinn. Sjálfur dvaldi ég oft hjá ömmu og frænda mínum í lengri eða skemmri tíma og þær minningar gleymast seint. Bæði voru þau hæg- lát, kankvís og samrýnd; eiginleikar sem óneitanlega hafa góð áhrif á ungar sálir sem eru að vaxa úr grasi. Íbúðin sem þau bjuggu í eftir að ég fór að muna eftir mér á Eiríksgötu 17 stendur mér enn ljóslifandi fyrir hugskotssjónum og ég man þá góðu angan sem ávallt lék um íbúðina og fylgdi ömmu. Þessi heimur ásamt kyrrðinni og vináttunni sem var hluti af daglegri framgöngu beggja er ógleymanlegur. Frændi minn var þegar fram liðu stundir, og sannar- lega þegar þarna var komið sögu, stoð og stytta ömmu. Hún, sem var oft frekar heilsutæp, naut nú þess að hafa þennan unga og frambærilega mann sér við hlið og allir sem til þekktu vissu hversu mikilvægur hann var lífi hennar. Frændi minn tók Verslunarskóla- próf vorið 1961 og hóf þá strax að vinna hjá Útvegsbanka Íslands. Árið 1964 var honum boðin skrifstofu- staða hjá inn- og útflutnings fyrir- tækinu Ólafi Gíslasyni og Co hf., fyr- irtæki sem hann átti síðar eftir að stýra. Hann hóf sjálfstæðan rekstur inn- og útflutnings fyrirtækisins Mjölnis á áttunda áratugnum og starfaði við þetta fyrirtæki sitt fram yfir miðjan níunda áratug tuttugustu aldar. Ef eitthvað átti óskiptan huga frænda míns þá voru það vélar af ýmsu tagi. Hann aflaði sérþekkingar í vélfræði frá Cristy Trade School í Chicago í Bandaríkjunum 1966–1967 og undi sér hvergi betur en við stýri á hinum mörgu bifreiðum sem hann eignaðist um ævina. Hann beinlínis hjalaði við þessa vélfáka sína og kom þeim jafnan í betra ástand en þegar hann tók við þeim. Þær voru líka ófá- ar ferðirnar sem við frændsystkinin fórum með honum í næsta nágrenni Reykjavíkur og þá voru jafnan valdar ótroðnar slóðir! Siggi átti síð- ar á ferli sínum eftir að starfa við bif- reiðaakstur af ýmsu tagi, meðal ann- ars hjá Kynnisferðum og Strætó í Reykjavík. Hin síðari ár sá ég ekki SIGURÐUR G. SIGURÐSSON Alúðarþakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu, systur og mágkonu, STELLU SIGURLEIFSDÓTTUR, Þinghólsbraut 5, Kópavogi. Sérstakar þakkir til starfsfólks á deildum 11 E og 11 G á Landspítalanum við Hringbraut og á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fyrir frábæra umönnun. Pétur Guðfinnsson, Ólöf Kristín Pétursdóttir, Jóhannes Hraunfjörð Karlsson, Pétur Leifur Pétursson, Maite Pueyo, Elín Marta Pétursdóttir, Sigurgeir Örn Jónsson, Luis Peña Moreno, Rakel Sigurleifsdóttir, Björn Ól. Gíslason og ömmubörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTINN HELGASON, Grundargerði 9, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 19. maí kl. 13.30. Ingibjörg Þorkelsdóttir, Þóra Kristinsdóttir, Þorvaldur Karl Helgason, Gylfi G. Kristinsson, Ragna Þórisdóttir, Gunnar Helgi Kristinsson, María Jónsdóttir, Axel Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, KATRÍN SIGURÐARDÓTTIR, Logafold 42, Reykjavík, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju mánu- daginn 19. maí kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeir, sem vilja minnast hennar, vinsamlegast láti líknardeild Landspítalans í Kópavogi njóta þess, s. 543 1151. Guðlaugur Jónsson, Ingibjörg Guðlaugsdóttir, Þorsteinn Þorsteinsson, Jón Guðlaugsson, Katrín Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, GUÐRÚN MARGRÉT HALLGRÍMSDÓTTIR, Langholti 14, Akureyri, lést af slysförum fimmtudaginn 15. maí. Jónas Bergsteinsson, Þóra Regína Þórarinsdóttir, Jonathan Kleinman, Jarþrúður Þórarinsdóttir, Theodór Kristjánsson, Ninna Margrét Þórarinsdóttir, Ingi Björn Ingason, Berglind Judith Jónasdóttir, Davíð Rúnar Gunnarsson, Ómar Valur Jónasson, Laufey Ólafsdóttir, Þórarinn Jóhann Theodórsson, Alexander Kleinman Daði Hrannar Davíðsson, Valgarður Nói Davíðsson og Þórarinn Kristjánsson. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og tengda- móðir, SIGRÍÐUR BREIÐFJÖRÐ, Snorrabraut 56, lést á líknardeild Landspítala í Kópavogi fimmtudaginn 15. maí. Fyrir hönd ættingja og ástvina, Kjartan Guðjónsson, Bjarni Kjartansson, Lilja Grétarsdóttir, Sigurður Kjartansson, Hólmfríður Erla Finnsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.