Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 10
Rúnar Björn Þorkelsson lamaðist í slysi á Sauðárkróki Ljósmynd/Árni Pálsson Rúnar Björn Þorkelsson með styrkinn í höndunum. Við hlið hans eru móðir hans, Sigurlaug Ó. Guðmannsdóttir, og yngri bróðir, Ágúst Natan. Fyrir aftan þau eru lögreglumennirnir Sveinbjörn Ragnarsson og Kristján Örn Kristjánsson, formaður Lögreglufélags Norðvesturlands, og feðgarnir Þórsteinn Arnar og Rúnar Pálsson, fósturfaðir Rúnars Björns. RÚNAR Björn Þorkelsson, nýlega orðinn 21 árs, slasaðist alvarlega þegar hann féll úr ljósastaur á Sauð- árkróki síðustu nýársnótt. Lamaðist hann fyrir neðan háls og eftir mikla endurhæfingu á Grensásdeild und- anfarna mánuði hefur hann öðlast mátt í upphandleggjum en fingur og framhandleggi hreyfir hann ekki, enn sem komið er. Aðstandendur og vinir Rúnars Björns hafa ákveðið að efna til skemmtunar á Sauðárkróki miðvikudagskvöldið 21. maí til styrktar fjölskyldunni og opnaður hefur verið reikningur í Bún- aðarbankanum á Sauðárkróki. Slysið var ekki bara mikið áfall fyrir hinn unga mann, sem átti bestu ár ævi sinnar framundan og hafði ekki lokið framhaldsskólanámi, heldur einnig fyrir fjölskylduna. Rúnar Björn á tvo bræður og hefur annar þeirra verið fjölfatlaður frá fæðingu fyrir tæpum sex árum. Þeg- ar slysið varð var móðir hans, Sig- urlaug Ó. Guðmannsdóttir, komin þrjá mánuði á leið með sitt fjórða barn og á því von á sér í næsta mán- uði. Erum fegin hverju skrefi Sigurlaug segir við Morgunblaðið að fjölskyldan taki þessum mótbyr af jafnaðargeði. Hún segir Rúnar Björn hafa sýnt mikinn styrk eftir slysið og hann hafi líklega sýnt ör- lögum sínum betri skilning vegna fötlunar yngri bróður síns, Þórsteins Arnars, sem einnig er bundinn við hjólastól. Hún segir Rúnar Björn eiga sér þann draum að geta ekið bíl í framtíðinni og vonandi rætist það með tíð og tíma, ekki síst þar sem stoðtækninni hafi fleygt mikið fram. „Við erum fegin hverju því skrefi sem stigið er fram á við,“ segir Sig- urlaug en Rúnar Björn hefur í end- urhæfingunni öðlast mátt í upp- handleggjum. Verður hann nokkra mánuði í viðbót á Grensásdeildinni. Fyrstir til að leggja fjölskyldunni lið voru lögreglumenn á Sauð- árkróki, sem komu einmitt Rúnari fyrst til aðstoðar eftir slysið á nýárs- nótt. Höfðu þeir frumkvæði að því að fá styrk úr Líknar- og hjálparsjóði Landssambands lögreglumanna og afhentu hann fjölskyldunni nýlega, Efnt til skemmtunar til styrktar fjölskyldunni andvirði 200 þúsund króna. Einnig hefur stuðningur borist frá Sauð- árkrókskirkju og Rauða krossinum. Fjármunir sem safnast til handa fjölskyldunni renna óskertir í sjóð sem varið verður til kaupa á hjálp- artækjum og öðrum nauðsynjum fyrir Rúnar Björn í framtíðinni. FRÉTTIR 10 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ Á MÁLÞINGI viðskiptaþjónustu ut- anríkisráðuneytisins í gær um sókn- arfæri á pólskum mörkuðum og um hagsmunamál íslenskra aðila þar kom fram að um eitt hundrað fyr- irtæki í pólskum sjávarútvegi af um þrjú hundruð og þrjátíu munu eiga erfitt með að uppfylla skilyrði Evr- ópusambandsins (ESB) þegar kem- ur að inngöngu Póllands í það. Þessi fyrirtæki bráðvantar erlent fjár- magn, þekkingu og reynslu til þess að flýta fyrir aðlögun að reglum ESB. Þar gæti verið tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki og fjárfesta. Bohdan Jelinski, viðskiptafulltrúi í pólska sendiráðinu í Ósló, sagði að erlendar fjárfestingar hefðu aukist frá 1989 úr nánast engu í tæpa 63 milljarða Bandaríkjadala á síðasta ári. Pólverjar leggi mikla áherslu á fjárfestingar erlendra fyrirtækja og fjárfesta í pólskum atvinnuvegi. Frakkar hafa fjárfest mest í pólsk- um fyrirtækjum, því næst Banda- ríkjamenn, þá Þjóðverjar og síðan Hollendingar. Noregur er í sautjánda sæti þeirra landa sem hafa fjárfest mest í Pól- landi. Norðmenn eru aðalinnflytj- endur fisks til Póllands. Innflutning- ur þeirra hefur þó minnkað umtalsvert, var árið 2000 116,9 þús. tonn, 141,1 þús. tonn 2001 en fór nið- ur í 81,2 þús. tonn á síðasta ári. Danir seldu til Póllands 24,8 þús. tonn af fiski árið 2002 en frá Íslandi voru að- eins flutt út 2,8 þús. tonn árið 2000, 12,9 þús. 2001 en 19,4 þúsund tonn á síðasta ári. Vaxandi innflutningur frá Íslandi Bohdan Jelinski lagði áherslu á þessa þróun, minnkandi innflutning frá Noregi en vaxandi frá Íslandi. Rússar komu næstir á eftir Ís- lendingum í fiskinnflutningi í fyrra með 17,1 þús. tonn. Norðmenn, sem eru með 25–30% hlutdeild í pólskum fiskiðnaði, hafa þó mest fjárfest í 10–12 stórum fyr- irtækjum þar. Bohdan Jelinski hvatti íslensk fyrirtæki til þess að kaupa sig inn í pólskan fiskiðnað. Hann benti á að það væru 330 sjávarútvegsfyrirtæki í Póllandi og öll yrðu þau að uppfylla staðla ESB, en aðeins 54 þeirra gerðu það nú þegar, 130 myndu geta uppfyllt þá árið 2004, við inngöngu landsins í ESB, og önnur 57 myndu vonandi komast í þann hóp á næstu árum. En um 100 sjávarútvegsfyrirtæki myndu eiga í erfiðleikum með að uppfylla staðlana. Þarna væru tækifæri fyrir íslensk fyrirtæki til fjárfestinga. Þessi fyr- irtæki vantaði fjármagn, sem væri dýrt í Póllandi, og þau þörfnuðust því nauðsynlega erlendra fjárfesta sem kæmu með fjármagn, þekkingu og reynslu til þess að uppfylla kröfur ESB eins fljótt og mögulegt væri. Fyrirtækin væru lítil og miðlungi stór, og lagði Bohdan Jelinski áherslu á að þau væru tilvalin fyrir íslenska fjárfesta. Íslendingar væru velkomnir í Póllandi. Jerzy Drewniak, aðstoðardeildar- stjóri í atvinnumálaráðuneyti Pól- lands, sagði að möguleikar í viðskipt- um Póllands og Íslands væru vannýttir og áhugi væri mikill fyrir auknum viðskiptum milli landanna. Sérhvert frumkvæði yrði skoðað með opnum huga. Hann sagði að efnahagur landsins væri stöðugur, einkageirinn skapaði 75% af vergri landsframleiðslu og nýtti 70% vinnu- afls. Pólland væri með áhugaverð- ustu löndum fyrir erlenda fjárfesta sem hefðu komið með um 6 milljarða Bandaríkjadala inn í pólskt efna- hagslíf á síðasta ári. Landsfram- leiðsla Póllands jókst á síðasta ári um 1,3%. Verðbólga í Póllandi var 0,8% á síðasta ári. Jerzy Drewniak hvatti fulltrúa ís- lensks atvinnulífs til samstarfs við pólsk fyrirtæki, tækifærin væru fyr- ir hendi. Tækifæri fyrir íslenska fjárfesta í pólskum sjávarútvegsfyrirtækjum Um 100 fyrirtæki vantar fjármagn og þekkingu Morgunblaðið/Árni Torfason Einn þeirra sem fluttu erindi á málþingi viðskiptaþjónustu utanríkisráðu- neytisins um ný sóknarfæri á pólskum mörkuðum var Bohdan Jelinski, við- skiptafulltrúi pólska sendiráðsins í Ósló. ÞRÍTUGUR karlmaður, sem legið hefur meðvitundarlaus á gjörgæslu- deild Landspítalans í Fossvogi eftir alvarlegt bílslys á Sauðárkróki þann 10. apríl sl., komst til meðvitundar fyrir síðustu helgi og hefur verið lagður inn á almenna sjúkradeild. Slysið varð á Strandvegi þegar pallbíll, sem hinn slasaði ók, rakst harkalega á malarflutningabíl með þeim afleiðingum að 22 ára gamall farþegi pallbílsins lést. Ökumaður malarflutningabílsins slasaðist ekki alvarlega. Kominn af gjörgæsludeild LANDSKJÖRSTJÓRN hafnaði í gær beiðni Frjálslynda flokksins um að hún frestaði úthlutun þingsæta og útgáfu kjörbréfa á grundvelli kosn- ingaúrslita nýliðinna alþingiskosn- inga. Gaf landskjörstjórn því út kjör- bréf til þeirra frambjóðenda sem náðu kosningu til Alþingis hinn 10. maí sl. Frjálslyndi flokkurinn og umboðs- menn hans fóru fram á frestun vegna kröfu sinnar um endurtalningu at- kvæða í alþingiskosningunum. „Frjálslyndi flokkurinn telur að áður en þingsætum verður úthlutað á grundvelli kosningaúrslitanna beri að taka til formlegrar rökstuddrar af- greiðslu kröfu flokksins um endur- talningu atkvæða í kosningunum […],“ segir m.a. í kröfu flokksins. Umboðsmenn flokksins lögðu fram þessa kröfu á fundi landskjörstjórnar í gær en umboðsmenn Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks mót- mæltu beiðninni, að því er fram kem- ur í gerðarbók landskjörstjórnar. Eftir að þau mótmæli höfðu verið skráð til bókar viku allir umboðs- menn flokkanna þriggja tímabundið af fundi. Er þeir komu aftur var lesin upp eftirfarandi bókun landskjör- stjórnar: „Landskjörstjórn hafa bor- ist fyrirvaralausar skýrslur um kosn- ingaúrslit í kjördæmum frá öllum yfirskjörstjórnum. Þar með eru upp- fyllt lagaskilyrði 106. gr. kosninga- laga fyrir því að landskjörstjórn skuli úthluta þingsætum á grundvelli kosn- ingaúrslitanna. Ágreining um lög- mæti kosninganna, þ.m.t. lýstra kosn- ingaúrslita, má bera undir Alþingi skv. 46. gr. stjórnarskrár lýðveldis- ins. Með vísan til þessa er beiðni Frjálslynda flokksins hafnað.“ Um- boðsmenn Frjálslynda flokksins létu bóka ágreining um þennan úrskurð. Þórður Bogason, ritari landskjör- stjórnar, skýrði bókunina nánar á blaðamannafundi í gær. Hann sagði að kosningakerfið byggðist á því að hvert kjördæmi sæi um að telja sín atkvæði. „Og þegar kosningu er lokið í kjördæminu eru kosningaúrslitin lögð saman. Og þó að það muni einu atkvæði að einhvern flokk vanti á landsvísu jöfnunarsæti, þá er það ekki ástæða til endurtalningar, vegna þess að kosningaúrslit í hverju og einu kjördæmi fyrir sig gáfu ekki til- efni til neinna athugasemda,“ sagði hann. Eitt þingsæti til Kragans Landskjörstjórn ákvað einnig á fundi sínum að við næstu alþingis- kosningar skyldu níu þingsæti vera í Norðvesturkjördæmi, þar af átta kjördæmissæti, en tólf í Suðvestur- kjördæmi, þar af tíu kjördæmissæti. Þar með færist eitt þingsæti frá Norðvesturkjördæmi yfir til Suðvest- urkjördæmis. „Með vísan til 3. mgr. 8. gr. laga nr. 24/2000, sbr. og 1. og 3. mgr. 9. gr. sömu laga, hefur lands- kjörstjórn ákveðið að breyta fjölda kjördæmissæta í Norðvesturkjör- dæmi og Suðvesturkjördæmi þannig að í Norðvesturkjördæmi verði átta kjördæmissæti en í Suðvesturkjör- dæmi verði tíu kjördæmissæti. Að baki hverju þingsæti í Norðvestur- kjördæmi eru þá 2.358 kjósendur en að baki hverju þingsæti í Suðvestur- kjördæmi er 4.071 kjósandi. Að gerðri þessari breytingu verða eftir sem áður fæstir kjósendur að baki hverju þingsæti í Norðvesturkjör- dæmi en flestir í Suðvesturkjör- dæmi.“ Hlutfallið milli þessara talna verður eftir breytinguna 1:1,727, seg- ir fréttatilkynningu landskjörstjórn- ar. Beiðni Frjáls- lynda flokks- ins hafnað ÞÓRIR Einars- son ríkissátta- semjari lætur af störfum 1. nóv- ember vegna ald- urs, en hann hef- ur gegnt starfinu í 9 ár. Verður það að líkindum aug- lýst í haust og sér félagsmálaráðherra um að ráða í það. „Ég er sáttur við mitt og kveð með söknuði. Þetta starf er óhemju kröfuhart,“ sagði Þórir sem hefur eytt mörgum stundum á skrifstofu sinni í Borgartúninu. „Ég get ekki neitað því að ég gleðst yfir því að eiga fallegar vor- og sumarnætur sjálfur án þess að vera í vinnunni. Hér hafa margar helgarnar fokið. Það má þó ekki gleyma því að þetta er stór hóp- ur af fólki sem ég hef starfað með,“ sagði Þórir. Ríkissátta- semjari hættir í haust Þórir Einarsson SAMKOMAN fer fram í Bóknáms- húsi Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki miðvikudags- kvöldið 21. maí og hefst kl. 20. Með- al þeirra sem koma fram, og gefa vinnu sína, eru Álftagerðisbræður, hljómsveitin Von, Hörður G. Ólafs- son, Geirmundur Valtýsson, dans- parið Logi og Íris, söngkonurnar Ásdís Guðmundsdóttir, Sólveig Fjólmundsdóttir og Margrét Við- arsdóttir, félagar úr Leikfélagi Sauðárkróks og nemendur í Tón- listarskóla Skagafjarðar. Jón Hall- ur Ingólfsson og Gunnar Rögn- valdsson fara með gamanmál. Aðgangseyrir verður 1.500 krónur fyrir fullorðna en 700 kr. fyrir 12 ára og yngri. Númer reikningsins í Búnaðarbankanum á Sauðárkróki er 0310-13-850056 og kennitala reiknings er 080582-4209. Fjölmargir listamenn koma fram ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.