Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 61 DAGBÓK HUGARFARSÞJÁLFUN TIL BETRA LÍFS EINKATÍMAR - NÁMSKEIÐ Þú lærir að koma skilaboðum og jákvæðum huglægum hugmyndum og viðhorfum inn í undirmeðvitundina. Þú lærir að upplifa tilfinningar þínar á jákvæðan og uppbyggilegan hátt og að hafa betri stjórn á streitu og kvíða, auka einbeitinguna og taka betri ákvarðanir. Þú byggir upp sjálfsöryggi og sterka sjálfsmynd. Leiðbeinandi Viðar Aðalsteinsson dáleiðslufræðingur. Upplýsingar í síma 694 54 94 Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga. Guðrún Óladóttir, reikimeistari. Hvað fá þátttake ndur út úr slíkum námsk eiðum? Læra að nýta sér orku til að lækna sig (meðfæddur eiginleiki hjá öllum) og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi. Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs. Læra að hjálpa öðrum til þess sama. 19.-20. maí. 1. stig. dagnámskeið 24.-25. maí 1. stig helgarnámskeið 27.-29. maí 1. stig kvöldnámskeið 10.-12. júní 2. stig kvöldnámskeið Námskeið í Reykjavík STJÖRNUSPÁ Frances Drake NAUT Afmælisbörn dagsins: Þið eruð áköf, viljasterk og staðföst. Á komandi ári þurf- ið þið að sleppa tökunum á því gamla og skapa rými fyr- ir eitthvað nýtt. Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Þú ættir að dusta rykið af gömlum fjáröflunarhug- myndum. Heppni nútíð- arinnar tengist fortíðinni með einhverjum hætti. Hafðu samband við gamla kunn- ingja. Naut (20. apríl - 20. maí)  Hugur þinn reikar af ein- hverjum ástæðum til fortíð- arinnar og þú veltir því fyrir þér hvað það er sem skiptir þig raunverulegu máli í lífinu. Það er stundum nauðsynlegt að endurskoða lífssýn sína. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Lífsspeki sem þú kynntist eða góð ráð sem þér voru gef- in, fyrir löngu, rifjast upp fyrir þér. Þú ættir e.t.v. að huga betur að þessum mál- um. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú gætir rekist á gamlan vin. Þú ert tilfinningarík(ur) og metur enn sambönd sem skiptu þig máli í fortíðinni. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þetta er ekki rétti tíminn til að skapa ný tækifæri í vinnunni. Kannaðu heldur hvort gömul tækifæri standi enn opin. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ef þú ætlar að fara í ferðalag á næstunni er þér ráðlagt að fara á stað sem þú hefur komið á áður. Láttu það bíða að kanna ókunn lönd. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Þetta er góður tími til að leysa gömul deilumál og ganga frá lausum endum. Hættu að velta óþægilegu málunum á undan þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Það er óumflýjanlegt að þú rekist á gamla/n kærustu/ kærasta eða fyrrverandi maka í dag. Það mun gera þér auðveldara fyrir að vita að þú lítir vel út. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Sættu þig við að mannekla valdi töfum í vinnunni í dag. Reyndu að taka þessu með jafnaðargeði og gera það besta úr hlutunum. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Gamlar ástir sækja á huga þinn. Þú getur annað hvort gælt við þessar hugsanir eða ýtt þeim frá þér. Þitt er valið. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Það er líklegt að þú lendir í fjölskyldusamsæti eða sam- ræðum við ættingja um löngu liðna tíð. Reyndu að sýna þol- inmæði og jafnaðargeð. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú ættir að gefa bílamál- unum sérstakan gaum í dag. Það eru miklar líkur á um- ferðartöfum vegna bilana. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. FAÐIR ANDANNA Faðir andanna frelsi landanna, ljós í lýðanna stríði, send þú oss frelsi, sundur slít helsi, líkna stríðanda lýði. Lýstu heimana, lífga geimana, þerraðu tegenda tárin. Leys oss frá illu, leið oss úr villu, lækna lifenda sárin. Sælu njótandi, sverðin brjótandi faðmist fjarlægir lýðir. Guðsríki drottni, dauðan vald þrotni, komi kærleikans tíðir. Faðir ljósanna, lífsins rósanna, lýstu landinu kalda. Vertu oss fáum, fátækum, smáum, líkn í lífsstríði alda. Matthías Jochumsson LJÓÐABROT ÁRNAÐ HEILLA 80 ÁRA afmæli. Í daglaugardaginn 17. maí er áttræður Halldór Þor- valdur Ólafsson, Hverf- isgötu 121, Reykjavík. Hann og eiginkona hans Ingibjörg Aðalheiður Gestsdóttir verða að heim- an. BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. mars sl. í Laug- arneskirkju af sr. Bjarna Karlssyni þau Dóra Mjöll Hauksdóttir og Sigurvin Jónsson. Heimili þeirra er á Grensásvegi 56, 108, Reykjavík. Með þeim á myndinni er Davíð sonur þeirra. AÐ loknu hverju al- þjóðlegu móti fara bestu spilin á stúfana og skjóta upp kollinum í bridsþáttum og tímaritum víða um heim. Hér er eitt víðförult frá bridshátíðinni í Tel Aviv í febrúar: Norður ♠ 4 ♥ 106 ♦ ÁK4 ♣ÁG87653 Vestur Austur ♠ D6 ♠ 109753 ♥ ÁDG4 ♥ 9 ♦ D10987 ♦ G65 ♣K5 ♣D1092 Suður ♠ ÁKG82 ♥ K87532 ♦ 32 ♣ -- Fjögur hjörtu voru spil- uð á öllum borðum, en að- eins einum sagnhafa tókst að skrapa saman tíu slög- um. Sá var Ísraelsmaður að nafni Doran Yadlin. Hann fékk út tígul, sem hann tók með ás og spilaði ÁK og GOSA í spaða! Vestur kvaldist lengi, en ákvað svo að trompa með hjartagosa og spila aftur tígli. Yadlin tók slaginn, henti spaða í laufásinn og stakk tígul heim. Spilaði svo síðasta spaðanum og trompaði lágt í borði. Hjartanían féll und- ir tíuna og vestur fékk að- eins tvo slagi í viðbót á ÁD. Sérstakt spil, einkum vegna þess að vörnin gerði engin mistök. Það breytir engu þótt vestur hendi í spaðagosann; sagnhafi trompar þá tvo spaða og gleypir hjartaníu austurs með kóngnum. BRIDS Guðm. Páll Arnarson 1. e4 e5 2. Rf3 Rf6 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. Rc3 Rf6 6. d4 Be7 7. Bd3 0-0 8. h3 c6 9. 0-0 He8 10. He1 Rbd7 11. Re2 Bf8 12. c4 a6 13. Dc2 b5 14. Rg5 g6 15. Bd2 Bg7 16. Rf4 Rf8 17. cxb5 cxb5 18. Dc6 Ha7 19. Hxe8 Rxe8 20. He1 Bd7 21. Rxf7 Df6 22. Db6 Dxd4 23. Rh6+ Kh8 24. Db8 Dxb2 25. Be3 Hc7 26. Rd5 Hc8 Staðan kom upp á pólska meistaramótinu sem lauk fyrir skömmu í Varsjá. Mateusz Bartel (2.443) hafði hvítt gegn Klaudiusz Ur- ban (2.451). 27. Re7! Be6 svartur yrði mát eftir 27. ... Hxb8 28. Rf7#. 28. Dxc8! Bxh6 aftur yrði svartur mát eftir 28. ... Bxc8 29. Rf7#. 29. Dxe8 Bd7 30. Dd8 Bg7 31. Db6 De5 32. Bd2 Db2 33. Da5 Dd4 34. Be4 Be6 35. Rc6 Db2 36. Db4 Dxa2 37. Bc3 og svartur gafst upp. Lokastaða mótsins varð þessi: 1. Tomasz Markowski (2.587) 10½ vinning af 13 mögulegum. 2.–4. Bartosz Socko (2.577), Mikhail Krasenkov (2.609) og Bartlomiej Ma- cieja (2.634) 8 v. 5. Lukasz Cyborowski (2.543) 7½ v. 6. Kamil Miton (2.545) 7 v. 7. Pawel Jaracz (2.549) 6½ v. 8.–11. Miroslav Grab- arczyk (2.508), Mateusz Bartel (2.443), Robert Kempinski (2.553) og Klaudiusz Urban (2.451) 5½ v. 12.–14. Piotr Stan- iszewski (2.446), Piotr Murdzia (2.452) og Krzysztof Jakubowski (2.483) 4½ v. SKÁK Helgi Áss Grétarsson Hvítur á leik. FRÉTTIR HEILBRIGÐIS- og trygginga- málaráðuneytið hefur gert sam- komulag við fyrirtækið Heyrnar- tækni um þátttöku ríkisins í kostnaði sjúkratryggðra við kaup á heyrnartækjum og nauðsynlegri þjónustu. Samningurinn er gerður á grundvelli laga um heilbrigðis- þjónustu og reglugerðar um þátt- töku ríkisins í kostnaði við hjálp- artæki fyrir þá sem eru með heyrnarmein. Viðskiptavinir fyrirtækisins greiða umsamið heildarverð fyrir heyrnartækin að frádregnum til- teknum hlut ríkisins í heildarverð- inu samkvæmt reglugerð. Hlutur ríkisins er nú 28.000 kr. fyrir þá sem rétt eiga á endurgreiðslu. Samningur þessi tekur til greiðslu- þátttöku ríkisins í heyrnartækjum til þeirra sem eru 18 ára og eldri og hafa tónmeðalgildi á betra eyranu > 30dB <70dB við tíðnina 0,5 1,0 2,0 og 4,0 kHz. Samningurinn tekur ekki til greiðsluþátttöku ríkisins í kostnaði við heyrnartæki barna undir 18 ára aldri, einstaklinga 18 ára og eldri sem hafa tónmeðalgildi á betra eyr- anu > 70dB við tíðnina 0,5 1,0 2,0 og 4,0 kHz og sérstakra heyrn- artækja sem krefjast skurðaðgerð- ar eins og kuðungsígræðslutækja, beinskrúfutækja og annarra viðlíka tækja sem kunna að bjóðast. Samið um afgreiðslu heyrnartækja GLOBAL Refund hf. á Íslandi hefur sent frá sér eftirfarandi yfirlýsingu vegna úrskurða áfrýjunarnefndar samkeppnismála: „Global Refund á Íslandi fagnar úrskurði áfrýjunarnefndar sam- keppnismála sem birtur var 15. maí 2003. Þar er staðfest sú niðurstaða samkeppnisráðs að Global Refund á Íslandi hafi ekki verið í markaðsráð- andi stöðu. Starfsemi Global Refund á Íslandi felst í að endurgreiða erlendum ferðamönnum virðisaukaskatt við brottför frá Íslandi. Fyrrum fram- kvæmdastjóra Global Refund á Ís- landi, Jónasi Hagan Guðmundssyni, var vikið úr starfi í júlí 2001 vegna gruns um að hann væri að undirbúa stofnun fyrirtækis í beinni sam- keppni við Global Refund á Íslandi. Þá þegar stofnaði Jónas fyrirtækið Refund á Íslandi og nýtti sér þar við- skiptahugmyndir og viðskiptasam- bönd Global Refund. Í úrskurði áfrýjunarnefndar sam- keppnismála er kveðið á um að starfsmenn Refund á Íslandi hafi sýnt af sér ólögmæta háttsemi þegar þeir fjarlægðu eigur Global Refund úr verslunum, hvöttu verslunareig- endur til vanefnda á samningum við Global Refund og gáfu villandi upp- lýsingar um markaðsstöðu sína. Í úrskurðinum er ennfremur stað- fest sú niðurstaða samkeppnisráðs að nafn Refund á Íslandi brjóti í bága við skamkeppnislög. Fyrirtæk- inu var einnig gert að hætta að nota auglýsingaslagorðið „Don’t leave your money behind“ sem Global Re- fund hefur notað frá upphafi.“ Yfirlýsing frá Global Refund NÝR Lexus RX 300, verður kynntur í dag, laugardaginn 17. maí kl. 12–16 og sunnudaginn 18. maí kl. 13–16, í Lexusumboðinu við Nýbýlaveg í Kópavogi. Lexus RX 300 sameinar kosti jeppa og fólksbíls og býður upp á mikil þægindi í takt við aksturseig- inleika. Meðal nýjunga má nefna: Nýtt og sportlegra útlit, 16 cm lengri og 3 cm breiðari, 5 þrepa sjálfskipt- ing m. handskiptimöguleika, tvöföld loftræsting, 6 diska geislaspilari kominn í mælaborðið í stað hanska- hólfs, 9 öryggisloftpúðar í stað 4, bætt eldneytisnýting: 12,2 lítrar í stað 13 í blönduðum akstri, aðfellanlegir hliðarspeglar, 8 hátalara hljómkerfi í stað 6, vindskeið er staðalbúnaður, þjófavarnarkerfi með hreyfiskynjara. Myndin er tekin þegar verið var að undirbúa myndatöku af nýja bílnum í Bláa lóninu og verður Bláa lónið í smækkaðri mynd sett upp við Ný- býlaveginn á meðan á sýningunni stendur, segir í fréttatilkynningu. Nýr Lexus kynntur um helgina Lexus RX300 var myndaður fyrir auglýsingar í Bláa lóninu.           MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynn- ingar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyr- irvara fyrir sunnudagsblað. Samþykki afmælisbarns þarf að fylgja afmæl- istilkynningum og/eða nafn ábyrgðarmanns og símanúmer. Fólk getur hringt í síma 569-1100, sent í bréfsíma 569-1329, eða sent á netfangið ritstj @mbl.is. Einnig er hægt að skrifa: Árnað heilla, Morgunblaðinu, Kringlunni 1, 103 Reykjavík
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.