Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 26
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
26 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Um þessar mundir fagnar Tónmenntaskóli Reykjavíkur hálfrar
aldar afmæli sínu. Skólinn var stofnaður haustið 1952 af dr.
Heinz Edelstein og er því næstelsti tónlistarskólinn í Reykjavík.
Þúsundir nemenda hafa stundað tónlistarnám í Tónmennta-
skólanum og í gamla Barnamúsíkskólanum, forvera hans.
Með markvissri uppeldisstarfsemi hefur skólanum tekist að
leggja góðan grunn að tónlistarmenntun fjölmargra einstak-
linga sem sumir hverjir hafa orðið þekktir tónlistarmenn og
hljóðfæraleikarar.
Tónmenntaskóli Reykjavíkur heldur upp á merkisafmælið með
því að efna til tveggja daga tónlistarveislu í Salnum, tónlistar-
húsi Kópavogs.
Fram koma margir þekktir hljóðfæraleikarar sem flytja valdar
perlur klassískra tónbókmennta. Hljóðfæraleikararnir eru svo
til allir fyrrverandi nemendur gamla Barnamúsíkskólans og
Tónmenntaskólans.
Miðasala í Salnum er opin virka daga kl. 9.00-16.00 og klukkustund fyrir tónleika.
Ludwig van Beethoven:
Bei Männern welche Liebe fühlen
Byggt á stefi úr Töfraflautunni eftir W. A.
Mozart
Flytjendur:
Gunnar Kvaran, selló
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Antonin Dvorák:
Serenaða fyrir strengi í E-dúr op. 22
Moderato
Tempo di Valse
Scherzo: Vivace
Larghetto
Finale - Allegro Vivace
Flytjendur:
Strengjasveit
Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir
HLÉ
Johannes Brahms:
Ungverskur dans nr. 1 í útsetningu Joachims
Flytjendur:
Sigrún Eðvaldsdóttir, fiðla
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó
Johannes Brahms:
Píanókvintett í f-moll op. 34
Allegro non troppo
Andante, un poco Adagio
Scherzo-Allegro
Finale-poco sostenuto, Allegro non troppo
Flytjendur:
Sigrún Eðvaldsdóttir, 1. fiðla.
Sigurlaug Eðvaldsdóttir, 2. fiðla.
Helga Þórarinsdóttir, víola.
Gunnar Kvaran, selló.
Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó.
J. S. Bach:
3 kaflar úr Svítu nr. 1 í G-dúr
Prelude
Sarabande
Gigue
Einleikur á selló:
Gunnar Kvaran
Pjotr Ilich Tchaikovsky:
Serenaða fyrir strengi í C-dúr op. 48
Pezzo in forma Sonatino, Andante non
troppo-
Allegro moderato
Valse moderato, Tempo di Valse
Elegie: Larghetto elegiaco
Finale: Themo Russo, Andante - Allegro con
Spirito
Flytjendur:
Strengjasveit
Konsertmeistari: Sigrún Eðvaldsdóttir
HLÉ
Fritz Kreisler:
Rezitativo og Scherzo fyrir einleiksfiðlu
Flytjandi:
Sigurbjörn Bernharðsson
Robert Schumann:
Píanókvintett í Es-dúr op. 44
Allegro Brilliante
In modo d´una Marcia (un poco largamente)
- Agitato
Scherzo (Molto Vivace) Trios I, II
Finale (Allegro non troppo)
Flytjendur:
Sigurbjörn Bernharðsson, 1. fiðla.
Sif Tulinius, 2. fiðla.
Ásdís Valdimarsdóttir, víola.
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló.
Nína Margrét Grímsdóttir, píanó.
Efnisskrá tónleikanna sunnudaginn 18. maí kl. 17.00: Efnisskrá tónleikanna mánudaginn 19. maí kl. 20.00:
UM 90 herbergi verða í nýju hóteli
við Aðalstræti en hönnun þess er
nú á lokastigi. Gert er ráð fyrir að
teikningar að hótelinu og land-
námsskálanum sem verður undir
því, fari fyrir bygginganefnd
Reykjavíkur á næstunni. Saman-
lagður kostnaður fyrir hótelið og
landnámsskálann er áætlaður á
bilinu 925 milljónir til 1.125 millj-
ónir króna.
Eins og fram kom í Morgun-
blaðinu á miðvikudag er ráðgert að
undirbúningsframkvæmdir vegna
bygginganna hefjist í júlí næst-
komandi en fyrirhugað er að að-
staðan verði tilbúin til notkunar í
apríl árið 2005. Framkvæmdirnar
við hótelið eru á vegum eigna-
haldsfélagsins Innréttinganna sem
að standa Minjavernd og fast-
eignafélagið Stoðir. Það er hins
vegar Reykjavíkurborg sem stend-
ur að framkvæmdum við land-
námsskálann.
Fjöldi ólíkra viðhorfa
samræmdur
Að sögn Þorsteins Bergssonar,
framkvæmdastjóra Minjaverndar,
verða nýbyggingar hótelsins
byggðar að hluta til utan um Að-
alstræti 16. „Þarna erum við með
friðað hús sem er byggt á löngum
tíma. Elsti hlutinn af því er frá
1764 og það var ekki komið í end-
anlegt horf fyrr en um 1902. Þann-
ig að húsið þróaðist í vel á annað
hundrað ár í það form sem það
hafði fyrir framkvæmdirnar nú,“
segir hann.
Hann segir að nauðsynlegt hafi
verið að samræma fjölda ólíkra
viðhorfa þegar hafist var handa við
hönnun og skipulagningu hótelsins.
Þannig hafi þurft að horfa til at-
riða á borð við nýtingu, fjármagn
og rekstur auk yfirbragðs hússins
til að raunsætt væri að ráðast í
þann kostnað sem væri samfara
því að endurbyggja svona hús.
„Hugsunin var sú að nota elsta
hluta hússins sjálfs en flytja burt
yngsta hlutann, þ.e.a.s. þá álmu
sem gekk til norðurs út úr húsinu.
Sá hluti er núna úti á Granda en
verður settur niður á Lindargötu
60 og gerður að íbúðarhúsi þar.“
Utan um gamla húsið verða
byggðir fjórir hússkrokkar sem að
sögn Þorsteins verða allir sam-
tengdir, t.d. með gleri og stiga-
göngum. Þannig megi segja að
hótelið verði eins konar húsaþyrp-
ing. „Þar með fannst mönnum þeir
ná að slá dálítið á tilfinninguna
fyrir stærð hússins þannig að það
yrði léttara yfir því en ef þetta
hefði verið einn kassi. Gamla húsið
verður síðan endurbyggt að utan
og innan þannig að það haldi því
yfirbragði og svipmóti sem það
hafði upp úr aldamótunum 1900.“
Útiveitingar á torgi
við landnámsskálann
Hótelið verður allt að fjórar
hæðir en lægsti hluti þess er
gamla byggingin sem er tvær hæð-
ir og ris. Alls verða um 90 her-
bergi í byggingunum, bæði eldri
hluta þeirra og nýrri. Ekki er gert
ráð fyrir ráðstefnusal eða stórri
fundaraðstöðu í hótelinu en að
sögn Þorsteins verða þó tvö fund-
arherbergi auk veitingastaðar.
„Það verður gert einna mest úr
neðstu hæðinni í Aðalstræti 16 en
þar verður mjög skemmtilegt mót-
tökurými sem mun tengjast „lobb-
ýinu“ eða anddyri hótelsins,“ segir
hann. Þá hafi menn séð fyrir sér
að hægt verði að vera með útiveit-
ingar á torginu við innganginn að
landnámsskálanum enda sé þar
gott skjól fyrir norðanáttinni.
Hótelið verður um 3.800 fer-
metrar að stærð og er kostnaður
áætlaður á bilinu 600–800 milljónir
króna. Til viðbótar kemur svo
landnámsskálinn, sem verður á
vegum Reykjavíkurborgar en að-
alhönnuður beggja verkefnanna er
Teiknistofan Skólavörðustíg 28.
„Báðir aðilar vinna núna mjög
hröðum höndum að því að ljúka
hönnuninni og síðan er stefnt að
því að borgin hefji sínar fram-
kvæmdir á staðnum í ágúst eða
svo,“ segir Þorsteinn en undirbún-
ingsframkvæmdir munu hefjast
nokkru fyrr.
„Áætlað er að búið verði að reisa
upp rýmið í kringum sýningarskál-
ann um mánaðamótin nóvember og
desember og þá er hægt að hefja
framkvæmdir við hótelið.“ Samn-
ingar kveði síðan á um að fyrsta
apríl verði framkvæmdum lokið og
aðstaðan komin í notkun.
Kostnaður landnámsskála
áætlaður 325 milljónir
Þorkell Erlingsson er umsjón-
armaður byggingar landnámsskál-
ans fyrir hönd Reykjavíkurborgar.
Hann segir enn unnið að hönnun
skálans, sem kemur til með að
liggja undir hótelinu. Skálinn, sem
verður um 1.200 fermetrar að flat-
armáli, verður byggður utan um
landnámsrústina sem nýlega
fannst við Aðalstræti en auk hans
er gert ráð fyrir sýningarsvæðum
og fjölnota sal sem nýttur verður
t.d. fyrir fyrirlestra.
„Þetta verður eingöngu tengt
sýningu á þessari landnámsrúst og
fornminjum sem eru mjög margar
á þessu svæði,“ segir Þorkell. Sér-
inngangur verður að skálanum frá
horni Túngötu og Aðalstrætis og
segir Þorkell verkefnin þannig al-
veg aðskilin í sjálfu sér.
Í þriggja ára fjárhagsáætlun
borgarinnar er kostnaður við fram-
kvæmdir við skálann áætlaður 325
milljónir króna, sem dreifast á árin
2003–2006.
Hönnun hótels við
Aðalstræti á lokastigi
Kostnaður hótels og sýningarskála allt að 1.125 milljónir
Miðborg
Tölvumynd/Landmat
Hér sést hvernig nýju byggingarnar verða byggðar utan um elsta hlutann.
Tölvumynd/Landmat
Utanfrá séð verður hótelbyggingin eins og þyrping nokkurra húsa.