Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 28
SUÐURNES
28 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Í GÆR var haldin á Egilsstöðum ráð-
stefna á vegum Small Town Net-
works, sem er þriggja ára samvinnu-
verkefni Íslendinga, Svía, Finna og
Skota og er m.a. styrkt í gegnum
norðursvæðaáætlun Evrópusam-
bandsins.
Þeir aðilar sem þátt taka í Small
Town Networks frá Íslandi eru sveit-
arfélögin Austur-Hérað, Búðahrepp-
ur, Fjarðabyggð og Seyðisfjörður.
Markmið verkefnisins er að kjarni
sveitarfélaga á hverju samstarfs-
svæði vinni náið saman að skilgreind-
um hagsmunamálum. Íslensku aðil-
arnir munu starfa sameiginlega að
styrkingu samfélagsins á Austur-
landi, með því að treysta samstarf og
byggja upp skipulag sem vinnur með
þróun þeirra og er vettvangur sam-
eiginlegrar ákvarðanatöku. Þá á að
móta samkomulag um þróun sam-
félagsins á því svæði sem sveitar-
félögin ná yfir, en vinna á með það
sem kjarnasvæði Austurlands.
Í tengslum við verkefnið verða
haldnar ráðstefnur í hverju þátttökul-
andanna um ákveðið málefni og var
byrjað á Íslandi. Ráðstefnan að þessu
sinni tók sérstaklega á málefnum
ungs fólks, menntun, menningu og af-
þreyingu. Um tugur fulltrúa kom til
ráðstefnunnar frá hverju þátttökul-
andanna.
Íslendingar, Svíar, Finnar og Skotar
miðla þekkingu um smærri samfélög
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Frá upphafsráðstefnu verkefnisins, sem haldin var á Egilsstöðum í gær.
Þar voru málefni ungs fólks í smærri samfélögum rædd.
Þriggja ára sam-
vinnuverkefni
hefst á Austurlandi
Egilsstaðir
FYRIR skömmu afhentu nokkur
félög í Fjarðabyggð Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í Neskaupstað (FSN)
hlaupabretti að gjöf. Um er að
ræða tölvustýrt hlaupabretti af
fullkomnustu gerð. Félögin sem
að gjöfinni stóðu eru Hollvina-
samtök Fjórðungssjúkrahússins,
Félag hjartasjúklinga á Austur-
landi, Sjálfsbjörg Neskaupstað,
Lionsklúbbur Eskifjarðar og
kvenfélagið Nanna. Það var Björn
Magnússon, forstöðulæknir FSN,
sem veitti tækinu viðtöku. Á
Fjórðungssjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað hefur lengi verið mikil
endurhæfingarstarfsemi og er nú
unnið að frekari uppbyggingu
hennar.
Við sama tækifæri færði sr. Sig-
urður Rúnar Ragnarsson, formað-
ur Hollvinasamtaka FSN, Sjúkra-
húsinu heimasíðu að gjöf.
Hollvinasamtökin voru stofnuð ár-
ið 2000 og er leiðarljós þeirra er
að vinna að góðum málefnum,
Sjúkrahúsinu og heilsugæslu á
Austurlandi öllu til heilla. Um 500
manns eru í samtökunum.
Tímabundin slóð að nýju heima-
síðunni er: www.romarvef-
urinn.is/fsn og verður hún nýtt til
upplýsingamiðlunar og fræðslu til
almennings.
Jón Kristjánsson heilbrigð-
isráðherra var viðstaddur og
sagði við þetta tækifæri að góðar
gjafir frá félagasamtökum til heil-
brigðisþjónustu í landinu yrðu
seint fullþakkaðar.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra, sr. Sigurður Rúnar Ragnarsson holl-
vinur, Björn Magnússon, forstöðulæknir FSN, og Smári Geirsson, formað-
ur bæjarráðs Fjarðabyggðar, ræða málin að afhendingu lokinni.
Fjórðungssjúkra-
húsið fær góðar gjafir
Neskaupstaður
BANDARÍSKA fyrirtækið IPT sem
hyggst reisa stálröraverksmiðju í
Helguvík hefur fengið frest hjá
Reykjaneshöfn til að leggja fram
tryggingu fyrir kostnaði hafnarinnar
við lóðarframkvæmdir. Fyrirtækið
hyggst flýta framkvæmdum við
bygginguna, hefjast handa þar í
haust þegar lóðin verður tilbúin og
hefja framleiðslu á fyrsta ársfjórð-
ungi 2005.
Í samningum IPT við Reykjanes-
höfn og Reykjanesbæ var gert ráð
fyrir að umfangsmiklar framkvæmd-
ir Reykjaneshafnar við að gera lóð
fyrir verksmiðju fyrirtækisins við
höfnina í Helguvík myndu hefjast
strax og fyrirtækið hefði lokið fjár-
mögnun verksmiðjunnar og lagt
fram tryggingu upp á 2,3 milljónir
Bandaríkjadala eða staðfestingu
fjármálastofnunar. Ef staðfestingar-
bréf væri lagt fram frestaðist fram-
vísun bankatryggingar í allt að tólf
mánuði, eða til maí 2004. Frestur til
að leggja fram þessa tryggingu eða
bréf átti að renna út 24. þessa mán-
aðar en eigendur fyrirtækisins
reiknuðu með að leggja hana fram
fyrr svo að framkvæmdir á lóðinni
gætu hafist.
Vegna hagstæðra tilboða sem
Reykjaneshöfn fékk í sprengingu og
flutning grjóts af lóðinni ákváðu
bæjaryfirvöld að semja við verktaka,
þótt tryggingar lægju ekki fyrir, og
er nú unnið að framkvæmdinni.
Grjótið er notað í sjóvarnir og hafn-
argerð víðsvegar um Reykjanesbæ
auk þess sem það er notað til að
jafna fjölda lóða á iðnaðarsvæðinu
við Helguvík. Forsvarsmenn IPT
voru hér á ferðinni í vikunni og þá
var gengið frá breytingum á fyrra
samkomulagi. Árni Sigfússon bæjar-
stjóri segir að undirbúningur fram-
kvæmdarinnar gangi vel og eru við-
ræður við banka á lokastigi. Vegna
ákvörðunar Reykjanesbæjar að flýta
framkvæmdum við lóðina og já-
kvæðra viðbragða fjármálastofnana
við fjármögnun hafi IPT ákveðið að
flýta framkvæmdum. Fyrirtækið
teldi ekki þörf á að nýta þann árs
frest sem það hefði en bæði um tíma
fram í nóvember til að ljúka fjár-
mögnun. Segir Árni að með þessu
samkomulagi færi það saman að fyr-
irtækið afhenti tryggingaféð um leið
og lóðin væri tilbúin og framkvæmd-
ir við uppbyggingu gætu hafist í
október eða nóvember á þessu ári.
Árni segir að Reykjanesbær sé
ekki að auka áhættu sína með því að
lengja þennan frest. Framkvæmdir
við lóðina væru þegar hafnar og efn-
ið af henni nýttist Reykjanesbæ vel.
Bærinn legði ekki neina fjármuni í
verkefnið að öðru leyti.
Hefja mannaráðningar að ári
Nú gera forsvarsmenn IPT ráð
fyrir að hefja framleiðslu á fyrsta
ársfjórðungi 2005. Gert er ráð fyrir
að um 200 manns starfi við verk-
smiðjuna og er stefnt að því að hefja
ráðningu starfsmanna næsta sumar,
þegar kemur að uppsetningu véla og
tækja, og munu þeir síðan vinna
áfram í verksmiðjunni þegar fram-
leiðsla hefst á árinu 2005.
Atvinnu- og hafnaráð Reykjanes-
bæjar samþykkti að veita fyrirtæk-
inu þriggja til sex mánaða frest „þar
sem greinilega er unnið markvisst að
því aðljúka fjármögnun verksins,“
segir í bókun ráðsins.
IPT fær frest fram á haust til að leggja fram tryggingu
Verksmiðjuhús International Pipe & Tube (langa skemman fyrir miðri mynd) verður stórt mannvirki við hafn-
arbakkann í Helguvík, samkvæmt tölvuteikningu Guðmundar Jónssonar arkitekts í Noregi. Sementstankarnir
tveir til vinstri á myndinni, sem Aalborg Portland hefur reist, eru mun hærri en þeir eru sýndir á myndinni.
Áforma að hefja upp-
byggingu í nóvember
Helguvík
Fulltrúar Reykjanesbæjar og IPT á væntanlegri lóð í Helguvík, Þorsteinn
Erlingsson, formaður atvinnu- og hafnaráðs, David Snyder verkefnisstjóri,
Barry D. Bernstein, aðaleigandi IPT, og Árni Sigfússon bæjarstjóri.
BÚMENN eru í viðræðum um
að fá lóðir til að byggja á í efsta
hluta nýs Hlíðahverfis sem ver-
ið er að skipuleggja á Neðra-
Nikelsvæði í Njarðvík. Kemur
það fram í fréttabréfi Bú-
manna.
Reykjanesbær hefur auglýst
deiliskipulag af svæðinu. Efst í
landinu er skipulagt sérstakt
hringlaga svæði fyrir 38 íbúðir,
nokkuð aðgreint frá öðrum
hlutum hverfisins. Hugmyndin
er að Búmenn byggi þar íbúðir
og úthluti til félagsmanna sem
eru 50 ára og eldri. Verða þetta
fyrstu Búmannaíbúðirnar í
Reykjanesbæ, ef áætlanir
ganga eftir.
Búmenn
í Hlíða-
hverfi
Njarðvík LIONSMENN í
Sandgerði hafa á
undanförnum árum
unnið að endurbygg-
ingu á húsi sínu, Efra
Sandgerði, sem er
elsta húsið í bænum.
Í vikunni skiptu þeir
um járn á þaki húss-
ins.
Sveinbjörn Þórð-
arson útvegsbóndi
byggði Efra Sand-
gerði árið 1883 úr
timbri af risastóru amerísku segl-
skipi, Jamestown, sem rak mann-
laust að landi og strandaði við Hvals-
nes tveimur árum fyrr.
Timburfarminum var bjargað á land
og efnið notað til að byggja fjölda
húsa á Suðurnesjum, Suðurlandi og
víðar um landið.
Húsið Efra Sandgerði á sér merka
sögu. Þar var meðal annars fyrsta
símstöðin á staðnum og það var not-
að sem verbúð í fjöldamörg ár.
Lionsklúbbur Sandgerðis eignað-
ist húsið fyrir um tuttugu árum og
hafa lionsmenn síðan unnið að varð-
veislu þess og endurbótum.
Elsta hús
bæjarins lagfært
Sandgerði