Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 35
GOETHE Zentrum býður þýðendum og áhugamönnum um Günter Grass á námskeið á morgun, laugardag, með þýsk-finnskum fyrirlesara, Luise Liefländer-Koistinen. Námskeiðið hefst kl. 9.30. Luise Liefländer-Koist- inen fjallar um þýðingarvandann með stórverk Grass, Ein weites Feld, en hún hefur rannsakað þýðinguna á finnsku og tvær enskar þýðingar. Í inngangi námskeiðsins segir Luise Liefländer-Koistinen frá rann- sóknum sínum og þátttakendur kynn- ast verkinu með því að þýða einstaka þætti í litlum hópum. Fyrirlesturinn er á þýsku, en umræðan getur verið á íslensku og þýsku. Aðgangur er ókeypis. Günter Grass – fyrir þýðendur og áhugamenn Íslenskur veruleiki í ASÍ HRAFNHILDUR Sigurðardótt- ir opnar sýningu í Listasafni ASÍ í dag, laugardag, kl. 14. Hrafn- hildur sýnir lágmyndir, textílverk og myndverk unnin með tölvu- tækni í Ásmundarsal og Gryfju. Í Ásmundarsal eru verk sem fjalla um hvernig hún upplifði að koma heim til Íslands að lokinni náms- dvöl erlendis. Hún setur sig í spor utanaðkomandi gests og skoðar íslenskan veruleika eins og hann blasir við. Þetta verður henni tilefni til að gera stöðu konunnar í okkar vestræna þjóð- félagi að umfjöllunarefni og fjalla m.a. um stöðu myndlistarkvenna, unglingsstúlkna og fórnarlamba hins nýja íslenska kynlífsiðnaðar. Í Gryfju sýnir Hrafnhildur myndverk unnin með tölvutækni sem hún kallar einu nafni Úpsa- deisí. Þau verk vísa í senn bæði inn á við og út á við. Hrafnhildur lauk námi í skúlp- túrdeild University of Colorado í Boulder í BNA árið 2000 en hafði áður lokið námi í skúlptúrdeild og textíldeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands. Hrafnhild- ur var einn af stofnendum og meðeigendum Sneglu, listhúss. Þetta er áttunda einkasýning Hrafnhildar en hún hefur einnig tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima sem og á erlendri grund. Sýningin stendur til sunnu- dagsins 1. jún. Opið frá 13-17 alla daga nema mánudaga. LISTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 35 Kjarna- vörur Bakarahátíð í Smáralind Fylgist með spennandi keppni í brauð- og kökubakstri í Vetrargarðinum, Smáralind, dagana 16. til 18. maí Föstudaginn 16. maí: Baksturskeppni bakaríanna - Fyrri hópur ....... Laugardaginn 17. maí: Baksturskeppni bakaríanna - Seinni hópur ....... Úrslit kynnt og verðlaunaafhending .......................... Sunnudaginn 18. maí: Verk keppenda til sýnis................................ Á keppnissvæðinu verða fyrirtæki með ýmsar kynningar og uppákomur, marsipanskreytingar, súkkulaði, kaffi bakarans og margt fleira. Á sunnudeginum gefst fólki kostur á að ræða við meistarana og smakka á brauði og bakkelsi. 12:00 - 18:00 9:00 - 15:00 17:00 13:00 - 18:00 STEINUNN Marteinsdóttir opnar sýningu á Hulduhólum í Mosfellsbæ kl. 14 í dag, laugardag. Sýninguna nefnir hún Nú er úti vetrar þraut og gefur þar að líta málverk og verk úr leir; myndir sem segja af þeim tíð- indum þegar líf færist í náttúruna á vorin og tengja sig um leið við gömul íslensk viðlög og stemmur, leirverk sem til verða við að skoða klettabelti Esjunnar og jökla landsins, einnig stórgerðan „borðbúnað“ Hítar tröll- konu þeirrar er drakk jól með Bárði Snæfellsás. Flest verkanna eru unnin á sl. tveim árum. Sýningin, er opin dag hvern kl.14–18 fram til 1. júní, eftir það verður hún opin um helgar fram eftir sumri eða eftir samkomulagi. Vasar eftir Steinunni Marteinsdóttur. Steinunn sýnir á Huldu- hólum mbl.isFRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.