Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 60
DAGBÓK
60 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Reykjavíkurhöfn: Dal-
heim, Laugarnes og
Lómur koma í dag.
Hafnarfjarðarhöfn:
Svanur kom í gær,
Akamalik og Rán fara
líklega í dag.
Mannamót
Bólstaðarhlíð. Handa-
vinnusýning laugardag
sunnudag og mánudag
kl. 13–17.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Í dag
morgunganga kl. 10,
Söngmót 5 kóra eldri
borgara verður í dag
kl. 16 í Íþróttahúsinu
að Varmá í Mos-
fellsbæ. Kórar frá
Hafnarfirði, Árborg,
Akranesi, Suð-
urnesjum og Mos-
fellsbæ.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Handa-
vinnuhornið hefur opn-
að sýningu í Garða-
bergi. Opin laugardag
og sunnudag kl. 14–16
og næstu viku kl. 13–
17. Fjölbreytt handa-
vinna.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Fræðslu-
nefnd FEB verður með
fræðsluferð á Sólheima
28. maí leiðsögn á
staðnum. Brottför frá
Ásgarði Glæsibæ kl.
13. Skrifstofa félagsins
er í Faxafeni 12 sími.
588 2111.
Félagsstarfið Löngu-
hlíð 3. Handverkssýn-
ing í dag laugardaginn
17. maí, sunnudaginn
18. maí, og mánudag-
inn 19. maí, opið frá kl.
13–17 alla dagana, kaffi
og meðlæti.
Vitatorg. Handverks-
sýning verður í dag
laugardag 17. maí kl.
11–16.30, og mánudag
19. maí, kl. 9–16, allir
velkomnir. Ath. ekki er
handverkssýning
sunnudaginn 18. maí.
Vinnustofur fé-
lagsmiðstöðvarinnar
eru lokaðar á mánudag
vegna handverkssýn-
ingarinnar, vinnustof-
ur opnaðar aftur
þriðjudaginn 20. maí.
Gönguklúbbur Hana–
nú. Morgunganga kl.
10 laugardagsmorgna
frá Gjábakka.
Krummakaffi kl. 9.
Gigtarfélagið. Leik-
fimi alla daga vik-
unnar. Létt leikfimi,
bakleikfimi karla,
vefjagigtarhópar, jóga,
vatnsþjálfun. Einn
ókeypis prufutími fyrir
þá sem vilja. Uppl. á
skrifstofu GÍ, s.
530 3600.
Stuðningsfundir fyrr-
verandi reykingafólks.
Fólk sem sótt hefur
námskeið gegn reyk-
ingum í Heilsustofnun
NLFÍ í Hveragerði,
fundur í Gerðubergi á
þriðjud. kl. 17.30.
GA-fundir spilafíkla,
kl. 18.15 á mánudögum
í Seltjarnarneskirkju
(kjallara), kl. 20.30 á
fimmtudögum í
fræðsludeild SÁA
Síðumúla 3–5 og í
Kirkju Óháða safn-
aðarins við Háteigsveg
á laugardögum kl.
10.30.
Samtök þolenda kyn-
ferðislegs ofbeldis,
fundir mánudaga kl. 20
að Sólvallagötu 12.
Stuðst er við 12 spora
kerfi AA-samtakanna.
Oa-samtökin. Átrösk-
un / Matarfíkn / Ofát.
Fundir alla daga. Upp-
lýsingar á www.oa.is
og síma 878 1178.
Ásatrúarfélagið,
Grandagarði 8. Opið
hús alla laugardaga frá
kl. 14.
Kattholt. Flóamark-
aður í Kattholti, Stang-
arhyl 2, er opinn
þriðjud. og fimmtud.
frá kl. 14–17. Leið 10
og 110 ganga að Katt-
holti.
Minningarkort
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúk-
linga fást á eftirtöldum
stöðum á Suðurlandi:
Skóverslun Axel Ó.
Lárussonar, Vest-
mannabraut 23, Vest-
mannaeyjum, s. 481
1826 Mosfell sf., Þrúð-
vangi 6, Hellu, s. 487
5828 Sólveig Ólafs-
dóttir, Verslunin
Grund, Flúðum, s. 486
6633 Sjúkrahús Suður-
lands og Heilsugæslu-
stöð, Árvegi, Selfossi,
s. 482 1300 Verslunin
Íris, Austurvegi 4, Sel-
fossi, s. 482 1468
Blómabúðin hjá Jó-
hönnu, Unabakka 4,
815 Þorlákshöfn, s. 483
3794
Minningarkort Lands-
samtaka hjartasjúkl-
inga, fást á eftirtöldum
stöðum á Reykjanesi.
Bókabúð Grindavíkur,
Víkurbraut 62, Grinda-
vík, s. 426 8787 Penn-
inn – Bókabúð Kefla-
víkur, Sólvallagötu 2,
Keflavík, s. 421 1102
Íslandspóstur hf.,
Hafnargötu 89, Kefla-
vík, s. 421 5000 Ís-
landspóstur hf., c/o
Kristjana Vilhjálms-
dóttir, Garðbraut 69,
Garður, s. 422 7000
Dagmar Árnadóttir,
Skiphóli, Skagabraut
64, Garður, s. 422 7059.
Krabbameinsfélagið.
Minningarkort félags-
ins eru afgreidd í síma
540 1990 og á skrifstof-
unni í Skógarhlíð 8.
Hægt er að senda upp-
lýsingar í tölvupósti
(minning@krabb.is).
Í dag er laugardagur 17. maí,
137. dagur ársins 2003.
Orð dagsins: Hafið gát á sjálfum
yður, ef bróðir þinn syndgar, þá
ávíta hann, og ef hann iðrast, þá
fyrirgef honum.
(Lúkas. 17, 3.)
Rafræn geymsla frétta ígagnasöfnum fjöl-
miðlanna hefur gert starf
stjórnmálamanna
snúnara. Fyrir pólitíkusa,
sem eru ekki nema mátu-
lega sjálfum sér sam-
kvæmir, getur verið svo-
lítið vandræðalegt þegar
flett er upp í gömlum um-
mælum þeirra.
ÍVefþjóðviljanum erfjallað um kosn-
ingaúrslitin um síðustu
helgi og segir þar: „Það
vekur auðvitað athygli að
Framsóknarflokkur og
Samfylking eiga nú kost á
því að mynda meiri-
hlutastjórn á þingi og hef-
ur Össur Skarphéðinsson
ekki legið á liði sínu [...] að
benda á þennan mögu-
leika. Í forsetakosningum
í Bandaríkjunum er kosið
um kjörmenn í hverju ríki
fyrir sig. Þessir kjörmenn
velja forsetann. Í síðustu
kosningum fékk George
W. Bush ekki meirihluta
atkvæða á landsvísu en
fékk engu að síður meiri-
hluta kjörmanna og var
rétt kjörinn forseti.
Rætt var við Össur
Skarphéðinsson um þessa
niðurstöðu í Morg-
unblaðinu 15. desember
2000 og þar segir meðal
annars: „Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylk-
ingarinnar, segir að úrslit
forsetakosninganna séu
áfall fyrir lýðræðið. Nið-
urstaðan hljóti að leiða til
umræðu um breytingar á
fyrirkomulagi kosning-
anna og talningar at-
kvæða, þannig að í fram-
tíðinni verði ekki
mögulegt að verða forseti
með færri atkvæði en sá
sem tapar.““
Vefþjóðviljinn helduráfram: „Þetta er sami
Össur og segir nú að lokn-
um kosningum að sá
draumur sinn hafi ræst að
hægt sé að mynda rík-
isstjórn Samfylkingar og
Framsóknarflokks. Í kosn-
ingunum í gær fengu þess-
ir flokkar samanlagt
48,7% atkvæða en engu að
síður meirihluta þing-
manna. Væri stjórn þess-
ara flokka áfall fyrir lýð-
ræðið?“
Á fréttavef Bæjarinsbesta á Ísafirði er bent
á athyglisverða staðreynd
í kosningaúrslitunum: „Í
nýafstöðnum alþing-
iskosningum fékk fram-
boð Nýs afls 122 atkvæði í
Norðvesturkjördæmi. Til
að framboðslistinn teldist
gildur þurftu að fylgja
undirskriftir a.m.k. 300
meðmælenda í Norðvest-
urkjördæmi auk fram-
bjóðendanna sjálfra. Ef
gert er ráð fyrir því að
frambjóðendurnir sjálfir
hafi kosið listann, hafa
einungis 102 kjósendur ut-
an listans stutt framboðið.
Að meðaltali hefur því
hver frambjóðandi afrek-
að að fá til fylgis við sig 5
kjósendur.Fátítt er að
framboðslisti nái ekki
jafnmörgum atkvæðum og
fjöldi meðmælenda er.
Menn minnast þess þó að
svipuð staða hafi komið
upp í alþingiskosningum
16. júlí árið 1933.“
STAKSTEINAR
Össur nú ósammála
Össuri þá
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI fór á dögunum í heim-sókn til Færeyja í fyrsta skiptið
á ævinni. Eftir á að hyggja finnst
honum í raun skrýtið að hann hafi
ekki drifið sig fyrr til eyjanna, svo
nálægt liggja þær Íslandi, jafnt
landfræðilega sem menningarlega.
En þarna kemur inn dálítið ein-
kennilegur hlutur, sem Víkverji við-
urkennir að hann þjáðist af. Fær-
eyjar voru í huga hans eitthvað
sveitó, eitthvað fyndið, einhvers kon-
ar misheppnaður lilli bró sem maður
brosir til með hæðnisglotti í barns-
legum hroka. Grikkland, Bandarík-
in, Suður-Afríka – bara öll önnur
lönd voru miklu meira spennandi.
En í Færeyjaferðinni lærði Víkverji
mikilvæga lexíu. Hann þroskaðist.
Og nú finnst honum nálægt því fá-
ránlegt að Íslendingar geri Fær-
eyjar ekki að forgangslandi, hvað
ferðalög snertir. Færeyjar eru
spennandi og heillandi land og
áhugavert hverjum þeim sem vex
upp á Íslandi að skoða. Því þarna er
margt svo líkt með okkur – um leið
og það er allt öðruvísi. Fyrst og
fremst býr þó einfaldlega fólk þarna,
fólk sem er nauðalíkt Íslendingum í
háttum, Vesturlandabúar með vonir
og væntingar rétt eins og við.
HAUSTIÐ 1992 reið kreppa yfireyjarnar sem hafði athygl-
isverðar afleiðingar í för með sér.
Færeyjar eru sjálfstjórnarsvæði
undir Danmörku og fram að þessum
atburðum hafði fylgi við sam-
bandsslit verið lítið. En sjá, í kjölfar
kreppunnar fór listalíf að blómstra,
menningarlíf varð fjölskrúðugra og
eyjarnar hafa þokast upp á við æ síð-
an. Fjárhagurinn hefur vænkast
hægt og bítandi og nú er svo komið
að kröfur um stofnun sjálfstæðs rík-
is eru að verða algengari. Þeir sem
styðja þær hugmyndir líta til Íslands
sem ákveðins líkans um hvernig
haga beri málum í þeirri baráttu.
Skýrt skal tekið fram að þessi mál
eru síst einföld og báðir aðilar hafa
vissulega mikið til síns máls. Sam-
bandssinnar benda réttilega á að
það geti falist ákveðin fífldirfska í
því að krefjast fullkominna slita við
danska ríkið. Þjóðveldissinnar vísa á
meðan í sálarlíf eyjaskeggja; segja
sem svo að ómögulegt sé að halda
mannlegri reisn sé maður ekki
frjáls. Þetta kann að vera einföldun,
en grunntónn hvorra tveggja hljóm-
ar eitthvað á þessa leið.
x x x
ÍDAG og í kvöld fara fram mikil há-tíðahöld á Fjörukránni og á Hótel
Loftleiðum í tilefni þess að Fær-
eyingafélagið í Reykjavík er 60 ára.
Vikuna fram að landsleik Íslands og
Færeyja í knattspyrnu, laugardag-
inn 7. júní, verður staðið fyrir fær-
eyskri viku í Reykjavík, þar sem
margbreytileiki færeyskrar menn-
ingar verður kynntur.
Víkverji vonar innilega að menn-
ing beggja þjóða verði sýnilegri á
báðum stöðum, til muna sýnilegri en
áður hefur verið. Í því felst hagur, til
handa báðum þjóðum, því svo margt
er hægt að læra af þeim sem stendur
manni næst.
Hver kannast
við þetta?
LÍFIÐ er tafl og tenings-
spil/ það tefla það allir sér í
vil/ eftir viti og vilja./ Oft
þeir tefla einna verst/ sem
ætla sér að tefla best/ því
skákina ei þeir skilja.
Í lokin er hér málsháttur
sem á vel við að nýloknum
kosningum: Að ljúga að
öðrum er ljótur vani, en að
ljúga að sjálfum sér er
hvers manns bani.
E.J.
Árla dags
ÉG tel að Vilhelm G. Krist-
insson sé áheyrilegasti út-
varpsmaður sem við eigum
nú. Þáttur hans á morgn-
ana, Árla dags, er ólíkur
öðru því sem er á ljósvak-
anum, viðkunnanlegur og
hæfilega íhaldssamur.
Vilhelm er einkar lagið
að spjalla og leika fjöl-
breytta músík sem hentar
vel á þessum tíma dagsins.
Það eru ekki margir sem
spila hljómlist með Hljóm-
sveit Rauða hersins sem
stundum heyrist í Árla
dags, gjarnan frá ferð
hljómsveitarinnar til
Lundúna í kringum 1960.
Ég vil vegna þessa taka
undir með Árna Vilhjálms-
syni sem fann að því í
Morgunblaðinu fyrir
stuttu, að nú hefur nýr
þáttur, Morgunvaktin,
klippt Vilhelm í sundur.
Morgunvaktin þarf af ein-
hverjum ástæðum, sem við
Árni skiljum ekki, að vera á
báðum rásum útvarpsins.
Við spyrjum því: Hví meg-
um við ekki hafa Vilhelm í
friði á Rás 1 fyrst hann, og
náttúrulega við, erum vakn-
aðir á annað borð?
Óskar Magnússon
Smáraflöt 49,
210 Garðabæ.
Tillaga um ríkisstjórn
réttlætis og jafnaðar
FRÁ Framsóknarflokki:
Halldór Ásgrímsson for-
sætisráðherra, Guðni
Ágústsson landbúnaðaráð-
herra, Valgerður Sverris-
dóttir iðnaðar-og viðskipta-
ráðherra, Jón Kristjánsson
heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra, Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra.
Frá Samfylkingu: Ingibjörg
Sólrún Gísladóttir utanrík-
isráðherra, Össur Skarp-
héðinsson fjármálaráð-
herra, Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra,
Guðmundur Árni Stefáns-
son samgönguráðherra, Ell-
ert Schram dóms- og
kirkjumálaráðherra. Frá
Frjálslynda flokknum: Guð-
jón Arnar Kristjánsson
sjávarútvegsráðherra, Mar-
grét Sverrisdóttir mennta-
málaráðherra, Margrét Frí-
mannsdóttir forseti
Alþingis. Það kæmi í hlut
Ellerts Schram að byggja
Landhelgisgæsluna upp úr
rústum hennar, það kæmi í
hlut Össurar að jafna kjörin
í landinu og Guðjóns Arnars
að færa þjóðinni fiskinn í
sjónum á nýjan leik.
Vestarr Lúðvíksson.
Framsókn
í virkjunum
ÉG undrast að B-listinn
skuli ekki hafa misst at-
kvæði í nýliðnum kosning-
um vegna stefnu flokksins í
virkjana- og náttúruvernd-
armálum. Kannske er skýr-
inguna að finna í því að
kjósandi B-listans, sem
hugsanlega er ekki sam-
mála þeirri stefnu, getur
ekki látið í ljósi mótmæli sín
í kjörklefanum nema strika
út þá ráðherra B-listans
sem hafa farið með þau mál
eða færa þá neðar. Ekki er
víst að sannir B-listamenn
telji slíkt góða heildarlausn
enda þarf marga kjósendur
til að hafa áhrif. Einnig er
ranglátt að kjósendur sem
kjósa aðra flokka en B-lista
geti ekki sýnt hneykslan
sína með því að strika Siv
og/eða Valgerði út nema
gera sinn eigin kjörseðil
ógildan.
Framsóknarmaður
í náttúruvernd.
Dýrahald
Hefur einhver
séð Jósafat?
ÞETTA er Jósafat. Hann
hefur ekki skilað sér heim í
Stangarholt 10, 105 Rvík
síðan í lok mars.
Hann var með drapplit-
aða ól sem á var blátt
merki. Hann er líka eyrna-
merktur með tölunni 610.
Hans er sárt saknað.
Ef einhver getur gefið
okkur upplýsingar um hann
vinsamlegast hafið sam-
band við okkur í síma 551-
0848 eða 864-0426.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Torfason
LÁRÉTT
1 meina, 8 verkfæri,
9 belti, 10 reyfi, 11 ýfir,
13 glæsilegur árangur,
15 hvelfing, 18 bál,
21 hrós, 22 drukkna,
23 ilmur, 24 eftirtekja.
LÓÐRÉTT
2 semur, 3 reiður, 4 hita-
svækja, 5 nákomnar,
6 sjúkdómskast, 7 starf-
söm, 12 kraftur, 14 fauti,
15 eiga við, 16 leyfi,
17 fletja fisk, 18 vafans,
19 skútu, 20 skökk.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 burst, 4 kamar, 7 ausur, 8 sonur, 9 fit,
11 tómt, 13 árin, 14 ísinn, 15 borð, 17 auga, 20 gný,
22 asnar, 23 staga, 24 létta, 25 renna.
Lóðrétt: 1 brast, 2 rósum, 3 torf, 4 kost, 5 mánar,
6 rýran, 10 iðinn, 12 tíð, 13 ána, 15 brall, 16 rangt,
18 uxann, 19 afana, 20 gróa, 21 ýsur.
Krossgáta 6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16