Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 63

Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 63
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 63 Golfklúbbur Sandgerðis Kirkjubólsvöllur Hjóna- og parakeppni Fjólu Hjóna- og parakeppni verður haldin á Kirkjubólsvelli, Sandgerði, sunnudaginn 18. maí. Keppnisfyrirkomulag: Texas scramble Ræst út frá kl. 9-11 og 13.20-15. Skráning í síma 423 7802 og á netinu. Keppnisgjald kr. 3.600 á parið Styrktaraðili Fjóla gullsmiður  TOM Betts og Ian Jeffs eru komn- ir með leikheimild og eru því klárir í slaginn með Eyjamönnum sem mæta KA í úrvalsdeildinni í knatt- spyrnu í Eyjum á morgun.  SALAR Yashin og Zeid Yashin, sænsku Ítalarnir, fengu leikheimild með Leiftri/Dalvík í gær og þeir vera því með liðinu í leiknum á móti HK í 1. deildinni á morgun.  LEIFTUR/Dalvík er komið með fleiri útlendinga á sín snæri en Ung- verjinn Florizs Sandor, 26 ára gam- all varnarmaður, er genginn í raðir liðsins.  GEORG Birgisson, bakvörðurinn gamalkunni úr Keflavík sem lék all- an leiki Keflvíkinga í úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð er genginn í raðir Víðis í Garði sem leikur í 2. deild.  SKAGAMENN eru á höttunum eftir Alexander Linta. Linta er ekki ókunnugur herbúðum ÍA en hann lék í nokkur ár með liðinu og þá spilaði hann einnig með liði Skallagríms.  BALDVIN Hallgrímsson er kom- inn í Val frá Aftureldingu en hann lék alla 18 leiki Mosfellinga á síðustu leiktíð.  FIMM manna hópur siglinga- manna er á leið til La Rochelle í Frakklandi í lok maí. Þar munu þeir taka þátt í siglingamóti á Figaro-bát- um, sem eru níu metra Beneteau bátar. Það eru Áskell Fannberg, Birgir Ari Hilmarsson, Gunnar Halldórsson, Skúli Smárason og Þránn Hafsteinsson.  OLIVER Kahn markvörður Bayern München er ekki til sölu að sögn Karl Heins Rummenigge stjórnarformanns þýsku meistar- anna. Hinn 33 ára gamli markvörður hefur sterklega verið orðaður við Manchester United undanfarna daga en háværar raddir eru uppi um að Fabien Barthez sé á förum frá Old Trafford.  KAHN, sem verið hefur í herbúð- um Bæjara frá 1994, er samnings- bundinn félaginu til ársins 2006. „Það er alveg á hreinu. Kahn er ekki falur – hvað sem boðið er,“ segir Rummenigge. FÓLK PHIL Jackson, þjálfari LA Lakers í NBA-deildinni í körfuknattleik, verður áfram þjálfari liðsins á næstu leiktíð. Jackson sagði eftir tapleik sinna manna á móti SA Spurs í fyrrinótt að hann ráð- gerði að halda áfram en þessi sig- ursælasti þjálfari NBA frá upp- hafi hefur verið heilsuveill undanfarna mánuði og óvissa ríkti um hvort hann gæti haldið áfram í starfi. Í vetur voru fjar- lægðir nýrnasteinar úr Jackson og þá hafa hjartatruflanir gert vart við sig hjá honum. SA Spurs vann einvígið, 4:2, en meistararnir fengu frekar slæma útreið hjá frábæru liði Spurs, 110:82, þar sem Tim Duncan, leikmaður ársins í NBA, fór á kostum og skoraði 37 stig. Með ósigrinum á móti San Ant- onio missti Lakers krúnuna en undanfarin þrjú ár hefur Jackson stýrt liðinu til meistaratitilsins. Lakers átti möguleika á að verða annað liðið í sögu NBA til þess að verða meistari fjögur ár í röð og Jackson stefndi að því að landa NBA-meistaratitlinum í 10. skipti á þjálfaraferli sínum. Lið undir stjórn Jacksons voru fyrir ósig- urinn í fyrrinótt búin að vinna 25 úrslitaeinvígi í röð, Chicago Bulls tólf á árunum 1996 til 1998 og LA Lakers þrettán frá árinu 2000. Jackson áfram hjá LA Lakers ÞÝSKA handknattleiksliðið Wetzlar hefur gert Gunnari Berg Viktorssyni tilboð um að ganga til liðs við félagið en samningur Gunnars við Paris SG í Frakklandi renn- ur út síðar í þessum mánuði og verður ekki endurnýj- aður. „Ég er kominn með í hendurnar tilboð frá Wetzl- ar. Þetta er samningur til tveggja ára sem ég er að skoða en mér leist vel á allar aðstæður hjá félaginu og ég tel ágætar líkur á að ég taki því,“ sagði Gunnar Berg við Morgunblaðið í gær. Gunnar, sem leikið hefur með Paris SG síðustu tvö árin, hitti for- ráðamenn Wetzlar á dög- unum og æfði með því en með liðinu leika Róbert Sig- hvatsson og Róbert Julian Duranona. Gunnar Berg með tilboð frá Wetzlar Grétar hefur verið frá keppni ogæfingum síðustu tvær vikurnar eða frá því að blæddi inn á lið í ökkla hans í leik á móti Keflvíkingum í undanúrslitum deildabikarsins. „Grétar æfir í dag og á morgun og ég reikna fastlega með því að hann verði klár í slaginn sem og allir aðrir í hópnum,“ sagði Bjarni við Morg- unblaðið. Þorlákur Árnason, þjálfari Vals, getur nánast teflt fram fullskipuðu liði þegar lærisveinar hans halda suður með sjó og leika við Grindavík. Eini leikmaðurinn sem missir örugg- lega af leiknum er Kristinn Lárus- son og í raun eru líkur á að hann verði ekkert með í sumar. Þá eru nýju leikmenn Vals, þeir Jóhann Möller og Hálfdán Gíslason, að ná sér eftir meiðslum. Ásgeir og Freyr ekki með gegn Skagamönnum Varnarjaxlarnir Ásgeir Ásgeirs- son og Freyr Bjarnason, fyrrverandi Skagamaður, geta ekki leikið með liði sínu, FH, þegar þeir fá læri- sveina Ólafs Þórðarsonar í heim- sókn á Kaplakrikavöll á morgun. FH-ingum gekk allt í óhag í vorleikj- unum en Ólafur Jóhannesson og piltarnir hans vita að slíkt skiptir engu máli þegar út í alvöruna er komið. Á síðasta ári unnu FH-ingar deildabikarinn en gekk hinsvegar mun verr í sjálfu mótinu. Gaman væri fyrir þá Hafnfirðinga að snúa dæminu við í ár. Ólafur Þórðarson, þjálfari Skaga- manna, hefur úr fullskipuðu liði að velja fyrir átökin gegn FH. Fylkismenn án Sævars Fylkismenn hafa ekki farið var- hluta af meiðslum á undirbúnings- tímabilinu en þónokkur meiðslahrina hefur verið í gangi hjá Árbæjarlið- inu. Ljóst er að varnarmaðurinn Kjartan Antonsson verður ekki með í fyrstu umferðunum en hann meidd- ist á hné fyrir skömmu og verður lík- lega frá fram til loka júní. Aðalsteinn Víglundsson, þjálfari Fylkis, sagði við Morgunblaðið í gær að hann reiknaði ekki með að Sævar Þór Gíslason gæti spilað gegn Fram á morgun og þá væri Haukur Ingi Guðnason tæpur. Finnur Kolbeins- son fyrirliði er hins vegar að skríða saman og að sögn Aðalsteins verður hann með gegn Fram. Safamýrarpiltar mæta í Árbæinn án þeirra Kristins Tómassonar og Þorbjörns Atla Sveinssonar. Það hlýtur að vera sérlega sárt fyrir Kristin að missa af þessum leik því hann lék með Fylki í áraraðir eða allt frá því hann var smápolli. Þá sagði Kristinn R. Jónsson, þjálfari Fram, að óvíst væri hvort Ragnar Árnason gæti leikið eða ekki. En ákvörðun um það yrði tekin þegar nær dregur leik. Magnús í vandræðum með miðverði Þeir Páll Hjarðar og Tryggvi Bjarnason, miðverðir Eyjamanna, eiga báðir við meiðsli að stríða og alls óvíst hvort þeir geta leikið með eða ekki. Magnús Gylfason, þjálfari ÍBV, þarf því að bíða fram á elleftu stundu með að stilla upp liði sínu sem fær KA í heimsókn á Hásteinsvelli. KA-menn geta ekki stillt upp sínu sterkasta liði í Eyjum. Pálmi Rafn Pálmason og Jón Örvar Eiríksson taka út leikbann. Þá er óvíst hvort Ívar Bjarklind geti leikið vegna meiðsla í hné og fyrirliðinn Þorvald- ur Makan Sigbjörnsson hefur sömu- leiðis átt í meiðslum og óvíst hvort hann verði búinn að ná sér fyrir morgundaginn. Ágætt ástand á Þrótturum „Það er ágætt ástand á mínum hópi og við bíðum spenntir eftir því að fá að glíma við Íslandsmeistar- ana,“ sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari nýliða Þróttar, sem mæta KR-ingum á Laugardalsvellinum á mánudags- kvöldið. Erlingur Guðmundsson og Hjálm- ar Þórarinsson eiga við lítils háttar meiðsli að stríða, að sögn Ásgeirs, og það skýrist ekki fyrr en á leikdag hvort þeir verða tilbúnir. Aftur á móti eru meiðsli Hilmars Rúnars- sonar alvarlegri, en Hilmar, sem lék alla leiki Þróttara í fyrra, hefur ekk- ert getað leikið á undirbúningstíma- bilinu vegna beinhimnubólgu. „Mínir menn eru tiltölulega sprækir en það er erfitt að meta á þessari stundu úr hvaða hóp ég get valið liðið fyrir mánudag. Einar Þór Daníelsson og Hilmar Björnsson hafa átt við smávægileg meiðsli að stríða en að öðru leyti lítur þetta ágætlega út,“ sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR-inga. Morgunblaðið/Ómar Sævar Þór Gíslason, sóknarleikmaður Fylkis, er hér í baráttu við Keflvíkingana Ólaf Ívar Jónsson og Harald Guðmundsson í fyrra. Hann getur ekki leikið með Fylki gegn Fram á morgun. Hvernig er ástand leikmanna í herbúðum liðanna fyrir 1. umferðina? Grétar klár í slaginn BJARNI Jóhannsson, þjálfari Grindvíkinga, er bjartsýnn á að markakóngur Íslandsmótsins frá því í fyrra, Grétar Ólafur Hjart- arson, geti leikið með Grindvíkingum þegar þeir taka á móti Vals- mönnum í Grindavík á morgun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.