Morgunblaðið - 17.05.2003, Blaðsíða 8
FRÉTTIR
8 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Jú, jú, Dóri minn, það er óhætt að taka glott-grímuna niður, nú er allt búið.
Zen-meistari á Íslandi
Öndun og
vakandi hugur
ZEN meistari aðnafni JakushoKwong er nú stadd-
ur hér á landi á vegum Zen
á Íslandi-Nátthagi, sem er
félag Zen-búddista á Ís-
landi. Hann mun halda hér
fyrirlestur og innvígja nýja
íslenska Zen-búddista.
Sverrir Guðjónsson er í
forsvari fyrir íslenska fé-
lagsskapinn og hann svar-
aði nokkrum spurningum
sem Morgunblaðið lagði
fyrir hann.
– Segðu okkur fyrst frá
komu þessa Zen-meistara,
hver er hann o.s.frv.?
„Zen-meistarinn Jak-
usho Kwong-Roshi er
staddur hér á landi þessa
dagana, en hann hefur ver-
ið kennari „Zen á Íslandi –
Nátthagi“ allt frá árinu 1987 og á
hér viðdvöl einu sinni á ári á leið
sinni til Póllands. Í þetta sinn
kemur hann til að framkvæma
vígslu tíu Zen-iðkenda sem um
margra ára skeið hafa numið und-
ir handleiðslu Roshi, eins og hann
er oftast nefndur. Hér er um
formlega vígslu að ræða sam-
kvæmt hefðum Zen-búddismans
þar sem neminn gengst undir
ákveðin heit og tekur staðfasta
ákvörðun um að fylgja þeirri leið
sem Zen-búddisminn hefur varðað
á síðustu 2.500 árum.Undirbún-
ingur þessara tíu Zen-iðkenda
hefur staðið yfir í allan vetur.“
– Roshi verður með fyrirlestur,
segðu okkur frá honum.
„Kennari Jakusho Kwong-
Roshi var hinn kunni Zen-meistari
Shunryu Suzuki sem er höfundur
bókarinnar „Zen hugur, hugur
byrjandans“ (Zen mind, begin-
ners mind). Kwong-Roshi stofnaði
síðan árið 1974, „Sonoma Mount-
ain Zen Center“, norður af San
Francisco. Á undanförnum árum
hefur Roshi unnið að útgáfu bókar
sem byggð er á fyrirlestrum hans
og kennslu. Bókin nefnist: „No
Beginning, No End“, gefin út af
Random House á vordögum 2003.
Á fyrirlestri sem haldinn verður í
Gerðubergi, þriðjudaginn 27. maí
klukkan 20 kemur Roshi til með
að fara ofan í kjölinn á hinni nýút-
komnu bók. Les einn valinn kafla
og svarar spurningum áheyrenda
um Zen-iðkun, „Ekkert stendur í
stað; allt breytist“. Í lok fyrirlest-
ursins áritar Roshi bók sína.“
– Hvað er Zen?
„Zen-iðkun byggist á öndun og
vakandi huga. Þjálfunin fer aðal-
lega fram í hugleiðsluæfingum
sem kallast zazen eða sitjandi Zen.
Iðkunin felst í því að snerta hrein-
an hug í miðri blekkingunni. Öll
þekkjum við þá tilfinningu þegar
við festumst í hugsanakeðju sem
hringsólar í hausnum á okkur og
heltekur líkama og sál. Leið Zen-
hugleiðslunnar er einföld en krefj-
andi, þú þjálfar vitundina þannig
að hún ferðist aftur og aftur mjúk-
lega frá hugsun að öndun. Þannig
tengist maður „núinu“, eða því
sem er á skýrari og
opnari hátt, líkt og
kolamoli sem undir
þungu fargi breytist
smám saman í dem-
ant.“
– Hvaða átrúnaður
er þetta eiginlega?
„Það má til sanns vegar færa að
Zen-búddismi sé handan trúar-
bragða. Zen á Íslandi – Nátthagi
hefur þó verið skráð opinberlega
sem trúfélag, frá árinu 1999. Öll-
um er hins vegar velkomið að iðka
með okkur óháð trúarskoðunum.
Roshi segir: „Þegar líkami, öndun
og hugur eru samvirk kemur
manngæskan í ljós. Það skiptir
ekki máli hvaða trúarbrögðum þú
tilheyrir þegar þú iðkar Zen.“
– Hvað ætlar Roshi að aðhafast
meira á meðan á dvöl hans stend-
ur hér á landi?
„Jakusho Kwong-Roshi heldur
til fjalla í næstu viku ásamt hópi
Zen-iðkenda. Dvalið verður í
nokkra daga í einangrun, þar sem
áhersla er lögð á hugleiðslu og iðk-
un í þögn, frá morgni til kvölds.
Formið hefur þróast og slípast í
gegnum aldirnar og með stöðugri
iðkun og „zazen“-hugleiðslu sem
ekki er brotin upp með daglegu
amstri gefst kjörið tækifæri til
þess að vera handan hugsunar og
nálgast þann kjarna sem við erum
hluti af. „Gruggið botnfellur“ og
tvíhyggjan sem er grunnorsök
græðgi, reiði og ótta, víkur.“
Hvað eru margir Zen-iðkendur
á Íslandi?
„Við erum um það bil fimmtíu
talsins, en misvirk í þessu eins og
gengur. Um það bil tveir-þriðju
eru karlmenn og einn þriðji kon-
ur.“
– Eykst ásókn í félagið?
„Mér finnst að það sé að aukast.
Það stafar trúlega af því að á síð-
ustu árum hefur verið ákveðið rót
í trúmálum og fólk er farið að
spyrja sig spurninga og leita eftir
svörum. Þá hafa orðið breytingar
á skráningarreglum í trúfélög sem
hafa orðið til þess að fólk vill ráða
sínum málum sjálft sem leiðir til
meiri áhuga á því að
kynna sér önnur trúar-
brögð sjálft og þreifa
fyrir sér.“
– Og þið finnið fyrir
því eins og aðrir?
„Já, en hitt er annað
mál og gott að það komi fram, að
Zen-hugleiðslan gerir það miklar
kröfur til iðkenda að þeir sem til
okkar koma þurfa fyrst að fara á
námskeið. Þar kemur í ljós hvort
viðkomandi hafi það úthald sem
þarf til að nema fræðin. Það hafa
mjög margir komið til okkar og
kynnt sér Zen-búddismann, en
ekki nærri allir halda áfram.“
Sverrir Guðjónsson
Sverrir Guðjónsson er fæddur
í Reykjavík 10. janúar 1950.
Hann er tónlistarmaður og kenn-
ari í Alexanderstækni. Sverrir er
landsþekktur kontratenor og hóf
söngferil sinn barn að aldri. Nam
tónlist hér heima, en kontraten-
orsöng og Alexanderstækni í
London. Einn af stofnendum
Voces Thules sönghópsins sem
flytur mest miðaldatónlist. Hefur
frumflutt fjölda sérsaminna tón-
verka fyrir rödd hans og sungið
inn á geisladiska. Maki er Elín
Edda Árnadóttir, leikmynda- og
búningahönnuður, og eiga þau
synina Ívar Örn og Daða.
Að snerta
hreinan hug í
miðri blekk-
ingunni
Broste-copenhagen
Vegna mikilla eftirspurnar höfum við
aukið úrvalið af þessum fallegu og
nytsamlegu vörum í verslunum okkar.
• Fyrir óskalista brúðhjónanna
• Fyrir heimilið og garðinn
• Fyrir sumarbústaðinn og útileguna
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
11
40
05
/2
00
3