Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 9
SAMKEPPNISRÁÐ hefur ógilt
samning sveitarfélagsins Fjarða-
byggðar við fyrirtæki um leigu á fé-
lagsheimilinu Egilsbúð í Neskaup-
stað. Er sveitarfélaginu gert að
bjóða út og gera nýjan leigusamn-
ing um húsnæðið eigi síðar en 1.
maí á næsta ári.
Trölli ehf., sem rekur gistiþjón-
ustu í Neskaupstað, kvartaði til
samkeppnisráðs vegna leigusamn-
ingsins um Egilsbúð og sagði að
fyrirtækið B.G. Bros, sem hefur
Egilsbúð á leigu, reki þar m.a. gisti-
þjónustu í samkeppni við sig.
Samkeppnisstaða Trölla
skekkt og olli honum tjóni
Var fullyrt að leiguverðið væri
langt undir markaðsverði auk þess
sem kostnaður leigutaka væri að
hluta greiddur niður. Þetta skekkti
samkeppnisstöðu Trölla og hefði
valdið félaginu tjóni.
Samkeppnisráð komst að þeirri
niðurstöðu að Fjarðabyggð hefði átt
að bjóða út umræddan rekstur en
það var ekki gert. Það að ganga til
samninga við einn aðila á sam-
keppnismarkaði án þess að gefa
öðrum kost á að leggja fram tilboð
skaði samkeppni á markaðnum.
Taldi samkeppnisráð að það hvern-
ig Fjarðabyggð hefði staðið að
leigusamningnum og ákvörðun
sveitarfélagsins um leigufjárhæð
hafi haft skaðleg áhrif á samkeppni
og var leigusamningurinn því ógilt-
ur.
Samningur um leigu Egilsbúðar
ógiltur af samkeppnisráði
Fjarðarbyggð gert að bjóða út leigu félagsheimilis
Glæsilegt tilboð
15% afsláttur
af úlpum og frökkum
Engjateigi 5, sími 581 2141.
Opið virka daga frá kl. 10.00—18.00, laugardaga frá kl. 10.00—16.00.
Neðst við Dunhaga, sími 562 2230 Opið í dag kl. 10-14
Ermalausir kjólar, bolir
og pífudragtir
Fallegar sumarpeysur
Þunn peysusett
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
s. 557 1730 s. 554 7030
Opið mán.—fös. frá kl. 10—18
lau. kl. 10—16
Mikið úrval
Sumarblússur, buxur, bolir og skyrtur
Laugavegi 34, sími 551 4301
Laugavegi 28,
sími 562 6062.
Fatlegar dragtir,
toppar, o.fl.
Töskurnar frá Viventy komnar
Nýtt kortatímabil
Stígamót óska eftir að leigja
heimilislegt skrifstofuhúsnæði
í góðu standi til langs tíma.
Upplýsingar í símum
562 6868 og 696 0222