Morgunblaðið - 17.05.2003, Qupperneq 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 11
ALLS hafa um 600 manns í heim-
inum látist af völdum heilkenna al-
varlegrar bráðrar lungnabólgu og
um 7.600 eru taldir hafa veikst í 29
ríkjum frá því veikinnar varð fyrst
vart í nóvember, skv. upplýsingum
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunar-
innar (WHO).
Haraldur Briem sóttvarnalæknir
ritar um heilkenni alvarlegrar bráðr-
ar lungnabólgu (HABL) í nýjasta
tölublað Læknablaðsins og segir allt
benda til þess að faraldurinn sé rétt
að hefjast. Á meðan ekkert bóluefni
finnst sé helsta vonin sú að flestir
sem sýkjast séu einkennalausir og
myndi mótefni gegn veirunni.
Smitun virðist eiga sér stað við
nána umgengni við smitaða
Haraldur fjallar um upphaf farald-
ursins og smitleiðir og segir m.a.:
„Fyrstu vikurnar eftir að sjúkdómn-
um var lýst voru flestir þeirra sem
sýktust heilbrigðisstarfsmenn sem
stunduðu sjúklinga með HABL og
nánustu aðstandendur sjúklinganna.
Virðist nána umgengni þurfa til við
smitaða svo smitun eigi sér stað. Tal-
ið er líklegt að sjúkdómurinn smitist
með dropasmiti en hugsanlegt að
hann geti smitast með slími úr önd-
unarvegum eða öðrum líkamsvess-
um. Rannsókn hefur leitt í ljós að
sjúklingur frá Guangdonghéraði í
Kína sem veiktist um miðjan febrúar
2003 af HABL dvaldi á hótel M í
Hong Kong í lok mánaðarins. Annar
gestur sem dvaldist á sama hóteli á
sama tíma veiktist síðar og var lagð-
ur inn á sjúkrahús í Hong Kong með
HABL í byrjun mars 2003. Síðar
kom í ljós að þrettán sjúklingar
fengu HABL en þeir höfðu dvalið á
sama hóteli um sama leyti og fyrsta
tilfellið. Níu af þeim dvöldust á 9.
hæð hótelsins þar sem upphafstilfell-
ið bjó, einn dvaldist á 14. hæð, einn á
11. hæð og tveir dvöldust á bæði 9. og
14. hæð. Margir þessara sjúklinga
sem dvöldu á hótelinu báru síðar
sjúkdóminn til Hanoi í Víetnam,
Singapúr, Þýskalands og Toronto í
Kanada. Einnig voru mörg tilfelli á
sjúkrahúsum í Hong Kong rakin til
þessara sjúklinga. Eftir að yfirvöld
bættu sýkingavarnir á sjúkrahúsum
í Hong Kong tók að draga úr nýgengi
sýkinga þar.
Önnur hópsýking í Hong Kong
hefur verið rannsökuð sérstaklega.
Karlmaður sem veiktist 14. mars
2003 með einkenni HABL heimsótti
ættingja í fjölbýlishúsi í Amoy Gard-
ens í Hong Kong. Meðal einkenna
hans var niðurgangur. Sjúkdómur-
inn barst síðan til annarra íbúa húss-
ins og hinn 15. apríl hafði 321 íbúi
veikst af sjúkdómnum. Líkleg skýr-
ing á útbreiðslu smits er að vatns-
lásar voru víða bilaðir í húsinu, brot-
in salerni, skemmd skolprör og
öflugar viftur í opnum baðherberg-
isgluggum sem vissu að ljósbrunni
þar sem rörin lágu um. Strok sem
tekið var frá salernisskál HABL-
sjúklings sýndi að þar var veiruna að
finna en ekki tókst að finna veiruna í
öðrum umhverfissýnum í húsinu, svo
sem vatni, ryki eða lofti. Þessi smit-
leið er óvenjuleg en getur útskýrt
hópsýkingar sem ekki tengjast al-
gengustu smitleiðinni, sem er dropa-
smit frá öndunarvegi frá sjúklingi til
þeirra sem standa augliti til augliti
við hann,“ segir í grein Haraldar
Briem.
Megineinkenni eru hiti, þurr
hósti og öndunarerfiðleikar
Megineinkenni sjúkdómsins eru
hiti, þurr hósti og öndunarerfiðleikar
sem fylgja í kjölfarið á þriðja til
fimmta degi eftir að einkenni hefjast,
að því er segir í greininni. „Meirihluti
sjúklinga fær hroll, vöðva- og höfuð-
verk og veikindatilfinningu. Niður-
gangur og hálssærindi geta fylgt
þessum einkennum. Sjúkdómurinn
veldur í flestum tilfellum lungna-
bólgu sem lýsir sér í staðbundnum
lóbar- eða miðvefjarþéttingum á
lungnamynd,“ segir í greininni.
Meðgöngutími sjúkdómsins er
venjulega tveir til sjö dagar en getur
orðið tíu dagar. Haraldur segir að
flestir sjúklingar sem hafa greinst
séu á aldrinum 25 til 70 ára.
Sóttvarnarráðstafanir koma að
gagni við að hefta útbreiðslu
„Á þessari stundu heldur HABL
áfram að breiðast út til allra
heimshluta, ekki með ógnarhraða
líkt og inflúensa, heldur hægt og bít-
andi. Þótt enn sé margt á huldu um
sjúkdóminn koma sýkingavarnir og
almennar sóttvarnarráðstafanir sem
felast í einangrun, sóttkví og rakning
smitleiða að gagni við að hefta út-
breiðslu sjúkdómsins,“ segir Harald-
ur.
„Erfitt er að svara því með hvaða
hætti HABL-faraldurinn mun þróast
enda mörgum spurningum ósvarað.
Eru margir sem smitast einkenna-
lausir? Eru margir einkennalausir
smitberar? Getur veiran lifað í
umhverfinu? Geta dýr verið smitber-
ar? Tekst að búa til bóluefni? Er von
á sértækri lyfjameðferð?“ spyr
Haraldur í greininni og segir síðan:
„Allt bendir til þess að faraldurinn sé
rétt að hefjast og mikill fjöldi manna
eigi eftir að sýkjast. Á meðan ekkert
bóluefni finnst er helsta vonin að
flestir sem sýkjast séu einkenna-
lausir, myndi mótefni og stuðli með
tímanum að hjarðónæmi meðal
manna sem stöðvað getur útbreiðsl-
una. Fari svo mun þessi sjúkdómur
breytast í staðbundinn barnasjúk-
dóm með tímanum. Faraldurinn hef-
ur þegar haft mikil efnahagsleg
áhrif, einkum í Kína. Reyna mun
mjög á heilbrigðisstarfsfólk og heil-
brigðisstofnanir um heim allan á
komandi mánuðum.“
Aðgerðir hér á landi hafa beinst að
því að upplýsa almenning, stjórnvöld
og heilbrigðisstarfsmenn um sjúk-
dóminn. Birtar eru reglulega upplýs-
ingar á heimasíðu landlæknisemb-
ættisins, www.landlaeknir.is.
Haraldur Briem lýsir einkennum og smitleiðum HABL í grein í Læknablaðinu
Allt bendir til að farald-
urinn sé rétt að hefjast
Reuters
,,Reyna mun mjög á heilbrigðisstarfsfólk og heilbrigðisstofnanir um heim
allan á komandi mánuðum,“ segir í grein Haraldar Briem. Hér er kín-
verskt hjúkrunarfólk á sjúkrahúsi í Peking að annast sjúkling með HABL.
HEILKENNI alvarlegrar bráðrar
lungnabólgu (HABL) er talið til
tilkynningaskyldra sjúkdóma skv.
sóttvarnalögum og er öllum þeim
sem telja sig geta verið með ein-
kenni sjúkdómsins skylt að leita
læknis. Leiði læknisrannsókn í ljós
að sjúklingur sé haldinn HABL er
honum skylt að hlíta fyrirmælum
læknis. Skv. tilkynningu land-
læknis er við greiningu sjúkdóms-
ins stuðst við sjúkdómslýsingu sem
þarf að uppfylla eftirfarandi skil-
yrði:
Grunsamleg tilfelli
1. Sjúklingur (frá 1. nóvember
2002) með sögu um:
háan hita (>38º) og
hósta eða öndunarörðugleika og
eitt eða fleira af eftirtöldu:
náin samskipti við sjúkling með
grun um eða líklega með HABL
síðustu 10 daga áður en einkenna
varð vart
saga um ferðalög til útsettra
svæða 10 dögum áður en einkenna
varð vart.
2. Sjúklingur með óskýrðan
sjúkdóm í öndunarvegum sem leið-
ir til dauða eftir 1. nóvember 2002
en engin krufning hefur verið
gerð og eitt eða fleira af eft-
irtöldu:
náin samskipti við sjúkling með
grun um eða líklega með HABL
síðustu 10 daga áður en einkenna
varð vart
saga um ferðalög til útsettra
svæða 10 dögum áður en einkenna
varð vart.
Líkleg tilfelli
1. Röntgenmynd af lungum
sjúklings með grun um HABL sýn-
ir íferðir sem samrýmast lungna-
bólgu eða heilkenni öndunarálags
(Respiratory Distress Syndrome-
RDS).
2. Krufning sjúklings með grun
um HABL leiðir í ljós breytingar á
lungnavef sem samrýmast RDS án
greinanlegrar ástæðu.
Grunsam-
leg og lík-
leg tilfelli
NÝ VERSLUN BYKO verður opn-
uð á Reyðarfirði í dag. Munu Jón
Helgi Guðmundsson, forstjóri
BYKO hf., og Guðmundur
Bjarnason, bæjarstjóri Fjarða-
byggðar, klippa á borða og opna
verslunina formlega kl. 9.
Nýja verslunin er ásamt timb-
urskýli um eitt þúsund fermetrar
á einni hæð og mun verslunin
veita Austfirðingum þjónustu
með byggingarvörur og tengdar
vörur.
Í fréttatilkynningu segir að
verslunin muni leggja höf-
uðáherslu á alla almenna bygg-
ingarvöru svo sem timbur, fest-
ingar, verkfæri og málningu. Auk
þess verður úrval af parketi, flís-
um, hreinlætistækjum, blönd-
unartækjum og fleiru. Þá verður
í BYKO lagnadeild ásamt leigu-
markaði BYKO með útleigu á
góðu úrvali af tækjum.
Á opnunarhátíðinni í dag verð-
ur fjöldi tilboða, grillað verður
fyrir gesti og öll börn fá glaðn-
ing.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Við nýja verslun BYKO á Reyðarfirði eru næg bílastæði.
BYKO opnar nýja
verslun á Reyðarfirði
EMBÆTTI ráðuneytisstjóra
samgönguráðuneytis var aug-
lýst laust til umsóknar fyrir
nokkru. Umsóknarfrestur
rann út 14. maí sl. Tíu sóttu
um embættið, sem veitt verð-
ur frá og með 1. júní nk.
Umsækjendur eru: Eyjólf-
ur Þór Sæmundsson, verk-
fræðingur og forstjóri, Hall-
dór S. Kristjánsson,
viðskiptafræðingur og settur
ráðuneytisstjóri, Jóhann
Guðmundsson, landbúnaðar-
hagfræðingur og skrifstofu-
stjóri, Jón Egill Unndórsson,
verkfræðingur og viðskipta-
fræðingur og framkvæmda-
stjóri, Kristján Vigfússon,
stjórnmálahagfræðingur
(M.Sc.) og staðgengill sigl-
ingamálastjóra, Ólafur J.
Briem, skipaverkfræðingur
og framkvæmdastjóri, Ólafur
Kjartansson, markaðsfræð-
ingur (B.Sc) og fram-
kvæmdastjóri, Ragnhildur
Hjaltadóttir, lögfræðingur og
skrifstofustjóri, Unnur Gunn-
arsdóttir, lögfræðingur og
skrifstofustjóri, og Þórhallur
Jósefsson, kennari og frétta-
maður.
Tíu sóttu
um emb-
ætti ráðu-
neytis-
stjóra MAGNÚS B. Ein-
arson læknir var
nýverið kjörinn
formaður í stjórn
Medic Alert á Ís-
landi. Medic Alert
er alþjóðöryggis-
kerfi fyrir sjúk-
linga með bráða
eða hættulega
sjúkdóma en yfir
þrjú þúsund Ís-
lendingar eru
tengdir við kerfið.
Sjúklingarnir
bera á sér málm-
plötu þar sem
skráð er sjúkdóms-
greining og meðferð. Auk þess
er símanúmer á vaktstöð Land-
spítala í Fossvogi skráð á plöt-
una og er þar hægt að nálgast
nauðsynlegar upplýsingar um
sjúklinginn allan sólarhringinn.
Magnús segir merkið geta
skipt sköpum og jafnvel bjarg-
að mannslífum komi eitthvað
upp á. „Á merkið eru skráðar
ýmsar upplýsingar, til dæmis
hvað varðar ofnæmi og lyf sem
sjúklingar nota og ef eitthvað
kemur fyrir eiga læknar,
hjúkrunarfólk og lögregla að
þekkja merkið og geta fengið
nánari upplýsingar um sjúk-
dómsástandið með því að
hringja í upplýsingamiðstöð-
ina,“ segir Magnús.
Að sögn Magnúsar eru
hjartasjúklingar stærsti hópur
þeirra sem nota merkið hér á
landi. Margir ofnæmissjúkling-
ar og sykursýkissjúklingar
nota merkið auk ýmissa ann-
arra sjúklingahópa. Aðspurður
segir Magnús talsvert um það
að fullfrískir einstaklingar beri
merkið. Það hafi meðal annars
komið sér vel fyrir þá sem hafi
verið rændir í útlöndum en
merkið hefur þá nýst sem per-
sónuskilríki.
Nýr formaður í stjórn Medic Alert
Sjúklingar bera merki Medic Alert oftast í
hálsmeni eða á armbandi.
Á fjórða þúsund
notar merkið