Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 24
ERLENT
24 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ENRIQUE Bolanos þurfti að bíða
lengi eftir því að verða forseti Nic-
aragua. Hann hefur nú komist að
því að það getur verið einmana-
legra í þessu háa embætti en hann
hélt.
Bolanos var hafnað þegar leið-
togar bandalags stjórnarandstöð-
unnar komu saman til að velja for-
setaefni fyrir kosningar sem bundu
enda á ellefu ára valdatíma vinstri-
stjórnar sandinista árið 1990. Hann
var þá leiðtogi ráðs atvinnurekenda
og þótti hafa tekið of harða afstöðu
gegn sandinistum og ekki til þess
fallinn að stuðla að einingu.
Þess vegna bjuggust margir við
því að Bolanos myndi eiga í útistöð-
um við vinstrimenn þegar hann var
loks kjörinn forseti í nóvember
2001. Þingmenn sandinista neituðu
jafnvel að vera viðstaddir innsetn-
ingu hans í embætti.
Þess í stað hóf forsetinn kjör-
tímabilið með því að skera upp her-
ör gegn spillingu og það varð til
þess að flokkur hans, Frjálslyndi
flokkurinn, sneri baki við honum
eftir að leiðtogi hans, Arnoldo
Aleman, fyrrverandi forseti, var
dæmdur í stofufangelsi fyrir spill-
ingu. Forystumenn flokksins lýstu
því yfir nýlega að þeir væru nú and-
stæðingar forsetans.
Forsetinn leitaði því eftir stuðn-
ingi gamalla erkifjenda sinna, sand-
inista.
„Bolanos forseti þurfti að ná lág-
markssamkomulagi við sandinista
til að tryggja honum lágmarks-
stuðning og koma í veg fyrir stríð á
tveimur vígstöðvum í einu,“ sagði
þingmaðurinn Jaime Morales Car-
azo, sem sagði sig úr Frjálslynda
flokknum vegna andstöðu hans við
Bolanos.
Morales sagði að sandinistar
hefðu samþykkt að styðja forsetann
í deilunni í von um að það hjálpaði
þeim að losna við „róttækni- og of-
beldisímyndina“, sem hafi staðið
þeim fyrir þrifum, auk þess sem
þeir gætu haldið að sér höndum og
fylgst með „andstæðingunum éta
hver annan“.
Aleman sakaður um
stórfellda spillingu
Aleman endurreisti Frjálslynda
flokkinn sem átti undir högg að
sækja vegna tengsla við einræð-
isstjórn Somoza-fjölskyldunnar
sem sandinistar steyptu af stóli árið
1979. Eftir að hafa verið fangels-
aður og rekinn í útlegð á valdatíma
sandinista varð Aleman borg-
arstjóri Managua og síðar forseti.
Hann treysti stöðu sína í Frjáls-
lynda flokknum og stóð fyrir laga-
setningum sem torvelduðu öðrum
flokkum að ógna stóru flokkunum
tveimur, frjálslyndum og sand-
inistum. Ríki, sem höfðu veitt Nic-
aragua aðstoð, tóku hins vegar að
kvarta yfir spillingu á fimm ára
valdatíma Alemans og Bolanos lof-
aði að uppræta hana.
Fáir bjuggust þó við því að hann
myndi ganga svo langt. Saksókn-
arar segja að Aleman, helstu sam-
starfsmenn hans og nokkrir ætt-
ingjar hafi gerst sekir um
stórfellda spillingu, meðal annars
lagt andvirði sjö milljarða króna af
opinberu fé inn á bankareikninga
sína í Panama.
Eftir að sandinistar og stuðnings-
menn Bolanos á þingi samþykktu
að svipta Aleman þinghelgi var for-
setinn fyrrverandi dæmdur í stofu-
fangelsi. Stuðningsmenn hans urðu
ævareiðir og í höfuðborginni má
víða sjá vígorð eins og „Frelsum
Arnoldo Aleman“ krotuð á veggina.
Þeir hafa einnig stofnað „nefnd til
varnar mannréttindum Arnoldos
Alemans“.
Nokkrir af stuðningsmönnum
forsetans fyrrverandi hafa jafnvel
sakað Bolanos um að bera ábyrgð á
því að eiginkona Alemans missti
fóstur nýlega. Hún hefur verið
nefnd sem hugsanlegt forsetaefni
Frjálslynda flokksins í kosningum
árið 2006.
Nýr flokkur stofnaður?
„Baráttan gegn spillingunni var
nauðsynleg,“ sagði Rene Herrera,
einn af forystumönnum Frjálslynda
flokksins og bandamaður Alemans.
„Þeir hefðu átt að sækja þrjá eða
fjóra menn til saka en ég tel að
hann hefði átt að stöðva baráttuna
á ákveðnu stigi, þannig að hún
beindist ekki að Aleman.“
Herrera sagði að með því að
heimila saksóknurum að ákæra
Aleman hefði Bolanos „misst flokk-
inn sinn og þann pólitíska bakhjarl
sem hann þarf sjálfur á að halda“
og forsetinn væri nú „upp á náð og
miskunn sandinista kominn“. Hann
kvað Frjálslynda flokkinn búast við
því að forsetinn myndi að lokum
neyðast til þess að sættast við
stuðningmenn Alemans á þinginu.
„Þetta er það sem við veðjum á,“
sagði Herrera. „Frjálslyndi flokk-
urinn mun ekki klofna. Þegar kem-
ur að kosningum er hugsanlegt að
Bolanos stofni eigin stjórn-
málaflokk, þannig að atkvæði and-
stæðinga sandinista dreifist, eða að
hann leiti til flokksins síns og
tryggi einingu gegn sandinistum.“
Stuðningsmenn Bolanos hafa
reyndar rætt þann möguleika að
stofna nýjan stjórnmálaflokk.
Carlos F. Chamorro, útgefandi
tímarits og sonur fyrrverandi for-
seta Nicaragua, Violeta Chamorro,
segir að vinsældir Bolanos hafi
minnkað þar sem efnahagsþreng-
ingar hafi torveldað honum að bæta
lífskjör þjóðarinnar. Skoðana-
könnun fyrr á árinu bendi til þess
að þeir sem eru óánægðir með störf
forsetans séu nú í fyrsta sinn fleiri
en þeir sem eru ánægðir.
„Helsta vandamál Bolanos er að
hveitibrauðsdögunum með almenn-
ingi er lokið,“ sagði Chamorro.
„Þótt landsmenn séu ánægðir með
baráttuna gegn spillingu eru þeir
farnir að segja: sjáðu mér fyrir
nægum mat og atvinnu.“
Forsetinn einmana í
baráttunni gegn spillingu
AP
Enrique Bolanos, forseti Nicaragua, ávarpar þjóð sína í forsetahöllinni í Managua.
’ Er upp á náð ogmiskunn sandinista
kominn. ‘
Managua. AP.
LYF sem virkar með nýstárlegum
hætti dró úr löngun mikilla drykkju-
manna í áfengi og gæti hjálpað
áfengissjúklingum til að hætta að
drekka eða draga verulega úr
drykkju, að því er vísindamenn
greindu frá á fimmtudaginn.
Lyfið hefur samheitið topiramate
og er selt sem flogaveikilyf, en í til-
raun er gerð var á 150 manns í Há-
skólanum í Texas í San Antonio
reyndist það virka gegn áfengisfíkn,
sagði Bankole Johnson, geðlæknir
sem stjórnaði rannsókninni.
„Við teljum þetta mjög mikilvæga
niðurstöðu,“ sagði hann í viðtali.
Samanborið við þá sem fengu lyf-
leysu og atferlisráðgjöf virkaði lyfið
„fjórum sinnum betur gegn mikilli
drykkju og áttfalt betur til að
drykkju væri alveg hætt“.
Lyfið virðist virka með því að hafa
áhrif á getu heilans til að njóta áhrifa
áfengis. Bandaríska matvæla- og
lyfjaeftirlitið (FDA) hefur ekki veitt
leyfi fyrir því að lyfið sé gefið gegn
áfengissýki. Endurtaka þarf rann-
sóknina á stærri hópi áður en lækn-
um verður heimilað að gefa áfeng-
issjúklingum lyfið.
Nýtt lyf gegn
áfengisfíkn
The Washington Post.
HOLLENSKUR blómarækt-
andi hefur skírt nýtt dalíuaf-
brigði í höfuðið á forseta Túrk-
menistan, að því er
túrkmenískt dagblað greindi
frá á fimmtudaginn. Forsetinn,
sem heitir Saparmurat Niyaz-
ov, er einnig nefndur Túrkmen-
basi, eða faðir allra Túrkmena,
og heitir nýja blómið því
„Túrkmenbasi forseti“.
Í frétt blaðsins Neutralny
Turkmenistan segir að hol-
lenski ræktandinn hafi gert
þetta í virðingarskyni við „mik-
ilvægt framlag Túrkmenbasis
til stöðugleikaþróunar í Asíu og
öllum heiminum“.
Blómið
Túrkmenbasi
Ashkhabad. AFP.
ÖLDUNGADEILD bandaríska
þingsins samþykkti á fimmtudags-
kvöldið 350 milljarða dollara skatta-
lækkun, þar sem m.a. er gert ráð fyr-
ir að tímabundið verði engir skattar
lagðir á ágóða af hlutabréfum – sem
er meginþátturinn í áætlun banda-
ríska forsetaembættisins um að-
gerðir til að örva efnahagslífið.
Lækkanirnar munu koma til fram-
kvæmda á næstu tíu árum. George
W. Bush forseti hafði farið fram á við
þingið að lækkanirnar yrðu alls 726
milljarðar. Samþykkt þingsins
tryggir að forsetinn getur lækkað
skatta umtalsvert einmitt þegar
hann er að hefja baráttu fyrir endur-
kjöri í kosningunum á næsta ári.
Skattalækkun
samþykkt
Washington. AFP.