Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 29
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Frá vorhátíðinni á Austurvegi 69. Þessi ungi ökumaður rúntaði um á smábíl með farþega.
„ÞETTA var vorhátíð fyrirtækjanna hér á Aust-
urvegi 69. Þetta hús er frá gamalli tíð þekkt vegna
starfsemi Kaupfélags Árnesinga og smiðjanna sem
hér voru. Hér eru nú 8 fyrirtæki, það nýjasta er SG-
Hús sem er að koma sér fyrir í byggingunni með
starfsemi sína,“ sagði Finnbogi Magnússon fram-
kvæmdastjóri Bújöfurs-Búvéla sem er með öfluga
starfsemi í húsinu en fyrirtæki í húsinu stóðu fyrir
vorhátíð um sl. helgi með fjölbreyttum uppákomum
af ýmsu tagi.
„Í þessu stóra húsi, hérna á Austurvegi 69, var áð-
ur fjöldi manna og núna er að myndast hér kjarni
fyrirtækja í góðum rekstri. Við horfum til þess að
BYKO er væntanlegt í nágrenni við okkur. Þá mun
þetta svæði hér í austurhluta Selfoss eflast enn frek-
ar,“ sagði Finnbogi Magnússon.
Vorhátíð fyrirtækja á Austurvegi 69
Selfoss
ÁRBORGARSVÆÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 29
HAFIÐ bláa er nýr útsýnis- og veit-
ingastaður sem stendur við ósa Ölf-
usár rétt vestan Óseyrarbrúar í
landi Hrauns í Ölfusi. Staðurinn,
sem er í eigu hjónanna Hannesar
Sigurðssonar og Þórhildar Ólafs-
dóttur, var formlega opnaður á
sumardaginn fyrsta. Hannes sagði
við opnunina að nú væri gamall
draumur að verða að veruleika,
hann sagði að útsýnið til allra átta
væri slíkt að sem flestir ættu að fá
að njóta. Hann vildi sérstaklega
þakka arkitektinum Einari V.
Tryggvasyni og yfirsmiðnum og
allsherjarreddaranum Elíasi Haf-
steinssyni húsasmíðameistara.
Hann þakkaði einnig öðrum sem að
verkinu komu, en það voru að nær
öllu leyti heimaaðilar.
Veitingasalurinn, sem tekur um
100 manns í sæti, er í laginu eins og
skipsskrokkur á hvolfi, kjölurinn er
í loftinu og er loftklæðningin, sem
líkist byrðingi í bát, úr rekavið sem
fenginn er af Ströndum.
Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra og Ólafur Þorláks-
son, faðir Þórhildar og bóndi á
Hrauni í Ölfusi til fjöldamargra
ára, klipptu á borða og opnuðu
þannig staðinn formlega. Landbún-
aðarráðherra sagði í ræðu sinni er
hann lýsti útsýninu að hér mætti
segja að glugginn að himnaríki
væri, en til forna var jú talið að
gluggi helvítis væri í Heklu. Séra
Baldur Kristjánsson, sóknarprestur
í Þorlákshöfn, blessaði staðinn og
sagði það vel við hæfi því slíkur
væri vaninn er nýju skipi væri
hleypt af stokkunum.
Margrét Stefánsdóttir söngkona
söng Ísland er land þitt og Hafið
bláa hafið með aðstoð viðstaddra.
Sigurður Jónsson, byggingar-
fulltrúi og fræðimaður í Þorláks-
höfn, flutti fróðlegt erindi um stað-
hætti og færði eigendunum grjót
sem mun vera úr ballest herskips-
ins Gautaborgar sem strandaði
þarna fyrir tæplega 300 árum.
Hafið bláa verður opið alla daga
vikunnar frá 11:00 til 22:00 og verð-
ur lögð áhersla á sjávarrétti en
einnig verður boðið upp á ýmsa
kjötrétti eins og segir á heimasíðu
staðarins sem er www.hafidblaa.is.
Matreiðslumeistari verður Halldór
Halldórsson.
Hafið bláa, útsýnis- og veitingastaður
Formlega opnað
sumardaginn fyrsta
Morgunblaðið/Jón H. Sigurmundsson
Ólafur Þorláksson, bóndi í Hrauni í Ölfusi, og Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra klipptu á borða til merkis um formlega opnun á veitinga- og
útsýnisstaðnum Hafinu bláa. Þeim til aðstoðar eru börn eigendanna, Hann-
esar og Þórhildar, Katrín Hannesdóttir og Ólafur Hannesson.
Þorlákshöfn
MENNINGARHÁTÍÐIN Vor í Ár-
borg verður haldin í lok maí og
stendur í fjóra daga, frá 22.–25. maí.
Hátíðin, sem verður bæði umfangs-
mikil og fjölbreytt, verður sett á Sel-
fossi fimmtudaginn 22. maí með
lúðrablæstri og söng og yngsta kyn-
slóðin mun leiða skrúðgöngu frá Sig-
túnsgarði upp með Árveginum á Sel-
fossi að árbakkanum við
Sýslumannshúsið þar sem meðal
annars verður keppt í Jórustökki og
sérútbúnum flöskum fleytt niður
Ölfusá.
Um kvöldið verður vegleg hátíð-
ardagskrá í Hólmarastarhúsinu á
Stokkseyri þar sem menningarvið-
urkenning Árborgar verður veitt.
Rík áhersla hefur verið lögð á að
virkja sem flesta heimamenn, enda
búa geysilega margir og fjölhæfir
listamenn í sveitarfélaginu. Menn-
ingarnefndin hefur markað þá
stefnu að frítt verði inn á svo til alla
atburði hátíðarinnar, en hún nýtur
styrkja frá sveitarfélaginu, fyrir-
tækjum og félagasamtökum.
Þetta er eitt sveitarfélag
„Við höfum reynt að hafa atriðin
alls staðar að úr sveitarfélaginu og
leggjum áherslu á að sýna að þetta
er eitt sveitarfélag en ekki þrír þétt-
býliskjarnar. Síðan leggjum við
áherslu á að meginhluti atriðanna er
ókeypis til að gera öllum kleift að
njóta þess sem er í boði. Þannig vilj-
um við laða til okkar fólk til að sjá
hvað hér er í boði,“ segir Inga Lára
Baldvinsdóttir, formaður menning-
arnefndar Árborgar.
„Kjarni atriðanna á hátíðinni er í
boði þeirra sem sinna menningar-
starfi innan sveitarfélagsins en auk
þess höfum við fengið nokkrra lista-
menn utanað til að krydda þetta hjá
okkur. Það er virkilega ánægjulegt
hvað fólk hefur tekið vel við sér varð-
andi þessa hátið. Við auglýstum eftir
hugmyndum og hugsanlegum fram-
lögum og það voru góð viðbrögð við
því sem sýnir að menningarstarfið
hér í sveitarfélaginu ristir djúpt. Hér
er á ferðinni framtíðarverkefni og
þessi hátíð er ekki einkamál 5 manna
nefndar heldur er hún almennings-
eign og fólk á að finna að það á hlut-
deild í henni. Svo vonumst við auðvit-
að til að fólk komi á viðburðina sem í
boði eru,“ sagði Inga Lára.
Tónlistarviðburðir og sýningar
Atburðirnir dreifast yfir dagana
22.–25. maí og verða víðs vegar um
sveitarfélagið. Ríflega tugur mynd-
lista- og ljósmyndasýninga verður í
boði og hvorki meira né minna en 15
tónlistarviðburðir eru bókaðir, allt
frá einsöngstónleikum til sameigin-
legra stórtónleika auk djasstónleika
og dansleikja.
Þá fara leiðsögumenn í gönguferð-
ir og rifja upp bernskuár sín á Sel-
fossi, Eyrarbakka og Stokkseyri auk
þess sem herminjar í Kaldaðarnesi
verða skoðaðar. Sett verður upp rit-
smiðja fyrir verðandi rithöfunda og
annað áhugafólk ásamt því að menn
fá tækifæri til að láta ljós sitt skína
sem myndlistamenn.
Söfn sveitarfélagsins leggja sitt af
mörkum, í Húsinu verður opnuð ný
sýning auk þess sem athygli verður
beint að Sjóminjasafninu, Fornbíla-
setrinu, Rjómabúinu og Þuríðarbúð,
en þar verða leiðsögumenn sem
miðla gestum fjölbreyttum fróðleik.
Listamenn opna
vinnustofur sínar
Þá verða einstaka fyrirtæki með
opið hús fyrir gesti og má þar nefna
Rannsóknarmiðstöðina í jarð-
skjálftaverkfræði og Skátafélagið
Fossbúa. Einnig hafa fjölmargir
listamenn samþykkt að opna vinnu-
stofur sínar fyrir gestum og gang-
andi og er þegar búið að bóka 14 slík
innlit.
Mörg félagasamtök ætla að leggja
sitt af mörkum til hátíðarinnar, árleg
sundferð hestamannafélagsins
Sleipnis verður á laugardeginum,
golfmót verður haldið, flugmódel-
klúbburinn verður með kynningu á
sinni starfsemi, Félag eldri borgara
sýnir handverk sitt og aðstöðu og
síðast en alls ekki síst verður al-
menningsíþróttadagur Ungmenna-
félags Selfoss haldinn á laugardeg-
inum og þar býðst fjölbreytt og
metnaðarfull dagskrá.
Sýndir verða einleikirnir „Hin
smyrjandi jómfrú“ og „Sellófon“ og
Brúðubíllinn frumsýnir nýja dag-
skrá bæði á Selfossi og á Stokkseyri.
Unglingarnir láta svo ljós sitt
skína á sérstökum tónleikum á laug-
ardeginum þar sem unglingahljóm-
sveitum í Árborg gefst tækifæri til
að stíga á svið og um kvöldið verða
sérstakir útitónleikar sem einkum
miða að því að gleðja þennan ald-
urshóp.
Ljóst er að menningarhátíðinni
verður vel tekið og hin öfluga dag-
skrá, sem borin er uppi af listafólki
og áhugafólki um menningarmál,
sýnir hversu djúpt menningin ristir í
samfélagi Árborgar og hve áhrifa-
máttur hennar er mikill.
Menningarhátíðin Vor í Árborg verður 22.–25. maí
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Inga Lára Baldvinsdóttir, formaður
menningarnefndar Árborgar.
Sýnir sterka stöðu
menningarinnar
Selfoss
ÁTVR opnaði nýja vínbúð miðviku-
daginn 15. maí, í ESSO aðföngum
við Óseyrarbraut 4 í Þorlákshöfn.
Þetta er 41. vínbúð ÁTVR og er þar
að finna 80 áfengistegundir. Hún
verður opin frá mánudögum til
fimmtudaga kl. 17–18 og föstudaga
kl. 16–18. Brynjólfur Guðmundsson
er verslunarstjóri vínbúðarinnar.
Í Þorlákshöfn búa rúmlega 1.300
manns og u.þ.b. 200–300 að auki á
bæjunum í nágrenninu sem vínbúð-
in þjónustar. ÁTVR hélt kynningu í
tilefni opnunarinnar í Þorlákshöfn í
og mættu um 70 manns til að skoða
húsnæði verslunarinnar. Höskuld-
ur Jónsson forstjóri hélt tölu áður
en hann afhenti Brynjólfi Guð-
mundssyni verslunarstjóra lyklana.
Hann minnti á það að Þorlákshöfn
héti eftir Þorláki helga, dýrlingi, en
hann var sérstakur áhugamaður
um öl og ölgerð. Það væri því vel
við hæfi að opna vínbúð í Þorláks-
höfn. Að svo búnu tók Ólafur Áki
Ragnarsson, bæjarstjóri til máls,
þá Ólafur Helgi Kjartansson sýslu-
maður og sr. Baldur Kristjánsson,
sóknarprestur Þorlákshafnar. Þeir
gerðu það að umtalsefni hversu við-
horf til áfengiskaupa hefur breyst á
undanförnum árum. Mikill undir-
búningur hefur staðið yfir síðustu
vikurnar síðan Olíufélagið hf. skrif-
aði undir samstarfssamning við
ÁTVR í mars sl. og hafa starfs-
menn beggja aðila haft í nógu að
snúast síðan um páska til að hafa
allt klappað og klárt fyrir opn-
unina.
Ljósmynd/Þórdís H. Yngvadóttir
Höskuldur Jónsson, forstjóri ÁTVR, Ólafur Áki Ragnarsson bæjarstjóri og
Brynjólfur Ingi Guðmundsson verslunarstjóri.
Ný vínbúð opnuð
Þorlákshöfn