Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 37

Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 37 eta séð greinilega breytingu r á stöðu sinni og að þeim hafi a miðað í átt að lokamarkinu. unu þeir ekki treysta sér til að nni áfram. áfanganum þurfa Ísraelar til að sjá greinilega breytingu til öryggismálum sínum þegar menn „hefjast handa við sýni- lega viðleitni… til að handsama, stöðva og hindra einstaklinga og hópa sem skipuleggja ofbeldisárásir á Ísraela“. Á sama tíma þurfa Palestínumenn að sjá að losað hafi verið um hömlur á ferðir þeirra, að nýjar landnemabyggðir hafi verið rifnar niður og aðrar landnáms- aðgerðir frystar. Og traust beggja aðila ætti að aukast við þátttöku bandarískra embættismanna á sviði öryggismála í samstarfi ísraelskra og palestínskra ör- yggissveita. Annar áfanginn felst meðal annars í möguleikanum á stofnun Palestínuríkis með bráðabirgðalandamæri – hugs- anlega fyrir lok þessa árs – og á meðan þurfa Palestínumenn að halda áfram baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi. Og í þriðja áfanganum, á árunum 2004– 2005, ætti traustið að vera orðið nógu mikið til að aðilarnir, með öflugum stuðningi Kvartettsins, geti náð loka- samkomulagi um óleyst deilumál – landamæri, flóttamenn, landnemabyggð- ir, Jerúsalem – og til að Ísraelar geti náð víðtæku friðarsamkomulagi við grannríkin, þeirra á meðal Sýrland og Líbanon. Ég er sannfærður um að nú gefst sögulegt tækifæri til friðar. Mikilvægur þáttur í fyrsta áfanganum – umbætur á palestínskum stofnunum – hefur nú þeg- ar hafist, með eftirtektarverðum árangri að ýmsu leyti, meðal annars hefur stjórn Mahmouds Abbas verið staðfest og markar það tímamót í lýðræðisþróuninni á sjálfstjórnarsvæðum Palestínumanna. Engin af fyrri friðaráætlunum naut eins víðtæks stuðnings mikilvægra ríkja og Vegvísirinn: Bandaríkjanna – sem taka fullan þátt í friðarumleitunum í þessum heimshluta eftir sigurinn í Írak – Evrópuríkja, Rússlands og mikilvægra arabaríkja. Við verðum samt að gera okkur grein fyrir því að þótt Vegvísirinn komi frá Kvartettnum eru það Ísraelar og Palest- ínumenn sem þurfa að fara veginn til friðar. Og þessi vegur hefur þegar verið flekkaður með meiri blóðsúthellingum. Kvöldið áður en áætlunin var birt biðu þrír menn bana í sjálfsmorðsárás í Tel Aviv. Morguninn eftir réðust ísraelskar hersveitir inn í Gaza-borg og það leiddi til harðs skotbardaga sem kostaði að minnsta kosti fimmtán Palestínumenn lífið, meðal annars tveggja ára barn. Þetta ofbeldi sýnir að báðir aðilar þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, því að þeir sem hafna öllum friðarsamningum reyna að hrekja þá af veginum með nýj- um hryðjuverkum. Báðir aðilar þurfa að standa við skuldbindingar sínar og leyfa ekki öfgamönnum að ráða ferðinni inn í framtíðina. Stjórn Abbas verður að hafa hendur í hári þeirra sem standa fyrir árásunum og draga þá fyrir rétt og Ísr- aelar verða að forðast óhóflega valdbeit- ingu sem gerir þetta verkefni enn erf- iðara. Vegurinn verður grýttur, en valið ætti ekki að vera erfitt, það er milli áfram- haldandi ofbeldis og örvæntingar annars vegar og stofnunar sjálfstæðs, lífvænlegs Palestínuríkis við hlið óhults og við- urkennds Ísraelsríkis hins vegar. Nú er það undir Ísraelum og Palestínumönnum komið hvort rétta leiðin verður valin. Reuters na útgöngubanns í Hebron. Terje Rød-Larsen er sérlegur sendimaður Sam- einuðu þjóðanna í Mið-Austurlöndum og tók þátt í að móta Vegvísinn með embættis- mönnum frá Bandaríkjunum, Evrópusam- bandinu og Rússlandi. ’ Ég er sannfærður umað nú gefst sögulegt tækifæri til friðar. ‘ S NEMMA á haustdögum hefði enginn geta spáð fyrir um úrslit alþing- iskosninganna. Allt stefndi í óbreytt ástand. Framboð Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur um áramótin breytti því. Í stað þess að umturna lands- lagi íslenskra stjórnmála má þó segja að úrslitin hafi aðeins sýnt hvaða breytingar geti orðið. Úrslit- in urðu „hálf-söguleg“. Framhaldið og framtíðar styrkleikahlutföll flokkanna veltur ekki síst á stjórn- armyndun. Staða Frjálslyndra er óljósust. Kosningabaráttan var þeim góð en skilaði aðeins fjórum þingmönnum. Stóra verkefnið verður að halda frumkvæðinu í umræðu um sjáv- arútvegsmál. Vinstri-grænir fundu ekki taktinn í kosningabaráttunni og mun reynast erfitt að vera í harðri stjórnarandstöðu í flestum málum án þess að einangrast póli- tískt. Þótt flokkurinn hafi fest sig í sessi á hann án efa meira undir því að eiga sæti í næstu ríkisstjórn en aðrir flokkar á Alþingi. Vinstri- grænir þurfa að koma skýrt til skila að þeir séu tilbúnir til mála- miðlana í samningum um þátttöku í ríkisstjórn. Sjálfstæðisflokkurinn tapaði stórt. Flokknum mistókst að ná til sín nema hörðustu stuðnings- mönnum. Skýringanna er að leita í langri stjórnarsetu, valdþreytu og skorti á hugmyndalegri endurnýj- un. Davíð Oddsson hefur af lands- kunnu næmi skynjað að hans tími er liðinn. Hann varð á undan öðr- um að lýsa því yfir að hann væri á förum. Á heimasíðu Heimdalls er ósigur flokksins rakinn til ímynd- ar- og afdráttarleysis Davíðs og tekið undir með Birni Bjarnasyni sem segir á heimasíðu sinni að sjálfstæðismenn hljóti að líta í eig- in barm og huga að stöðu sinni og starfsháttum í ljósi úrslitanna. Hætt er við því að áframhald- andi stjórnarseta Sjálfstæð- isflokksins undir forystu Davíðs geti slævt slíka hugsun. Gagn- rýnar raddir þegi enn um sinn. Lifandi pólitísk umræða um sjálf- stæðisstefnuna er löngu tímabær. Stórátak bíður einnig í að styrkja stöðu kvenna innan flokksins. Hún er háðuleg að kosningum loknum. Sóknarfæri Sjálfstæðisflokksins á næstu árum ef formaðurinn víkur eru hins vegar óumdeilanleg. Framsóknarflokkurinn virðist standa með pálmann í höndunum. Tækifæri hans í yfirstandandi stjórnarmyndunarviðræðum eru ótvíræð. Konur hafa ólíkt sterkari stöðu í þingflokknum en hjá Sjálf- stæðisflokknum og geta hæglega orðið helmingur ráðherra flokksins sem gæfi ferskan blæ. Halldór Ás- grímsson hefur það í hendi sér hvort hann leiði næstu ríkisstjórn. Flokkurinn þarf þó að líta lengra en til næstu vikna. Hann vann góð- an varnarsigur en virðist engu að síður fastur í sögulegu lágmarks- fylgi. Fylgi Framsóknar nú er lægra en í stórtapinu 1999 sem voru þriðju verstu kosningar flokksins í sögunni. Veik staða á höfuðborgarsvæðinu er staðreynd þrátt fyrir einbeittan vilja til að bæta þar úr. Margt bendir til að áframhald- andi stjórnarsamstarf muni gera Framsóknarflokknum erfitt fyrir í að sækja fram í þéttbýli. Helstu vopn Halldórs Ásgrímssonar í þeim efnum hafa verið að efla Evr- ópuumræðuna og útiloka ekki að- ild að ESB. Hann hefur viljað opna fyrir erlenda fjárfestingu í sjávarútvegi og léði máls á upp- boði aflaheimilda í tengslum við aukinn síldarkvóta fyrir fáeinum árum. Yfirlýsingar um að landbún- aður verði að aðlaga sig reglum Evrópusambandsins og fríversl- unarsjónarmiðum teljast þó líklega til enn meiri tíðinda. Í öllum þess- um málum tekur formaður Fram- sóknarflokksins ekki ólíka afstöðu og forveri hans í starfi utanrík- isráðherra, Jón Baldvin Hannibals- son. Við lá að samstjórn Sjálf- stæðis- og Alþýðuflokks springi fyrir lok kjörtímabilsins 1991–1995 vegna ágreinings um einmitt þessi atriði. Sá armur innan Framsókn- arflokksins sem lengi var talinn til vinstri og gat aldrei á heilum sér tekið í samstarfi við Sjálfstæð- isflokkinn styður nú einlæglega áframhaldandi stjórnarsamstarf. Þetta eru ein sögulegustu um- skiptin í íslenskri pólitík og er tákn um nýjar átakalínur. Í þess- um hópi er Guðni Ágústsson óskoraður leiðtogi. Aðeins eitt getur komið í veg fyrir að þessi hópur styðji óbreytta stjórn, að Sjálfstæð- isflokkurinn geri kröfu um forræði yfir velferðarmálum. Framsóknarflokknum yrði það gríðarlega erfitt að eiga aðild að einkavæðingu í heil- brigðiskerfinu. Á því sviði treysta framsóknarmenn Sjálfstæðisflokknum ekki. En hvers vegna styður þá vinstri armurinn áframhaldandi stjórn? Hinar nýju átakalínur snú- ast ekki um hægri og vinstri held- ur um Evrópusamvinnu og frelsi í alþjóðaviðskiptum. Þar á hinn gamli vinstri armur Framsókn- arflokksins meira sameiginlegt með Davíð Oddssyni en Halldóri Ásgrímssyni sem virðist í öllum meginatriðum tala fyrir svipuðum áherslum og Samfylkingin. Af sömu ástæðum á fjölmargt Sam- fylkingarfólk ekki í neinum vand- ræðum með að styðja ríkisstjórn- arsamstarf Samfylkingar og Framsóknarflokks. Einna flóknast er þó að ráða í spil Samfylkingarinnar. Flokk- urinn á mikið undir því að sanna að honum megi treysta til að stjórna. Stjórnarþátttaka myndi jafnframt skapa festu í starf þing- flokksins og tryggja Ingibjörgu Sólrúnu hlutverk á sviði landsmál- anna. Í þessu ljósi er skynsamlegt að bjóða Halldóri Ásgrímssyni að leiða ríkisstjórn með þátttöku Samfylkingarinnar. Yrði af slíku samstarfi með þátttöku eða hlut- leysi Vinstri-grænna markaði það kaflaskil en festi um leið til fram- búðar þá skipan að Framsókn- arflokkurinn réði jafnan úrslitum um stjórnarmyndun. Af þeim sök- um hafa komið fram raddir sem telja að ef Samfylkingin ætli sér að verða stærri en Sjálfstæðisflokkur væri það afleikur að setjast í stjórn undir forystu Framsókn- arflokksins. Óbreytt stjórnarsam- starf þar sem frjálslyndar Evrópu- áherslur Halldórs Ásgrímssonar yrðu undir sköpuðu Samfylking- unni einstaka stöðu til að eflast sem stór og breiður flokkur undir forystu Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur. Ég hef sjálfur lýst þeirri skoðun að það væri heillaskref fyrir þróun þjóðmála ef Reykjavíkurlistaflokk- arnir nái saman um myndun rík- isstjórnar. Ef til vill verður þó að- eins eitt sagt með vissu. Ákvarðanir Framsóknarflokksins næstu daga ráða úrslitum um þró- un þjóðmálanna og hvorum megin hinna nýju átakalína næsta rík- isstjórn skipar sér. Nýtt landslag, nýjar átakalínur? Eftir Dag B. Eggertsson dagur@reykjavik.is ’ Aðeins eitt verður sagtmeð vissu. Ákvarðanir Framsóknarflokksins næstu daga ráða úrslitum um þróun þjóðmálanna og hvorum megin hinna nýju átakalína næsta rík- isstjórn skipar sér. ‘ að hafa s af hálfu árið 1996 engið er ðveld- n- hann sinna egar lit- á greina, við hafa ver- lur. For- eglu, s ræður rður að m í sland sé t á hinn nnes 04 með gnað á 0 ára af- gu þing- ögu s. Er heima- gi ætti og sér fyrir rði skrif- af venj- a úttekt hennar í um það, miklu á yrðu til efna við x x x Hér er þess ekki krafist eins og sums staðar er gert, að ný ríkisstjórn afli sér traustsyfirlýsingar alþingis. Sé ríkisstjórn hins vegar skipuð andstætt vilja meirihluta alþingis, er brotið gegn þingræðisreglunni, nema þraut- reynt sé, að enginn þingmeirihluti sé fyrir hendi til stjórnarmyndunar. Ríkisstjórnir Davíðs Oddssonar hafa ávallt stuðst við ríflegan meirihluta á alþingi. Hefur aldrei komið til stjórnarkreppu síðan hann tók við formennsku í Sjálf- stæðisflokknum á árinu 1991 og fékk umboðið til stjórn- armyndunar eftir alþingiskosningarnar 20. apríl það ár, en fyrsta ríkisstjórn hans var skipuð hinn 30. apríl 1991. Að baki fyrstu stjórn Davíðs voru 26 þingmenn Sjálf- stæðisflokks og 10 þingmenn Alþýðuflokks, eða alls 36 þingmenn. Í kosningunum 8. apríl 1995 fékk Sjálfstæð- isflokkurinn 25 þingmenn og Alþýðuflokkurinn 7, þann- ig að samtals höfðu flokkarnir 32 þingmenn og þar með einn þingmann umfram stjórnarandstöðuna. Þetta taldi Davíð Oddsson of þrönga stöðu og sjálfstæðismenn gengu til samstarfs við Framsóknarflokkinn, sem hafði 15 þingmenn, og voru því 40 þingmenn á bakvið þá stjórn, sem mynduð var 23. apríl 1995. Samstarf flokk- anna hélt áfram eftir kosningarnar 8. maí 1999 en þá hlaut Sjálfstæðisflokkur 26 þingmenn og framsókn 12 eða samtals 38 á bakvið þá stjórn, sem var mynduð 28. maí 1999. Í kosningunum á dögunum fékk Sjálfstæð- isflokkur 22 þingmenn og framsókn 12 eða samtals 34. Í engu eldri tilvika átti annar flokkur en Sjálfstæð- isflokkurinn kost á að mynda tveggja flokka stjórn. Eft- ir kosningarnar nú er staðan hins vegar sú, að Samfylk- ingin fékk 20 þingmenn kjörna, og getur hún því myndað stjórn með 12 þingmönnum Framsókn- arflokksins, það er með 32 þingmenn að baki, sem talið var of tæpt árið 1995, þegar sjálfstæðismenn sneru sér frá Alþýðuflokknum að Framsóknarflokknum. Þá geta Sjálfstæðisflokkur og Samfylking að sjálfsögðu myndað tveggja flokka stjórn með 42 þingmenn að baki sér. Þegar kemur að vangaveltum og viðræðum stjórn- málamanna að loknum kosningum og mati á þeim kost- um, sem þá eru fyrir hendi, leiðir þringræðisreglan til þess, að fjöldi þingmanna ræður úrslitum. Fyrir kosn- ingar lá í loftinu, að fengju stjórnarandstöðuflokkarnir þrír, Samfylking, frjálslyndir og vinstri/grænir 32 eða fleiri þingmenn kjörna myndu þeir leita samstarfs um ríkisstjórn. Þetta markmið náðist ekki og viðleitni eftir kosningar, eins og tilboð Össurar Skarphéðinssonar til Halldórs Ásgrímssonar í síma á sunnudag, um að Hall- dór gæti orðið forsætisráðherra í stjórn með Samfylk- ingunni, hefur ekki borið árangur. Með tilboði sínu fetar Össur að nokkru í fótspor Ólafs Ragnars Grímssonar, þáverandi formanns Alþýðu- bandalagsins, sem bauð Jóni Baldvini Hannbalssyni forsætisráðherrastólinn eftir kosningarnar vorið 1991 í von um að lokka hann frá samstarfi við Sjálfstæð- isflokkinn. Þá sýndu þeir Davíð og Jón Baldvin þau til- þrif að fara út í Viðey og mynda stjórn, enda hefur fyrsta ríkisstjórn Davíðs af sumum verið nefnd Viðeyj- arstjórnin. x x x Á meðan forystumenn Sjálfstæðisflokks og Fram- sóknarflokks leggja á ráðin um nýja ríkisstjórn í umboði þingflokka sinna, eru hjaðningavíg innan Samfylking- arinnar, stærsta stjórnarandstöðuflokksins. Flokkurinn gekk til kosninga undir þeim skrýtnu formerkjum, að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir væri forsætisráðherraefni hans og talsmaður. Er eindsæmi, að öðrum en formanni flokks sé att fram á þennan hátt í kosningarbaráttu. Úrslit kosninganna urðu þau, að forsætisráð- herraefnið komst ekki á þing og enginn áhugi virðist á stjórnarmyndunarviðræðum við Samfylkinguna. Við þessar aðstæður vill Össur Skarphéðinsson snúa klukk- unni til baka, að horfið sé til ástandsins fyrir tilkomu forsætisráðherraefnisins við mat á stöðu flokksins. Hann hafi náð fylgi hans upp í 32% og reist flokkinn á fæturna. Þegar litið sé fram á veg, eigi hann einnig skil- ið að verða endurkjörinn formaður flokksins næsta haust, raunar eigi hann stuðning forsætisráð- herraefnisins vísan í því efni, eins og fram hafi komið í janúar. Össur hefur ekki fyrr sleppt orðinu um þetta mat sitt á stöðunni í eigin flokki en allt fer þar á annan endann. Vonsviknir samfylkingarmenn segja, að með þessu hafi formaðurinn aðeins verið að setja salt í sár kosn- ingaúrslitanna og honum beri að víkja, helst tafarlaust, fyrir Ingibjörgu Sólrúnu. Sjálf talar hún á sama tvíræða hátt um málið og þegar hún gekk á bak þeirra orða sinna frá því fyrir ári, að sitja sem borgarstjóri í Reykjavík fyrir R-listann til ársins 2006. narmyndun ök bjorn@centrum.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.