Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 51

Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 51
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 51 ✝ Aðalsteinn Ing-ólfur Eiríksson bifvélavirkjameist- ari fæddist í Hafnar- firði 13. október 1925. Hann andaðist á fjórðungssjúkra- húsinu í Neskaup- stað 9. maí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Eiríkur Steins- son, f. í Miklholti í Biskupstungna- hreppi 24.12. 1898, d. 6.2. 1969, og Sig- ríður Valdimarsdótt- ir, f. á Sóleyjarbakka í Hrunamannahreppi 3.7. 1904, d. 13.5. 1974. Bróðir Aðalsteins er Valdimar Helgi, f. 23.12. 1930 í Eystra-Geldingaholti í Gnúpverja- hreppi, búsettur á Reyðarfirði. Aðalsteinn kvæntist 10. septem- ber 1949 eftirlifandi eiginkonu sinni, Pálínu Maríu Guðmunds- dóttur, f. 12. ágúst 1927. Foreldrar hennar voru Guðmundur Sveins- son, bóndi á Flateyri við Reyðar- fjörð, f. 27.1. 1884, d. 7.8. 1967, og Sigurborg Þorvaldsdóttir hús- freyja, f. 14.5. 1893, d. 3.10. 1978. ur Birgir Guðjónsson, f. 10.9. 1967, þau eiga eitt barn. b) Guðmundur Árni, f. 15.6. 1985. 5) Árdís Guð- borg, f. 12.2. 1967, maki Karl Bóasson, f. 15.4. 1965, börn þeirra eru: a) Logi Steinn, f. 21.12. 1984. b) Rebekka Sif, f. 1.7. 1992. c) Bóel Rut, f. 25.6. 1993. 6) Sigríður Helga, f. 8.4. 1969, maki Kristján Bóasson, f. 26.1. 1967, barn þeirra er Dagur Friðrik, f. 11.6. 1997. Aðalsteinn ólst upp í Hafnarfirði fyrstu tvö æviárin en fluttist þaðan með foreldrum sínum að Eystra Geldingaholti í Gnúpverjahreppi og var þar til sex ára aldurs en þá flytjast þau til Reykjavíkur. Sveit- in var honum kær og dvaldi hann í sveit á sumrin allt til 13 ára aldurs. Aðalsteinn lauk sveinsprófi í bif- vélavirkjun frá Iðnskólanum í Reykjavík árið 1950 og öðlaðist meistararéttindi árið 1954 en sama ár flutti hann ásamt Pálínu eiginkonu sinni til Reyðarfjarðar og bjó þar til dauðadags. Þar stofnaði hann bifreiðaverkstæðið Lykil ásamt Valtý Sæmundssyni og síðar stofnaði hann fyrirtækið Lykil og rak það ásamt sonum sín- um allan sinn starfsferil. Hann var mikill áhugamaður um íþróttir og kenndi glímu á Reyðarfirði til margra ára. Útför Aðalsteins Ingólfs verður gerð frá Reyðarfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Börn Aðalsteins og Pálínu eru: 1) Þor- valdur, f. 20. 8. 1950, maki Birna Guð- mundsdóttir, f. 3.9. 1952, börn þeirra eru a) Aðalsteinn Vigfús, f. 19.12. 1970, sam- býliskona Linda Andr- ésdóttir, f. 30.1. 1972, þau eiga eitt barn. b) Drengur, f. 26.4. 1975, d. 26.4. 1975; c) Daði Páll, f. 4.10. 1977, sambýliskona Petra Dögg Þórðardóttir, f. 2.11. 1983, hann á eitt barn. 2) Sigurður Eiríkur, f. 19.5. 1953, maki Erna Arnþórsdóttir, f. 15.3. 1954, börn þeirra eru: a) Arn- þór Ingi, f. 17.3. 1978, d. 26.7. 1997. b) Sigurður Örn, f. 8.7. 1982. 3) Kristín, f. 22.3. 1956, börn henn- ar og Sigurðar Pálssonar, f. 26.5. 1957 eru: a) Davíð Ingþór, f. 7.10. 1978. b) Aðalbjört María, f. 3.1. 1984. c) Dagbjört Nótt, f. 25.5. 2000. 4) Hugrún, f. 24.9. 1959, maki Árni Guðmundsson, f. 3.8. 1954, börn þeirra eru: a) Pálína María, f. 11.12. 1979, sambýlismað- Elsku hjartans afi minn, mikið á ég eftir að sakna þín en ég veit að núna líður þér vel hjá Guði á himnum. Það er skrítið að koma niður á neðri hæð til ömmu þegar enginn afi er til að skoða með mér í bækur og ræða um fiska og fugla sem okkur báðum hafa verið afar hugleiknir en skemmtileg- ast fannst mér þegar þú varst að spyrja mig út úr fiskabókinni um nöfnin á fiskunum sem ég er búinn að læra af þér. Það verður tómlegt við eldhúsborðið hjá ömmu þegar draumafiskur verður á borðum og búðingur í eftirmat og þig vantar, afi, til að segja með stolti í röddinni að þetta sé það besta sem litlir strákar geta fengið til að vaxa og verða hraustir því fiskur var það besta sem þú fékkst að borða. Það jafnaðist ekk- ert á við fjöruferðir með þér út á Flat- eyri síðastliðið sumar og fá að koma heim með fullar fötur af skeljum, bobbum og því um líku úr fjörunni og um svo margt fróðari. Ég vil þakka þér, afi minn, fyrir allt það góða sem þú hefur gefið mér, að því mun ég alltaf búa, Guð geymi þig. Þinn Dagur Friðrik. Elsku afi. Okkur langar að minnast þín í nokkrum orðum. Okkur verður hugsað til allra sumranna sem við komum austur til ykkar ömmu sem börn. Oftast vildi dvölin lengjast meira en áætlað hafði verið. Það var aldrei lognmolla í kringum þig, við minnumst allra fjöruferðanna sem við fórum í til að leita að steinum og skelj- um. Einnig minnumst við þess að hafa farið með þér á sjó út á fjörðinn, og þá var nú stundum fiskað vel. Við fórum líka með ykkur ömmu í ferðalög og var það oft góð uppspretta fyrir rit- gerðir okkar sem við þurftum að skrifa að hausti í skólanum. Og þótt við fullorðnuðumst var alltaf sama eftirvæntingin að fara til afa og ömmu á Reyðarfirði. Elsku afi, við höfum fylgst með dugnaði þínum og ákveðni í veikind- unum sem því miður náðu að lokum yfirhöndinni. Elsku amma, við erum þakklát fyrir allt sem þú gerðir fyrir afa, sem gerði það að verkum að hann gat verið sem lengst heima. Og hvað þið voruð bæði alltaf hugarfarslega jákvæð þegar dró að leiðarlokum. Elsku afi, við þökkum þér allar góðu minningarnar sem við eigum um þig. Kveðjur. Davíð Ingþór og Aðalbjört María. Hugumprúður heiðursmaður er hniginn að velli. Heiðríkja hugarfars- ins einkenndi ævigöngu hans alla, lundin var hlý, mundin traust, mæt voru verk þessa dugandi bjartsýnis- manns og marga kæra minning skilur hann eftir hjá svo mörgum. Aðalsteinn var hinn hjálpfúsi greiðamaður sem allra vanda vildi leysa svo sem í valdi hans stóð, hann var ötull í sínu fagi sem og í hverju því sem hann tók sér fyrir hendur, skjótr- áður og snöggur að greiða úr málum. Menn fundu ævinlega hve gott var að eiga hann að, menn vissu alltaf hvar þeir höfðu Aðalstein Eiríksson, hann Alla á Lykli eins og svo oft var sagt og ævinlega kenndi hlýju í rödd manna. Það var fengur sannur að fá þennan ljúfa og hressa dreng inn í samfélagið okkar heima fyrir um hálfri öld. Nú kveðjum við hann Alla á Lykli í dag og það er klökkvi í hug þegar hugur leit- ar á fund minninganna, en jafnframt hlýtt þakklæti fyrir samfundi alla. Það var sannarlega staðið meðan stætt var og máske lengur, því víl var Aðalsteini óþekkt og kvartsár var hann aldrei, þó að syrti um heilsu hans. Fyrstu verulegu kynni mín af Að- alsteini voru þegar leikritið Deleríum búbónis var sett upp heima og Að- alsteinn þar áhugasamastur allra við allan undirbúning og framkvæmd. Áhugi hans og kraftur var smitandi og hressileikinn hreif mann með sér. Þannig var hann Aðalsteinn og þótt við margt væri mætavel fengist, þá mun glímukennsla hans heima halda minningu hans hæst á lofti, það mikla og fórnfúsa sjálfboðastarf verður aldrei fullþakkað. Sjálfur var Aðalsteinn afar góður glímumaður, glímdi mikið hér syðra, þótti frækinn og fær en lipurðin og snerpan í öndvegi og til verðlauna unnið m.a. fyrir fallega glímu. Á þessi atriði lagði Aðalsteinn höfuð-áherzlu við nemendur sína, sem voru fjöl- margir, kraftar og burðir skyldu aldr- ei alfarið ráða, enda fengu nemendur hans góða dóma glímukappa, en mörgum kom Aðalsteinn í röð fremstu glímumanna landsins. Mér er hinn hugstæði drengur ljómandi eiginleika þó minnisstæðast- ur, þetta ljúfa viðmót, þessi fríski, glaði andblær sem voru einkenni hans. Aðalsteinn kvæntist mikilli af- bragðskonu og efnisfólk mikið eru börn þeirra, hann var hamingjuhrólf- ur í einkalífi sínu eins og bezt getur orðið. Við Hanna sendum þeim, sem nú syrgja þennan heilladreng, einlæg- ustu samúðarkveðjur. Þökkin heit er mér í hug við leiðar- lok fyrir gjöful kynni áranna. Megi hann á ódáinsakri eilífðar öðl- ast birtu og blessun. Blessuð sé minning hins mæta drengskaparmanns. Helgi Seljan. Þá hefur okkar ágæti félagi og glímuþjálfari Aðalsteinn Eiríksson kvatt hið jarðneska líf og haldið á vit æðri máttarvalda. Með fáeinum orð- um viljum við í glímuráði Vals minn- ast okkar góða félaga, sem svo sann- arlega setti svip á samfélagið með dugnaði sínum og ljúfmannlegri framkomu. Aðalsteinn var afbragðs glímumað- ur. Hann tók þátt í fjölmörgum glímu- mótum á yngri árum og var einnig í sýningarflokkum og fór meðal annars með frægum glímusýningarflokki KR-inga til að sýna glímu á erlendri grundu. Það var mikill fengur fyrir okkur Austfirðinga að fá Aðalstein hingað í fjórðunginn, en til Reyðar- fjarðar flutti hann 1954. Hann var at- hafnamaður bæði í atvinnulífi sem fé- lagslífi og vildi hvers manns götu greiða. Árið 1958 stofnaði hann hér glímuflokk og var glímuþjálfari hjá ungmennafélaginu Val fram til 1983. Hann leiddi einnig glímustarfið innan UÍA og stóð fyrir fjölda móta hér eystra. Aðalsteinn var í einu orði sagt frábær glímuþjálfari. Hann hafði mikinn metnað fyrir hönd drengjanna sinna og lagði mikla áherslu á fallega og drengilega glímu, enda þrautþjálf- aður glímusýningarmaður. Kraftur og lipurð, en um leið heiðarleiki og vinátta, einkenndi alla hans tilsögn. Aðalsteinn var einnig ákaflega létt- lyndur og spaugsamur maður og hlát- ur og hressileiki einkenndu æfingarn- ar og áttu eflaust mikinn þátt í vinsældum glímunnar hér á Reyðar- firði. Þær eru margar góðar minning- arnar sem við eigum frá æfingum í Félagslundi, hvernig Aðalsteini tókst ætíð að laða fram það besta í okkur, dýrmæt reynsla sem hefur verið okk- ur gott veganesti. Við glímufólkið hér á Reyðarfirði kveðjum hann með þökk og virðingu um leið og við vott- um eiginkonu hans, Pálínu, börnum og öðrum ættingjum samúð okkar. Fyrir hönd glímuráðs Vals, Þóroddur Helgason. AÐALSTEINN ING- ÓLFUR EIRÍKSSON ✝ Bjarni Dagssonfæddist í Sviðu- görðum í Gaulverja- bæjarhreppi 5. sept- ember 1915. Hann lést í Sjúkrahúsi Suð- urlands 9. maí síðast- liðinn. Foreldrar hans voru Dagur Brynjúlfsson, bóndi og hreppstjóri, f. 1879, d. 1963, lengst af í Gaulverjabæ og kona hans Þórlaug Bjarnadóttir hús- freyja, f. 1880, d. 1965. Systkini Bjarna voru Brynjúlfur læknir, f. 1905, d. 1963; Bjarni, f. 1908, d. 1908; Sig- rún organisti í Gaulverjabæ, f. 1909, d. 1929; Guðrún Ingibjörg póstfulltrúi á Selfossi, f. 1911, d. 1988; Dagur kaupmaður á Sel- fossi, f. 1920. Hálfbróðir Bjarna, samfeðra, er Erlingur, f. 1914. Uppeldissystir Bjarna er Hulda Brynjúlfsdóttir, f. 1925, bróður- dóttir hans. Hinn 21. júní 1958 kvæntist Bjarni Valgerði Guðmundsdóttur, f. 3. september 1926, d. 5. júní 1998. Foreldrar hennar voru Þór- unn Guðjónsdóttir frá Hamri í Gaulverjabæjarhreppi og Guð- mundur Elías Bjarnason frá Túni í Hraungerðis- hreppi. Börn Bjarna og Valgerðar eru: 1) Guðmundur rekstr- artæknifræðingur, f. 15.8. 1959. 2) Óskírð- ur sonur, f. 18.11. 1962, dáinn sama dag. 3) Þórlaug líf- fræðingur, f. 14.5. 1964, gift Karli Þóri Jónassyni. Þeirra börn eru Bjarni Dagur, f. 28.1.1991 og Valgerður Ósk, f. 11.6. 1993. Bjarni stundaði nám við Bændaskólann á Hvann- eyri og lauk þaðan búfræðiprófi 1936. Hann stundaði akstur á eig- in bíl og var ökukennari á árunum 1937–1955. Bjarni hóf störf við Landsbankann á Selfossi 1956 og starfaði þar til 1985 er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Bjarni var formaður sóknarnefndar Sel- fosssafnaðar 1977–1991. Hann söng í kirkjukór Gaulverjabæjar- kirkju 1932–1951 og með kirkju- kór Selfosskirkju frá 1952. Þá söng hann með Hörpukórnum á Selfossi frá stofnun hans. Útför Bjarna fer fram frá Sel- fosskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 11. Þetta ár er frá oss farið, fæst ei aftur liðin tíð. Hvernig höfum vér því varið? Vægi oss Drottins náðin blíð. Ævin líður árum með, ei vér getum fyrir séð, hvort vér önnur árslok sjáum, Að oss því í tíma gáum. (Brynjúlfur Jónsson frá Minna-Núpi.) Skyndilega er Bjarni félagi okkar farinn. Fram til síðustu klukku- stundar fótaferðar hans 2. maí tign- aði hann sönggyðjuna sér til ánægju og áheyrendum til gleði. Bjarni lauk sínum langa söngferli á vorfagnaði eldri borgara Árnesþings, sem hald- inn var á Flúðum 2. maí. Þar söng Hörpukór félags eldri borgara, kór þar sem saman eru komnir eldri borgarar úr mörgum sveitarfélögum Árnesþings undir stjórn Jörgs Son- dermanns. Bjarni kom í Hörpukór- inn fyrir nokkrum árum. Merkasti ferill Bjarna er þátttaka hans í Kirkjukór Selfoss samfleytt í 56 ár allt frá árinu 1947. Hann mætti síðast á söngloftið í kirkjunni 27. apríl sl. Bjarni var einn styrkasti og tónnæmasti félaginn í kórnum. Tónnæmi og sönghæfni hans var al- veg einstök. Fyrstu áratugina söng hann tenórröddina, en síðar færði hann sig í bassarödd. Þrátt fyrir það var hann ávallt reiðubúinn að færa sig í tenórrödd, stæði þannig á að þess væri óskað. Það var eftirsótt staða að fá að vera við hlið hans í kórnum og njóta tónöryggis hans þegar erfið tónverk voru í flutningi. Mætingar hans þessa áratugi við æfingar og allar athafnir voru næst- um óslitinn ferill. Bjarni var einn af stofnendum og í stjórn Tónlistarfélags Árnessýslu. Tónlistarfélagið stóð að stofnun Tónlistarskóla Árnesinga og annað- ist rekstur hans fyrstu tvo áratug- ina. Hann vann að velferð og vexti tónlistar allt til síðustu stundar. Kona hans, Valgerður Guðmunds- dóttir, féll frá fyrir fáum árum. Allt kirkjustarf var þeim hjónum mjög hugleikið. Tómstundir þeirra og framlag til kirkjunnar verður seint fullþakkað, né skráð. Afi hans, Brynjúlfur Jónsson, spyr sig í til- vitnuðum sálmi: Hvernig höfum vér varið liðinni tíð? Við sem höfum fylgst með öllu starfi Bjarna í kirkjukór Selfoss og sem formanns sóknarnefndar Selfosskirkju á byggingartíma safnaðarheimilis get- um verið þess fullviss að náðin Drottins verði blíð að ævilokum Bjarna. Blessuð sé minning þeirra hjóna. Innilegar samúðarkveðjur til barna þeirra frá sóknarnefnd, tónlistar- skólanum og söngfélögum öllum. Hjörtur Þórarinsson. BJARNI DAGSSON Alúðarþakkir sendum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför okkar ástkæra BJÖRNS JÓHANNSSONAR blaðamanns, og vottuðu minningu hans virðingu. Guðrún Egilson, Jóhann Áki Björnsson, Dagmar Gunnarsdóttir, Kristrún Helga Björnsdóttir, Snorri Már Snorrason, Snædís Huld Björnsdóttir, Ægir Þór Þórsson, Þorsteinn Brynjar Björnsson, Friðsemd Dröfn Guðjónsdóttir, Magnea Hrönn Jóhannsdóttir, Björn Áki Jóhannsson, Helga Guðrún Jóhannsdóttir, Valgeir Hrafn Snorrason, Auður Birna Snorradóttir, Davíð Freyr Þorsteinsson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.