Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 57

Morgunblaðið - 17.05.2003, Síða 57
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 57 Tangarhöfða 1 • 110 Reykjavík • Símar 567 2357 og 893 9957 Opið laugardag og sunnudag frá kl. 13-16 Benimar húsbílarnir eru sannkallaðir glæsivagnar með vönduðum innréttingum, örbylgjuofni, sólarrafhlöðu, tengingu f. sjónvarp o.fl. Einn með öllu. Komið og skoðið húsbílana hjá okkur Erum með úrval af glæsilegum húsbílum Clipper húsbílarnir eru með mjög góðu svefnplássi Umboð á Akureyri Sigurður Valdimarsson Óseyri 5 - Sími 462 2520 PFAFF-verslunin á Íslandi hefur afhent Rauða krossi Íslands sjö notaðar saumavélar sem gefnar verða flóttamannafjölskyldum frá fyrrverandi Júgóslavíu sem ný- lega settust að á Akureyri. Þór- hildur Gunnarsdóttir, sölustjóri hjá Pfaff, afhenti Hólmfríði Gísla- dóttur, flóttamannafulltrúa Rauða krossins, saumavélarnar. Þær verða kærkomin búbót enda var flóttafólkið eignalítið við komuna til Íslands í mars eftir átta ár á flótta. Hólmfríður Gísladóttir frá Rauða krossinum (t.v.) sést hér taka við sauma- vél frá Þórhildi Gunnarsdóttur, sölustjóra hjá Pfaff á Íslandi. Afhentu Rauða krossi Íslands saumavélar Safamýrarskóli, sérskóli, fagnar 20 ára afmæli. Safamýrarskóli, sérskóli fyrir alvarlega fatlaða nem- endur, fagnar 20 ára afmæli í dag, laugardaginn 17. maí, kl. 14–16. Allir velunnarar Safamýrarskóla eru vel- komnir. Húsið opnar kl. 13.45 og munu félagar úr Lúðrasveit Reykja- víkur leika við innganginn en síðan verður dagskrá á skólalóð. Klukkan 14.45 verður boðið upp á veitingar og myndlistarsýningu í íþróttasal. Einnig verða myndir úr starfinu til sýnis og námsgögn í kennslustofum. Kajakhátíð verður haldin í dag, laugardaginn 17. maí, kl. 11–15, í fé- lagsaðstöðu Kajakklúbbsins við yl- ströndina í Nauthólsvík. Klúbburinn verður með kynningu á starfsemi sinni, bátar og búnaður verður til sýnis ásamt myndasýningum og hægt verður að prófa kajakróður. Einnig verður kynning frá sölu- aðilum. Í DAG Vorbasar Áss Heimilismenn á Dvalarheimilinu Ási í Hveragerði verða með vorbasar í Frumskógum 6b, Hveragerði, á morgun, sunnudag, 18. maí, kl. 13–18. Kaffi á könnunni. Á MORGUN Sumarhúsið og garðurinn. Rit og rækt ehf. sem er útgefandi tímarits- ins „Sumarhúsið og garðurinn“ held- ur sýningu í Íþróttahöllinni að Varmá í Mosfellsbæ dagana 22.–25. maí nk. Á sýningunni er það nýjasta sem tengist sumarhúsinu og garðinum. Ennfremur getur að líta ýmislegt sem tengist afþreyingu og ferða- mennsku. Listamenn og skemmti- kraftar koma fram og ýmis afþreying verður alla dagana. Kennt verður m.a. að tálga í tré, hnýta flugur og klippa græðlinga. Fjöldi stuttra er- inda verður fluttur sem fjalla um það sem tengist viðfangsefni sýning- arinnar. Þeir sem vilja sækja fyr- irlestra alla dagana geta keypt sér helgarpassa. Á föstudagskvöldinu verður samkeppni sem Félag blóma- skreyta og Grænn markaður standa fyrir. Þar keppa blómaskreytar um titilinn „Blómaskreytir ársins 2003“. Utan við höllina verða tvö stór sýn- ingartjöld auk þess sem ýmislegt er til sýnis á útisvæðinu. Sýningin er sölu- og kynningarsýning þar sem meira en 100 fyrirtæki og þjónustuaðilar kynna vöru sína og þjónustu. Sýningin verður opin sem hér segir: Fimmtudaginn 22. maí kl. 17–19, föstudaginn 23. maí kl. 15–21, laugardag 12–19 og sunnudag kl. 12– 21. Aðgangseyrir fyrir fullorðna er 800 kr. en frítt er fyrir börn yngri en 12 ára. Námskeið fyrir leiðbeinendur í skólagörðum. Garðyrkjuskólinn á Reykjum í Ölfusi verður með nám- skeið fyrir leiðbeinendur í skólagörð- um í húsakynnum skólans mánudag- inn 26. maí kl. 9–16. Leiðbeinendur verða tveir starfsmenn skólans, þeir Björn Gunnlaugsson tilraunastjóri og Gunnþór Guðfinnsson garðyrkju- fræðingur. Fjallað verður um skipu- lag reita, jarðvinnslu, áburð og kalk, sáningu, grisjun, gróðursetningu o.fl. Farið verður í garðyrkjustöð skólans þar sem matjurtaræktun í gróð- urhúsi verður kynnt og fjallað um ræktun á einstökum tegundum mat- jurta. Skráning og nánari upplýs- ingar um námskeiðið fást á skrifstofu skólans eða á heimasíðu hans, www. reykir.is. Á NÆSTUNNI Vinnueftirlitið rannsakaði Þess misskilnings gætti við frétt um rannsóknir á líðan, heilsufari og vinnuálagi kvenna sem birtist á baksíðu Morgunblaðsins í gær að Rannsóknarstofnun í hjúkr- unarfræði var sögð hafa stað- ið að þeim rannsóknum sem nefndar voru. Hið rétta er að Vinnueft- irlitið stóð að rannsóknunum meðal starfsmanna útibúa banka og sparisjóða, á leik- skólum og í öldrunarþjón- ustu. Rannsóknarstofnun í hjúkrunarfræði stóð aftur á móti að rannsóknunum um hjúkrunarfræðingana og flug- freyjurnar í samvinnu við Vinnueftirlitið. LEIÐRÉTT STJÓRN Höfuðborgarsamtakanna hefur formlega óskað eftir því að Flugmálastjórn birti opinberlega upplýsingar um allan kostnað við endurbyggingu flugvallar í Vatns- mýri, sem unnið var að 1999–2002, að meðtöldum kostnaði við undir- búning, hönnun, umhverfismat og fleira. Kostnaðaráætlun árið 1999 nam 1.650 milljónum króna. Að mati Höf- uðborgarsamtakanna hefði þá þegar átt að vera ljóst að mannvirkið yrði rifið innan fárra ára til að rýmka fyrir miðborgarbyggð. Að mati sam- takanna á sér hér stað eitt mesta fjármálaklúður í sögu lýðveldisins. Samtökin óska sérstaklega eftir upplýsingum um kostnaðarauka vegna flýtingar framkvæmda við norður/suðurbraut árið 2001. Einnig óska samtökin eftir skýringum á því að ákveðið hafi verið að flýta aðgerð- um strax að lokinni almennri at- kvæðagreiðslu um framtíð flugvall- arins hinn 15. mars 2001 en endanleg niðurstaða almennu at- kvæðagreiðslunnar var að flugvöll- urinn ætti að vera farinn úr Vatns- mýrinni árið 2016. Kostnaður við flugvöll verði gerður opinber Á FULLTRÚAÞINGI Sjúkraliða- félags Íslands sem haldið var á dög- unum var samþykkt ályktun þar sem forysta félagsins er hvött til að taka upp viðræður við stjórnvöld og skóla um þrepaskipt nám sjúkraliða sem gæfi fólki kost á að afla sér réttinda í áföngum. Jafnframt verði skoðað að setja af stað nám í fullorðinsfræðslu á sjúkraliðabraut fyrir þá sem hafa unnið við aðhlynningu í tiltekinn tíma. Að sögn Gunnars Gunnarssonar, framkvæmdastjóra Sjúkraliðafélags Íslands, er skortur á sjúkraliðum hér á landi. Hins vegar starfa um 1.000 manns við umönnunarstörf sem skortir réttindi og er tilgangurinn að skapa þessum hópi grundvöll til að sækja nám samhliða vinnu að sögn Gunnars. Fagna skattatillögum BSRB Á fulltrúaþinginu var þess krafist að leyst yrði úr bráðum vanda heil- brigðisþjónustunnar og að sérstakt átak yrði gert til að bæta fjárhag elli- og hjúkrunarheimila. Þá fögnuðu sjúkraliðar frumkvæði BSRB í skattamálum. Með þeim væri meira tillit tekið til afkomu láglaunahópa, barnafjölskyldna og húsbyggjenda. Um 1.000 réttindalausir í umönnunarstörfum Fólk afli sér rétt- inda í þrepum

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.