Morgunblaðið - 17.05.2003, Qupperneq 58

Morgunblaðið - 17.05.2003, Qupperneq 58
58 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ MIG langar að láta í ljós óánægju mína með hversu ámátlegir við þess- ir svokölluðu „helgarpabbar“ erum í styrkja- og skattafrádráttarkerfum okkar, hér á Fróninu fína. Ég á tvö lítil börn úr sambandi, sem flosnaði upp fyrir tæpum tveim- ur árum. Ég tók þá ákvörðun fyrir u.þ.b. hálfu ári síðan að flytja út á land, enda hvergi betra að vera. Drengirnir búa semsagt að jafnaði hjá móður sinni í Reykjavík og ég sæki þá um aðra hverja helgi og við förum þá hingað norður og njótum þess að dvelja hérna í fámenninu og brunum svo suður aftur á sunnudegi. Nóg um það. Héðan þar sem ég bý og til Reykjavíkur eru rúmir 200 kíló- metrar, þannig að ein svona helgi með lítilsháttar snatti í borginni og ferðum til afa og ömmu o.þ.h. endar yfirleitt í u.þ.b. 1000 kílómetrum. Þannig að það er ekkert óeðlilegt að tala um 2000 kílómetra á mánuði. Bíllinn minn eyðir u.þ.b. 9 lítrum á hundraði, sem gerir 17.640 á mánuði, Hvalfjarðargöng á lægsta gjaldi kr. 3.200. Ofan á þetta bætist síðan með- lagið, u.þ.b. 33.000 krónur, aukameð- lag til tveggja ára upp á kr. 30.000 á mánuði, sem ég hef ekki getað staðið skil á undanfarna mánuði. Vegna vegalengdar og þess að móðirin er al- veg „með það á hreinu“ hvenær hún vill láta sækja börnin, missi ég a.m.k. 2 klst úr vinnu, annanhvern föstu- dag. Samtals gera þetta kr. 86.340 á mánuði. Sem margfaldað með 12 reynist vera kr. 1.036.080, „einmillj- ónþrjátíuogsexþúsundogáttatíu“ á ári. Þá er ekki talinn til kostnaður vegna viðhalds, s.s. og dekk, smur- þjónusta o.þ.h. Síðan á auðvitað eftir að greiða afborganir af íbúðinni, bíln- um, símann og alla aðra reikninga. Ég hef spurst fyrir hjá Trygginga- stofnun, viðeigandi Sýslumanni, Sveitarstjóra, Ríkisskattstjóra og Félagsmálastofnun um það hvort einhvers skonar ferðastyrkir, skattafrádrættir eða bara eitthvað sétil að lyfta undir bagga með mönn- um í minni aðstöðu. Allstaðar er svarið hið sama: nei. Fyrir mér lítur þetta einna helst út eins og kerfið álíti sem svo að við kallarnir hlaupum bara frá öllu og fáum sko að borga fyrir okkar glappaskot. Ég leyfi mér að efast um, ef málið sneri öfugt, þ.e.a.s. „helgarmömm- urnar“ þyrftu að standa í þessu öllu saman, að ekki væru einhverskonar frádrættir eða ívilnanir, án þess að ég hafi nokkuð fyrir mér í því. Ég vil að lokum taka það skýrt fram að ég kvarta ekki yfir tímanum sem ég eyði með þessum yndislegu börnum mínum bæði hér og í bílnum á þessum ferðalögum okkar og ég vil ekkert fremur en að eyða með þeim þessum örfáu dögum á ári hérna úti á landi, því eins og ég sagði áðan: Þá er hvergi betra að vera. SIGURVALD ÍVAR HELGASON, Garðavegi 16, Hvammstanga. Pabbar geta líka grátið! Eftir Sigurvald Ívar Helgason: EIN er sú erlend borg, er stendur okkur næst, óhætt að segja. Það er Borgin við Sundið. Sundið er Eyrar- sund og borgin heitir Kaupmanna- höfn. Það nafn hlaut hún af því að kaupmenn settust þarna að í skjóli virkja, sem reist voru gegn sjóvíking- um, er þá fóru ruplandi og rænandi um höfin. Í nokkrar aldir var Kaup- mannahöfn höfuðborg okkar, eða allt þar til Reykjavík óx það fiskur um hrygg seint á nítjándu öld, að hún gæti talist höfuðstaður landsins. Há- skólinn var í Kaupmannahöfn, og stúdentar sem útskrifuðust úr menntaskólanum hér, fengu skírteini sín skráð á dönsku, svo að einhver skildi innihald þeirra, er til háskólans kom. Þá sigldu menn til Hafnar. Skúli fógeti Magnússon (1711–1794) fór margar ferðirnar þangað, enda segir Grímur Thomsen í kvæðinu um Skúla fógeta, er hann komst í krappan dans í einni af ferðum sínum til Hafnar: Hann Skúli fógeti á farinu var, ferðunum Hafnar vanur. Í fjórtánda sinni frægan bar festar um hafið svanur. Ljóðið um Skúla fógeta er stórbrot- ið, eins og flest, sem þetta höfuðskáld nítjándu aldarinnar sendi frá sér. Marga glaða stund mun Skúli hafa lif- að í Höfn, þó að nokkurt andstreymi ætti hann þar við að glíma, ekki síst í skiptum sínum við kaupmenn og stjórnvöld meðan hann var landfóg- eti. Og um hið ljúfa líf í Höfn, sem margir Íslendingar geta minnst, orti hann hina minnisstæðu vísu: Þótt ég Hafnar fái ei fund fremur en gæfan léði, ljúft er hrós fyrir liðna stund; lifði ég í Höfn með gleði. Í seinni tíð hefur hið ágæta borg- arheiti Höfn lotið í lægra haldi fyrir ónefninu Köben, sem er víst stytting á Köbenhavn, eins og Danir nefna nú höfuðborg sína. Ég verð að segja, að þarna mætti betur fara. Hvers vegna að nota dönsku og meira að segja styttingu nafnsins á höfuðborginni? Gengur það betur í Landann en hið forna og þjóðlega nafn Höfn? Að lok- um stökur, er víkja að því sem að framan er sagt: Notum aðeins íslensk nöfn, engu vafin prjáli. Borgin heitir bara Höfn á bærilegu máli. Gladdi marga gamla Höfn; – geymum það í minni. Ýmsir muna ótal nöfn eftir náin kynni. Höfn er nafnið harla þekkt; hæfir hvergi prjálið. Köben er mjög kauðalegt; köstum því á bálið ! AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, Hjarðarhaga 28, 107 Reykjavík. Nokkur orð um gömlu Höfn Frá Auðuni Braga Sveinssyni: BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlunni 1 103 Reykjavík  Sími 569 1100  Símbréf 569 1329  Netfang bref@mbl.is Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.