Morgunblaðið - 17.05.2003, Page 62
ÍÞRÓTTIR
62 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
SEBASTIAN Alexandersson, sem
varið hefur mark Fram í hand-
knattleik undanfarin ár, hefur ver-
ið ráðinn þjálfari Selfyssinga.
Samningur Sebastians er til
þriggja ára og tekur hann við
starfi markvarðarins Gísla Guð-
mundssonar sem er genginn í rað-
ir Gróttu/KR. Jafnframt því að
þjálfa mun Sebastian leika með
lærisveinum sínum á næstu leiktíð.
„Mér líst bara vel á að hella mér
út í þennan slag. Ég hef fengist
við þjálfun undanfarin tíu ár, hef
þjálfað yngri flokka og þá mest 2.
flokk en nú finnst mér vera kom-
inn tími til að taka að mér meist-
araflokk. Ég veit vel að það gekk
ekki sem skyldi hjá Selfossliðinu í
vetur og staða liðsins gefur mér
ekki neina ástæðu til þess að ætla
sér eitthvert risastórt stökk. Ég
ætla að taka þetta í smærri skref-
um en það er klárlega bara ein
leið fyrir Selfoss og hún liggur
upp á við,“ sagði Sebastian við
Morgunblaðið.
Selfyssingum gekk afleitlega í
vetur. Þeim tókst ekki að vinna
einn einasta leik og fengu aðeins
eitt stig út úr 26 leikjum í deilda-
keppninni.
Sebastian segir að allir þeir leik-
menn sem léku með liðinu í vetur
séu samningsbundnir að Gísla und-
anskildum en stefnt er að því að
auka breiddina í liðinu fyrir næsta
tímabil.
Sebastian þjálfar
Selfyssinga
Sebastian
HELGI Sigurðsson skoraði eitt
af mörkum Lyn sem sigraði
Stabæk á útivelli, 3:1, í norsku
úrvalsdeildinni í knattspyrnu í
gær. Helgi skoraði annað mark
Lyn á 82. mínútu gegn sínum
gömlu félögum sínum eftir
sendingu Jóhanns B. Guð-
mundssonar sem skömmu áður
hafði komið inná sem vara-
maður. Tryggvi Guðmundsson
lék allan leikinn fyrir Stabæk
en tókst ekki að finna net-
möskvana þrátt fyrir ágæt
færi.
Árni Gautur Arason sat á
tréverkinu við hliðarlínuna hjá
meisturum Rosenborg sem
sigruðu Sogndal, 3:1. Rosen-
borg er í kunnuglegri stöðu,
með fullt hús eftir sex umferð-
ir og með yfirburðalið í deild-
inni.
Ólafur Stígsson lék allan
leikinn fyrir Molde og Bjarni
Þorsteinsson seinni hálfleikinn
í 3:0 ósigri liðsins á móti
Bryne.
Hannes Þ. Sigurðsson fékk
að spreyta sig tvær síðustu
mínúturnar hjá Viking sem
gerði 1:1 jafntefli við Ålesund.
Indriði Sigurðsson var eini
Íslendingurinn sem kom við
sögu hjá Lilleström sem gerði
1:1 jafntefli við Vålerenga.
Indriði lék allan leikinn, Davíð
Viðarsson var á bekknum en
Gylfi Einarsson er frá vegna
meiðsla.
Helgi skoraði gegn gömlu
félögunum í sigri Lyn
KNATTSPYRNA
Noregur
Ålesund - Viking ....................................... 1:1
Brann - Odd Grenland ............................. 3:0
Bryne - Molde........................................... 3:0
Rosenborg - Sogndal................................ 3:1
Stabæk - Lyn ............................................ 1:3
Tromsö - Bodö/Glimt ............................... 3:3
Vålerenga - Lilleström............................. 1:1
Ásgeir Sigurvinsson og Logi Ólafsson,
landsliðsþjálfarar í knattspyrnu, sáu Teit
Þórðarson stjórna Lyn til sigurs gegn Sta-
bæk og einnig leik Vålerenga og Lille-
ström, en Lofi var starfsmaður Lilleström
sl. keppnistímabil. Í dag halda þeir til
Liege í Belgíu, þar sem þeir sjá leik Lierse
og Íslendingaliðsins Lokeren í kvöld. Ás-
geir hóf atvinnuferil sinn í borginni á sínum
tíma, sem leikmaður Standerd Liege.
Staðan:
Rosenborg 6 6 0 0 16:2 18
Sogndal 6 4 1 1 12:8 13
Odd Grenland 6 4 0 2 10:10 12
Viking 6 3 2 1 11:5 11
Bodö/Glimt 6 3 2 1 11:7 11
Stabæk 6 2 2 2 8:6 8
Lyn 6 2 2 2 9:10 8
Lilleström 6 2 1 3 6:12 7
Bryne 6 2 0 4 9:11 6
Molde 6 1 2 3 6:8 5
Vålerenga 6 1 2 3 8:11 5
Tromsö 6 1 2 3 11:15 5
Brann 6 1 2 3 7:14 5
Ålesund 6 0 2 4 8:13 2
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-úrslitakeppni
Vesturdeild - undanúrslit:
Sacramento – Dallas .........................115:109
Staðan er jöfn 3:3.
LA Lakers – San Antonio...................82:110
San Antonio Spurs vann 4:2.
ÚRSLIT
KNATTSPYRNA
Laugardagur:
Efsta deild kvenna
Landsbankadeildin:
Kópavogur: Breiðablik – Þór/KA/KS.......17
Sunnudagur:
Efsta deild karla
Landsbankadeild:
Grindavík: Grindavík – Valur....................14
Kaplakriki: FH – ÍA...................................14
Vestmannaeyjar: ÍBV – KA ......................14
Fylkisvöllur: Fylkir – Fram.................19.15
1. deild karla:
Ólafsfj.: Leiftur/Dalvík – HK....................16
Ásvellir: Haukar – Njarðvík......................16
Kópavogur: Breiðablik – Þór ....................16
2. deild karla:
Siglufjörður: KS – Léttir...........................16
Húsavík: Völsungur – Tindastóll ..............16
Höfn: Sindri – Selfoss ................................16
Mánudagur:
Efsta deild karla
Landsbankadeild:
Laugardalur: Þróttur – KR..................19.15
1. deild karla:
Varmá: Afturelding – Víkingur R.............20
Keflavík: Keflavík – Stjarnan ...................20
2. deild karla:
ÍR-völlur: ÍR – Fjölnir...............................20
FIMLEIKAR
Fimleikasamband Íslands verður 35 ára í
dag, 17. maí . Af því tilefni verður Afmæl-
issýning í Laugardalshöll á morgun kl. 16.
Skemmtileg sýning þar sem allur aldur
fimleikafólks mun sýna og þar á meðal
fremsta fimleikafólk landsins í áhaldfim-
leikum, hópfimleikum og þolfimi.
Í tilefni af afmælinu heldur nefnd UEG,
Fimleikasambands Evrópu í almennum
fimleikum, und í Reykjavík. Nefndarmenn
verða heiðursgestir á sýningunni.
UM HELGINA
Ég held að við séum miklu beturstemmdir fyrir þennan leik en
leikmenn Arsenal, við höfum allt
að vinna og engu að tapa. Innan
okkar herbúða eru leikmenn eins
og Brett Ormerod og Chris Mars-
den, sem koma úr neðri deildun-
um, og ég efast ekki um að þeir
séu hungraðri en flestir leikmenn
Arsenal, sem sumir hverjir eiga
heimsmeistaratitil að baki. Þetta
er dagurinn þar sem þessir dreng-
ir geta orðið að sigurvegurum og
ég er ekki í neinum vafa um að al-
menningur í landinu mun styðja
strákana frá Southampton,“ sagði
Gordon Strachan og var bjartsýnn
á fráttamannafundi sem haldinn
var í gær í Cardiff.
Keppinautur Strachans, Arsene
Wenger, hefur að mörgu að hyggja
fyrir leik dagsins. Fjöldi leik-
manna er tæpur vegna meiðsla og
þá er útséð um að hinn magnaði
fyrirliði Arsenal, Patrick Viera,
verði með á morgun. Sol Campell
er í leikbanni, Pascal Cygan er
meiddur, Martin Keomn er tæpur
vegna meiðsla og Lauren sömu-
leiðis þannig að það gæti orðið höf-
uðverkur fyrir Wenger að stilla
upp sínu liði.
Eingöngu Manchester United á
glæsilegri bikarsögu en Arsenal.
Með sigri Arsenal á morgun yrði
það þriðji bikarsigur ársins á fimm
árum.
Ashley Cole, vinstri bakvörður
Arsenal, óttast það að ef leikmönn-
um Arsenal mistakist að sigra í
dag muni Arsene Wenger refsa
þeim grimmilega. „Það er engin
spurning í mínum huga að „stjór-
inn“ (Arsene Wenger) á eftir að
gera fjöldann allan af breytingum
á liðinu ef okkur tekst ekki að ná í
bikar á Þúsaldarvellinum. Hins
vegar held ég að með stórsigri
(6:1) okkar á Dýrlingunum nú um
daginn hafi okkur tekist að ná í
ákveðið sálfræðilegt forskot.“
Hvort það forskot nægir Arsen-
al-mönnum er ómögulegt að segja.
Leikurinn er sýndur beint á sjón-
varpsstöðinni Sýn.
Baráttan í Cardiff
GORDON Strachan, fram-
kvæmdastjóri Southampton,
telur sína menn til alls líklega í
baráttunni gegn bikarmeist-
urum Arsenal í úrslitaleik ensku
bikarkeppninnar sem fram fer í
dag kl. 14 í Cardiff.
Ég held að við eigum eftir að fáað sjá sterkustu deild sem
leikin hefur verið hér á landi. Rökin
sem ég færi fyrir
því eru þau að liðin
hafa spilað mjög
mikið á undirbún-
ingstímabilinu.
Flest liðin hafa styrkt sig mikið frá
því í fyrra og það eru að koma inn í
mörg lið mjög sterkir einstaklingar
sem koma til með að setja svip sinn
á deildina. Þar get ég nefnt tví-
burana Arnar og Bjarka hjá okkur í
KR, Sören Hermannsen hjá Þrótti,
Danina tvo hjá FH, Lee Sharp og
Ólaf Gottskálksson hjá Grindavík,
Eyjamenn hafa fengið tvo Breta,
KA-menn danskan markvörð, ÍA
bræðurna Þórð og Stefán Þórðar-
syni og Fylkismenn hafa styrkt sig,
sömuleiðis Framarar og svona get
ég haldið lengi áfram,“ segir Will-
um.
Willum segir að tíðin í vor hafi
gert liðum kleift að fara fyrr á gras
og með því ætti að fara mesti vor-
bragurinn af liðunum og þyngslin
almennt að verða minni á liðunum í
upphafi móts.
Meiri pressa á okkur
frá umhverfinu
Hvaða lið að þínu mati eru líkleg
til að blanda sér í toppbaráttuna?
„Það er ómögulegt að spá fyrir
um það. Mér finnst öll liðin í deild-
inni vera tiltölulega jöfn á góðum
degi og þetta er bara spurningin
um dagsformið. Mér finnst nánast
hvaða lið sem er geta blandað sér í
toppbaráttu en ég hygg þó að Fylk-
ir, Grindavík og ÍA verði örugglega
í toppslagnum.“
Hvað með KR? Verðið þið ekki
með í þeim slag?
„Við gerum okkar besta í því. Ég
finn fyrir meiri pressu á okkur frá
umhverfinu heldur en í fyrra og það
er bara spurning hvernig við tök-
umst á við það. Hvað sóknina varð-
ar hef ég úr breiðari hópi að moða
en í fyrra og fleiri möguleika. Það
getur hins vegar tekið tíma að finna
jafnvægið í liðinu. Það eru margir
einstaklingar í liðinu sem vilja
sækja og það grimmt og það getur
komið niður á þéttleikanum inni á
miðjunni. Í þessu erum við að vinna
þessa dagana.“
Varla neitarðu því að liðið sé ekki
sterkara en í fyrra?
„Ég get alls ekki neitað því en
það er hægt að færa rök fyrir
hvoru tveggja. Vissulega erum við
búnir að fá til okkar sterka ein-
staklinga sem vonandi styrkja lið-
ið.“
Sérðu fyrir þér eitthvert lið sem
kemur á óvart í sumar?
„Ég get alveg séð fyrir mér mið-
að við spár að lið eins og Valur, KA,
Þróttur, FH og jafnvel ÍBV geti
komið á óvart og hnekkt þessum
spám. Öll þessi lið geta að mínu
mati blandað sér í toppbaráttuna og
ég held að deildin í ár sé miklu
meira spurningarmerki en oft áður.
Það eru fleiri betri og jafnari lið og
það er ekkert lið í þessari deild sem
hefur ekki bætt við sig mannskap.
Ég sé ekki annað fyrir mér en að
sumarið verði ofboðslegur bardagi
allt frá upphafi til enda.“
Margir segja þig vera í erfiðri
stöðu að velja byrjunarlið með þann
stóra hóp sem þú hefur yfir að
ráða. Hvað segir þú um það?
„Það má kannski segja að þetta
sé skemmtilegt vandamál sem blas-
ir við mér. Það komast bara 11 að í
einu og það er eitthvað sem menn
þurfa að lifa við verði þeir ekki í
byrjunarliðinu í það og það skipti.
Ég vil frekar að menn verði pirr-
aðir heldur en ekki ef þeir eru ekki
í liðinu. Annað er óeðlilegt en hins
vegar verða menn að sýna þroska.“
KR-ingar hefja titilvörnina á
mánudagskvöldið en þá sækja þeir
nýliða Þróttar heim í Laugardalinn
en Willum þjálfaði lið Þróttar í þrjú
ár, 1997–1999.
„Þetta verður langt frá því að
verða léttur leikur fyrir okkur. Ég
er kannski ekki hlutlaus en mér
finnst alltaf vera þokki yfir Þrótt-
urum og ég veit að það verður gott
andrúmsloft í kringum lið þeirra í
sumar. Sjálfur er ég fullur tilhlökk-
unar fyrir sumarið og veit að þetta
verður skemmtilegt fótboltasumar.“
Hvað segir Willum Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara KR, um orrustuna?
Líklega sterkasta
deild frá upphafi
Willum Þór Þórsson
WILLUM Þór Þórsson, þjálfari Íslandsmeistara KR í knattspyrnu,
býst við mjög skemmtilegu Íslandsmóti í sumar. Hann segist ekki
velkjast í vafa um að deildin í ár verði sú allra sterkasta frá upp-
hafi enda hafi margir sterkir leikmenn gengið í raðir félaganna
auk þess sem liðin hafi sjaldan eða aldrei mætt betur undirbúin
til leiks.
Guðmundur
Hilmarsson
skrifar
Sunnudagur:
Grindavík:
Grindavík - Valur ..................14
Kaplakriki:
FH - ÍA ....................................14
Vestmannaeyjar:
ÍBV - KA .................................14
Fylkisvöllur:
Fylkir - Fram ....................19.15
Mánudagur:
Laugardalur:
Þróttur - KR......................19.15
1. UMFERÐ