Morgunblaðið - 17.05.2003, Qupperneq 72
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 LAUGARDAGUR 17. MAÍ 2003 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Áskriftarsími 881 2060
Í FORMI– leiðandi í lausnum
Skeifunni 17AcoTæknival Sími 550 4000 Fax 550 4001
www.isb.is
Hagstæ›
framkvæmdalán
Húsfélagafljónusta Íslandsbanka
PHARMACO undirritaði í gær sam-
komulag um sambankalán við Ís-
landsbanka, Landsbanka Íslands og
Búnaðarbanka Íslands, að fjárhæð
160 milljónir evra, eða um 13,5 millj-
arða króna.
Róbert Wessman, forstjóri
Pharmaco, segir að um sé að ræða
eitt stærsta lán sem veitt hefur verið
til íslensks fyrirtækis, ef frá eru talin
ríkisfyrirtæki og bankar. Lánveit-
ingin sé einkar þýðingarmikil fyrir
fyrirtækið og geri því kleift að end-
urfjármagna allar langtímaskuldir
sínar.
Umsjón með sambankaláni
Pharmaco hafa Íslandsbanki og
Landsbanki. Lánið er til fimm ára
með framlengingarákvæði og verður
notað til endurfjármögnunar á
stærstum hluta skulda Pharmaco.
Segir í tilkynningu Pharmaco að
lánið muni hafa í för með sér veru-
lega einföldun á skuldasamsetningu
félagsins og leiða af sér töluvert fjár-
hagslegt hagræði til framtíðar. Enn-
fremur muni lántakan opna Pharma-
co aðgang að stærri fjármagns-
markaði en áður, þar sem erlendum
bönkum verði boðin þátttaka í láninu
á næstu vikum. Hefur þýski bankinn
WestLB AG þegar samþykkt að ger-
ast lánveitandi og að vinna með Ís-
landsbanka og Landsbanka að sölu
lánsins, að því er fram kemur í til-
kynningunni.
Pharmaco semur um endurfjármögnun langtímaskulda
Eitt mesta lán íslensks fyrirtækis
MUNDUR ehf., sem á 61,16%
hlutafjár í Baugi Group hf., mun
gera yfirtökutilboð í Baug Group
innan fjögurra vikna og hyggst í
kjölfarið afskrá Baug Group úr
Kauphöll Íslands. Mundur mun
bjóðast til að kaupa hlutabréf ann-
arra hluthafa á genginu 10,85. Hef-
ur aðalfundi Baugs Group, sem
halda átti í næstu viku, verið frest-
að vegna þessa.
Munu selja hluta
starfseminnar á Íslandi
Kristín Jóhannesdóttir, stjórn-
arformaður Mundar og stjórnar-
maður í Baugi Group, segir að-
stæður hafa breyst mikið frá
skráningu félagsins og að tiltölu-
lega lítil viðskipti hafi verið með
bréf félagsins upp á síðkastið.
„Baugur hefur vaxið mikið og til
þess að vinna úr þeim vexti teljum
við að best sé að félagið sé í eigu
fárra og stórra hluthafa.“
Jafet S. Ólafsson, framkvæmda-
stjóri Verðbréfastofunnar, segist
meta stöðuna þannig að eigendur
Baugs séu að flytja áherslur sínar
til útlanda og þeir muni því selja
töluverðan hluta af starfsemi sinni
hér á landi.
Edda Rós Karlsdóttir, yfirmað-
ur greiningardeildar Landsbank-
ans, segir opinbera umfjöllun hér á
landi hafa skaðað félagið erlendis
og eigendur þess vilji reyna að fá
að umbreyta starfsemi þess í friði
fyrir slíkri umfjöllun.
Mundur er í eigu Fjárfestinga-
félagsins Gaums og tengdra aðila,
Kaupþings banka, Eignarhalds-
félagsins Vors, Eignarhaldsfélags-
ins ISP og Ingibjargar Pálmadótt-
ur. Þessir aðilar hafa gert
samkomulag um að leggja eignar-
hluti sína í Baugi inn í Mund, í
skiptum fyrir hluti í Mundi.
Umsvifin verða utan Íslands
„Ég met yfirlýsingar forráða-
manna Baugs þannig,“ segir Jafet
Ólafsson, „að þeir séu einfaldlega
að flytja áherslur sínar utan og að
þeir muni stefna að því að selja
töluvert af starfsemi sinni hér á Ís-
landi. Áherslur og starfsemi fé-
lagsins í Bretlandi og á Norður-
löndunum mun væntanlega aukast
en það má auðvitað alltaf deila um
hvort tímasetningin sé rétt eða
röng.“
Edda Rós Karlsdóttir segir
Baug hafa verið að breytast æ
meira í fjárfestingarfélag en það
hafi gert sambúðina við smásölu-
hlutann erfiðari og öll sú opinbera
umræða sem því hafi tengst hafi
verið Baugi erfið. „Ef menn ætla
að ráðast í að umbreyta félaginu
kann að vera auðveldara að gera
það í friði. Baugur er með mark-
aðsráðandi stöðu í vissum skilningi
og hefur fengið mjög neikvæða
umfjöllun sem hefur t.d. skaðað þá
í Bretlandi. Um það er vart hægt
að deila. En það er missir að félag-
inu úr Kauphöllinni enda er það
eitt af stærstu og veltumestu félög-
unum.“
Í fréttatilkynningu frá Mundi
segir að ofangreint samkomulag,
um að setja hluti í Baugi inn í
Mund, sé gert í kjölfar þess að
Gaumur hafi tryggt sér kaup á
11,7% hlut Reitan Handel AS í
Baugi, á genginu 9,4, fyrir tæplega
2,7 milljarða króna.
Félag í eigu Kaupþings, Gaums og fleiri eignast meirihluta í Baugi Group
Stefnt að afskráningu
Baugs úr Kauphöllinni
EIN fremsta óperusöngkona heims, Kiri te
Kanawa, mun syngja á tónleikum í Há-
skólabíói 15. nóvember. Kanawa, sem er
ættuð frá Nýja-Sjálandi, þykir hafa eina
fegurstu söngrödd sinnar samtíðar.
Einar Bárðarson skipuleggur tónleikana.
Miðasala hefst undir lok maímánaðar og
segir Einar að þegar hafi borist miðapant-
anir utan úr heimi á tónleikana. Kanawa
hefur sungið með öllum helstu söngvurum
heims og undir stjórn hæfustu hljómsveit-
arstjórnenda. Hún er góður vinur Robins
Stapleton og hefur oft sungið undir hans
stjórn en Stapleton hefur sem kunnugt er
verið tengdur Íslensku óperunni um árabil.
Reuters
Kiri te Kanawa og hljómsveitarstjórnand-
inn Robin Stapleton á tónleikum í Líbanon.
Kiri te Kanawa
á Íslandi
Dame Kiri/Lesbók 16
ÁÆTLAÐ er að kostnaður Reykjavíkur
verði um 325 milljónir króna við byggingu
landnámsskálans, sem ætlunin er að byggja
utan um landnámsrústina sem nýlega
fannst í Aðalstræti. Samanlagður kostnaður
borgarinnar og eignarhaldsfélagsins Inn-
réttinganna, sem mun byggja hótel yfir
rústina, er því áætlaður á bilinu 925–1.125
milljónir króna.
Í þriggja ára áætlun borgarinnar kemur
fram að kostnaður borgarinnar muni dreif-
ast á fjögur ár á tímabilinu 2003–2006 en
áætlað er að skálinn og hótelið verði tilbúin
til notkunar hinn 1. apríl árið 2005. Fjár-
veitingar í ár vegna skálans nema 140 millj-
ónum, 98 milljónum verður varið til verk-
efnisins á næsta ári, 27 milljónum árið 2005
og 60 milljónum árið 2006.
Undirbúningur vegna bygginganna hefst
í júlí í sumar en hafist verður handa við
byggingu skálans í ágúst.
Landnámsskáli í Aðalstræti
Kostnaður
áætlaður 325
milljónir
Hönnun/26
LEIKFÉLAG Reykjavíkur
mun í haust setja upp hið sí-
vinsæla barnaleikrit Línu
Langsokk. Leikverkið er sem
kunnugt er byggt á sögum
Astrid Lindgren um þennan
rauðhærða og freknótta ær-
ingja og mörg börn sem full-
orðnir þekkja af ýmsum
skrýtnum og skemmtilegum
uppátækjum.
Æfingar hófust nú í vik-
unni en leikstjórinn er María
Reyndal. Hún brá á það ráð í
góða veðrinu í gær að fara
með leikhópinn út á svalir
Borgarleikhússins og halda
æfingum áfram þar. Það
lagðist vel í leikhópinn enda
nóg pláss fyrir Línu að fetta
sig og bretta.
Með hlutverk Línu fer Ilm-
ur Stefánsdóttir en hún út-
skrifaðist úr Leiklistarskóla
Íslands nú í vor. Ilmur segir
að hlutverkið leggist vel í
sig. „Þessi fyrsta vika er bú-
in að vera virkilega
skemmtileg. Ég held að þetta
verði alveg frábært æf-
ingaferli og frábær sýning,“
segir Ilmur.
Á myndinni má sjá hvar
þau Ilmur Kristjánsdóttir,
Gunnar Hansson, Halldór
Gylfason og María Reyndal
leikstjóri nutu sín vel í góða
veðrinu. Er eins víst að þessi
æfingamáti verði notaður
áfram meðan vel viðrar.
Lína Langsokkur æfð á svölunum
Morgunblaðið/Arnaldur
♦ ♦ ♦