Morgunblaðið - 06.09.2003, Síða 10
FRÉTTIR
10 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Í GÆR undirrituðu fulltrúar
Fjarðaáls og Bechtel Group Inc.
samning um byggingu álvers á
Reyðarfirði. Bechtel mun reisa 322
þúsund tonna álver og skila verkinu
árið 2007. Íslenskur samstarfsaðili
Bechtel við framkvæmdina er verk-
fræðisamsteypan HRV, en það eru
Hönnun, Rafhönnun og Verkfræði-
stofa Sigurðar Thoroddsen, en þess-
ir aðilar undirbúa nú stofnun sér-
staks fyrirtækis um verkefnið.
Kostnaður við álverið er áætlaður
um 80 milljarðar ísl. króna.
Undirritun samningsins fór fram
á Reyðarfirði að viðstöddum fulltrú-
um íslenskra stjórnvalda, fyrirtækja
og hagsmunasamtaka. Fram-
kvæmdastjóri frummálmvinnslu Al-
coa, Bernt Reitan, undirritaði samn-
inginn fyrir hönd Fjarðaáls, en
framkvæmdastjóri málmvinnslu hjá
Bechtel, Andrew Greig, fyrir hönd
Bechtel. Meðal viðstaddra voru Val-
gerður Sverrisdóttir, iðnaðarráð-
herra, Kristinn H. Gunnarsson, for-
maður iðnaðarnefndar Alþingis,
Smári Geirsson, forseti bæjarstjórn-
ar í Fjarðabyggð og Guðmundur
Bjarnason, bæjarstjóri Fjarða-
byggðar.
Undirbúningur
hefst á næstu vikum
Samningur um byggingu álvers á
Reyðarfirði var undirritaður í byrj-
un mars 2003 af fulltrúum Alcoa og
íslenskra stjórnvalda. Fjarðaál er
dótturfyrirtæki Alcoa og verður
hinn formlegi rekstraraðili álvers-
ins.
Fljótlega verður auglýst eftir for-
stjóra og starfsmannastjóra hjá
Fjarðaáli, vinna við hönnun álvers-
ins hefst á næstu mánuðum og jarð-
vegsframkvæmdir í lok næsta árs.
Byggingarvinna byrjar árið 2005 og
á verksmiðjan að vera tilbúin að vori
2007.
Fram á næsta vor verður unnið að
hönnun verksmiðjunnar, lóð verður
rannsökuð, unnar kostnaðaráætlanir
og tæknimál álversins endanlega yf-
irfarin. Í júní fer eiginleg hönnun
mannvirkisins fram ásamt undir-
búningi að útboðum.
Gert er ráð fyrir að í byggingu ál-
versins fari hundrað þúsund rúm-
metrar af steypu, 25 þúsund tonn af
stáli og að færa þurfi milli 3 og 4
milljónir rúmmetra af jarðvegi í
tengslum við framkvæmdirnar.
Jarðvegur úr grunni álversins verð-
ur notaður til uppfyllingar í
tengslum við hafnarframkvæmdir á
svæðinu.
Alls er reiknað með að unnin verði
í kringum 2.300 ársverk við smíði ál-
versins og að um 1.500 starfsmenn
muni vinna við framkvæmdirnar
þegar mest verður árið 2006.
Vinna að 900 verkefnum
í 60 löndum
Bechtel er mjög stórt einkafyrir-
tæki á alþjóðlega vísu. Meðal verk-
efna sem það hefur tekið að sér má
nefna Hoover-stífluna í Bandaríkj-
unum, Ermarsundsgöngin milli
Englands og Frakklands og flugvöll-
inn í Hong Kong. Í 105 ára sögu fyr-
irtækisins hefur það fengist við um
22 þúsund verkefni í 140 löndum.
Starfsmenn Bechtel eru nú 47 þús-
und talsins og vinna í dag að 900
verkefnum í yfir 60 löndum. Fyrir-
tækið hefur byggt meirihluta þeirra
álvera sem reist hafa verið á Vest-
urlöndum síðustu þrjá áratugina.
Andrew Greig hjá Bechtel sagði
við undirritunina, að mikil áhersla
yrði lögð á öryggi starfsmanna við
framkvæmdirnar og þess yrði vand-
lega gætt að lágmarka áhrif bygg-
ingar álversins á umhverfi og lífríki.
„Við leggjum áherslu á samráð og
samstarf við heimamenn. Það er af-
ar mikilvægt fyrir okkur og Alcoa að
falla vel að samfélaginu og skila já-
kvæðum áhrifum inn í það samfélag
þar sem verkefni okkar verður unn-
ið,“ sagði Andrew Greig.
Samningur um byggingu álvers á Reyðarfirði undirritaður í gær
Undirbúning-
ur að hefjast
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
Samningamenn voru ánægðir eftir undirritunina á Reyðarfirði í gær.
ÁTTA borgarfulltrúar R-listans
felldu tillögu Ólafs F. Magnússonar,
borgarfulltrúa F-listans, þess efnis
að borgarstjórn lýsti yfir andstöðu
við nýlega gjaldskrárhækkun Orku-
veitu Reykjavíkur á heitu vatni, á
fundi borgarstjórnar á fimmtudag.
Í umræðum um málið sagði Alfreð
Þorsteinsson, borgarfulltrúi og
stjórnarformaður OR, að borgar-
fulltrúinn Guðlaugur Þór Þórðarson
hefði árangurslaust í nokkrar vikur
reynt að skapa öldu óánægju meðal
Reykvíkinga vegna þessarar hækk-
unar. „Borgarbúar hafa ekki mynd-
að hér kór með Guðlaugi Þór,“ sagði
Alfreð. Mest hefði borið á stuðnings-
mönnum Sjálfstæðisflokksins fyrir
utan nokkra „kverúlanta“ sem hefðu
látið skoðun sína í ljós. Þetta væri
því fyrst og fremst pólitískt mál að
hans mati þar sem hækkunin kæmi
ekki þungt niður á buddu fjölskyldu-
fólks í Reykjavík. Hún næmi um
einu strætisvagnagjaldi á mánuði –
aðra leiðina.
Kjartan Magnússon, borgar-
fulltrúi Sjálfstæðisflokksins, sagðist
ekki almennilega vita hvað orðið
„kverúlant“ þýddi en hélt það frekar
neikvætt. „Hvað þýðir orðið kverúl-
ant, borgarfulltrúi Alfreð Þorsteins-
son?“ spurði Kjartan og taldi brýnt
að fá svör þar sem fólk úti í bæ hafði
fengið þessa nafngift úr ræðustól
borgarstjórnar.
Alfreð var ekki í vandræðum með
að útskýra fyrir borgarfulltrúunum
hvað orðið þýddi: „Borgarfulltrúinn
Kjartan Magnússon vill gjarnan vita
hvað orðið kverúlant þýðir. Það þýð-
ir nöldrari,“ sagði hann og settist
jafnóðum í sæti sitt.
Guðlaugur Þór taldi borgarbúum
sýndur hroki með þessari framkomu
Alfreðs og benda til þess að þreyta
væri komin í starf R-listans. Um alla
borg væri óánægja meðal íbúa
vegna þessarar hækkunar og Alfreð
segði þá annaðhvort sjálfstæðis-
menn eða kverúlanta. Ólafur F.
Magnússon, F-lista, sagði marga ör-
yrkja og aldraða einstaklinga taka
þessari hækkun illa. Það munaði um
hverja krónu hjá þeim sem lítið
hefðu.
Guðlaugur sagði marga hafa
gagnrýnt þessa hækkun án þess að
hann vissi að þeir væru virkir í starfi
Sjálfstæðisflokksins. Þeir hljóti þá
að vera kverúlantar samkvæmt skil-
greiningu Alfreðs. Nefndi hann full-
trúa Neytendasamtakanna sem
dæmi, Guðmund Andra Thorsson
rithöfund, Egil Ólafsson blaðamann,
og Sigurð Grétar Guðmundsson
pípulagningameistara. „Ég þekki
þetta fólk ekki úr starfi Sjálfstæð-
isflokksins og því hlýtur það að
flokkast sem kverúlantar sam-
kvæmt skilgreiningu R-listans og
Alfreðs,“ sagði Guðlaugur.
Gjaldskrárhækkun OR rædd í borgarstjórn
Kallaði þá sem gagnrýndu
hækkunina kverúlanta
JAPANSKUR tesiðameistari, Sokei
Kimura, er staddur hér á landi í
tengslum við upphaf kennslu í jap-
önsku við Háskóla Íslands. Það er
sendiráð Japans á Íslandi sem
stendur fyrir komu hans til lands-
ins.
Kennsla í japönsku hófst nú í
haust og eru 50 nemendur skráðir.
Samkvæmt upplýsingum frá jap-
anska sendiráðinu er áhugi ís-
lenskra ungmenna á Japan sífellt
að aukast.
Tesiðameistarinn sýndi gestum
við hátíðardagskrá á fimmtudag, í
tilefni þess að austurlenskt mál er
nú kennt í fyrsta skipti í Háskól-
50 nemendur skráðir í japönsku í HÍ
Morgunblaðið/Jim Smart
Meistarinn Sokei Kimura sýnir tesiðaathöfn í Háskóla Íslands.
Japönsk tesiðaathöfn
við kynningu námsins
anum, tesiðaathöfn en í kringum
hana eru aldalangar hefðir.
Rektor háskólans, Páll Skúlason,
setti hátíðina og sendiherra Japans
á Íslandi, Masao Kawai, flutti erindi
um japönsk stjórnmál og stjórn-
arfar. Þá ræddi Vigdís Finn-
bogadóttir, fyrrverandi forseti Ís-
lands, um nauðsyn tungumála-
þekkingar.
Þeir sem hafa áhuga á að sjá
hvernig tesiðaathöfnin fer fram
geta heimsótt japanska sendiráðið í
dag, laugardag, að Laugavegi 182
(glerhúsið). Meistarinn mun sýna
tesiðaathöfn kl. 13, aðra kl. 14 og
þá síðustu kl. 15.
NORSK stjórnvöld hafa ákveðið
að lyfta fjölveiðiskipinu Guðrúnu
Gísladóttur af hafsbotni nú í haust
ef Íshús Njarðvíkur og norska
björgunarfélaginu Seløy Under-
vannsservice hætta við verkið.
Þetta er haft eftir sjávarútvegs-
ráðherra Noregs, Svein Ludvig-
sen, á heimasíðu norska ríkisút-
varpsins en áður hafði ráðherrann
aðeins viljað tryggja að olía úr
skipinu yrði fjarlægð en sú yfirlýs-
ing sætti verulegri gagnrýni í Nor-
egi.
Ljóst er af ummælum ráð-
herrans að hann hyggst þó ekki
grípa í taumana alveg strax: „Ég
vil að við fjarlægjum bæði skipið,
farm þess og olíuna úr því í haust
og að við undirbúum okkur undir
það að grípa í taumana og taka
verkið yfir gangi það ekki eðlilega
fram,“ segir sjávarútvegsráðherr-
ann norski.
Sprengja sem setti
strik í reikninginn
Guðjón Jónsson, talsmaður
björgunarmannanna í Noregi, seg-
ir að á miðvikudaginn hafi verið
búið að komast að endanlegu sam-
komulagi í öllum meginatriðum við
Seløy, sama dag og sjávarútvegs-
ráðherrann hafi kastað sprengju
með yfirlýsingum um að Strand-
gæslan ætti að fjarlægja olíuna úr
Guðrúnu og allt hafi þá farið í loft
upp. „Við stefnum að því að vera
komnir fram með það sem okkur
ber á miðvikudaginn kemur, bæði
gagnvart Seløy og strandgæslunni.
Þá eigum við að hafa fjórar til sex
vikur til þess að klára verkið. Ég á
von að við greinum fjölmiðlum frá
þessu í næstu viku. Miðað við
hvernig staðan er á skipinu núna
og undirbúninginn og öðru ætti
þetta leikandi að hafast. Það eru
ákveðnar leikreglur í gangi og það
þurfa allir að virða þær, alveg
sama hver á í hlut,“ segir Guðjón.
Í fréttatilkynningu norska sjáv-
arútvegsráðuneytisins er tekið
fram að útgerðin (Íshúsið) beri
engu síður fulla á byrgð á skipinu.
„Ég legg áherslu á að það er út-
gerðin sem ber ábyrgð á að fjar-
lægja flakið. Við munum gera hana
ábyrga fyrir því og þá einnig fyrir
dómstólum ef þörf krefur,“ segir
Ludvigsen.
Norsk
stjórnvöld
ábyrgjast
að Guðrúnu
verði lyft
STARFSMANNARÁÐ Landspít-
ala – háskólasjúkrahúss hefur sent
frá sér ályktun þar sem fram kem-
ur að ráðið lýsir yfir þungum
áhyggjum vegna fjárveitinga til
sjúkrahússins.
Svið sem sinna mikilli bráða-
þjónustu við sjúklinga, s.s lyflækn-
ingasvið-, skurðlækningasvið og
slysa- og bráðasvið, eru komin
verulega fram úr fjárheimildum.
Skýrist þessi aukni kostnaður m.a.
af fjölgun sjúklinga og því að sjúk-
lingar sem leggjast inn á spítalann
eru að jafnaði veikari en áður.
Þetta hefur leitt til aukins álags á
starfsfólk sjúkrahússins.
Ljóst er að verði fjárframlög til
LSH ekki aukin verður ekki unnt
að viðhalda nauðsynlegri heil-
brigðisþjónustu við alla lands-
menn.
Starfsmannaráð skorar á Al-
þingi að standa vörð um starfsemi
LSH og bendir á að mestu verð-
mæti LSH felast í þekkingu og
reynslu starfsfólks sjúkrahússins.
Samkvæmt rekstraruppgjöri
LSH fyrir fyrstu sjö mánuði ársins
fara útgjöld spítalans 666 milljónir
fram úr fjárheimildum sem er
4,3% frávik frá heimildum tíma-
bilsins. Meðtalin eru útgjöld við
S-merkt lyf sem eru 9,8% umfram
fjárheimildir. Launagjöld nema
rúmum 65% af heildargjöldum
sjúkrahússins og eru þau 3,5%
hærri en áætlað var fyrir tímabilið.
Skorað á Alþingi að
standa vörð um starf-
semi Landspítalans