Morgunblaðið - 06.09.2003, Blaðsíða 37
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 37
HULDA Vilhjálms-
dóttir er listamaður
Gallerís Kambs að
þessu sinni og verð-
ur sýning hennar
opnuð kl. 15 í dag.
Hulda er fædd
árið 1971 og telst
því fulltrúi yngri
kynslóðar málara á
Íslandi. Hún út-
skrifaðist frá
Listaháskóla Ís-
lands árið 2000. Síð-
an hefur hún haldið
sjö einkasýningar.
Um aðdraganda
að þessari sýningu
segir Hulda m.a.:
„Það birtist mér mynd af konu í stutt-
um kjól, með bera fætur og bera
handleggi. Hún dansar og er yfirfull
af tilfinningum, grætur en er samt full
af lífsorku. Hún er þakklát kona,
þakklát fyrir að vera elskuð. Síðan
birtist önnur mynd, fjallið Hekla (sem
karlmannlegt náttúruafl á þessari
sýningu) sem elskar okkur öll. Fjallið
sem er uppspretta orku. Þriðja mynd-
in sem birtist er hin hreina og fals-
lausa ást barnsins sem lifir við frelsi
skilngarvitanna. Ég vil að gleði og
umburðarlyndi komi fram í verkum
mínum, pensildrættirnir frjálsir,
þannig sé málverkið frjálst.“
„Fæturnir titra“ er titill á sýning-
unni. „Það gerist þegar við erum ást-
fangin, skilningarvitin verða stjórn-
laus, við verðum næm fyrir
náttúrunni, og það verður þannig að
fjallið Hekla titrar og gýs, kannski af
ást og ótta,“ segir Hulda. „Fleira
spennandi og dularfullt fæddist í
vinnslunni fyrir þessa sýningu, sem
kemur í ljós á sýningunni í Kambi.“
Við opnunina leikur Geir Harðar-
son hausttóna og Elísabet Jökulsdótt-
ir flytur frumort ljóð, „Vængjahurð-
in“.
Opið alla daga, nema miðvikudaga,
kl. 13–18 til 5. október.
Kona í stuttum kjól
með bera fætur
Verk eftir Huldu Vilhjálmsdóttur.
Listasafn Reykjavíkur
– Hafnarhús
Sýningunni Innsýn í alþjóðlega
samtímalist á Íslandi lýkur á sunnu-
dag. Sýningunni er ætlað að veita
innsýn í erlenda samtímalist í eigu
Íslendinga. Fjöldi erlendra lista-
manna hefur bundist landinu sterk-
um böndum og haft víðtæk áhrif á ís-
lenskt listalíf og þau dýrmætu og
persónulegu tengsl gera okkur kleift
að njóta margs af því besta sem er að
gerast á vettvangi alþjóðlegrar
myndlistar.
Alla sunnudaga kl. 15 er leiðsögn
um sýningar í Hafnarhúsinu. Hafn-
arhúsið er opið daglega frá kl. 10–17.
Hafnarborg
Tveimur sýningum lýkur í Hafn-
arborg á mánudag. Sýningu Önnu
Jóelsdóttur, Flökt, og málverkasýn-
ingu Guðbjargar Lindar.
Hafnarborg er opin alla daga,
nema þriðjudaga, kl. 11–17.
Gerðarsafn
Sýningu á málverkum Jóhannesar
Kjarvals úr einkasafni Þorvaldar
Guðmundssonar og Ingibjargar
Guðmundsdóttur í Gerðarsafni, lýk-
ur á sunnudag.
Safnið er opið alla daga nema
mánudaga kl. 11–17. www.gerdar-
safn.is.
Gallerí Smíðar og skart,
Skólavörðustíg 16
Sýningu Dóru Rögnvaldsdóttur
lýkur á sunnudag. Dóra sýnir litlar
höggmyndir úr bronsi og steini.
Sýning framlengd
Myndlistarsýning Daða Guð-
björnssonar í Listsýningarsal Salt-
fiskseturs Íslands í Grindavík hefur
verið framlengd til 15. september.
Sýningum lýkur
INGIBJÖRG Guðjónsdóttir sópran,
Einar Jóhannesson klarínettuleik-
ari og Valgerður Andrésdóttir pí-
anóleikari halda tónleika í Nýhöfn
á Hornafirði kl. 16 á morgun,
sunnudag. Flutt verða m.a. verk
eftir Atla Heimi Sveinsson, Jón Ás-
geirsson, Mozart, Puccini, McCabe
og Gershwin.
Tríóið hélt sína fyrstu tónleika í
Sigurjónssafni á haustmánuðum
2001 og verður með tónleika í Saln-
um í Kópavogi í febrúar á næsta
ári.
Tónleikar þessir eru á vegum
Menningarmiðstöðvar Horna-
fjarðar í samstarfi við Félag ís-
lenskra tónlistarmanna.
Lög Gershwins og
Atla Heimis í Nýhöfn
Valgerður Andrésdóttir, Ingibjörg Guðjónsdóttir og Einar Jóhannesson.
Á haustsýningu
Kirkjulistafélags
Hallgrímskirkju
verður opnuð sýn-
ing á myndröðinni
Sálir eftir Gunnar
Örn í anddyri
kirkjunnar kl. 12 á
morgun. „Myndir
Gunnars Arnar
hafa frá fyrstu ver-
ið afar persónu-
legar. Stíll hans og
efnistök hafa þó
breyst mjög í rás
tímans. Samnefn-
arinn eða hinn
hreini litur mynd-
verka hans er and-
leg glíma,“ segir í
fréttatilkynningu
frá kirkjunni.
Gunnars hefur
haldið yfir fjörutíu
einkasýningar,
bæði á Íslandi og
erlendis. Hann var fulltrúi Ís-
lands á Tvíæringnum í Feneyjum
1988. Auk einkasýninga hefur
hann tekið þátt í mörgum sam-
sýningum á Íslandi, Norðurlönd-
unum, í London, París, New
York, Chicago, Tokyo og á
Tvíæringnum í Sao Paulo.
Öll helstu söfn Íslendinga eiga
myndir eftir Gunnar Örn.
Einnig eru myndir hans í
Guggenheimsafninu í New York,
í Seibu Museum í Tokyo, Mod-
erna Museet og Nationalmuseum
í Stokkhólmi.
Kirkjan er opin alla daga frá
kl. 9-17 og verður myndröðin til
sýnis fram til nóvemberloka.
Haustsálir
í Hallgrímskirkju
Úr myndröð Gunnars Arnar, Ljós þrjú.
VALGERÐUR Guðlaugs-
dóttir opnar sýninguna
Skemmtun í Galleríi Hlemmi,
Þverholti 5, kl. 17 í dag.
Skemmtun inniheldur inn-
setningu.
Valgerður segir m.a. um
verkið: „Að láta sig berast
áfram með mannfjöldanum,
heyra óminn af tónum í loft-
inu sem líða hring eftir
hring. Finna hvernig kitlar í
magann þegar aðdráttarafl
jarðar missir tökin á lík-
amanum, láta hávært öskur
brjótast út og blandast frum-
stæðum kór annarra eða
gefa sig á vald taugatitringi
og spennu sem liggur í loft-
inu. Stráfella bleikar harð-
spjaldaendur sem rísa á ör-
skotstundu aftur upp frá
dauðum.“
Sýningin er sjötta einka-
sýning Valgerðar. Hún hlaut
starfslaun til tveggja ára
fyrr á þessu ári.
Opið fimmtudaga til
sunnudaga kl. 14–18, til 28.
september.
Skemmt-
un í
Galleríi
Hlemmi