Morgunblaðið - 06.09.2003, Blaðsíða 49
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 49
KYRRÐARDAGAR Í SKÁLHOLTI
SEPTEMBER 2003 - MAI 2004
Á kyrrðardögum förum við í hvarf, tökum okkur hlé
frá daglegri önn og amstri og njótum
friðar og hvíldar – njótum þess að
vera án áreitis. Kristur gefur for-
dæmið er hann sagði við lærisveina sína: „Komið þér nú á
óbyggðan stað svo að vér séum einir saman og hvílist um stund“ (Mark-
ús 6.31). Þögnin og kyrrðin veita tækifæri til íhugunar, að mæta sjálfum
sér og Guði, að sjá líf sitt í nýrri vídd og láta uppbyggjast og endurnærast
á sál og líkama.
2003
September
12.–14. Göngudagar í kyrrð í samvinnu við Landvernd.
Leiðsögn: Sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir og
dr. Einar Sigurbjörnsson.
17.–21. Systradagar.
Leiðsögn: Systrasamfélagið.
Október
10.–12. Kyrrðardagar um haust.
Leiðsögn: Sr. Kristján Valur Ingólfsson.
17.–19. Kyrrðardagar tengdir myndlist.
Leiðsögn: Benedikt Gunnarsson, Jóhanna Þórðardóttir,
Jón Reykdal.
Nóvember
7.–9. Kyrrðardagar tengdir tónlist.
Leiðsögn: Þorvaldur Halldórsson.
14.–16. Kyrrðardagar tengdir Alfahópum.
Leiðsögn: Ragnar Snær Karlsson og sr. Ragnar Gunnarsson.
27.–30. Kyrrðardagar á aðventu.
Leiðsögn: Karl biskup Sigurbjörnsson.
Desember
12.- 14 Kyrrðardagar í nánd jóla.
Leiðsögn: sr. Guðrún Edda Gunnarsdóttir og
dr. Einar Sigurbjörnsson.
2004
Janúar
24.–26. Kyrrðardagar að vetri.
Leiðsögn: Sigurður vígslubiskup Sigurðarson í Skálholti.
Febrúar Engir kyrrðardagar í febrúar.
Mars
3.–7. Systradagar.
Leiðsögn: Systrasamfélagið.
12.–14. Kyrrðardagar tengdir tónlist.
Leiðsögn : Þorvaldur Halldórsson.
26.–28. Kyrrðardagar tengdir tólf spora starfinu.
Leiðsögn: Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson.
Apríl
7.–10. Kyrrðardagar í dymbilviku.
Leiðsögn: Sigurbjörn biskup Einarsson.
22.–25. Kyrrðardagar við sumarkomu.
Leiðsögn: Sr. Halldór Reynisson og
dr. Sigurður Árni Þórðarson.
Maí
30.4.–2.5. Kyrrðardagar með bænafræðslu.
Leiðsögn: Sigurbjörn biskup Einarsson.
13.–16. Kyrrðardagar hjóna.
Leiðsögn: Dr. Sigríður Halldórsdóttir,
sr. Gunnlaugur Garðarson,
Margrét Scheving, Þorvaldur Halldórsson.
Upplýsingar og skráning í Skálholtsskóla.
Sími 486 8870, netfang: skoli@skalholt.is
Svövusjóður styrkir þau er þess þurfa til þátttöku í kyrrðardögum.
VERIÐ HJARTANLEGA VELKOMIN Á KYRRÐARDAGA Í SKÁLHOLTI
Haustlitirnir 2003
Útsölustaðir:
Clara Kringlunni, Hygea Kringlunni, Hygea Laugavegi,
Hygea Smáralind, Sigurboginn Laugavegi, Bjarg Akranesi,
Jara Akureyri, Silfurtorg Ísafirði, Myrra Selfossi.
Falleg fjögurra herb. íbúð á efstu hæð til
vinstri. Sérinngangur af svölum. Sólrún
tekur á móti gestum í dag, laugardag og á
morgun, sunnudag, milli kl. 14 og 16.
VERIÐ VELKOMIN.
ÁLFABORGIR 7 GRAFARVOGI OPIÐ HÚS
Til sölu 3-4 herb. á Rekagranda
Opið hús sunnudag
Til sölu mjög góð 95 fermetra íbúð á Rekagranda 2, Reykjavík, ásamt stæði
í bílskýli. Íbúðin er með stofu og holi, auk tveggja svefnherbergja með
góðum skápum. Eikarparket á öllum gólfum og baðherbergi flísalagt í hólf
og gólf, með tengingu f. þvottavél. Tvennar suðursvalir. Stutt í alla þjón-
ustu, leikskóli og grunnskóli í nágrenninu.
Alda og Friðrik sýna íbúðina á milli kl. 14 og 16 á sunnudag.
Nánari uppl. veitir Viggó Jörgensson, lögg. fasteignasali, í síma 895 5600.
ALLIR kennarar grunnskóla Húna-
þings eru annað árið í röð að leita
leiða til að þróa og bæta starfshætti
skólanna nemendum til hagsbóta.
Verkefnið í ár heitir: Læsi til fram-
tíðar sem hefur það að markmiði að
auka lestrarfærni nemenda, einkum
lesskilning. Til grundvallar eru lagðar
hugmyndir um sjálfsvitund nemenda
í námi. Stefnt er að því að nemandinn
þekki sjálfan sig sem námsmann og
geti áttað sig á þeim kröfum sem nám
af ýmsu tagi gerir til hans. Nemendur
læra að beita misjöfnum aðferðum við
lestur og nám, allt eftir því sem best
hentar hverjum og einum. Kenna
þarf nemendum aðferðir sem eru í
senn einfaldar en áhrifaríkar. Í vetur
verða nemendum kenndar tvær slík-
ar aðferðir, þ.e. gagnvirkur lestur og
gerð hugtakakorta. Báðar aðferðirn-
ar auka gagnvirkni milli námsefnis og
nemenda, og kenna nemendum að
nálgast námsefni á skipulegan hátt og
vinna markvisst úr upplýsingum.
Skipulag og framkvæmd þróunar-
starfsins er í höndum Rósu Eggerts-
dóttur sérfræðings á Skólaþróunar-
sviði kennaradeildar Háskólans á
Akureyri.
Kennarar Húnaþings ásamt leiðbeinanda á fyrsta fræðslufundi starfsársins sem haldinn var á Skagaströnd.
Kennarar í Húnaþingi þróa
og bæta starfshætti skóla
SJÓVÁ-Almennar tryggingar hf.
og Íþróttasamband fatlaðra hafa
gert með sér samstarfssamning
sem felur í sér stuðning Sjóvár við
sambandið. Að mati Sjóvár-Al-
mennra hefur Íþróttasamband fatl-
aðra unnið mikilvægt starfi í því að
byggja upp íþróttir fyrir fatlaða
hér á landi. Það sé í samræmi við
stefnu Sjóvár-Almennra að styrkja
þau málefni sem til heilla horfi í
samfélaginu.
Á myndinni eru Sigfríð Eik Arn-
ardóttir markaðsstjóri Sjóvár-
Almennra, Einar Sveinsson for-
stjóri Sjóvár-Almennra, Sveinn Áki
Lúðvíksson formaður Íþróttasam-
bands fatlaðra og Ólafur Magn-
ússon framkvæmdastjóri Íþrótta-
sambands fatlaðra.
Sjóvá og Íþróttasamband fatlaðra
Undirrita samstarfs-
samning um stuðning
FYRSTI leiðtogafundur Sameinuðu
þjóðanna um upplýsingasamfélagið
verður haldinn í Sviss í desember nk.
Athygli verður beint að vaxandi bili
sem er að verða á milli þjóða varð-
andi aðgang að upplýsingatækni.
Leita á leiða til að tryggja að allir
njóti góðs af upplýsingabyltingunni
sem nú á sér stað. Tómas Ingi Olrich
menntamálaráðherra mun sækja
fundinn fyrir Íslands hönd.
Í tengslum við fundinn efna Sam-
einuðu þjóðirnar til samkeppni með-
al skólabarna um gerð veggspjalds.
Markmiðið með henni er að gefa
þeim tækifæri til að koma á framfæri
hugmyndum sínum um upplýsinga-
samfélagið og býðst öllum börnum í
heiminum á aldrinum 9 til 19 ára að
taka þátt.
Myndefnið skal tengjast einhverju
þeirra sex þema sem tilgreind eru í
leiðbeiningum. Skilafrestur er til 31.
október nk. og skulu þátttakendur
fylla út þátttökueyðublað og senda
Sameinuðu þjóðunum, segir í frétt
frá menntamálaráðuneytinu.
Íslenski vefur WSIS er á slóðinni:
www.un.dk/icelandic/WSIS/main-
.htm
Samkeppni
um gerð
veggspjalds