Morgunblaðið - 06.09.2003, Page 24
AKUREYRI
24 LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
ELDRI borgarar í Mosfellsbæ fóru
á dögunum í rútuferð austur fyrir
fjall, og er þetta tuttugasta árið í
röð sem Hópferðabílar Jónatans
bjóða eldri borgurum í þess konar
ferð. Félagsstarf eldri borgara í
Mosfellsbæ skipulagði ferðina, en
Jónatan Þórisson og kona hans
Ragnhildur Jónsdóttir, sem eiga
Hópferðabíla Jónatans, buðu í ferð-
ina.
Farið var úr bænum um kl. 13 og
komið til baka um 19:30 eftir vel
heppnaðan dag. Allt í allt fóru 75 í
ferðina, og hefðu verið fleiri ef
engin veikindi hefðu komið upp,
enda ferðin mjög vinsæl, segir
Svanhildur Þorkelsdóttir, for-
stöðumaður félagsstarfs eldri borg-
ara í Mosfellsbæ, en hún skipulagði
ferðina. „Það er svo gott að byrja
félagsstarfið á haustin með svona
ferð, það hristir hópinn svo vel
saman. Fólk hlakkar alltaf til að
hittast á haustin.“
Keyrt var úr bænum um klukkan
13 og keyrt austur á bóginn. „Það
voru lýsingar í hátölurum um þau
svæði sem farið var um, og svo
voru menn sem fóru með gam-
anmál og skrýtlur,“ segir Svanhild-
ur. Farið var á Eyrarbakka þar
sem Byggðasafnið, Sjóminjasafnið
og kirkjan voru skoðuð. Svo var
förinni heitið til Hestheima í Rang-
árvallasýslu þar sem boðið var upp
á kaffihlaðborð, og sungu eigendur
Hestheima fyrir gestina á meðan
þeir gæddu sér á veitingunum.
„Fólkið var alsælt með veiting-
arnar, enda var þetta alveg frá-
bært,“ segir Svanhildur. Að lokum
var svo stoppað í Hveragerði á leið-
inni aftur til Mosfellsbæjar þar sem
fólkið keypti ís, grænmeti og fleira.
„Þetta er mjög elskulegt fólk, og
þakkar vel fyrir sig,“ segir Jónatan
Þórisson, eigandi Hópferðabíla
Jónatans, en hann hefur boðið eldri
borgurum í rútuferðir á hverju ári
í 20 ár. Þau hafa farið víða, þar á
meðal til Þórsmerkur árið 2001 og
keyrir Jónatan hópinn jafnan sjálf-
ur. „Þetta byrjaði allt fyrir 20 ár-
um, þá var ég að kaupa nýjan bíl.
Þá hét ég á eldri borgara að ég
skyldi bjóða þeim í þetta sinn. Svo
hefur bara teygst úr þessu, ég hef
gaman af þessu. Maður þekkir
þetta fólk allt orðið og ég hef alveg
jafngaman af þessu og það, þetta er
gott fólk og gaman að keyra það.“
Jónatan tekur þó fram að hann
sé ekki sá eini sem komi að þessu
máli, Búnaðarbankinn hafi borgað
kaffihlaðborðið, og Kívanisklúbb-
urinn Mosfell hafi lagt til farar-
stjóra.
Morgunblaðið/Jim Smart
Það var fríður hópur eldri borgara sem fór í rútuferðina.
Buðu eldri borgurum
í tuttugustu ferðina
Mosfellsbær
ÞAÐ er ekki rétt að Reykjavíkur-
höfn niðurgreiði starfsemi dráttar-
brauta, eins og forsvarsmenn Hafn-
arfjarðarhafnar hafa haldið fram, og
kemur erindi Hafnarfjarðarhafnar
til Samkeppnisstofnunar forsvars-
mönnum Reykjavíkurhafnar á
óvart.
Bergur Þorleifsson, hafnarstjóri
Reykjavíkurhafnar, segir að sams-
konar erindi hafi borist til Sam-
keppnisstofnunar árið 2000, frá öðr-
um aðilum. Hann segir að því erindi
hafi verið svarað með bréfi 1. nóv-
ember það ár þar sem fram komu
allir samningar sem í gildi eru um
þetta mál. „Þessi skýring sem við
sendum þótti það greinargóð að
Samkeppnisstofnun taldi ekki erindi
til frekari aðgerða.“
Bergur segist ekki hafa séð erind-
ið sem Hafnarfjarðarhöfn hefur sent
Samkeppnisstofnun og hann geti því
ekki svarað einstökum atriðum úr
því. Hann segir að forsvarsmenn
Hafnarfjarðarhafnar hafi ekki rætt
það sem kallað er „opinber fjár-
stuðningur Reykjavíkurhafnar“ við
dráttarbrautirnar við sig. „Það sem
hefur hins vegar komið til tals er að
það er ekki hafður sami háttur á
hvernig Dráttarbrautir Reykjavíkur
ehf. innheimta fyrir afnot af drátt-
arbrautum og hvernig þeir [Hafn-
arfjarðarhöfn] innheimta hafnar-
gjöld af kvíunum suðurfrá. Við
innheimtum af dráttarbrautum
ákveðið gjald á hvert brúttótonn
fyrir hvern dag sem skip eru í
brautinni. Ef það er ekkert skip þá
rukkum við ekki.“ Dráttarbrautir
Reykjavíkur eru einkahlutafélag,
sem er nú algerlega í eigu Reykja-
víkurhafnar.
Dráttarbrautirnar á förum
Nú er búið að segja upp samn-
ingnum við þá sem hafa haft afnot af
dráttarbrautunum frá og með 31.
október í ár, og stefnt er að því að
þær hverfi alfarið frá Reykjavíkur-
höfn, segir Bergur. Hann segist ekki
sjá hver tilgangur Hafnarfjarðar-
hafnar geti verið þar sem ljóst sé að
brautirnar muni hverfa á braut eftir
svo skamman tíma. Hann segir upp-
sögnina á samningnum vera alveg
örugga, hugsanlega verði gefinn ein-
hver stuttur frestur, einn til tveir
mánuðir, til að færa starfsemina, en
ekki verði um það að ræða að samn-
ingurinn verði framlengdur.
Bergur segir að Reykjavíkurhöfn
muni að sjálfsögðu svara erindi
Hafnafjarðarhafnar, fái þeir beiðni
um það frá samkeppnisyfirvöldum:
„Það getur enginn skyldað okkur til
að hafa okkar innheimtu á sama
máta og aðrir. Við hljótum að reikna
okkur þá ávöxtun sem við viljum fá
þegar við leggjum fé í ákveðið
mannvirki, sem mér sýnist að sé
svipað og gert er hjá Hafnarfjarð-
arhöfn.“ Hann segir þá ávöxtunar-
kröfu sem gerð sé til Dráttarbrauta
Reykjavíkur vera 6%.
Reykjavíkurhöfn
hafnar ásökunum
um niðurgreiðslur
Reykjavík
FJÖGUR norræn sveitarfélög hafa
tekið upp samstarf um ímyndarsköp-
un, styrkingu byggðar og markaðs-
setningu bæjanna. Sveitarfélögin eru
Akureyri, Sortland og Steinkjer í
Noregi og Sollefteå í Svíþjóð, sem
jafnframt leiðir samstarfið. Verkefn-
ið heitir BRANDR, það er hluti af
sameiginlegu Evrópuverkefni og
stendur yfir í þrjú ár, að sögn Sigríð-
ar Stefánsdóttur hjá Akureyrarbæ.
Hún sagði að sveitarfélögin myndu
vinna sína vinnu hvert fyrir sig en að
þau yrðu með sameiginlega vefsíðu.
Fulltrúar sveitarfélaganna munu
hittast einu sinni á hverjum stað á
umræddu tímabili og miðla upplýs-
ingum en að því loknu verður árang-
urinn metinn.
Sigríður sagði að Akureyri væri fá-
mennast þessara sveitarfélaga en
íbúafjöldi þeirra er frá um 16.000 og
upp í um 35.000 manns. Hún sagði að
sveitarfélögin ættu það sameiginlegt
að vera í sóknarhug og að hér væri
ekki um neina varnarvinnu að ræða.
Þau stefna að því að fjölga íbúum og
fyrirtækjum, auka fjölbreytni í at-
vinnulífi og afþreyingu og efla ferða-
þjónustu. Auk þess sem kjörnir
fulltrúar sveitarfélaganna og starfs-
menn þeirra koma að verkefninu,
verður það einnig tengt atvinnulífinu.
Verkefnið hefur verið samþykkt
en þó er enn fyrirvari af hálfu Ak-
ureyrar vegna fjármögnunar verk-
efnisins. Hvert erlendu sveitarfélag-
anna hefur fengið um 13,5 milljónir
króna í styrk til verkefnisins en Ak-
ureyri aðeins um 6 milljónir króna
frá ríkisvaldinu. Sigríður sagði að
unnið væri að því að leita leiðrétting-
ar á þessu og hún er bjartsýn á já-
kvæða niðurstöðu.
Á meðal vekefna Akureyrar er að
sækja fram á fyrirtækjamarkaði, efla
upplýsingatækni, ná til ungs fólks
varðandi nám og störf í bænum og
gera bæinn enn fjölskylduvænni.
Einnig verður unnið að því að mið-
stöð norðurslóðastarfs verði á Akur-
eyri.
Sveitarfélög í sóknarhug
sameina krafta sína
Morgunblaðið/Kristján
Fulltrúar norrænu sveitarfélaganna fyrir utan ráðhúsið á Akureyri, f.v.
Magnús Ásgeirsson, Erik Schöning, Viggo Hagan, Sigríður Stefánsdóttir,
Trond Stenhaug, Johann Mörkved, Kerstin Brandelius-Johansson, Staffan
Sjölund og Ragnar Hólm Ragnarsson.
RÚNA K.
Tetzschner
opnar sýningu
á Kaffi Karól-
ínu við Kaup-
vangsstræti á
Akureyri í dag
kl. 14.
Á sýning-
unni verður úr-
val mynd-
skreytinga frá
tímabilinu 1999–2003 við
skrautskrifuð ljóð Rúnu og Þor-
geirs Rúnars Kjartanssonar
(1955–1998). Myndirnar eru
unnar í anda fornra hand-
ritaskreytinga en ljóðin vísa á
nútímann og fela verkin í sér
sameiningu hins gamla og nýja.
Við opnunina les Rúna ljóðin
upp við undirleik fjöllista-
mannsins Friðríks sem einnig
mun syngja. Sýningin stendur
til 3. okt. Aðgangur er ókeypis.
Ljóða- og
tónlistar-
seiður
Rúna K.
Tetzschner
ELLEFTA starfsár Sinfóníuhljóm-
sveitar Norðurlands er að hefjast,
með skólatónleikum í grunnskólum
Akureyrar og nágrennis. Tónleik-
arnir verða á þriðjudögum og ná yf-
ir tímabilið frá september til nóv-
ember. Spilað verður fyrir nemend-
ur í 17 skólum og verða tónleikar
alls 30.
Hljómsveitin sem heimsækir
skólana er skipuð 14 hljóðfæraleik-
urum og er stjórnandi Guðmundur
Óli Gunnarsson. Þetta er í fjórða
skipti sem Sinfóníuhljómsveit Norð-
urlands er með tónleika fyrir grunn-
skólanemendur. Tónleikar eru hugs-
aðir sem kynning á hljóðfærum sem
spilað er á í sinfóníuhljómsveit,
kynning á tónverkum og tón-
skáldum og ekki síst tækifæri fyrir
nemendur að kynnast tónlist. Menn-
ingar- og viðurkenningarsjóður
KEA hefur stutt við verkefnið með
einnar milljónar króna styrk.
Morgunblaðið/Kristján
Félagar í Sinfóníuhljómsveit Norðurlands munu heimsækja grunnskóla á
Akureyri og nágrenni á næstunni.
Starfsárið að hefjast
Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Aðalsteinn Svanur Sigfússon held-
ur rýmingarsölu á verkum sínum í
Populus tremula í Listagilinu á Ak-
ureyri um helgina, frá kl. 14–18 báða
dagana. Populus tremula er vinnu-
stofa Aðalsteins Svans og Ella í
kjallara Listasafnsins á Akureyri.
Í DAG
SÉRA Arnaldur Bárðarson verður
boðinn velkominn í Glerárprestakall
í guðsþjónustu í Glerárkirkju á
morgun, sunnudaginn 7. september
kl. 11.00. Biskup Íslands ákvað fyrir
skömmu að setja séra Arnald sem
prest í Glerárprestakalli frá 1. sept-
ember sl. og til nokkurra mánaða en
hann hefur þjónað í Ljósavatns-
prestakalli undanfarin ár. Séra Arn-
aldur mun starfa með séra Gunn-
laugi Garðarssyni sóknarpresti í
Glerárprestakalli, sem hefur marg-
ítrekað óskað eftir aðstoð í þessu
fjölmenna og barnmarga prestakalli.
Séra Arn-
aldur boðinn
velkominn
Morgunblaðið/Kristján
Séra Gunnlaugur Garðarsson og séra Arnaldur Bárðarson.