Morgunblaðið - 06.09.2003, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 6. SEPTEMBER 2003 51
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
MEYJA
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert umburðarlynd/ur og
æðrulaus og býrð yfir ríku
fegurðarskyni. Nánustu
sambönd þín verða í brenni-
depli á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þig langar til að skemmta þér
með fjölskyldu þinni og vinum í
dag. Reyndu þó að eyða ekki
um efni fram og láta matföng
nægja.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Dagurinn í dag hentar ekki til
innkaupa. Þig langar til að gera
umbætur á heimilinu en þú
ættir að bíða með það til morg-
uns. Þú þarft að öllum líkindum
að skila því sem þú kaupir í
dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt sennilega eiga áhuga-
verðar samræður við systkini
þín og vini í dag. Farðu þó var-
lega í að taka mikilvægar
ákvarðanir. Bíddu til morguns
með að fastsetja nokkuð.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert í skapi til að versla í dag.
Þig langar til að kaupa fallega
hluti handa þér og þínum nán-
ustu. Dagurinn er þó ekki
hentugur til innkaupa.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Fólk laðast að þér og því hent-
ar dagurinn vel til að sinna fé-
lagslífinu. Þú ættir þó að fresta
mikilvægum ákvörðunum til
morguns.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Reyndu að finna þér tíma til
einveru í dag. Þú gætir falið
þig með góða bók, farið í
gönguferð eða í bíó. Þú þarft
tækifæri til að melta hlutina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú hefur margar góðar hug-
myndir og ættir að nota daginn
til að koma þeim á framfæri og
kanna viðbrögð annarra. Þú
ættir þó að fresta því til morg-
uns að fastsetja nokkuð.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú nýtur meiri athygli en þú
átt að venjast. Fólk leitar til
þín með áhugaverðar hug-
myndir. Þú ættir þó að bíða til
morguns með að samþykkja
nokkuð.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þótt tunglið sé í merkinu þínu
er staða þess mjög veik. Þú
ættir því að fara varlega og
forðast það að taka mikilvægar
ákvarðanir.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það er einhver óreiða á hugs-
unum þínum. Taktu tillit til
þess og frestaðu mikilvægum
ákvarðanatökum. Þú munt sjá
hlutina í skýrara ljósi á morg-
un.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Njóttu samvista við maka þinn
eða gamlan vin í dag. Fólk er
almennt óvenju þægilegt og af-
slappað.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú hefur mikla orku til fram-
kvæmda. Dagurinn hentar
engu að síður illa til að taka
mikilvægar ákvarðanir. Það er
hætt við að fyrirætlanir þínar
renni út í sandinn.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
TIL ÍSLANDS
Þín fornöld og sögur mér búa í barm
og bergmál frá dölum og hörgum,
þín forlög og vonir um frægðir og harm
mér fylgja á draumþingum mörgum.
Þinn svipurinn ljúfi, þitt líf og þitt mál,
í lögum þeim hljóma, er kveður mín sál.
Ég óska þér blessunar, hlýlega hönd,
þó héðan þér rétt geti ei neina, –
og hvar sem ég ferðast um framandi lönd,
ég flyt með þá vonina eina:
Að allt, sem þú, föðurland, fréttir um mig,
sé frægð þinni að veg, – því ég elskaði þig.
Stephan G. Stephansson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
60 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 6.
september, er sextug Sig-
rún Vilhjálmsdóttir,
Breiðvangi 40, Hafnarfirði.
Hún og sambýlismaður
hennar, Gísli Pálsson, eru
að heiman.
50 ÁRA afmæli. Í dag,laugardaginn 6.
september, er fimmtugur
Frissi Adolfs (Friðrik
Adolfsson), til heimilis að
Huldugili 2/103, Akureyri.
Hann og kona hans, Kol-
brún Stefánsdóttir, munu
fagna þessum tímamótum
með ættingjum og vinum í
Frímúrarahúsinu á Akur-
eyri í kvöld frá kl. 20.
PUNKTARNIR í stokknum
eru 40, en enginn einn spil-
ari getur haft þá alla í einu.
Hámarkið er 37, sem sam-
anstanda af þremur efstu í
öllum litum og ÁKDG í ein-
um. Þrír gosar verða út-
undan.
Vestur gefur; NS á hættu.
Norður
♠ 763
♥ K10764
♦ 65
♣872
Suður
♠ ÁKD5
♥ ÁD
♦ ÁK10
♣ÁKD4
Suður á ekki 37 punkta,
en hann á mjög mikið. Svo
mikið, að hann keyrir fyrir
eigin krafti upp í sex grönd
eftir opnun austurs á veik-
um tveimur í tígli:
Vestur Norður Austur Suður
Pass Pass 2 tíglar Dobl
Pass 2 hjörtu Pass 6 grönd
Pass Pass Pass
Vestur kemur út með tíg-
uláttu og suður tekur gosa
austurs með ás. Hvernig á
að spila?
Tólf slagir eru auðsóttir
ef annar svarti liturinn fell-
ur. Þá má yfirdrepa hjarta-
drottningu og svína tígultíu.
Þess vegna er rökrétt að
kanna leguna með því að
taka strax þrjá efstu í spaða
og laufi. Austur reynist eiga
tvíspil í báðum litum.
Hvernig á að bregðast við
því?
Hjartað er væntanlega
3-3, svo ekki fellur gosinn
annar. Hins vegar ætti að
vera hægt að pína vestur ef
hann á hjartagosann til hlið-
ar við valdið á svörtu lit-
unum:
Norður
♠ 763
♥ K10764
♦ 65
♣872
Vestur Austur
♠ 10842 ♠ G9
♥ G93 ♥ 852
♦ 87 ♦ G9432
♣G965 ♣103
Suður
♠ ÁKD5
♥ ÁD
♦ ÁK10
♣ÁKD4
Suður þarf rétta talningu
fyrir þvingunina og spilar
því tígultíu að heiman! Aust-
ur drepur og spilar til dæm-
is hjarta um hæl. Sagnhafi
tekur það með ás og þvingar
vestur í þremur litum með
tígulkóngum. Vestur fórnar
strax tveimur slögum með
því að henda hjarta, en ef
hann hendir svörtu spili,
endurtekur suður kast-
þröngina með fríspilinu í
þeim lit.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson
1. e4 e6 2. d4 d5 3. Rc3 Bb4
4. Rge2 Rc6 5. e5 Rge7 6. h4
h6 7. h5 f6 8. exf6 gxf6 9. a3
Ba5 10. b4 Bb6 11. Ra4 e5
12. Bb2 e4 13. Bc1 Bg4 14.
c3 Dd7 15. Bf4 Rd8 16. Dc2
Re6 17. Bd2 Dc6 18. Db3
Rf5 19. Hc1 Rd6 20. Hh4
Bxe2 21. Bxe2 a6 22.
Hg4 Rg5 23. Rc5
Ba7 24. Hf4 Hf8 25.
a4 Bxc5 26. bxc5 Rc8
27. Hb1 Hb8 28. c4
Re7 29. cxd5 Rxd5
Staðan kom upp í
landsliðsflokki Skák-
þings Íslands sem
lauk fyrir skömmu í
Hafnarborg í Hafn-
arfirði. Þröstur Þór-
hallsson (2.444)
hafði hvítt gegn
Ingvari Þór Jóhann-
essyni (2.247). 30.
Bxa6! Dxa6 30 …
Rxf4 gekk ekki upp vegna
31. Bb5 og svarta drottn-
ingin fellur. 31. Dxd5 Hd8
32. Dxb7 Dxa4 33. Be3 f5
34. Dxc7 Re6 35. De5 Da2
36. Hc1 Dd5 37. Hh4 Dxe5
38. dxe5 f4 39. Bd2 Hd5 40.
c6 Hf7 41. c7 Rxc7 42. Bxf4
Re6 43. Bxh6 Hxe5 44. Be3
Hff5 45. h6 Hh5 46. Hxh5
Hxh5 47. Hc4 og svartur
gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Laugavegi 59, 2. hæð, sími 551 8258.
Rowanblaðið er komið
Full búð af nýju garni og nýjum prjónabókum
15% afmælisafsláttur
af öllu garni og öllum efnum
laugardag, mánudag og þriðjudag
Storkurinn
á 50 ára afmæli
Cranio-Sacral meðferð
6.stig/2ár. I.hl. 20.-25.sept. II. hl. 8-13. nóv.
Kennsla og námsefni á íslensku.
Uppl./skrán. Gunnar s. 564 1803 - 699 8064
C.C.S.T: College of Cranio-Sacral Therapy - www.cranio.cc • www.ccst.co.uk
Munið gömlu dansana í Glæsibæ
í kvöld, kl. 21.30.
Hljómsveitir Þorvaldar Björnssonar og Þorsteins
Þorsteinssonar ásamt Villa Guðmunds leika fyrir dansi.
Mætum öll — tökum með okkur gesti.
F.H.U.R.
Félag
harmonikuunnenda
í Reykjavík
Hugljómun sjálfsþekkingar (Enlightenment intensive)
í Bláfjöllum 21. sept.
Hver ert þú?
Kynning sunnudagskvöldið 7. september kl. 20,
Leiðbeinandi: Guðfinna St. Svavarsdóttir www.highsierra.org
Hómópatar og heilsulausnir, Ármúla 17, 2. hæð. tv. Símar 562 0037 og 869 9293.
Reiki-, heilunar- og sjálfstyrkingarnámskeið
Skráning á námskeið í síma 553 3934 kl. 10–12 virka daga.
Guðrún Óladóttir, reikimeistari.
Hvað fá þátttake
ndur út
úr slíkum námsk
eiðum?
Læra að nýta sér orku til að lækna sig
(meðfæddur eiginleiki hjá öllum)
og/eða koma sér í orkulegt og tilfinningalegt jafnvægi.
Læra að beita hugarorkunni á jákvæðan og uppbyggilegan
hátt í staðinn fyrir að beita henni til niðurrifs.
Læra að hjálpa öðrum til þess sama.
Námskeið í Reykjavík
Til að ná betri stjórn á lífi þínu og líðan.
5 kvölda námskeið í Reykjavík, 15.,16., 22., 23., og 29. sept.
Námskeið til sjálfshjálpar í uppbyggingu á persónustyrk þínum þar sem þú
finnur út:
Hver þú ert.
Hvað þú getur.
Hvað þú vilt og vilt ekki.
Hvert þú vilt stefna.
Námskeiðinu verður svo fylgt eftir með mánaðarlegum fræðslu- og vinnufundum.
Auktu styrk þinn
9. - 11. sept 1. stig kvöldnámskeið
27. - 28. sept 1. stig helgarnámskeið
18. - 21. sept 2. stig kvöldnámskeið
50 ÁRA afmæli. 10.september nk. verð-
ur fimmtug Ásta Andr-
easen, Engjavegi 49, Sel-
fossi. Eiginmaður hennar er
Grétar Arnþórsson. Þau
taka á móti gestum á heimili
sínu frá kl. 20 í dag, laug-
ardaginn 6. september.
100 ÁRA afmæli. 8.september nk.
verður 100 ára Elínborg
Guðmundsdóttir, Blöndu-
ósi. Henni til heiðurs verður
haldin afmælisveisla sunnu-
daginn 7. september í Fé-
lagsheimilinu á Blönduósi
frá kl. 15–17. Ættingjar og
vinir velkomnir. Þeim sem
vilja gleðja hana með gjöf-
um eða blómum er bent á að
styrkja frekar Heimilisiðn-
aðarsafnið á Blönduósi.
50 ÁRA afmæli. Sunnu-daginn 7. september
er fimmtugur G. Þröstur
Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Kerfis hf., nú
starfandi sem hugbún-
aðarhönnuður og ráðgjafi í
Bandaríkjunum. Hann tek-
ur á móti gestum á Bakka-
stöðum 157, Reykjavík, eftir
kl. 18 í dag, laugardaginn 6.
september.