Morgunblaðið - 17.09.2003, Side 17

Morgunblaðið - 17.09.2003, Side 17
AKUREYRI MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 17. SEPTEMBER 2003 17 LOKAÐ EFTIR HÁDEGI Á FÖSTUDAG Borgartúni 21 105 Reykjavík Sími: 569 6900 - 800 6969 Fax: 569 6800 www.ils.is Vegna skipulagsdags starfsfólks verður lokað hjá Íbúðalánasjóði kl. 12.00 föstudaginn 19. september. Opnað verður aftur mánudaginn 22. september samkvæmt venjulegum opnunartíma. Verið velkomin. Dragtir • peysur samkvæmisklæðnaður jakkar • kápur Krónunni, 2. hæð, sími 462 3505, Hafnarstræti 97, 600 Akureyri. VÍSINDAVEFUR leikskólans Iðavallar er kominn í eitt af 10 efstu sætunum í eSchola, en það er evrópsk verð- launasamkeppni um notkun upplýsingatækni í skóla- starfi. Vefurinn, sem ber heitið „Þar er leikur að læra“, var valinn úr rúmlega 600 umsóknum. Aðalhöfundar vefj- arins eru hjónin Anna Elísa Hreiðarsdóttir og Arnar Yngvason, sem bæði starfa sem deildarstjórar við leik- skólann. Þau voru að vonum ánægð með fréttirnir sem þau fengu í gær og hefur einum fulltrúa Iðavallar verið boðið að koma til Genfar í Sviss, þar sem endanleg úrslit verða kunngjörð. Þau hjón vonast þó til að geta verið þar bæði viðstödd. Þau Anna og Arnar bjuggu til vef til að halda utan um verkefni barnanna og til að sýna kennslufræðina í skól- anum. „Við setjum allt inn á vefinn, þannig að bæði for- eldrar og aðrir geti fengið innsýn í starf skólans,“ sagði Anna. Hún sagði að í skólanum væru mikið af börnum frá öðrum löndum og því er vefurinn að hluta til á ensku, þannig að foreldrar þeirra barna geti einnig fylgst með. Verðlaunasamkeppnin er fyrir skóla á öllum stigum en ákveðið var að senda vef leikskólans í keppnina, til að sýna fram á að þetta verkefni ætti líka við um leikskóla. Í vor var tilkynnt um að vefur Iðavallar kæmist í hóp þeirra 100 bestu og sögðu þau Anna og Arnar að sá ár- angur hefði komið þeim mjög á óvart og verið mikil upp- hefð. „Það að ná þessum árangri er frábært og hreint lygilegt og í raun mikil viðurkenning fyrir það starf sem hér fer fram.“ Það er athyglisvert að þau hjón vinna að mestu við vef- síðuna fyrir utan hefðbundinn vinnutíma. Arnar sagði að þetta verkefni ætti eftir að halda áfram, vaxa og dafna. „Og það er virkilega gaman að geta sýnt þessi verkefni með þessum hætti, enda eru börnin frábær og mjög dug- leg,“ sagði Anna. Leikskólinn Iðavöllur er fyrsti leikskólinn á Akureyri sem fékk tölvur og sá fyrsti sem er með heimasíðu. Þar er tæknin notuð eins mikið og kostur er í skólastarfinu. Starfsfólk skólans fékk mjög misjöfn viðbrögð í upphafi við því að taka tölvur í notkun í skólanum. En börnin læra að umgangast tölvur sem eru þar með eðlilegur hluti í þeirra umhverfi. Vísindavefur Iðavallar nær góðum árangri í evrópskri samkeppni Hreint lygilegt að hafa náð þessum árangri Morgunblaðið/Kristján Hjónin Arnar Yngvason og Anna Elísa Hreiðarsdóttir hönnuðu vefinn á leikskólanum Iðavelli, en með þeim á myndinni eru þau Indíra, Alex Daði og Heimir. Vefurinn er kominn í eitt af 10 efstu sætunum í eSchola. BENEDIKT S. Lafleur listamaður vann það afrek nú nýlega að synda yfir Pollinn á Akureyri, en hann synti óhefðbundna leið, hóf sundið austan megin Polls, við Veigastaða- bás, og kom að landi við Höephner, þar sem siglingaklúbburinn Nökkvi hefur bækistöð sína. „Þetta var býsna kalt, en maður lét sig hafa það,“ sagði Benedikt sem var um klukkustund á sundi, en leið- in er um 1,8 sjómílur og sjórinn um 10 gráður. Smári Sigurðsson frá Nökkva fylgdi Benedikt alla leið. „Þetta var eins konar samvinnuverkefni okkar, við unnum þennan sigur saman,“ sagði Benedikt. Um var að ræða sjósund í þágu friðar, en Benedikt hefur áður staðið fyrir göngum gegn fíkn og gengið maraþongöngur gegn ofbeldi auk þess að synda sjósund fyrir friði í heiminum. „Svo syndir maður sér til heilsubótar og skemmtunar að auki,“ sagði hann. Reyndar kvað hann sér ekki hafa orðið um sel þegar hann rakst á eitthvað hart á sundinu og var tjáð að mikið væri um sel á Poll- inum. „Ég var bara feginn að hafa ekki fengið að vita það fyrirfram.“ Benedikt sagði að sundið hefði verið hressandi, en hann hefði verið nokk- uð dofinn þegar hann náði landi. „Ég var fljótur að ná kuldanum úr lík- amanum, ég skellti mér í heitasta pottinn í Sundlaug Akureyrar og var orðinn góður eftir 10 mínútur,“ sagði sundkappinn. Sjósund yfir Pollinn í þágu friðar Hressandi en býsna kalt UM 250 nýnemar við Verkmennta- skólann á Akureyri hafa síðustu daga farið í haustferð um sveitir Eyjafjarðar og að sumarbúðunum að Hólavatni. Að þessu sinni voru ferðirnar skipulagðar í samstarfi við SBA- Norðurleið sem gaf skólanum akst- urinn í tilefni af því að á þessu skóla- ári er þess minnst að tuttugu ár eru liðin frá stofnun hans. Var komið við m.a. á Melgerð- ismelum þar sem starfsemi félaga flugáhugamanna var kynnt auk þess sem Smámunasafnið í Sólgarði var vandlega skoðað. Að Hólavatni var tíminn notaður við margs konar leiki og þrautir sem bryddað var upp á í þeim tilgangi að hrista saman nemendur og kennara en 31 kennari tók þátt í ferðunum, sem voru fjórar. Þá sýndu félagar úr björgunarsveitinni Dalbjörgu klifur og leyfðu nemendum að spreyta sig. Verður 20 ára afmælis skólans minnst með ýmsum hætti í vor. Um 250 nýnemar við VMA hafa síðustu daga farið í haustferðir um Eyja- fjörð og að Hólavatni þar sem þessi mynd var tekin. Nýnemar í haustferð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.