Morgunblaðið - 10.10.2003, Page 43

Morgunblaðið - 10.10.2003, Page 43
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 43 ✝ Sigurður Pálssonfæddist á Starra- stöðum í Lýtingsstaða- hreppi í Skagafirði 20. nóvember 1940. Hann lést á krabbameins- deild Landspítala – há- skólasjúkrahúss í Reykjavík 4. október síðastliðinn. Foreldrar Sigurðar voru Páll Ólafsson, f. 15. maí 1910, d. 12. janúar 1990, og Guðrún Krist- jánsdóttir, f. 11. júlí 1913, d. 17. júlí 2002. Sigurður var næst elst- ur fimm bræðra, en hinir eru Ólafur Sigmar, f. 25. maí 1938, Reynir, f. 8. júli 1945, Ingimar 24. júní 1946 og Eyjólfur Svanur, f. 23. nóvember 1952, d. 25. janúar 2000. Sigurður kvæntist 25. ágúst 1968 Sigurbjörgu Rannveigu Stefáns- dóttur, f. á Steiná í Svartárdal 22. maí 1937. Foreldrar Sigurbjargar voru Stefán Þórarinn Sigurðsson og Ragnheiður Rósa Jónsdóttir á Steiná í Svartárdal. Börn Sigurðar og Sigurbjargar eru þrjú, þau eru: 1) Guðrún Margrét, dýralæknir í Varmahlíð, f. 5. júni 1968. Maður hennar er Vésteinn Þór Vésteinsson rafeindavirki og eiga þau þrjú börn, Rögnu Vigdísi, f. 1997, Véstein Karl, f. 1999, og Guðnýju Rúnu, f. 2002. 2) Una Aldís, starfsmaður KPMG á Sauðár- króki, f. 8. júni 1970. Eiginmaður hennar er Stefán S. Guð- mundsson húsa- smíðameistari og eiga þau tvo syni, Sigurð Pál, f. 1995 og Rúnar Inga, f. 1999. 3) Stefán Þór- arinn, doktor í líf- efnafræði, f. 18. apríl 1972. Kona hans er Guðbjörg Kristín Ludvigsdótt- ir læknir og eiga þau soninn Skarphéðin Davíð, f. 2001. Sigurður ólst upp á Starrastöð- um sín bernsku- og æskuár, en eftir hefðbundið barnaskólanám fór hann fljótt að vinna fyrir sér. Hann fór snemma til sjós og var lengi á millilandaskipum og ferð- aðist því víða um heim. Einnig starfaði hann við ýmis störf til lands, meðal annars í byggingar- vinnu, uppbyggingu raflína, vann hjá löggildingarstofu ríkisins og var bifreiðarstjóri hjá Ölgerð Eg- ils Skallagrímssonar hf. Síðustu tvö árin starfaði Sigurður hjá byggingarverktakafyrirtækinu RÍP ehf. Sigurður verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Í dag er borinn til grafar kær vin- ur, Sigurður Pálsson eða Siggi Páls, eins og hann var jafnan kallaður. Leiðir okkar Sigga lágu saman fyrir 20 árum þegar hann hóf störf hjá Ölgerðinni Agli Skallagrímssyni en þar unnum við saman í mörg ár. Tókst með okkur góð vinátta sem aldrei bar skugga á. Siggi var hörkuduglegur, mikið hraustmenni og ósérhlífinn. Hann var jafnframt prúðmenni sem átti auðvelt með að lynda við fólk á öllum aldri en gat verið fastur fyrir ef því var að skipta. Siggi var mjög hress og skemmti- legur félagi og var ómissandi þegar eitthvað stóð til. Margar ógleyman- legar ferðir, utanlands og innan, fór- um við hjónin ásamt Sigga og Sillu bæði á vegum Starfsmannafélags Öl- gerðarinnar og á eigin vegum. Betri ferðafélaga hefðum við ekki getað hugsað okkur. Fækkað hefur í gamla félagahópn- um úr Ölgerðinni. Á undanförnum árum höfum við séð á bak góðum fé- lögum og er Siggi sá þriðji úr hópn- um á skömmum tíma sem fellur frá um aldur fram. Síðustu árin unnum við Siggi sam- an við smíðar og þar kom vel fram hve Siggi var góðum kostum búinn. Öll verkefni voru vel af hendi leyst eins og Sigga var von og vísa. Við kveðjum góðan vin með sökn- uði og hörmum ótímabært fráfall hans. Elsku Silla, við vottum þér og fjölskyldunni innilega samúð okkar. Guð veri með ykkur. Jón og Guðlaug. Elsku Siggi frændi. Við burtför þína er sorgin sár af söknuði hjörtun blæða. En horft skal í gegnum tregatár í tilbeiðslu á Drottin hæða. og fela honum um ævi ár undina dýpstu að græða. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Við viljum þakka þér innilega fyrir allar góðu samverustundirnar og hjálpsemina í okkar garð. Alltaf varst þú boðinn og búinn til að að- stoða okkur t.d. að geyma bílinn, mála eina íbúð eða svo, flytja dót og svo ótal margt annað. Einnig þegar lítil stelpa (Linda Rós) tók í hönd þér í stað pabba síns í margmenni leiddir þú hana bara áfram og brostir vit- andi það að hún var að fara manna- villt vegna þess hversu líkir þið bræður voruð. Það er bót í böli nauða að bænin okkur huggun lér og á bak við dimman dauða Drottins miskunn augað sér. Þótt að flest á feigðarströndum fjötri oss við sorgirnar, bjart er yfir lífsins löndum ljúft að mega finnast þar. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Selma Björk og Linda Rós. Okkur langar að senda fáein kveðjuorð vegna fráfalls vinar okkar Sigurðar Pálssonar, sem farinn er héðan úr heimi langt um aldur fram. Við viljum þakka honum áratuga vináttu, höfðingsskap og hjálpsemi. Enginn var fljótari en hann að bjóða fram aðstoð sína, ef hann hélt að einhver þyrfti á að halda, og var sú hjálp veitt tafarlaust og eins og sjálfsögð væri. Heimsóknir til þeirra hjóna Sillu og Sigga, eins og við köll- uðum þau alltaf, voru eins og stór- veislur, öllum tekið af mikilli gest- risni, sem þau bæði voru samtaka í. Sigurðar verður sárt saknað af eiginkonu og glæsilegum hópi af- komenda, svo og öllum vinum þeirra hjóna. Blessuð veri minning Sigurðar Pálssonar. Jóna og Ólafur. Elsku Siggi minn. Nú ert þú farinn allt of snemma og eftir svo skömm og hörð veikindi. Það er svo stutt síðan þetta byrjaði allt, bara rúmar 16 vikur. Þegar ég kom til þín þá, þá horfðir þú á mig og sagðir: „Er nú allt í skralli með karl- inn, Dísa mín.“ Það er líka svo stutt síðan þú varst í fullu fjöri og alltaf að hjálpa okkur með allt mögulegt. Eins og þú hefur gert allt frá því að ég var 15 ára og kom til náms suður og bjó á heimili ykkar Sillu. Mig langar að þakka þeim sem önnuðust þig á krabbameinsdeild Landspítalans og einnig sérstaklega séra Þóri, presti í Árbæjarkirkju, fyrir stuðning hans við fjölskyldu þína. Vertu sæll, kæri vinur minn, og þökk fyrir allt og allt. Hvíl þú í friði. Guð styrki þá sem eftir lifa. Eydís. SIGURÐUR PÁLSSON Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför ást- kærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, ÓLAFAR PÁLÍNU SIGURÐARDÓTTUR (Lóu), dvalarheimilinu Ási, Hveragerði. Særún Sigurjónsdóttir, Ólafur Sigmundsson, Ingibergur Sigurjónsson, Margrét Pálfríður Magnúsdóttir, Sigurður Valur Magnússon, Erla Hafdís Sigurðardóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegr- ar eiginkonu minnar, móður okkar, tengda- móður, ömmu og langömmu, ÖNNU J.G. BETÚELSDÓTTUR frá Görðum, Aðalvík, Furugerði 13, Reykjavík. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13D Landspítala við Hringbraut. Þorkell Guðmundsson, Erna K. Þorkelsdóttir, Ágúst Guðmundsson, Hildur Þorkelsdóttir, Atli V. Jónsson, Gerður Þorkelsdóttir, Torfi E. Kristjánsson, Fanney Þorkelsdóttir, Hafsteinn Þ. Hilmarsson, barnabörn og langömmubarn. Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐLAUGAR MAGNÚSDÓTTUR, Bauganesi 44. Margrét Kristín Jónsdóttir, Helgi Jónsson, Jytte Marcher, Sveinn Jónsson, Ásta Jónsdóttir, Anna Jónsdóttir, Finn Larsen, Bjarnþór Gunnarsson, Hanna Sigurjónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og útför elskulegrar eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður, ömmu og lang- ömmu, JÓHÖNNU STEFÁNSDÓTTUR, Vallargötu 17, Keflavík. Hafsteinn Magnússon, Guðrún Hildur Hafsteinsdóttir, Torfi Rúnar Kristjánsson, Magnús Hafsteinsson, Hrefna Kristjánsdóttir, Hafsteinn Hugi Hafsteinsson, Ástríður Emma Hjörleifsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilega þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför frænku okkar, SIGURBORGAR HJARTARDÓTTUR frá Gröf í Þorskafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar E2 á Hrafnistu Reykjavík fyrir góða umönnun. Aðalbjörg Jónsdóttir, Lilja S. Jónsdóttir og fjölskyldur. Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför móður okkar, systur og ömmu, ESTHERAR FINNBOGADÓTTUR, Tjarnargötu 10, Innri-Njarðvík. Gylfi Pálsson, Guðmundur Kr. Sigurðsson, Guðfinna Finnbogadóttir og barnabörn. Þökkum innilega öllum, sem sýndu okkur samúð með einum eða öðrum hætti vegna andláts og útfarar ÖNNU BRYNJÓLFSDÓTTUR, Gilsbakka. Starfsfólki Dvalarheimilis aldraðra í Borgarnesi og Ingþóri Friðrikssyni lækni færum við bestu þakkir fyrir alla umönnun við hana þau ár sem hún dvaldist þar. Snorri Jóhannsson, Guðrún Sigurðardóttir, Sigríður Sigurðardóttir, Ragnheiður Kristófersdóttir, Magnús Sigurðsson, Ragnheiður Brynjólfsdóttir, Gissur Brynjólfsson, Ingibjörg Brynjólfsdóttir, Guðmundur Brynjólfsson og aðrir vandamenn. AFMÆLIS- og minningar- greinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfvirkt um leið og grein hefur borist) eða á disk- lingi. Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að tilgreina símanúm- er höfundar og/eða sendanda (vinnusíma og heimasíma). Ekki er tekið við handskrifuðum greinum. Um hvern látinn einstakling birtist ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar séu um 300 orð eða 1.500 slög (með bilum) en það eru um 50 línur í blaðinu Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Grein- arhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum. Frágangur afmælis- og minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.