Morgunblaðið - 10.10.2003, Side 45

Morgunblaðið - 10.10.2003, Side 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 45 ✝ Sigurbjörg Ingi-mundardóttir fæddist í Fljótum í Skagafirði 11. júní 1909. Hún lést á Landspítala í Foss- vogi mánudag 29. september síðastlið- inn. Foreldrar henn- ar voru Jóhanna Arngrímsdóttir, f. 16.6. 1880, d. 4.10. 1932, og Ingimund- ur Sigurðsson, f. 7.5. 1882, d. 14.12. 1941, Skagfirðingar í báð- ar ættir. Systkini Sigurbjargar eru: Sigurður, Ein- ara, Arngrímur, Ástríður, Sig- urlína, Kristinn, Kristín, Sigurð- ur, andvana stúlkubarn. Einu eftirlifandi eru Arngrímur og Sigurlína. Fósturforeldrar Sig- urbjargar voru Guðrún Jóns- dóttir og Sveinn Arngrímsson, ábúendur á Brúnastöðum í Fljót- um. Var hún hjá þeim frá 3 ára til 17 ára aldurs. Fóstursystkini hennar voru Herjólfur, Guðrún, Jón, Hólmfríður, Jóna, Jóhanna, Þor- björg og Sigríður, öll látin nema Hólmfríður og Þor- björg. Sigurbjörg giftist 17. maí 1930 Karli Sigurðssyni skip- stjóra frá Litla- Landi í Vestmanna- eyjum, f. 16. nóvem- ber 1905, d. 5. maí 1959. Börn þeirra eru: a) Sigurður, kvæntur Ragnhildi Steingrímsdóttur. Börn hans eru Linda, Rúni, d., Minný, d., og Halla. b) Hanný, gift Ingva Hallgrímssyni. Börn hennar eru Karl, Sigurbjörg og Sveindís Björk. Börn hans eru Anna Marí og Ragnheiður Kol- brún. Auk húsmóðurstarfa vann Sig- urbjörg ýmis störf um ævina. Útför Sigurbjargar verður gerð frá Áskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Þegar minnast skal og kveðja elskulega móður og tengdamóður verður erfitt að koma hugsunum okkar á blað, því það er svo margs að minnast frá hennar löngu ævi. Hún var styrkur okkar og stoð þegar erf- iðleika bar að höndum. Alltaf mátti treysta ráðum hennar og gjörðum sem byggðust á trú hennar og kær- leika til okkar og barna okkar. Hún var stórbrotin kona á svo margan hátt. Það sem reyndust okkur fjöll gerði hún að grænum grundum vegna trúarstyrks síns. Hún var söng- og ljóðelsk og öll verk léku í höndum hennar. Hún hafði yndi af að ferðast um landið sitt og naut þess að fara til annarra landa. Hún var hrókur alls fagnaðar og eignaðist marga góða vini á lífsleiðinni. Sérstakar þakkir til sambýlisfólks hennar á Dyngjuvegi 12 fyrr og nú fyrir alúð og umhyggju. Við lifum í þeirri trú að hún styrki okkur og leiðbeini um ókomin ár. Guð blessi minningu hennar. Sigurður, Ragnhildur, Hanný og Ingvi. Elsku amma, þá er komið að kveðjustundinni. Margs er að minn- ast og þakka fyrir á svo löngum tíma. Árin þín voru orðin mörg, þú áttir af- mæli 11. júní og varst þá 94 ára göm- ul. Þú varst ætíð hress og kát og hafðir svo gaman af að líta vel út og punta þig. En eins og þú sagðir, þá væri góð heilsa ekki öllum gefin. Þú varst ætíð tilbúin að liðsinna okkur og vildir allt fyrir okkur gera. Og fyrir alla þína væntumþykju viljum við þakka þér. Þó það hafi stundum verið langt á milli okkar varstu alltaf í okkar huga og hjarta. Það koma svo margar minningar upp í hugann. Það verða skrítin og tóm jól hjá okkur öllum án þín, því þar varst þú fasti punkturinn. Þú varst svo félagslynd, hafðir gaman af að syngja og kveða, og svo var föndr- ið uppáhald. Við vitum að nú líður þér vel og að þú varst tilbúin að kveðja og hitta afa og alla vinina sem á undan voru farnir. Við þökkum fyrir allt elsku amma, Guð geymi þig. Kveðja frá okkur öllum. Karl, Sigurbjörg, Svein- dís og barnabörn. Við eigum bágt með að trúa því að Bogga frænka sé fallin frá. Þrátt fyr- ir að hafa náð háum aldri var hún ætíð svo ungleg, ern og létt á fæti. Margar góðar minningar eigum við um þessa elskulegu föðursystur allt frá því að við munum fyrst eftir okk- ur. Hún var stór hluti af fjölskyld- unni við leik og störf í Álfheimunum. Hún starfaði um tíma við verslunar- störf hjá föður okkar og gætti systk- inahópsins þegar mamma og pabbi þurftu að bregða sér af landi brott. Þá var nú oft kátt á hjalla að vera með henni og margt skemmtilegt brallað. Bogga bjó yfir þeirri náð- argáfu að geta kastað fram vísum og þulum við öll tækifæri sem við enn þann dag í dag rifjum upp. Hún var fjölhæf, m.a. mikil hannyrðakona, söngelsk, smekkleg, listræn og vandvirk, enda ber heimili hennar þess glöggt merki. Alltaf var hún glæsileg til fara og vel til höfð svo eftir henni var tekið. Bogga fór ekki alltaf troðnar slóðir. Með sínum kjarki og dugnaði réði hún sig í vist til Englands komin fast að sextugu, því alltaf hafði hana dreymt um að læra ensku. Þessu lauk hún með glæsibrag eins og allt annað sem hún tók sér fyrir hendur og átti svo sann- arlega eftir að koma að góðum not- um seinna meir því hún hafði unun af því að ferðast. Eitt af mörgum áhugamálum Boggu var matjurtagarðurinn henn- ar á Dyngjuveginum þar sem hún ræktaði m.a. af mikilli natni jarðar- berin sín sem hún var svo stolt af. Við erum þess fullviss að hún muni halda áfram að rækta garðinn sinn þar sem hún er nú. Elsku Hanný, Siggi og fjölskyld- ur, við biðjum góðan Guð að styrkja ykkur í sorginni. Við systkinin kveðjum ástkæra föðursystur okkar og óskum henni góðrar ferðar í sína hinstu ferð. Hin gömlu kynni gleymast ei, enn glóir vín á skál. Hin gömlu kynni gleymast ei né gömul tryggðamál. Ó, góða, góða, gamla tíð með gull í mund. Nú fyllum báðir bikarinn og blessum liðna stund. Þótt sortnað hafi sól og lund, ég syng und laufgum hlyn og rétti mund um hafið hálft og heilsa gömlum vin. (Þýð. Árni Pálsson.) Guð blessi minningu hennar. Lilja, Anna, Erna, Ingi og Berglind. SIGURBJÖRG INGI- MUNDARDÓTTIR Messa í Krýsu- víkurkirkju SUNNUDAGINN 12. október nk. fer fram messa í Krýsuvíkurkirkju og hefst hún kl.14. Helga Björk Arnarsdóttir leikur á klarinettu. Prestur er sr. Gunnþór Þ. Ingason, sóknarprestur. Altaristafla kirkjunnar, sem er eftir Svein Björnsson, verður tekin niður í messulok og farið með hana í Hafnarfjarðarkirkju þar sem hún hefur vetursetu. Altaristaflan hefur prýtt Krýsuvíkurkirkju frá því að henni var komið fyrir á sínum stað í kirkjunni í vor. Fjöldi manns af ýmsu þjóðerni hefur komið við í kirkjunni í sumar og ritað nafni sitt í gestabók hennar. Þessir gestir hafa lýst því yfir hve kirkjan orki sterkt á þá í einfaldleik sínum og smæð og sé vel fallin til íhugunar og bænar. Eftir messuna er Sveinshús opið. Þar er boðið upp á, gegn vægu verði, kaffi, jólaköku og kleinur. Í Sveinshúsi stendur nú yfir sýningin „Bláhöfði í Krýsuvík“ og verður veitt leiðsögn um sýninguna og hús- ið. Sætaferðir verða frá Hafn- arfjarðarkirkju kl. 13 og heim aftur eftir messuna og kirkjukaffið. Kaffisala í Óháða söfnuðinum SUNNUDAGINN 12. október kl. 14 verður fjölskyldumessa á kirkju- deginum í Óháða söfnuðinum, þar sem börnin eru sérstaklega boðin velkomin, sem og aðrir líka vita- skuld. Strax að henni lokinni verður kaffisala kvenfélagsins til ágóða fyrir starfsemi þess. Að þessu sinni gefur kvenfélagið 130 nýjar sálma- bækur, sem verða afhentar af for- manninum, Ester Haraldsdóttur, í upphafi fjölskyldumessunnar. Eru allir velkomnir í þessa fjölskyldu- guðsþjónustu. Morgunblaðið/RAX KIRKJUSTARF Hallgrímskirkja. Eldriborgarastarf kl. 13. Leikfimi, súpa, kaffi og spjall. Neskirkja. Kóræfing laugardag kl. 11– 13. Nýstofnaður kór sérstaklega fyrir þá sem hefur lengi langað til að syngja en aldrei þorað. Stjórnandi Steingrímur Þórhallsson organisti. Uppl. og skrán- ing í síma 896 8192. Breiðholtskirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. Kaffi og spjall. Lindakirkja í Kópavogi. Kl. 15 yngri- deildarstarf Lindakirkju og KFUM&K í húsinu á Sléttunni, Uppsölum 3. Krakk- ar á aldrinum 8–12 ára velkomnir. Lágafellskirkja. Barnastarf kirkjunnar, Kirkjukrakkar, fyrir 6 og 7 ára börn er í Lágafellsskóla kl. 13.20–14.30. Um- sjón hefur Þórdís djákni. Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam- komur alla laugardaga kl. 11. Bæna- stund alla þriðjudaga kl. 20. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp Boðun FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. Fríkirkjan Kefas: Í kvöld er 10–12 ára starf kl. 19.30. Samvera, fræðsla og fjör. Hjálpræðisherinn á Akureyri. Kl. 17.30 barnagospel fyrir krakka 4–12 ára. Kl. 10–18 okkar vinsæli flóamarkaður op- inn. Kirkjuskólinn í Mýrdal. Munið sam- veruna í Víkurskóla nk. laugardag kl. 11.15. Rebbi refur kemur í heimsókn. Starfsfólk Kirkjuskólans. Safnaðarstarf Yokohamamótið – landsliðskeppni Tólf af sterkustu pörum landsins munu á laugardaginn hefja keppni í viðamiklu landsliðsmóti, sem standa mun í fimm daga. Efsta parið vinnur sér rétt til að spila á NEC-mótinu í Yokohama í Japan í febrúar næstkomandi, og velja með sér annað par til far- arinnar. Eins og margir muna urðu Íslendingar heimsmeistarar í Yoko- hama árið 1991. Heimsmeistara- keppnin vakti mikla athygli í Japan og er NEC-mótið sprottið upp úr þeim jarðvegi og hefur verið haldið árlega síðan með þátttöku bestu spilara heims. Landsliðskeppnin verður spiluð sem tvímenningur með sveita- keppnisútreikningi, eða svokallaður „butler“. Keppendur munu spila innbyrðis tvöfalda umferð af 8 spila leikjum, samtals 176 spil. Spilamennska hefst kl. 10 á laug- ardag, 11. október. Þá verða spil- aðar þrjár umferðir, en fimm um- ferðir á sunndag og hefst spilamennska einnig kl. 10. Keppn- in fer fram í húsnæði BSÍ, Síðu- múla 37, og eru áhorfendur vel- komnir. Bridsfélag eldri borgara í Hafnarfirði Spilaður var Mitchel-tvímenning- ur þriðjudaginn 7. oktober á sjö borðum. Miðlungur var 168. Úrslit urðu þessi. Norður/suður Sveinn Jensson – Jóna Kristinsdóttir 189 Jón Pálmason – Sverrir Jónsson 174 Kristján Ólafss. – Friðrik Hermannss. 169 Austur/vestur Stefán Ólafsson – Helgi Sigurðsson 208 Jón Rafn Guðm. – Kristín Jóhannsd. 194 Árni Guðmundsson – Hera Guðjónsd. 186 Ekki verður spilað föstudaginn 10. október eða þriðjudaginn 14. október. Næst verður spilað föstu- daginn 17. október. Kristján og Garðar unnu hausttvímenning Bridsfélags Suðurnesja Hausttvímenningi er lokið, úrslit lokakvöldið: Kristján Kristjánss. – Garðar Garðarss.133 Gunnar Guðbj. – Randver Ragnarss. 131 Þorgeir Halldórss. – Garðar Þ. Garðarss. 125 Svo skemmtilega vill til að þetta eru jafnframt lokaúrslit mótsins. Næsta mánudag hefst „sveitarokk“, sveitakeppni 3 átta spila leikir á kvöldi. Ekki þarf að mynda sveitir, aðeins pör. Spilamennska hefst að venju kl. 19.30 á Mánagrund. Brids í Borgarfirði Bridsfélag Borgarfjarðar hóf vetrarstarfið mánudaginn 6. októ- ber með eins kvölds tvímenningi. 16 pör mættu til leiks sem gefur vonir um að veturinn verði líflegur. Fé- laginu hefur bæst liðsauki frá há- skólunum í sveitinni, bæði Land- búnaðarháskólanum á Hvanneyri og Viðskiptaháskólanum á Bifröst. Úrslit kvöldsins urðu eftirfarandi: Kristján Axelsson – Örn Einarsson 257 Lárus Pétursson – Sveinbjörn Eyjólfss. 252 Flemming Jessen – Guðmundur Þorst. 234 Hrefna Jónsdóttir– Þórður Hvanndal 224 Hildur Traustadóttir – Svanhildur Hall 222 Þorsteinn Péturss.– Guðmundur Pét. 219 Meðalskor var 210. Næsta mánudag verður einnig spilaður tvímenningur og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Spilað er í Logalandi og hefst spila- mennska kl. 20.00 Bridsdeild Breiðfirðingafélagsins Vetrarstarf Breiðfirðingafélags- ins hófst sunnud. 5. október. Spiluð voru 22 spil. 12 pör mættu til leiks. Stuttur fundur var haldinn í byrjun. Á fundinum var kosin stjórn deild- arinnar og ákveðið var að Brids- deild Breiðfirðinga sækti um aðild að Bridssambandi Íslands. Úrslit kvöldsins urðu eftirfar- andi. Ingibjörg Haraldsd. – Sigríður Pálsd. 137 Unnar Guðmundss. – Jóhannes Guðm. 134 Birna Kr. Lárusd. – Sturlaugur Eyj. 125 Spilað er á sunnudagskvöldum í Breiðfirðingabúð og hefst spila- mennskan kl. 19. Bridsfélag Akureyrar Fyrsta kvöldið í þriggja kvölda butler Greifatvímenningi félagsins er lokið. 15 pör taka þátt. Staða efstu para er þannig: Stefán G. Stefánsson – Þórólfur Jónass. 49 Björn Þorláksson – Frímann Stefánsson 43 Árni K. Bjarnason – Ævar Ármannsson 39 Stefán Vilhjálmss. – Haraldur Sveinbj. 18 Ragnheiður Har. – Kolbrún Guðveigsd. 14 Soffía Guðmundsd. – Brynja Friðfinnsd. 13 Mótaröð BA fer fram á þriðju- dagskvöldum kl. 19.30 með forgefn- um spilum og keppnisstjórn. Einnig eru spilaðir eins kvölds tvímenn- ingar á sunnudagskvöldum á sama tíma í félagsheimili Þórs, Hamri. Allir velkomnir. Fimmtíu pör hjá Bridsfélagi Reykjavíkur 50 pör taka þátt í Kauphallartví- menningi BR og er staða efstu manna eftir eitt kvöld af þremur þannig: Runólfur Jónss. – Hermann Friðrikss. 1367 Gylfi Baldursson – Steinberg Ríkarðss. 981 Helgi Jónsson – Helgi Sigurðsson 975 Haukur Ingason – Runólfur Pálsson 912 Á þriðjudögum spilar BR lengri mót, en á föstudagskvöldum er spil- aður eins kvölda tvímenningur og er aðstoðað við myndun para á staðnum. BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist) eða á disklingi. Ef greinin er á disklingi þarf út- prentun að fylgja. Nauðsynlegt er að tilgreina símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnu- síma og heimasíma). Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nánari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern látinn einstakling birtist formáli og ein aðalgrein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitnanir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda örstutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 línur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.