Morgunblaðið - 10.10.2003, Side 49

Morgunblaðið - 10.10.2003, Side 49
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 10. OKTÓBER 2003 49 HUNDRAÐ þúsundasti farþegi Ice- land Express kom með flugi félags- ins frá London síðastliðinn laug- ardag. Þar reyndist á ferðinni Evelyn Davis, sem var á leið hingað ásamt Robert eiginmanni sínum í vikuferðalag til að kynnast náttúru Íslands. Sigurborg M. Guðmundsdóttir, þjónustustjóri Iceland Express, af- henti þeim hjónum blómvönd af þessu tilefni, svo og farmiða fyrir tvo hingað til lands. Robert og Evelyn sögðust ákveðin í að koma aftur í júní næstkomandi til að njóta íslenskrar náttúrufegurðar að sum- arlagi. Á þeim sjö mánuðum og sex dög- um sem það tók Iceland Express að flytja fyrstu 100 þúsund farþegana hefur sætanýting félagsins verið 78%. Minnst var hún fyrstu tvo mán- uðina, en fór í rúm 93% í sumar. Í september sl. var sætanýtingin 72%. Hundrað þúsund farþegar með Iceland Express Ljósmynd/Einar Ólason Robert og Evelyn Davis ásamt Sigurborgu M. Guðmundsdóttur, þjónustu- stjóra Iceland Express. Þau fengu farmiða til Íslands frá flugfélaginu. Minningarmót um Valdimar Kr. Valdimarsson Eldri flokkur Breiðabliks stendur fyrir opnu móti á morgun, laugardaginn 11. október kl. 9–11 á Vallargerð- isvelli, til minningar um Valdimar Kr. Valdimarsson vallarvörð. Öll- um er frjálst að taka þátt í mótinu og er keppnisgjaldið 1.000 kr. Skipt verður í lið á staðnum. Boðið verður upp á hressingu og veitt verða verðlaun því liði og ein- staklingum sem þykja hafa skarað fram úr. Ágóðinn af mótinu verður notaður til að afhenda knatt- spyrnudeild Breiðabliks minning- arskjöld um Valdimar. Flóamarkaður Lionsklúbbsins Engeyjar verður um helgina í Lionsheimilinu við Sóltún 20, Reykjavík. Flóamarkaðurinn verð- ur opinn kl. 13–16, á morgun, laug- ardaginn 11. og sunnudaginn 12. október. Til sölu verður fatnaður, bæði notaður og nýr og marg- víslegur annar varningur. Þá verð- ur tombóla með engum núllum o.fl. Allur ágóði af flóamarkaðnum rennur til Barna- og unglingageð- deildar Landspítala (BUGL). Göngudagur fjölskyldunnar í Borgarfirði Ungmennasamband Borgarfjarðar heldur göngudag fjölskyldunnar hátíðlegan með því að boða til göngu um gömlu meg- ineldstöðina í Skarðsheiði á morg- un, laugardaginn 11. október kl. 11. Leiðsögumaður verður Hjalti Franzson. Gengið verður frá Árdal og er gert ráð fyrir að gangan taki um 2–3 tíma. Allir velkomnir. Á MORGUN Al-anon, samtök aðstandenda alkóhólista, bjóða til sporaveislu sunnudaginn 12. október kl. 10–16 í húsnæði Domus Vox, Skúlagötu 30, 2. hæð. Kynnt verða og rædd reynslu- sporin tólf, til að auka skilning þátttakenda á sporavinnunni; leið- inni frá meðvirkni til bata. Þátt- tökugjald kr. 500. Hestamannafélagið Fákur held- ur herrakvöld laugardaginn 11. október og verður húsið opnað kl. 19. Boðið verður uppá fordrykk og kvöldverð, matreiddan af Snorra Birgi Snorrasyni sem m.a. hefur verið yfirmatreiðslumaður í Perl- unni og rak Sticks and sushi. Veislustjóri verður stuðmaðurinn Jakob Frímann Magnússon, ræðu- maður verður borgarfulltrúinn Vil- hjálmur Þ. Vilhjálmsson og Jónína Ben verður með uppistand. Einnig mun fleira verða til skemmtunar. Á miðnætti hefst dansleikur með hljómsveitinni Hunangi ásamt gestasöngvaranum, Skriðjöklinum Ragga Sót og eru þá konur boðnar velkomnar. Forsala aðgöngumiða verður í versluninni Hestar og menn, Lynghálsi 4, og er miðaverð 6.000 kr. Eftir miðnætti er opið fyrir alla á ballið og kostar þá inn kr. 1.000. Einnig verður hægt að nálgast miða eftir kl. 14. á laug- ardag í félagsheimili Fáks. Nýtt nám samhliða starfi Fimmtudaginn 16. október nk. hefst nýtt nám samhliða starfi hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Þetta er Stjórnun og rekstur fyrir sjálfstætt starfandi sérfræðinga, ætlað sérfræðingum með lítinn eða meðalstóran rekstur þ.e. „ein- yrkjum“ í rekstri. Inntökuskilyrði er stúdentspróf eða sambærileg menntun og reynsla í rekstri og stjórnun. Forgang hafa þeir sem hafa lokið háskólaprófi. Námið samsvarar 7,5 einingum á há- skólastigi og nær yfir tvö misseri. Kennslufyrirkomulagið er byggt upp í lotum sem eru alls fimm á 5–8 vikna fresti. Kennt er fimmtu- daga kl. 13–18, föstudaga kl. 9–18 og laugardaga kl. 9–14. Alls er námið 130 kennslustundir. Markmiðið er að nemendur geti aflað sér hagnýtrar þekkingar á stjórnun og rekstri lítilla fyr- irtækja, sem auðveldar fram- kvæmd og ákvarðanatöku varðandi rekstur, fjármál, bókhald, stjórnun og starfsmannamál, markaðs- og þjónustumál. Senda þarf inn skrif- lega umsókn á þar til gerðum eyðu- blöðum sem finna má á vef Endur- menntunar www.endurmenntun.is. Aðalfundur í Félagi áhugamanna um heimspeki verður haldinn fimmtudaginn 16. október kl. 20, í húsnæði Reykjavíkurakademíunn- ar á Hringbraut 121, 3. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf. Einnig verður fjallað um breytingar á samþykktum félagsins o.fl. Nánari upplýsingar á www.heimspeki.hi.is. Á NÆSTUNNI Alþjóðageðheilbrigðisdagur- inn er haldinn 10. október ár hvert. Í ár er dagurinn til- einkaður börnum og ungling- um. Af því tilefni mun Geðrækt standa fyrir geðræktarþingi í Iðnó undir yfirskriftinni: „Meiri hlátur – minni grátur“ með áherslu á það að draga úr þjáningum barna og unglinga í landinu með því að vernda og efla geðheilsu þeirra. Þing- ið fer fram í dag, föstudaginn 10. október, kl. 13–16. Ávarp flytja: Jón Kristjáns- son heilbrigðisráðherra og Sigurður Guðmundsson, land- læknir og formaður Geðrækt- ar. Nýr samstarfssamningur um verkefnið geðrækt verður undirritaður og heimasíða Geðræktar: ged.is verður opn- uð í nýjum búningi. Erindi halda: Kristján Már Magnús- son, sálfræðingur og formað- ur félags foreldra og áhuga- fólks um geðraskanir, Val- gerður Snæland Jónsdóttir, Dóra Guðrún Guðmundsdótt- ir, verkefnastjóri Geðræktar, einnig munu ung kona, sem glímt hefur við kvíðaröskun, og ungur maður með geðhvörf segja frá eigin reynslu. Styrmir Gunnarsson afhendir geðræktarstjörnuna. Á sama tíma í Iðnó verður sýning á listmunum nemenda Dalbrautarskóla við BUGL. Alþjóða- geðheil- brigðis- dagurinn Olíufélagið styrkir UD Olíufélagið hf. hefur styrkt mynd- arlega verkefnið upplýsingatækni í dreifbýli, UD, sem hefur nú fengið Símann til liðs við sig í samstarfs- verkefni til þriggja ára. Mun Síminn bjóða bændum afslátt af ISDN-net- tengingum. Rangt var farið með nafn styrkt- araðilans í blaðinu á miðvikudag. Beðist er afsökunar á því. LEIÐRÉTT Got some teeth Obie Trice MB obieteeth Hole in the head Sugababes MB sugahole Mixed up world Sophie Ellis Bextor MB sophiemix Trouble Pink MB ptrouble Re-Offender Travis MB reoffend Pimp 50 Cent MB 50pimp Next summer Fu:el MB nextsum Time is running out Muse MB musetime Special needs Placebo MB specneeds Into you Fabulosu ft. Ashanti MB intoyou Gay bar Electric 6 MB gaybar Seven Nation Army White Stripes MB 7nation Eat you alive Limp Bizkit MB eatualive Traffic Tiesto MB titraffic Left of center Dewi MB leftofc Love@First sight Mary J. Blige MB loveat1 Just because Jane’s Addiction MB justbecau Losing grip Avril Lavigne MB losingri MB penninn MB banzi MB no MB airh MB apstr MB bacpac MB mass MB groov MB funkg MB dageez MB acht MB bigf MB brntw MB crazb MB btch Þú finnur rétta tóninn á mbl.is Pantaðu með SMS í 1910 Hver tónn/tákn kostar 99 kr. BÚNAÐARBANKINN hf. hefur opnað nýtt útibú í Árbæjarhverfi í Hraunbæ 117. Með þessu er komið til móts við viðskiptavini bankans í ört stækkandi úthverfum Reykja- víkurborgar. Í tilefni af opnun útibúsins í Árbæ veitti Ólafur Hilmar Sverrisson, úti- bússtjóri Búnaðarbankans, Árbæj- arskóla og Félagsþjónustunni Hraunbæ 105, félagsstarfi aldraða, styrki til tækjakaupa að fjárhæð 100 þúsund krónur hvoru um sig. Þorsteinn Sæberg, skólastjóri Árbæjarskóla, ásamt fulltrúum nemenda og Andrea Þórðardóttir, forstöðumaður Félagsþjónust- unnar, ásamt fulltrúa fyrir hönd fé- lagsstarfs aldraða, veittu styrkj- unum viðtökur. Morgunblaðið/Jim Smart Búnaðarbankinn opnar útibú í Árbæ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.