Morgunblaðið - 15.10.2003, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Ráðstefna um öryggisbresti á Netinu
Aðalatriðið að
tryggja öryggi
ÓGNARÖLD á Net-inu er yfirskriftráðstefnu, sem
Skýrslutæknifélag Íslands
heldur um öryggisbresti á
Netinu og varnir gegn
þeim, þriðjudaginn 21.
október næst komandi.
Ráðstefnan verður á Nord-
ica hóteli frá klukkan 13 til
16.30 og er fyrst og fremst
ætluð rekstraraðilum upp-
lýsingakerfa, stjórnendum,
netstjórum, tæknimönnum
og öðrum áhugasömum um
öruggan rekstur. Skráning
stendur yfir hjá Skýrslu-
tæknifélaginu og hægt er
að skrá sig með því að
senda póst á sky@sky.is.
Þátttökugjald fyrir fé-
lagsmenn Skýs er 9.900 kr.,
14.900 kr. fyrir utanfélags-
menn og 3.900 kr. fyrir nemendur
gegn framvísun skólaskírteinis.
Ráðstefnustjóri verður Guðbjörg
Sigurðardóttir, formaður sam-
ráðsnefndar um upplýsingasam-
félagið, en í undirbúningsnefnd
eru Björn Traustason, Svana Hel-
en Björnsdóttir, Erlendur S. Þor-
steinsson og Guðmann Bragi Birg-
isson. Svana Helen Björnsdóttir er
talsmaður nefndarinnar:
„Ráðstefnan Ógnaröld á Netinu
er haldin til þess að kynna og fjalla
um ógnir á Netinu, orsakir og eðli
nýlegra árása á upplýsingakerfin.
Um 10% af öllum tölvupósti sem
berst til landsins eru sýkt og von er
á fleiri veirum, fleiri ógnunum, eins
og til dæmis So Big Brother. Með
ráðstefnunni erum við að búa okk-
ur undir komu veira sem væntan-
legar eru fyrir áramót en um er að
ræða meiri ógnun en áður, hvernig
best sé að bregðast við þessum
árásum og gera grein fyrir nauð-
synlegum vörnum.“
– Í hverju er dagskráin fólgin?
„Ráðstefnan er byggð þannig
upp að byrjað er á að kynna nýj-
ustu veirurnar, So Big og fleiri,
sem ollu óskunda í haust, og farið
verður yfir þær rekstrartruflanir
sem hafa orðið að undanförnu af
völdum veira, orma og annarra
árása á tölvukerfi fyrirtækja. Í ljós
kom að margir eru illa undir það
búnir að upplifa þjónustusynjun.
Menn treysta á þessi samskipti og
tengingar í upplýsingakerfunum,
en veirurnar virðast trufla kerfin,
skemma gögn og þær geta líka
tekið upp alla bandvídd þannig að
menn hreinlega fá engin sam-
skipti. Þá verður það sem kallað er
þjónustusynjun. Þá stöðvast sam-
skiptin. Guðmundur Guðnason,
deildarstjóri netþjónustu hjá
Skyggni, fjallar um rekstur upp-
lýsingakerfa og greinir frá hvaða
áhrif nýlegar árásir hafa haft á
rekstur upplýsingakerfa og hlut-
verk starfsmanna í öryggismálum.
Friðrik Skúlason, veirusérfræð-
ingur hjá Friðriki Skúlasyni ehf.,
nefnir erindi sitt Veirur og rusl, en
hann talar um nýtt vandamál sem
er ruslpóstur, síbreytilegt eðli
veira og samspil veiruvarna, stýri-
kerfisuppfærslna og
eldveggja. Öryggisút-
búnaður eins og til
dæmis eldvarnaraukar
þurfa að vera rétt upp
settir. Það er ekki nóg
að kaupa þennan búnað, því örygg-
ið felst í réttum uppsetningum, og
farið verður í saumana á þeim.
Gísli Rafn Ólafsson, sérfræðingur
hjá Microsoft á Íslandi, ætlar að
kynna það sem er framundan í ör-
yggismálum fyrirtækisins og
hvernig það ætlar að styrkja ör-
yggið í kerfum sínum. Guðmundur
Þór Jóhannsson, netsérfræðingur
CCNT hjá Sensa, ræðir um stökk-
breyttar ógnanir og fjallar um
varnir, eldveggi og neteftirlits-
kerfi. Loks kynna Hrafnkell Gísla-
son, forstjóri Póst- og fjarskipta-
stofnunar, og Hörður Halldórsson,
forstöðumaður alþjóðadeildar fyr-
irtækisins, stefnumótun þess og
hlutverk í málefnum net- og upp-
lýsingaöryggis. Þeir greina frá
nýju hlutverki Póst- og fjarskipta-
stofnunar í heiminum og á Íslandi,
sem felst í því að einn aðili á mark-
aði getur leiðbeint öðrum og haldið
utan um það sem er að gerast á
þessu sviði. Rætt hefur verið um
að stofna íslenskan CERP-hóp,
sem fjallar sérstaklega um upplýs-
inga- og fjarskiptaöryggi, en auk
þess er ýmislegt að gerast hjá Evr-
ópusambandinu sem Póst- og fjar-
skiptastofnun ætlar að kynna.
Stefnumörkunarvinna er hafin hjá
stofnuninni og verður hún kynnt.
Kallað verður eftir viðbrögðum
markaðarins, fyrirtækja og stofn-
ana, við þessu frumkvæði, en hug-
mynd stofnunarinnar er að aðlag-
ast markaðnum á Íslandi og mæta
þörfum okkar.“
– Hverju skilar svona ráðstefna?
„Ég held að þetta sé mjög gott
tækifæri til þess að hlusta á áhuga-
verð erindi. Skýrslutæknifélagið
heldur reglulega ráðstefnur um ör-
yggismál, en þörfin fyrir umfjöllun
á þessu sviði er mjög mikil, vegna
þess að margt í okkar lífi byggist á
því að öryggið sé í lagi. Fyrirtæki
borga til dæmis opinber
gjöld í gegnum rafræn
viðskipti og heilbrigðis-
þjónustan er að færast
út í að nota almennt
gagnaflutningsnet. Ef
við ætlum að geta byggt þjónustu
með því að nota almennt gagna-
flutningsnet þá verðum við að geta
tryggt öryggið á þessu neti.
Aðalatriðið með ráðstefnunni er
að tryggja öryggi þegar til fram-
tíðar er litið og upplýsa um ógnir
svo hægt sé að taka á veilum, fyr-
irbyggja skaðann áður en hann
verður.“
Svana Helen Björnsdóttir
Svana Helen Björnsdóttir er
framkvæmdastjóri verkfræðifyr-
irtækisins Stika ehf., sem er ráð-
gjafarfyrirtæki um öryggismál.
Hún útskrifaðist sem verkfræð-
ingur frá Tækniháskólanum í
Darmstadt í Þýskalandi, Techn-
ische Universität Darmstadt,
1987 og stofnaði Stika 1992.
Svana Helen er gift Sæmundi E.
Þorsteinssyni, verkfræðingi og
forstöðumanni rannsóknadeildar
Landsíma Íslands. Þau eiga þrjá
syni, tvíburana Sigurð Finnboga
og Þorstein, 7 ára, og Björn
Orra, 10 ára.
Mikilvægt að
fyrirbyggja
skaða í tíma
Þetta ætlar að taka fljótt af, bara meiri hvítkjötssúpu, systir.
VEIÐIRÉTTAREIGENDUR við
Svartá í Húnavatnssýslu hafa leigt
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur ána
til næstu þriggja ára. Hafralónsá í
Þistilfirði hefur verið leigð hópi
húsvískra veiðimanna. Báðar árnar
skipta því um hendur, því Veiði-
félagið Búð leigði áður Svartá og
Lax-á hafði með Hafralónsá að
gera. Þá er ekki búið að ganga frá
smáatriðum varðandi Fnjóská í
Eyjafirði, en flest bendir til þess að
Stangaveiðifélagið Flúðir í sam-
vinnu við SVFR endurleigi ána.
Fjöldi tilboða
Alls bárust átta tilboð í laxa-
svæði Svartár og var SVFR með
það hæsta, upp á rúmar 9 millj-
ónir. Var tilboð SVFR mjög naum-
lega hærra en tilboð frá Lax-á.
Bjarni Ómar Ragnarsson, formað-
ur SVFR, sagði í samtali við Morg-
unblaðið að þótt leiguupphæðin
væri mikil yrði verð á veiðileyfum
ekki hækkað fyrir komandi sumar.
Bjarni sagði ennfremur að sam-
vinna væri við Flúðir um leigu á
Fnjóská og benti flest til þess að sú
tilhögun gengi eftir. Um Hafra-
lónsá í Þistilfirði er það að segja að
hún var leigð hópi húsvískra veiði-
manna og var leiguupphæðin 9,5
milljónir. Þar var Lax-á aftur
naumlega lægri með næsthæsta til-
boð.
Gjöfult sumar
Vertíðin í Skógá var gjöful, en
þar veiddust alls 1.269 fiskar í ánni
sjálfri auk þverárinnar Kverár.
Auk þess veiddust 202 fiskar í
Skógtjörn. Mest er hér um sjó-
bleikju að ræða og var fiskur bæði
smár og stór og allt þar á milli.
Stærstu bleikjur upp í 10 pund og
veiddust þó nokkrar á bilinu 6 til
10 pund. Ennfremur veiddust fá-
einir tugir laxa og voru margir
þeirra stórir. Var laxveiðin í stíl
við það sem búist var við, en seiða-
sleppingar voru litlar á síðasta
sumri og fiskur að mestu stórlax
úr sleppingu 2001. Alls veiddust
670 fiskar á flugu og var Heima-
sætan best með 146 fiska og Pea-
cock með kúluhaus með 93 stykki.
Sveinn Óskarsson með 16,2 punda
hæng, 97 cm, sem hann veiddi í
Skógá á lokadegi um mánaðamótin.
Svartá til SVFR
fyrir 9 milljónir
ERU
ÞEIR AÐ
FÁ’ANN?
SKÁKMAÐURINN Sævar
Bjarnason (2.284 stig) náði 2.–4.
sæti á alþjóðlega mótinu í Klakks-
vík í Færeyjum og hækkar vænt-
anlega nokkuð í stigum með góðri
frammistöðu sinni á mótinu. Svíinn
Johan Erikson (2.414) sigraði á
mótinu með 6,5 vinning.
Sævar hlaut sex vinninga og
varð jafn skoska stórmeistaranum
Colin McNab (2.379) og danska al-
þjóðlega meistaranum Klaus Berg
(2.434).
Sævar í
2.–4. sæti í
Klakksvík
ATVINNA
mbl.is