Morgunblaðið - 15.10.2003, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
UNDANFARNAR vikur hafa Ís-
lendingar orðið vitni að einhverj-
um þeim furðulegustu fréttum of-
an úr efstu byggðum landsins. Í
einu erfiðasta vinnuumhverfi á Ís-
landi eru erlendir farandverka-
menn við störf við ömurlegar að-
stæður. Þeir hafa fellt niður vinnu
sína því vart er unnt að segja að
þeir hafi verið almennilega vinnu-
færir miðað við aðbúnaðinn sem
þeim er boðið upp á. Skortur á
skjólfatnaði og góðum vinnuskóm.
Í byrjun 21. aldar þegar öll skil-
yrði eru til að aðbúnaður og
starfsskilyrði verkamanna gætu
verið óaðfinnanleg, reynir erlendi
verktakinn að spara sem mest eins
og á verstu krepputímum. Kannski
að þessa fyrirtækis verði minnst í
sögu Íslands á líkan hátt og
Hörmangaranna dönsku, verslun-
arfélagsins sem sýndi Íslendingum
ótrúlega óbilgirni, kúgun og
gegndarlausa gróðahyggju um
miðja 18. öldina.
Franski rithöfundurinn Pierre
Loti (duln. f. Julien Viaud) varð
heimsfrægur fyrir bók sína, Pêch-
eur d’Islande sem fyrst kom út ár-
ið 1886. Þá bók eignuðst Íslend-
ingar fyrst 1930 á eigin tungu, Á
Íslandsmiðum, í ágætri þýðingu
Páls Sveinssonar kennara. Mjög
greinargóðar lýsingar á erfiðum
starfskjörum og vinnuumhverfi
franskra sjómanna undir lok 19.
aldar á Íslandsmiðum eru í bók
þessa franska rithöfundar. Hún
varð tilefni að franska ríkisstjórn-
in reyndi eftir megni að bæta að-
stöðu þessara fiskimanna sem sáu
hvorki vor né sumar í fagurri
heimabyggð sinni meðan þeir
drógu fisk við strendur Íslands.
Var fyrst sent spítalaskip til lands-
ins en síðar voru byggð sjúkrahús
á Fáskrúðsfirði og í Reykjavík.
Mætti efnilegur upprennandi
rithöfundur setja saman sögu um
erlendu farandverkamennina aust-
ur á öræfum þar sem verið er að
eyðileggja íslenskar náttúruperlur
í þágu gróðahyggju erlendra stór-
fyrirtækja þvert gegn vilja tugþús-
unda Íslendinga.
GUÐJÓN JENSSON,
Arnartanga 43,
Mosfellsbæ.
Erlendir farand-
verkamenn á
öræfum Íslands
Frá Guðjóni Jenssyni
Í KVÖLD sunnudagskvöld (12.
október) kom í fréttum sjónvarps-
ins á RÚV að Pétur Þór fyrrver-
andi galleríeigandi hefði sent inn
athugasemd við frétt fyrr í vikunni
þar sem hann var nafngreindur í
tengslum við meint falsað verk eft-
ir Svavar Guðnason sem var boðið
upp í Kaupmannahöfn og vildi Pét-
ur Þór koma á framfæri þeim at-
hugasemdum að hann væri ekki
viðriðinn þetta verk. Ég sem
myndlistarmaður hef fylgst með
svokölluðu stóra málverkafölsun-
armáli og núna þegar ég heyrði
þessa litlu frétt í lok fréttatímans
gat ég ekki orða bundist og vildi
skrifa nokkrar línur.
Ég er standandi bit á þessum
fréttaflutningi RÚV. Þessi maður
Pétur Þór er nafngreindur við
þessa frétt og ef hann hefur ekki
komið nálægt verkinu og var ekki
að selja það, af hverju er hann þá
nafngreindur? Eins og ég skildi
fyrstu fréttina í vikunni um þetta
verk kom fram í viðtali við for-
vörðinn að það hefði verið rann-
sakað og í því fundist plastmálning
tengd Pétri Þór, en svo kom önnur
frétt um að Tryggva listmálara í
Kaupmannahöfn hefði ekki fundist
það ekta, og manni er spurn, hvað
er rétt við þennan fréttaflutning?
Ég verð nú að segja fyrir mig að
enginn maður er sekur fyrr en
hann er sakfelldur og ekki veit ég
betur en að stóra málverkaföls-
unarmálið sé ennþá hjá Hæstarétti
og því engin niðurstaða fengist
ennþá. Þegar maður sér svona
fréttaflutning fer maður að efast
um að nokkur geti fengið rétta
niðurstöðu í dómi úr svona einelti,
það geti ekki fengist rétt niður-
staða ef fjöldinn og fréttamenn eru
orðnir svo heilaþvegnir af frétta-
flutningi að enginn trúir öðru en
sekt þessra aðila. Fyrir mig á list-
in að vera einlæg en ekki fölsuð af
neinu tagi og fyrir mig eiga þessir
aðilar að fá réttláta meðferð en
ekki frumskógarlögmál einhverra
prímusmótora sem koma fréttum í
blöðin. Finnst mér nóg komið af
þessu einelti og ættu menn bara
að bíða niðurstöðu eins og aðrir.
Ef menn verða varir við fölsuð
verk eiga þeir að kæra þau til lög-
reglu en ekki til RÚV.
LÁRUS H. LIST,
myndlistarmaður,
Akureyri.
Fréttaflutn-
ingur RÚV
Frá Lárusi H. List