Morgunblaðið - 16.10.2003, Síða 11

Morgunblaðið - 16.10.2003, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2003 11 undirföt 20% afsláttur Kringlunni 8-12 - www.olympia.is - sími 553 3600 Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Heimsferðir bjóða þér ævintýraferð með sérflugi sínu til einnar fegurstu eyju Karíbahafsins, Dóminíska lýðveldisins. Hér getur þú valið um glæsilegan aðbúnað, spennandi kynnisferðir og notið lífsins við fegurstu aðstæður. Glæsileg 4 og 5 stjörnu hótel í boði og í öllum tilfellum nýtur þú traustrar þjónustu farar- stjóra Heimsferða sem bjóða þér spennandi kynnisferðir á meðan á dvölinni stendur. Síðustu sætin Verð kr. 69.950 Flugsæti og skattar. Verð kr. 89.950 Flug, skattar, gisting á Barcelo Colonia, 7 nætur. Íslensk fararstjórn. Karíba- hafið 13. nóvember frá kr. 69.950 Sérflug Heimsferða Munið Mastercard ferðaávísunina Glæsihótel við ströndina MIKIL óánægja er meðal stjórnenda í mörgum framhaldsskólum landsins vegna fjárlagafrumvarpsins fyrir næsta ár, þar sem fjárveitingar miðist við töluvert færri nemendur en raun- verulega stunda nám við skólana. Í gildi eru svonefndir skólasamningar á milli skólanna og menntamálaráðu- neytis sem kveða m.a. á um að fjár- veitingar skuli miðast við tiltekinn fjölda nemenda. Ingibjörg Guðmundsdóttir, skóla- meistari og formaður Félags ís- lenskra framhaldsskóla, segir að um niðurskurð sé að ræða í frumvarpinu. Ekki liggi nákvæmlega fyrir um hversu háa fjárhæð sé að ræða en ætla megi að a.m.k. 600–800 milljónir vanti upp á svo hægt sé að veita öllum þeim nemendum sem stunda nám við skólana þá þjónustu sem skólarnir hafa skuldbundið sig til að veita. Segja vantalda nemendur skipta hundruðum Áætluð útgjöld vegna kennslu í framhaldsskólum eru byggðar á reiknilíkani fyrir fjárveitingar til skól- anna og samningum sem mennta- málaráðuneytið gerði við skólana fyr- ir nokkrum árum. Að mati skólameistara sem rætt var við má gera ráð fyrir að alls séu nokkrum hundruðum fleiri nemendur við nám í framhaldsskólum landsins en gert er ráð fyrir í framlögum til kennslu í framhaldsskólum í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Ákveðið hefur verið að stjórnir Fé- lags íslenskra framhaldsskóla (FÍF) og Skólameistarafélags Íslands muni óska eftir fundi með menntamálaráð- herra vegna málsins. „Staðan er mjög slæm. Okkur sýnist að það vanti heil- mikið fé til þess að reka framhalds- skólana,“ segir Ingibjörg. Að sögn hennar virðist ekki vera lagt það fé til framhaldsskólanna í fjárlagafrum- varpinu sem reiknilíkanið geri ráð fyrir. „Það er óumdeilt að nemendum er að fjölga í framhaldsskólunum,“ segir hún. Ingibjörg segir erfitt að meta á þessari stundu hvernig skól- arnir geta brugðist við þessum fjár- hagsvanda. „Það er okkar skylda að reyna að halda okkur innan fjárlag- anna og það verður að finna út úr því í samráði við menntamálaráðuneytið hvað er til ráða.“ Yngvi Pétursson, rektor Mennta- skólans í Reykjavík, segist ekki sjá betur en töluvert vanti upp á að fjár- veitingar til skólans séu í samræmi við reiknilíkanið. Þar sé bæði nem- endafjöldinn og mat á kostnaði van- talið. „Hjá okkur virðist vera um að ræða vanmat um 50 nemendaígildi,“ segir hann og bendir á að í gildi sé skólasamningur sem gerður er við skólana og inntaka nemenda í skólana miðist við skólasamninginn hverju sinni. Spurður hvernig brugðist verði við þessu segist Yngvi ekki geta séð hvernig reka eigi skólann miðað við óbreyttar forsendur. Menn standi þá frammi fyrir því hvort skerða eigi þjónustuna. „Ég veit ekki hvernig brugðist yrði við ef við fækkuðum nemendum. Verða þá nemendaígildin skorin niður? Það hefði aftur í för með sér minni fjárveitingar. Eina leiðin til að bregðast við þessu er þá að skerða einhverja stoðþjónustu.“ Kostnaður á hvern framhalds- skólanemanda á ári skv. reiknilíkan- inu (nemendaígildi) er breytilegur á milli skólagerða og er meiri í verk- námsskólum en hreinum bóknáms- skólum. Þannig er t.d. kostnaður á hvert nemendaígildi í MR 427.000 skv. áætlun fjárlagafrumvarps. Reiknilíkanið fer í gegnum „þjöppun“ í fjármálaráðuneyti Ólafur Sigurðsson, skólameistari Borgarholtsskóla, segir reiknilíkanið sjálft hafa þann kost að með notkun þess sé gerð tilraun til fagmennsku í stjórnsýslu. Hins vegar skorti á að fjárveitingarvaldið viðurkenni líkanið sem forsendu fyrir fjárveitingum til skólanna. „Það virðist skorta skilning á því. Nemendum hefur fjölgað og þær tölur berast frá skólunum til menntamálaráðuneytisins sem kem- ur þeim áfram til fjármálaráðuneyt- isins. En þar eru þær einfaldlega skornar niður og á reiknilíkanið er beitt það sem kallað er „þjöppun“, sem er nýtt orð yfir niðurskurð á því sem út úr reiknilíkaninu kemur,“ seg- ir Ólafur. Að sögn Ólafs er bæði þörf á aukn- um fjárveitingum á fjáraukalögum fyrir yfirstandandi ár og hækkun fjárframlaga í fjárlagafrumvarpi næsta árs. Ljóst sé að ef frumvarpið verður óbreytt að lögum þurfi að beita verulegum niðurskurði í fram- haldsskólum. Hann kveðst þó gera sér vonir um að úr rætist. „Okkar samkomulag og samband við mennta- málaráðuneytið hefur verið mjög gott og ég hef fulla trú á að þar vilji menn vinna okkur vel,“ segir hann. Fjárhagsvandinn er mismunandi mikill á milli skóla. Að sögn Hjalta Jóns Sveinssonar, skólameistara Verkmenntaskólans á Akureyri, hef- ur staða verknámsskóla batnað í kjöl- far breytinga sem gerðar voru á reiknilíkaninu í fyrra þeim til hags- bóta. „Við sjáum meiri sanngirni í þessum útreikningum en áður var og erum þess vegna bjartsýnni núna. Fjárlagafrumvarpið endurspeglar það en við fáum svolitla aukningu á milli ára,“ segir hann. Ólafur H. Sigurjónsson, aðstoðar- skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla, segir að þar geti menn nokk- uð vel við unað miðað við marga aðra framhaldsskóla sem eigi við stærri vanda að glíma. Í fjárlagafrumvarp- inu sé gert ráð fyrir nokkurri aukn- ingu framlaga miðað við fjárlög yfir- standandi árs. Vandinn sé hins vegar sá að fjárveitingin sé um 4% lægri en sem nemur kostnaði við rekstur skól- ans á árinu 2002. Fjárveitingin miðist við 800 ársnemendur við skólann en í reynd eru skráðir nemendur við skól- ann nálægt 900 talsins. „Það er vand- inn sem við stöndum frammi fyrir,“ segir hann. Framlög til kennslu í framhalds- skólunum í fjárlagafrumvarpi næsta árs nema rúmum 9,6 milljörðum kr. á næsta ári án tillits til tekna af skrán- ingargjöldum. Miðað er við í frum- varpinu að ársnemendur verði 16.220 á næsta ári og er það nálægt 400 árs- nemenda fjölgun frá fjárlögum yfir- standandi árs eða 2,5%. Stjórnendur framhaldsskóla gagnrýna fjárlagatillögur Telja 600–800 milljón- ir vanta í frumvarpið Skólameistarar telja að töluvert vanti upp á að fjárveitingar til framhaldsskóla í fjárlagafrumvarpi næsta árs séu í samræmi við fjölda nemenda og reiknilíkan sem framlögin eigi að miðast við. Forsvarsmenn þeirra vilja fund með ráðherra vegna málsins. Moggabúðin Músarmotta, aðeins 450 kr. Moggabúðin Reiknivél, aðeins 950 kr.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.