Morgunblaðið - 16.10.2003, Page 25

Morgunblaðið - 16.10.2003, Page 25
LISTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 16. OKTÓBER 2003 25 EITT metnaðarfyllsta verkefni Sin- fóníuhljómsveitar Íslands hin síðari ár er sú fyrirætlun að leika allar sin- fóníur Dmítrí Sjostakovitsj, alls fimmtán talsins, á næstu þremur til fjórum starfsárum. Fyrstu þrjár sin- fóníur hans eru á dagskrá á tónleik- unum í kvöld kl. 19.30. Verkefnið er hugarfóstur aðalhljómsveitarstjór- ans, hins unga Breta Rumons Gamba, sem er nú enn frekar farinn að setja mark sitt á starf hljómsveit- arinnar, en hann horfir nú fram á annað starfsár sitt sem karlinn í brúnni og mun stjórna á tónleik- unum í kvöld. Söngsveitin Fílharm- ónía tekur þátt í flutningi á 2. og 3. sinfóníunni undir stjórn Ólivers Kentish. Rumon Gamba segir að nokkrar ástæður hafi legið til grundvallar þeirri löngun hans að flytja Sjost- akovitsj „allan“. „Árið 2006 verður öld liðin frá fæðingu Sjostakovitsj, og mér fannst vert að minnast þess með flutningi sinfóníanna. Og þar sem þær eru fimmtán talsins er kjörið að hefja leikinn nú og leika nokkrar sinfón- íur á ári þangað til. Í öðru lagi eru sinfóníur Sjost- akovitsj verk sem ég tel að Sinfón- íuhljómsveit Íslands geti leikið mjög vel, – og auðvitað langar mig að hljómsveitin leiki vel. Hljómsveitin lék 8. sinfóníuna undir minni stjórn fyrir tveimur árum, og það gekk af- skaplega vel, þannig að það hafði sitt að segja um að hugmyndin er orðin að veruleika.“ Rumon Gamba segist sjálfur hafa mikið dálæti á verkum Sjostakovitsj, og segir það mikla upplifun fyrir sig í hvert sinn sem hann flytji eitthvert þeirra. „Það er sagt um aðra og þriðju sinfóníuna að þær séu ekki meðal bestu sinfónískra verka – en ég finn þó margt áhugavert í þeim sem ég hef ánægju af að vinna með. Ég hef yndi af sinfóníum Sjostakov- itsj og finnst alltaf gaman að flytja þær.“ Ekki sinfóníur – strangt til tekið Haydn samdi meira en hundrað sinfóníur á ferli sínum meðan önnur tónskáld semja enga. Fimmtán sin- fóníur þóttu því talsverð afköst á síðustu öld, þegar tónskáld voru í ríkum mæli farin að snúa sér að ann- ars konar tónsmíðum og óhefð- bundnum formum í hljómsveit- artónlist. Sinfónían hefur löngum þótt tákn sígildrar tónlistar ekkert síður en skáldsagan er tákn bók- menntanna. En hvað geta fimmtán sinfóníur sagt okkur um þróun eins tónskálds? „Við höfum núna verið að vinna vel í fyrstu þremur sinfóníum Sjost- akovitsj. Sú fyrsta er mikið meist- araverk, en í þeim tveimur næstu fær maður á tilfinninguna að hann hafi ekki alveg vitað hvernig hann ætti að höndla þetta stóra form. Hann kallar verkin sinfóníur, en strangt til tekið eru þau það ekki. Sjostakovitsj langaði til dæmis að prófa að semja sinfóníu án þess að nokkurt stef yrði endurtekið, – og það er er í sjálfu sér mjög ósinfón- ískt. Við sjáum tónskáld sem hefur þegar samið meistaraverk á þessu sviði, og er að leita að nýjum farvegi fyrir sína sinfónísku rödd, hvort sem við teljum þá leit vel heppnaða eða ekki; – það er þess sem hlustar að dæma um það. Í annarri og þriðju sinfóníunni eru þó ýmis merki um það sem átti eftir að koma fram í seinni sinfóníum Sjostakovitsj. Eins og hjá Mahler er hljómur náttúrunn- ar alltaf nærtækur, – hjá Sjostakov- itsj heyrir maður alltaf hans innra sjálf, – hjartsláttinn. Þú heyrir ein- lægt og heiðarlegt tónskáld sem semur frá hjartanu. Eftir því sem á sinfóníurnar líður heyrum við þetta æ betur – hvernig tilfinningar hans og erfið persónuleg staða í sögunni birtast í þeim.“ Lengi var talið að Sjostakovitsj hefði sjálfur afneitað sinfóníum sín- um númer tvö og þrjú, og þær heyrðust ekki oft. En seinna á ævi sinni samþykkti hann þó flutning þeirra. „Hann sagði aldrei orð um það hvort hann væri sáttur við þær eða ekki, og við vitum ekki hvort hann raunverulega dró þær til baka eða þá hvers vegna. Í það minnsta fleygði hann þeim ekki, og var síðar ánægður með að þær væru fluttar. Þær eru þó engan veginn jafn góðar og þær sem á eftir komu.“ Gagnrýnin bugaði hann ekki Sjostakovitsj átti erfitt upp- dráttar í heimalandi sínu, Sovétríkj- unum, hann var ýmist úthrópaður fyrir tónsmíðar sínar af yfirvöldum eða lofaður. Rumon Gamba segir þennan þátt í lífi tónskáldsins mik- ilvægan þegar horft er til tónsmíð- anna. „Hann var mjög taugaveikl- aður, hræddur og kvíðinn, en þó mjög sterkur í verkum sínum. Trú- lega hafa skoðanir hans verið mjög afdráttarlausar, en hann þorði ekki, eða gat ekki berað þær. Við heyrum þessa taugaspennu í verkum hans. Það er erfitt fyrir okkur nútildags að ímynda okkur hvernig líf hans var, en þessir hlutir skiptu hann miklu, og buguðu hann næstum því, eftir að hann samdi fjórðu sinfón- íuna og fyrstu óperuna, þegar hann var úthrópaður persona non grata. Fyrir svo veiklaðan mann hlýtur það að hafa verið mikið áfall. Hann sat þó við sinn keip og hélt áfram að semja ótrauður. Margir segja fimmtu sinfóníuna svar hans við þeirri óbilgjörnu gagnrýni sem hann fékk í kjölfar þeirrar fjórðu, en fyrir mér er það ekki svo. Þar er hann samur við sig, – semur frá hjartanu, kannski undir rós, en alltaf sannur og samur við sig.“ Sinfóníur Sjostakovitsj fimmtán ná yfir allan tónsmíðaferil hans, frá 1925 til 1971. Sinfóníuhljómsveit Íslands flytur allar sinfóníur Sjostakovitsj á þremur árum Við heyrum alltaf hans innra sjálf – hjartsláttinn Morgunblaðið/Ásdís „Þú heyrir einlægt og heiðarlegt tónskáld sem semur frá hjartanu.“ Rumon Gamba, aðalhljómsveitarstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands, tekst á við allar sinfóníur Sjostakovitsj með hljómsveitinni á næstu þrem árum. mbl.isFRÉTTIRwww.opera.is Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar listmálara og Ástu Eiríksdóttur Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur óskar hér með eftir umsóknum um styrk úr sjóðnum. Styrkurinn er að upphæð kr. 300.000 og veitist ungum, efnilegum myndlistarmanni. Eftirfarandi upplýsingar og gögn þurfa að fylgja umsókninni: Nafn umsækjanda, kennitala, heimilisfang og símanúmer, þrjár til fimm ljósmyndir eða litskyggnur af verkum umsækjanda ásamt ítarlegum náms- og listferli. Umsóknir merktar: Styrktarsjóður Svavars Guðnasonar og Ástu Eiríksdóttur, sendist fyrir 1. nóvember til Listasafns Íslands, P.O. Box 668, 121 Reykjavík. Í dómnefnd sitja: • Ólafur Kvaran, safnstjóri Listasafns Íslands, s. 515 9600. • Björg Atla, SÍM, s. 551 7706. • Halldór Björn Runólfsson, LHÍ, s. 551 0131.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.