Morgunblaðið - 05.11.2003, Blaðsíða 37
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. NÓVEMBER 2003 37
Bústaðakirkja. Starf eldri borgara. Kl. 13–
16.30. Handavinna, spilað, föndrað. Börn
úr Fossvogsskóla koma í spilabingó. Þeir
sem óska eftir að láta sækja sig fyrir sam-
verustundirnar láti kirkjuverði vita í síma
553 8500.
Dómkirkjan. Hádegisbænir kl. 12.10.
Léttur málsverður á eftir. Prestarnir taka
við fyrirbænum í síma 520 9700.
Grensáskirkja. Samverustund aldraðra kl.
14. Biblíulestur, bænagjörð, kaffi og spjall.
Hallgrímskirkja. Morgunmessa kl. 8. Hug-
leiðing, altarisganga, léttur morgunverður.
Opið hús fyrir foreldra ungra barna kl. 10–
12. Samverustund fyrir 6 ára kl. 14.30.
Samverustund fyrir 7–9 ára kl. 15.30.
Samverustund fyrir 10–12 ára kl. 17. Tólf
sporin – andlegt ferðalag kl. 20.
Háteigskirkja. Bænaguðsþjónusta kl. 11.
Súpa og brauð borið fram í Setrinu kl. 12.
Brids í Setrinu kl. 13–16. Kvöldbænir kl.
18.
Langholtskirkja. Kl. 12.10 kyrrðarstund
og bænagjörð með orgelleik og sálma-
söng. Kl. 12.30 súpa og brauð (300 kr.) Kl.
13 – 16 opið hús eldri borgara. Söngur,
tekið í spil, upplestur, föndur, spjall, kaffi-
sopi o.fl. Allir eldri borgarar velkomnir. Þeir
sem ekki komast á eigin vegum geta hringt
í kirkjuna og óskað eftir því að verða sóttir.
Síminn er 520 1300.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn kl. 10
undir stjórn Aðalbjargar Helgadóttur. Nýjar
mömmur velkomnar með börnin sín.
Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað
frá kirkjudyrum kl. 10.30 alla miðvikudags-
morgna. Kirkjuprakkarar kl. 14.10. Starf
fyrir 1.–4. bekk. Umsjón Aðalheiður Helga-
dóttir, hjónin Kristjana H. Þorgeirsdóttir
Heiðdal og Geir Brynjólfsson auk sr.
Bjarna. Fermingartími kl. 19. Unglinga-
kvöld Lauganeskirkju kl. 20 (8. bekkur).
Neskirkja. Foreldramorgunn kl. 10–12.
Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lárusdótt-
ir. 7 ára starf kl. 14.30. Sögur, söngur, leik-
ir og föndur. Uppl. og skráning í síma
511 1560. Opið hús kl. 16. Biblíulestur kl.
17. Lesnir verða kaflar úr Opinberunarbók
Jóhannesar. Umsjón sr. Frank M. Halldórs-
son. Fyrirbænamessa kl. 18. Prestur sr.
Frank M. Halldórsson.
Seltjarnarneskirkja. Kyrrðarstund í hádeg-
inu kl. 12. Altarisganga. Léttur hádegis-
verður eftir stundina. Allir velkomnir.
Fríkirkjan í Reykjavík. Í hádegi er fólki boð-
ið til bænastunda í kapellu safnaðarins á
annarri hæð í safnaðarheimilinu. Sérstök
áhersla er lögð á bæn og íhugun, en einnig
flutt tónlist og textar til íhugunar. Koma má
bænarefnum á framfæri áður en bæna-
stund hefst.
Árbæjarkirkja. Kl. 12 kyrrðarstund í hádeg-
inu. Léttur málsverður í safnaðarheimilinu
að stundinni lokinni. Kl. 13–16 opið hús í
safnaðarheimilinu. Þorvaldur Halldórsson
kemur í heimsókn fyrsta miðvikudag hvers
mánaðar.
Breiðholtskirkja. Kyrrðarstund í dag kl.
12.10. Tónlist, altarisganga, fyrirbænir.
Léttur málsverður í safnaðarheimilinu eftir
stundina. Kirkjuprakkarar starf fyrir 7–9
ára börn kl. 16.30. TTT-starf fyrir 10–12
ára kl. 17.30. Æskulýðsstarf á vegum
KFUM&K og kirkjunnar kl. 20.
Digraneskirkja. Unglingastarf KFUM og
KFUK kl. 20–21.45. (Sjá nánar: www.digra-
neskirkja.is)
Grafarvogskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Fyr-
irbænir og altarisganga. Boðið er upp á
léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni
stundinni. Allir velkomnir. KFUM fyrir drengi
á aldrinum 9–12 ára kl. 17.30–18.30.
Hjallakirkja. Fjölskyldumorgnar kl. 10. TTT
(10–12 ára) starf kl. 17. Tólf spora nám-
skeið kl. 20.
Lindakirkja í Kópavogi. Unglingadeild
KFUM og K í Lindasókn í safnaðarheim-
ilinu, Húsinu á sléttunni kl. 20. Allir krakk-
ar í 9. og 10. bekk velkomnir.
Seljakirkja. Kyrrðar- og bænastund í dag
kl. 18. Beðið fyrir sjúkum. Allir hjartanlega
velkomnir. Tekið á móti fyrirbænaefnum í
kirkjunni í síma 567 0110. SELA eldri deild
kl. 20–22.
Vídalínskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12
með Nönnu Guðrúnu í Vídalínskirkju.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Kyrrð-
arstund í kirkjunni kl. 12, íhugun, orgelleik-
ur, altarisganga, fyrirbænir. Léttur
hádegisverður kl. 12.30 í Ljósbroti Strand-
bergs.
Víðistaðakirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund í dag kl. 12. Góður kostur fyrir þá
sem vilja taka frá kyrrláta og helga stund í
erli dagsins til að öðlast ró í huga og frið í
hjarta. Hægt er að koma fyrirbænaefnum
til sóknarprests eða kirkjuvarðar. Boðið er
upp á súpu og brauð í safnaðarheimilinu
að kyrrðarstund lokinni. Opið hús fyrir eldri
borgara í dag kl. 13. Verið velkomin í viku-
legar samverur í safnaðarheimili kirkjunnar
í spil, spjall, góðar kaffiveitingar og fleira.
Bessastaðasókn. Miðvikudagur er dagur
kirkjunnar í Haukshúsi. Foreldramorgnar
eru frá kl. 10–12. Þar koma saman for-
eldrar ungra barna á Álftanesi með börnin
og njóta þess að hittast og kynnast öðrum
foreldrum sem eru að fást við það sama,
uppeldi og umönnun ungra barna. Opið
hús eldri borgara er síðan frá kl. 13.00–
16.00. Dagskráin verður fjölbreytt en um-
fram allt eru þetta notalegar samveru-
stundir í hlýlegu umhverfi.
Þorlákskirkja. Barna- og foreldramorgnar í
dag kl. 10–12.
Lágafellskirkja. AA-fundur kl. 20.30 í
Lágafellskirkju. Unnið í 12 sporunum.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opnuð kl. 12.
Kyrrðar- og fyrirbænastund í Kapellu von-
arinnar kl. 12.10. Samverustund í Kirkju-
lundi kl. 12.25. Súpa, salat og brauð á
vægu verði. Allir aldurshópar. Umsjón Ólaf-
ur Oddur Jónsson. Æfing hjá Barnakór
Keflavíkurkirkju kl. 16–17. Æfing Kórs
Keflavíkurkirkju frá kl. 19–22.30. Stjórn-
andi Hákon Leifsson. Biblíulestur á vegum
Alfa hópsins í minni sal Kirkjulundar kl. 20.
Leiðir að lindinni, kynntar verða mismun-
andi leiðir að lindinni. Ný frumgerð (para-
digm) Walter Wink í biblíurannsóknum.
Umsjón Ólafur Oddur Jónsson.
Sauðárkrókskirkja. Kyrrðarstund kl. 21.
Landakirkja í Vestmannaeyjum. Kl. 11
helgistund í Hraunbúðum. Kl. 17.30 TTT
yngri og eldri saman. 9–12 ára krakkar í
kirkjunni. Gluggað verður í bókina Dagar
með Markúsi. Sr. Fjölnir Ásbjörnsson og
leiðtogarnir. Kl. 20 opið hús hjá Æskulýðs-
félagi og KFUM&K í félagsheimili KFUM&K.
Ester Bergsdóttir æskulýðsfulltrúi, sr.
Fjölnir Ásbjörnsson og leiðtogarnir.
Akureyrarkirkja. Mömmumorgunn kl. 10–
12. Opið hús, kaffi og spjall. Safi fyrir börn-
in.
Glerárkirkja. Hádegissamverur alla mið-
vikudaga kl. 12. Opin fræðslukvöld eru í
kirkjunni á miðvikudagskvöldum kl.19.30.
Léttur kvöldverður, fræðsla, umræður og
bænastund. Námskeiðið er ókeypis. Allir
velkomnir.
Hjálpræðisherinn, Akureyri. Kl. 19 súpa,
brauð og biblíufræðsla. Allir velkomnir.
Kletturinn, kristið samfélag. Kl. 20.30
Bænahópar í heimahúsum. Upplýsingar í
síma 565 3987.
Kefas. Samverustund unga fólksins kl.
20.30. Samvera, lofgjörð, fræðsla og lest-
ur orðsins. Nánari upplýsingar á: www.-
kefas.is
Morgunblaðið/Jim Smart
Skálholtskirkja
Safnaðarstarf
ÁRLEGT hjónanámskeið á
vegum Árnessprófastsdæmis
verður sunnudaginn 9. nóv-
ember í Skálholtsskóla. Þessi
samvist hefst kl. 13 og lýkur
með tíðagjörð í kirkjunni kl.
18 og síðan verður sameig-
inlegur kvöldverður. Þetta er
ekki vandamálanámskeið
heldur einfaldlega framhald
af samtali prests við brúðhjón
fyrir vígsluna. Eru þá stuttir
fyrirlestrar og síðan samtal
hjónanna sín í milli.
Þau hjón sem vilja vera með
þessa dagstund hafi samband
við Skálholtsskóla eða prófast
í síma 483 1125 eða 894 5207.
Úlfar Guðmundsson.
Hjónanám-
skeið í
Skálholti
Síðumúla 21
Sími 588-9090
Suðurlandsbraut 52
Sími 530-1500
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
SK
U
2
07
60
09
/2
00
3
www.101skuggi.is
Kringlan 8-12, 3. hæð
Sími 575 9000
31,9
milljónir kr.
**
25,2
milljónir kr.
**
136m2
9. hæð
158 m2
2. hæð
30,7
milljónir kr.
**
21,5
milljónir kr.
*
142 m2
6. hæð
102 m2
2. hæð
Íbúðir til afhendingar
í september 2004.
Nánari upplýsingar:
* Íbúðin afhent tilbúin án gólfefna. ** Íbúðin afhent tilbúin til innréttingar.
16,0
milljónir kr.
*
86m2
2. hæð
24,0
milljónir kr.
*
106m2
6. hæð
19,9
milljónir kr.
**
113 m2
3. hæð
Nýr lífsstíll
í hjarta borgarinnar