Morgunblaðið - 06.11.2003, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 06.11.2003, Blaðsíða 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169. Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund skapti@mbl.is Hólskirkja aftur í notkun | Halldór Páll Eydal, kirkjuvörður í Bolungarvík, segir ætlunina að taka Hólskirkju aftur í notkun á aðfangadagskvöld, skv. fréttavef Bæj- arins besta á Ísafirði. Miklar framkvæmdir standa yfir í kirkjunni og hafa verið gerðar á henni margvíslegar lagfæringar í haust. „Meiningin var alltaf að framkvæmdum innan- dyra yrði lokið fyrir annan sunnudag í aðventu, sem er 7. desember. Hins vegar hafa framkvæmdir dregist vegna þess að margt ófyrirséð hefur komið upp á sem þurft hefur að vinna við að auki. En þessum framkvæmdum verður lokið fyrir jólamessuna á aðfangadagskvöld,“ segir Halldór Páll. Hann segir búið að rétta af gólfbita kirkjunnar og nú sé verið að setja músanet undir gólfið og einangra. Þá verði gólfborðin lögð á en ætlunin sé að slípa þau og olíubera. Að auki standi yfir framkvæmdir við snyrtiaðstöðu og fata- hengi sem verið sé að færa í upprunalegan stíl kirkjunnar. „Þegar gólfið er komið get- um við farið að setja bekkina á sinn stað.“ Búið er að steypa nýjar kirkjutröppur og hefur verið hellulagt fyrir framan þær. Að auki hafa skólp- og vatnslagnir verið end- urnýjaðar. Að sögn Halldórs er fram- kvæmdum að utan lokið í þessum áfanga. „Næsta vor er síðan ætlunin að fara í annan áfanga en þá verður skipt um járn utan á kirkjunni og timburklæðning endurnýjuð. Að auki verður skipt um glugga og glugga- hlera og nýr kross smíðaður á kirkjuna,“ sagði Halldór Páll Eydal. Úr bæjarlífinu Kaldalóns á gamlárskvöld | Vestfirskir tónlistarmenn verða áberandi í dagskrá Ríkisútvarpsins á gamlárskvöld. Auk sjón- varpsútsendingar á síðasta kvöldi ársins verða lög eftir Sigvalda Kaldalóns í flutn- ingi Vestfirðinganna flutt á Rás 1 og Rás 2. Fram koma Kammerkórinn, Sunnukór- inn, Hljómsveit Tónlistarskóla Ísafjarðar, sópransöngkonurnar Guðrún Jónsdóttir og Ingunn Ósk Sturludóttir og Ólafur Kjartan Sigurðarson, sem á ættir að rekja til Hnífsdals, að því er fram kemur í Bæjarins besta á Ísafirði. Jónas Tómasson, tónskáld á Ísafirði, hefur séð um útsetningar. Hljóð- og myndupptökur voru gerðar fyrir vestan nýlega og var myndað og hljóðritað í Ísa- fjarðarkirkju, Faktorshúsinu í Hæsta- kaupstað, Hömrum sal Tónlistarskóla Ísa- fjarðar, Neðstakaupstað á Ísafirði, í og við Súðavíkurkirkju og í Vigur á Ísafjarðar- djúpi. Loks verður tekið upp í Árbæjar- safni, en þar er flygill Sigvalda Kaldalóns. Rúmlega tvítugurmaður var dæmd-ur til að borga 70.000 krónur í sekt til rík- issjóðs í Héraðsdómi Reykjaness í dag fyrir að bíta í hanskaklædda vinstri hönd lögreglu- manns við skyldustörf að næturlagi í júní sl. í Garðabæ. Afleiðingar bitsins voru þær að lögreglumaðurinn marðist á hendinni lófa- og handarbaksmegin, en hlaut ekki húðrof, eins og það er orðað í dómnum. Manninum er gert að borga sektina innan fjög- urra vikna, ellegar sæta fangelsi í 16 daga. Honum var og gert að greiða allan sakarkostnað, þar með talda 40.000 króna þóknun skipaðs verjanda síns. Dýrt bit Reykjavík | Síminn afhenti nýlega Skóla Ísaks Jóns- sonar 14 tölvur í eigu fyrirtækisins til afnota fyrir nemendur skólans. Tölvunum hefur verið komið fyr- ir í tölvuveri og hafa nemendur skólans og starfsfólk sýnt mikla ánægju með framtakið. Síminn lét skólanum einnig í té ADSLplús- tengingu. Á myndinni eru 7 ára nemendur Ísaks- skóla ásamt Eddu Huld Sigurðardóttur, skólastjóra og Evu Magnúsdóttur, kynningarfulltrúa Símans, við formlega afhendingu tölvubúnaðarins. Síminn afhenti Ísaksskóla tölvur Baðstofukvöld verðurhaldið í félags-heimilinu Ásbyrgi, Miðfirði, á laugardag kl. 20.30. Fram koma hagyrð- ingarnir Pétur Pétursson, Ósk Þorkelsdóttir, Hreiðar Karlsson, Jóhannes G. Ein- arsson, Þorfinnur Jónsson, Ásbjörn Guðmundsson, o.fl. Stjórnandi verður Ein- ar Georg. Ágóðinn rennur til frjálsíþróttastarfs í Húnaþingi vestra. Grettir sterki var einmitt Miðfirðingur. Hann hafði margt til að bera en ekki allt svo sem sagnir herma. Nú vilja menn í Húnaþingi vestra gera hann að eins- konar sameiningartákni og sýsludýrlingi og því segir Einar Georg kjörorð kvöld- sins eitthvað á þessa leið: Grettir sterki hafði bakið breitt og bjó á fjöllum marga kalda vetur. Þótt undir honum ekki væri neitt orti hann samt flestum mönnum betur. Baðstofukvöld pebl@mbl.is Ólafsvík | Bangsímon og vinir hans í Hundr- aðekruskógi eru í miklu uppáhaldi hjá ungum börnum um allt land og raunar um allan heim. Það er þó langur vegur frá hinum norska Hálsaskógi sem einnig nýtur mikilla vinsælda hér á landi til hins vel markaðssetta skógar í Ameríku. Á meðan Bangsímon og félagar eru þessi indælisskinn allt frá fyrstu síðu eru dýrin í Hálsaskógi óttalega „mannleg“ og Rebbi meira að segja afar breyskur karakter. Rebbi hræðir þó ekki íslensk börn meira en svo að þau flykkjast í Þjóðleikhúsið til að hitta hann. Þessi litla stúlka í Ólafsvík brá sér hins veg- ar á bókasafnið í rólegheitum og fletti upp á vinum sínum í Hundraðekruskógi. Hún hefur ekki hug- mynd um að refir geti verið lævísir hvað þá þjóf- óttir – enda nógur tími til að komast að því seinna. Morgunblaðið/Elín Una Hugurinn í Hundraðekruskógi: Helga Margrét Óskarsdóttir gluggar í bók um Bangsímon og félaga. Bangsímon og Mikki refur vinsælir Lestur Keflavíkurflugvelli | Varnarliðið hefur ákveðið að draga til baka uppsagnir 90 starfsmanna sem tilkynnt var um í lok síð- asta mánaðar. Jafnframt er því lýst að stjórnendur flotastöðvarinnar séu reiðu- búnir að ræða allar hugmyndir ASÍ um hvernig mæta megi fjárhagsvanda stöðv- arinnar. Forseti ASÍ fagnar ákvörðuninni. Yfirstjórn flotastöðvarinnar tekur fram í fréttatilkynningu sem send var út í gær að hún telji að uppsagnirnar hafi verið í fullu samræmi við íslensk lög og venjur. Þeim hafi verið ætlað að takmarka sem mest áhrif á heildarstarfsmannafjölda stöðvar- innar. Jafnframt sé ljóst að svo afdrifarík ákvörðun fyrir afkomu starfsmanna verði að vera hafin yfir grun um ólögmæti og geta talist sanngjörn. Flotastöð varnarliðs- ins hafi því ákveðið að draga til baka uppsagnir sem sendar voru 90 starfs- mönnum hinn 28. október síðastliðinn og eiga frekara samráð við verkalýðsfélögin um málið. Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusam- bands Íslands, sagði í gær að það væru góð tíðindi að varnarliðið skyldi draga upp- sagnirnar til baka. Að vísu væri því neitað að ólöglega hafi verið staðið að uppsögn- unum en um það hefði Alþýðusambandið engar efasemdir. Stjórnendur flotastöðvarinnar segjast í tilkynningunni reiðubúnir að ræða allar hugmyndir ASÍ varðandi það hvernig mæta megi fjárhagsvanda stöðvarinnar. „Þó er ljóst að leiði slíkt samráð ekki til þess að aðrar sparnaðarleiðir finnist geta tafir á uppsögnum starfsmanna þýtt að grípa verði til enn fleiri uppsagna svo mæta megi niðurskurði á rekstrarfé,“ seg- ir þar jafnframt. Hótun um frekari uppsagnir Grétar sagðist eiga eftir að sjá hvort ASÍ hefði eitthvað á hendinni til að leiðbeina stjórnendum varnarliðsins um hvernig þeir ættu að hagræða betur í rekstri her- stöðvarinnar eða spara. En hann gagn- rýndi niðurlag tilkynningar varnarliðsins og sagði ekki hægt að líta á það öðruvísi en sem hótun um að fleirum yrði sagt upp störfum. „Þetta er undarleg framkoma, þótt ekki sé meira sagt. Það hafa sjálfsagt flestir gert sér grein fyrir því að samdrátt- ur lá í loftinu þarna og að hann myndi væntanlega hafa í för með sér uppsagnir en að þessi aðili skuli ekki viðhafa manneskju- legri vinnubrögð er nokkuð sem kemur á óvart. Það á líka við um uppsagnir á hlunn- indum,“ sagði Grétar og tók fram að ASÍ væri að skoða þau mál nánar. Bjóða við- ræður um vandann Uppsagnir afturkallaðar Búðardal | Í Grunnskólanum í Búðardal í er nú geymt fuglasafn Björns Stefáns Guðmundssonar, kennara frá Reynikeldu á Skarðströnd. Safnið er mjög fallegt og telur um 50 tegundir fugla, aðallega úr Breiðafirði en þar mun vera ein fjölbreyttasta fuglaflóra á Íslandi. Björn hóf þessa söfn- un á sínum tíma með það fyrir augum að komið yrði upp glæsilegu upp- settu safni við Breiðafjörð og gæti þetta safn orðið fyrsti vísir að því. Vonandi ræstist sú ósk hans. Safnið er nú í eigu Byggðasafns Dalamanna. Morgunblaðið/Helga H. Ágústsdóttir Safnarinn: Björn Stefán Guðmundsson kennari við fuglasafnið í skólanum. Fuglasafn Breiðafjarðar í Búðardal HÉÐAN OG ÞAÐAN   
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.