Morgunblaðið - 06.11.2003, Qupperneq 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 6. NÓVEMBER 2003 43
DAGBÓK
Glæsilegur
samkvæmisfatnaður
Í 12 ár
Hausttilboð
Sérmerkt
Handklæði & flíshúfur
Flíspeysur, flísteppi,
o.fl.
Fáið sendan myndalista
Myndsaumur
Reykjavíkurvegur 62
220 Hafnarfjörður
Sími 565 0488
www.myndsaumur.is
Hverafold 1-3 • Torgið • Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími: Frá kl. 11-18 mánud.-föstud. og frá kl. 12-16 laugard.
Torginu, Grafarvogi
BARMAHLÍÐ
Hlíðin mín fríða
hjalla meður græna,
og blágresið blíð,
og berjalautu væna,
á þér ástar augu
ungur réð ég festa,
blómmóðir bezta!
Sá ég sól roða
síð um þína hjalla,
og birtu boða
brúnum snemma fjalla;
skuggi skauzt úr lautu,
skreið und gráa steina
leitandi leyna.
- - -
Jón Thoroddsen
LJÓÐABROT
b4 cxb4 15. axb4 Rxb4 16.
Rxb4 Bxb4 17. Hxa7 Hc7 18.
Ba3 Bxa3 19. Hxa3 b5 20.
Ha5 bxc4 21. Rxc4 e4 22. g4
Bg6 23. Re5 De6 24. dxe4
Bxe4 25. Dxd4 Bxg2 26.
Kxg2 Hc2 27. e3 De7 28.
Ha7 De6 29. Hfa1 h5 30.
H1a6 Db3
Staðan kom upp í fyrri
hluta Íslandsmóts skák-
félaga, Flugfélagsdeildinni,
sem lauk fyrir skömmu í
Menntaskólanum í Hamra-
hlíð. Arnar E. Gunnarsson
(2366) hafði hvítt gegn Stef-
áni Þór Sigurjónssyni
(2136). 31. Hxf6! gxf6 32.
Rd7 Hfc8 33. Rxf6+ Kf8 34.
Dd6+ Kg7 35. Rxh5+ Kg8
36. Df6 Dd5+ 37. Kg3 og
svartur gafst upp enda fátt
til varnar.
1. Rf3 d5 2. c4 e6 3. b3 Rf6 4.
Bb2 c5 5. g3 Be7 6. Bg2 O-O
7. O-O Rc6 8. Ra3 d4 9. d3
e5 10. Rc2 Bg4 11. h3 Bh5
12. Rd2 Dd7 13. a3 Hac8 14.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
Heimsmeistaramótið í
sveitakeppni hófst á mánu-
dagsmorgun í Monte Carlo í
Mónakó. Spilað er í þremur
flokkum, opnum flokki,
kvennaflokki og öld-
ungaflokki, og í næstu viku
hefst fjórða mótið, sem er
opin fjölþjóðleg sveita-
keppni. Í opna flokknum er
keppt um hina margfrægu
Bermudaskál og er þetta í
36. sinn sem það mót fer
fram. 22 þjóðir keppa um
skálina og í fyrstu lotu spila
þjóðirnar innbyrðis stutta
leiki, en átta efstu halda svo
áfram í lengri útsláttarleiki.
Tvær Norðurlandaþjóðir
eru meðal keppenda, Svíar
og Norðmenn, og er spilið
að neðan frá viðureign
þeirra fyrsta keppnisdag-
inn:
Austur gefur; allir á
hættu.
Norður
♠ D732
♥ KG2
♦ D85
♣ÁG2
Vestur Austur
♠ K4 ♠ --
♥ D109842 ♥ 765
♦ G3 ♦ ÁK1097642
♣954 ♣83
Suður
♠ ÁG109865
♥ Á
♦ --
♣KD1076
Á báðum borðum opnaði
austur á þriggja granda
hindrunarsögn, sem sýnir
langan, en óþéttan láglit.
Síðan gerðist þetta:
Opinn salur:
Vestur Norður Austur Suður
Sælensm-
ind
Morath Borgeland Gust-
awsson
-- -- 3 grönd * 5 spaðar
Pass 7 spaðar Pass Pass
Pass
Lokaður salur:
Vestur Norður Austur Suður
Lindkvist Helness Fredin Helgemo
-- -- 3 grönd 4 spaðar
Pass Pass Pass
Hönd suðurs er falleg og
Svíinn Magnus Gustawsson
ákvað að bjóða upp á
slemmu með því að stökkva
í fimm spaða. Makker hans
– hinn fyrrum gullinhærði
Anders Morath, sem Gul-
rótarkerfið er kennt við –
átti ýmislegt í pokahorninu
og lét vaða í sjö spaða. Það
hafa sést verri alslemmur,
en heppnin var ekki á bandi
Svíanna í þetta sinn.
Á hinu borðinu lét Geir
Helgemo fjóra spaða duga
við þremur gröndum og Tor
Helness sá enga ástæðu til
að halda áfram. Góð hálf-
slemma fór því forgörðum
og þeir félagar bjuggust við
að tapa 13 IMPum á spilinu.
En þegar til kom lentu
IMParnir 13 í plúsdálk-
inum!
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
ÁRNAÐ HEILLA
HLUTAVELTA
90 ÁRA afmæli. Í dag,fimmtudaginn 6.
nóvember, er níræður Hans
Hallgrímur Sigfússon, fyrr-
um bóndi Stóru Hvalsá,
Hrútarfirði, nú til heimilis
að Hrafnistu í Hafnarfirði.
Hann tekur á móti ætt-
ingjum og vinum sunnudag-
inn 11. nóvember frá kl. 15–
18 í Fóstbræðraheimilinu
við Langholtsveg.
70 ÁRA afmæli. Ámorgun, föstudaginn
7. nóvember, er sjötugur
Hjörtur Valdimarsson,
húsasmíðameistari og
trillukarl, Garðaflöt 33,
Garðabæ. Hann tekur á
móti ættingjum og vinum á
morgun, 7. nóvember, í sal
Fjölbrautaskólans í Garða-
bæ, 2. hæð, frá kl. 19–21. Í
stað afmælisgjafa þætti
honum vænt um að menn
minntust heldur söfnunar
fyrir „Sjónarhól“, samtök
veikra barna sem nú stend-
ur yfir.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Þessar ungu stúlkur á Húsavík héldu á dögunum
hlutaveltu til styrktar nýrri sundlaugarbyggingu á
staðnum. Þær heita f.v.: Helena Rán Þorsteinsdóttir,
Fanný Traustadóttir og Karítas Erla Valgeirsdóttir.
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert bjartsýn/n, sjálfs-
örugg/ur og kraftmikil/l.
Gerðu ráð fyrir breytingum
til hins betra á komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þér verða hugsanlega gefn-
ar gjafir í dag. Auður og ör-
læti annarra munu á ein-
hvern hátt koma þér til
góða.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Ástir og rómantík, ferðalög
og skemmtanir munu setja
svip á daginn. Þú ert já-
kvæð/ur og létt/ur í lund.
Leyfðu öðrum að njóta þess
með þér.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Leitaðu leiða til að bæta
vinnuumhverfi þitt. Þú gæt-
ir til dæmis haft gagn af því
að fara í vinnuferð. Hikaðu
ekki við að hugsa stórt.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú býrð yfir mikilli sköp-
unargleði í dag. Dagurinn
hentar því sérstaklega vel til
að vinna með börnum og til
vinnu í skemmtanaiðn-
aðinum.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Dagurinn hentar vel til
framkvæmda og fjárfest-
inga sem miða að því að
bæta hag fjölskyldu þinnar.
Heimilislífið ætti að ganga
vel.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Notaðu daginn til að ræða
hugmyndir þínar og fram-
tíðaráform við þá sem þú
treystir. Þú ert bjartsýn/n á
framtíðina.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú ættir að huga að því
hvernig þú getur samræmt
líf þitt hugsjónum þínum.
Mundu að þú ert við stjórn-
völinn.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Dagurinn í dag gæti á ein-
hvern hátt orðið happadag-
urinn þinn. Þú ert bjart-
sýn/n og jákvæð/ur og það
dregur að þér fólk og tæki-
færi.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú sérð möguleika á að
hjálpa einhverjum. Framlag
þitt og annarra getur skipt
sköpum í lífi viðkomandi.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert óvenju fróðleiksfús
og umburðarlynd/ur og því
hentar dagurinn vel til að
fræðast um framandi menn-
ingu, heimspeki og trúmál.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Dagurinn hentar vel til sam-
skipta við yfirvöld. Nú er
rétti tíminn til að biðja yf-
irmanninn um greiða eða
launahækkun.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Samskipti þín við aðra
ganga vel í dag. Þér finnst
lífið brosa við þér.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynn-
ingar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara
virka daga og þriggja daga
fyrirvara fyrir sunnudags-
blað. Samþykki afmæl-
isbarns þarf að fylgja af-
mælistilkynningum og/eða
nafn ábyrgðarmanns og
símanúmer. Fólk getur
hringt í síma 569-1100, sent
í bréfsíma 569-1329, eða
sent á netfangið ritstj
@mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1, 103
Reykjavík
Steypusögun
Vegg- og gólfsögun
Múrbrot
Vikursögun
Malbikssögun
Kjarnaborun
Loftræsi- og lagnagöt
Hreinlæti og snyrtimennska
í umgengni
BT-sögun
Sími 567 7544
Gsm 892 7544