Morgunblaðið - 13.11.2003, Blaðsíða 16
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
KB nemur land á Akranesi | Kaupfélag
Borgfirðinga hefur keypt verslunina
Grundaval á Akranesi og hefur KB nú
þegar tekið yfir reksturinn. Björn Bjarki
Þorsteinsson verslunarstjóri KB í Borg-
arnesi segir að markmiðið með kaupunum
hafi verið að ná fram stærðarhagkvæmni í
rekstrinum.
„Grundaval
verður áfram
svokölluð
klukkuverslun
og er hug-
myndin að
lengja opn-
unartímann fram á kvöld frá því sem nú
er. Að öðru leyti verða viðskiptavinir
Grundavals varir við einhverjar breytingar
og þar má nefna aukið vöruúrval,“ segir
Björn Bjarki en fyrrverandi eigendur
Grundavals verða áfram starfsmenn versl-
unarinnar. „Við ætlum heldur ekki að fara
í verðstríð við þær verslanir sem fyrir eru
á Akranesi enda teljum við að Grundaval
hafi sína sérstöðu. Við lítum á Akranes
sem svæði í örum vexti, staðsetning versl-
unarinnar er góð og það eru möguleikar
fyrir hendi ef stækka þarf húsnæðið. En
engar ákvarðanir hafa verið teknar um
slíkt.“
Það er ekki aðeins á Akranesi sem KB
er að nema land því Grundaval verður
einnig að finna á Grundarfirði en KB
keypti einnig verslun þar á dögunum.
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Úr
bæjarlífinu
Fjórir umsækjendur | Fjórir sóttu um
starf starfsmanns til að hafa umsjón með Fé-
lagsheimilinu á Blönduósi sem nýverið var
auglýst laust til umsóknar. Umsækjendurnir
eru: Hafliði Þór Kristjánsson, Margrét Sig-
urðardóttir, Ívar Snorri Halldórsson og Þór-
ir Jóhannsson. Þessa dagana er verið að
ræða við umsækjendur, en ráðið verður í
stöðuna frá með 1. desember nk, að því er
fram kemur á heimasíðu Blönduóssbæjar.
Kjarvalshvammur | Vegagerðin und-
irbýr nú gerð bifreiðastæðis við svonefndan
Kjarvalshvamm í Hjaltastaðaþinghá. Blind-
hæðir eru beggja vegna og hefur skapast
veruleg slysahætta vegna bíla sem lagt hef-
ur verið í vegkanta við hvamminn á ferða-
mannatímanum. 2,5 milljónum króna verð-
ur varið til verksins og á stæðið að vera
tilbúið á vori komanda.
Farþegum um Flug-stöð Leifs Eiríks-sonar fjölgaði um
tæplega 18% í október-
mánuði miðað við sama
tíma í fyrra, úr rúmlega
100 þúsund farþegum árið
2002 í tæplega 118 þúsund
farþega nú.
Mest vegur fjölgun far-
þega til og frá Íslandi,
rúmlega 21% frá fyrra ári,
að því er fram kemur í
fréttatilkynningu frá
Flugstöðinni. Á sama tíma
hefur farþegum sem milli-
lenda hér á landi á leið yf-
ir Norður-Atlantshafið
fjölgað um 3,5%. Þetta er í
fyrsta skipti á þessu ári
sem fjölgun verður á
skiptifarþegum borið sam-
an við tölur frá 2002.
Alls hefur farþegum um
flugstöðina fjölgað um
tæplega 11% það sem af er
árinu miðað við sama tíma
árið 2002, úr tæplega
1.087 þúsund farþegum í
rúmlega 1.202 þúsund far-
þega.
Fleiri farþegar
Akureyrarliðin KA og Þór áttust við í norðurriðliÍslandsmótsins í handbolta í KA-heimilinu ífyrrakvöld, eins og greint var frá í blaðinu í gær.
Úrslit urðu óvænt; KA-menn, sem eru efstir í riðlinum
ásamt Val, máttu þakka fyrir að ná jafntefli gegn frísk-
um Þórsurum sem nældu þarna í fyrsta stigið í vetur.
Mikil stemmning var í íþróttahúsinu eins og jafnan þeg-
ar þessir erkifjendur eigast við, og sumir voru fínni í
tauinu en aðrir. „Gömlu mennirnir“ Óðinn Árnason og
Jón Helgason létu sig ekki vanta á áhorfendapallanna
frekar en fyrri daginn og að sjálfsögðu voru þeir félagar í
fullum herklæðum; í gulu skyrtunni með KA-merkinu og
bláa KA-bindið!
Morgunblaðið/Kristján
Mættu í fullum herklæðum
Vandræði KarlsBretaprins hafaekki farið
framhjá mörgum, að
minnsta kosti ekki í Mý-
vatnssveit. Friðrik
Steingrímsson yrkir:
Ýmsra birtist artin ný
um það sagan gengur
að best sé að snúa’ei baki í
Bretaprinsinn lengur.
Hagyrðingakvöld
Hestamannafélagið
Funi í Eyjafirði stendur
fyrir hagyrðingakvöldi í
Laugaborg á föstudag
kl. 21. Pétur Pétursson
Akureyri, Reynir Hjart-
arson Akureyri, Jóhann-
es Sigfússon á Gunn-
arsstöðum, Magnús
Halldórsson á Velli í
Rangárvallasýslu og
Þorvaldur Hallsson í
Ysta-Gerði. Þórarinn
Hjartarson á Tjörn spil-
ar á gítar, syngur og
kveður. Petra Pálsdóttir
stjórnandi Karlakórs
Eyjafjarðarsveitar mæt-
ir með félaga úr kórn-
um. Óttar Björnsson á
Garðsá verður stjórn-
andi.
Vandræði Karls
pebl@mbl.is
Akureyri | Verðir laganna voru
óvenju fjölmennir á Akureyri
um helgina en þá stóð Íþrótta-
samband lögreglumanna fyrir
öldungamóti í innanhússknatt-
spyrnu í KA-heimilinu. Alls
mættu níu lið frá stærstu lög-
regluembættum landsins til
leiks og voru keppendur um 60
talsins. Mótið, sem haldið var í
21. skipti, fór vel fram í alla
staði, „enda eru lögreglumenn
mjög friðsamir og yfirvegaðir
menn,“ sagði Hermann Karls-
son lögreglumaður á Akureyri.
„Og allir keppendur gengu
óstuddir úr húsi.“
Það voru liðsmenn lögregl-
unnar í Keflavík sem fóru með
sigur af hólmi, eftir harða bar-
áttu við annað af tveimur liðum
lögreglunnar í Reykjavík. Liðin
voru jöfn að stigum en Keflvík-
ingarnir sigruðu á betri marka-
tölu.
Jón Bragi Arnarson úr Vest-
mannaeyjum og Runólfur Þór-
hallsson úr Reykjavík urðu
markahæstu menn mótsins,
með 21 mark hvor og Runólfur
var jafnframt valinn besti leik-
maðurinn. Prúðasta liðið kom
úr Hafnarfirði og Eyjamenn
hlutu Sveinsbikarinn fyrir flest
skoruð mörk en um er að ræða
minningarbikar um Svein heit-
inn Björnsson lögreglumann og
listmálara úr Hafnarfirði. Þá
var Sigurður Benjamínsson
heiðraður sem elsti leikmaður
mótsins, 58 ára gamall, en hann
mætti til leiks ásamt syni sín-
um Þóri og léku þeir feðgar
hvor með sínu liðinu úr Reykja-
vík.
Morgunblaðið/Kristján
Snilldartaktar: Lögreglumenn frá Ísafirði og Reykjavík etja kappi á öldungamótinu í KA-heimilinu.
Verðir laganna óvenju fjölmennir
Knattspyrna
Hrunamannahreppur | Um liðna helgi
fannst dýrbitin ær við bæinn Ás í Hruna-
mannahreppi. Hún var illa farin og hafði
greinilega lent í hörðum átökum við skolla
fyrir um tveimur vikum. Annað hornið hafði
brotnað en lafði við hausinn og nefið afar
illa farið svo farga þurfti ánni. Þegar ærin
var mynduð á sunnudag sagðist Eiríkur
Steindórsson bóndi aldrei lóga skepnum á
helgum degi fremur en aðrir bændur, en
gera það strax á mánudagsmorgninum, hún
væri búin að kveljast nógu lengi.
Af þessu tilefni hafði fréttaritari sam-
band við þrjár kunnar refaskyttur og bar
þeim saman um að tófu væri mjög að fjölga,
einkum í byggð og kemur það heim og sam-
an við það sem fjöldi fólks hefur orðið var
við hér sunnanlands.
Siggeir Þorgeirsson í Túnsbergi, sem
fékkst við refaveiðar um langan tíma og
drap mörg hundruð dýr, segir að ekki sé
vafi á að tófunni hafi farið fjölgandi á síðari
árum. Hegðunarmynstrið væri nú annað,
hún væri meira í byggðinni en áður, mófugl
sæist vart lengur og þá leggst hún æ oftar á
sauðfé.
„Það er enginn vafi á að mink og ref er að
fjölga mikið sagði Kristinn Ingvarsson
bóndi í Austurhlíð í Biskupstungum en
hann hefur verið grenjaskytta þar í sveit í
35 ár. Tófan og enn frekar minkurinn
hreinsar upp ungana á vorin enda er afar
lítið af mófugli. Rjúpnaskyttur skjóta að-
eins brot af því sem minkurinn og tófan
taka,“ sagði Kristinn og bætti við að það
væri voðalegt að hafa þennan varg sem ylli
miklu tjóni.
Hegðun tófunnar hefur breyst
Jón Óli Einarsson í Tungufelli sagði
greinilegt að breyting væri orðin á hegð-
unarmynstri tófunnar. „Hún er meira í
byggð en ég er ekki viss um að henni hafi
fjölgað í afréttinum enda er legið þar á
grenjum á hverju vori. Síðan við bræður
fórum fyrir tíu árum að liggja hér á skot-
húsi hefur mink fækkað en tófu fjölgað. Það
er sem tófan reki minkinn í burtu. Ef vetur
eru mildir gengur hún lítið í æti og erfitt að
ná henni, í hörðum vetrum leggst hún
meira í ætið,“ segir Jón Óli.
Það er sama við hvern er talað, öllum ber
saman um að ref og mink fari fjölgandi. Það
bitni mikið á fuglalífinu. Dæmi eru um að á
svæði þar sem grágæs varp mikið áður sést
nú vart fugl, æðar- og kríuvörp eru sum-
staðar nánast horfinn. Telja margir að
meira fjármagn verð að setja til höfuðs ref
og mink til að halda þessum vargi í skefjum.
Dýrbít fer
fjölgandi