Morgunblaðið - 16.11.2003, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. NÓVEMBER 2003 51
DAGBÓK
Hverafold 1-3 • Torgið • Grafarvogi • Sími 577 4949
Opnunartími: Frá kl. 11-18 mánud.-föstud. og frá kl. 12-16 laugard.
Námskeið um meðvirkni, samskipti,
tjáskipti og tilfinningar verður haldið
föstudagskvöldið 28. nóvember og
laugardaginn 29. nóvember í kórkjallara
Hallgrímskirkju.
Nánari upplýsingar og skráning
í síma 553 8800.
Taktu mér eins og ég er, svo ég geti lært hvað ég get orðið
Meðvirkni
Stefán Jóhannsson,
MA, fjölskylduráðgjafi
Langar þig að
gera eitthvað
nýtt í
desember?
28.-30. nóv. Aðventuferð fjölskyldunnar í Bása
Aðventu- og jólastemmning í Básum. Gönguferðir, kvöldvaka,
föndur og leikir. Kjörin fjölskylduferð. Verð kr. 8.900/10.300.
Börn yngri en 6 ára frítt og 6-16 ára borga hálft gjald.
Nokkur sæti laus
6.-7. des. Aðventuferð jeppadeildarinnar í Bása
Árviss ferð hjá jeppadeild, sem færri hafa komist í en vilja.
Léttar göngur og kvöldvaka. Tökum hlé frá stressinu og látum
okkur líða vel í Básum á aðventu. Verð kr. 2.300/2.800.
á mann 5. pláss laus
23.-26. des. Jól í Básum
Hátíð ljóss og friðar fagnað fjarri skarkala þéttbýlisins í
einstæðu umhverfi Bása. Farið er í léttar göngur,
samverustundir o.fl. Verð kr. 12.600/14.100.
30. des.-2. jan. Áramót í Básum
Áramótaferð sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
Gönguferðir, kvöldvökur, flugeldar og áramótabrenna.
Ferð fyrir hresst fólk sem á það sameiginlegt að hafa áhuga á
útiveru og að vilja skemmta sér saman í faðmi fjalla og jökla.
Verð kr. 12.600/14.100.
Nánari upplýsingar í sími 562 1000,
eða á www.utivist.is
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
SPORÐDREKI
Afmælisbörn dagsins:
Þú býrð yfir visku, raunsæi
og sanngirni. Það skiptir
þig miklu að finna góðan
maka. Ástar- og fé-
lagsmálin munu blómstra á
komandi ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þetta er góður dagur til list-
sköpunar og til að njóta af-
rakstursins af listsköpun ann-
arra.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú getur átt innihaldsríkar
samræður við foreldra þína
eða aðra í fjölskyldunni í dag.
Hlustaðu á það sem aðrir hafa
að segja og deildu síðan skiln-
ingi þínum með þeim.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú hefur mikla þörf fyrir að
tala við einhvern í dag.
Reyndu að finna einhvern
skilningsríkan til að deila
hugsunum þínum með.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú getur gert góð kaup í dag.
Þetta á sérstaklega við um
það sem tengist afþreyingu og
þörfum barnanna.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Tunglið er í merkinu þínu og
það gerir þig sterka/n. Þú get-
ur valið á milli þess að fara út
á meðal fólks og að vera
heima í rólegheitum. Þú munt
njóta þín hvar sem er.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það hefur verið mikið að gera
hjá þér að undanförnu. Not-
aðu daginn til að slaka á og
hvíla þig ef þú hefur tækifæri
til þess.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Vinkona þín þarf að ná tali af
þér í dag. Þetta ætti ekki að
koma þér á óvart, þar sem það
leita margir til þín með vanda-
mál sín.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þú getur gert svo til hvað sem
er í dag. Peningamálin líta vel
út og félagslífið ætti að ganga
vel. Þú þarft að ræða við for-
eldra þína eða yfirmenn.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú hefur áhuga á að fara í
ferðalag og gætir hitt ein-
hvern í dag sem getur að-
stoðað þig við að gera drauma
þína að veruleika. Þú nýtur
stuðnings áhrifamikils fólks.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Það eru góðar líkur á að þú fá-
ir þitt fram í samningum í
dag. Þú hefur heppnina með
þér og ert auk þess örugg/ur
og óhrædd/ur.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú þarft að leggja þig fram í
samskiptum við aðra í dag.
Tungið er á móti merkinu
þínu og því er líklegt að þú
þurfir að gefa eftir og sætta
þig við málamiðlanir.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Gefðu þér tíma til að taka til á
heimilinu í dag. Það er hætt
við að óreiða á heimilinu komi
óreiðu á hugsanir þínar.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
STAKA
Við skulum ekki víla hót,
það varla léttir trega,
og það er þó ávallt búningsbót
að bera sig karlmannlega.
---
Kristján Jónsson
LJÓÐABROT
ÁRNAÐ HEILLA
85 ÁRA afmæli. Í dag,sunnudaginn 16.
nóvember, er 85 ára Sonja
B. Helgason, íþróttakenn-
ari og fyrrverandi forstjóri
Nestis hf., Bakkaseli 15,
Reykjavík. Hún er að heim-
an í dag.
BRÚÐKAUP. Laugardag-
inn 19. júlí sl. voru gefin
saman í Þorlákskirkju af sr.
Kristni L. Friðfinnssyni,
þau Guðbjörg Thoroddsen
og Kristján J. Friðgeirsson.
Heimili þeirra er í Birkihlíð,
Úlfarsfellsvegi 20 í Reykja-
vík.
ÞAÐ verður æ meira áber-
andi hvað Lorenzo Lauria
nálgast spilið á persónulegan
hátt. Trekk í trekk tekur
hann farsælar ákvarðanir í
sögnum, sem þó eru á skjön
við það sem „eðlilegt má telj-
ast“. Þetta var mjög sláandi í
leiknum við Norðmenn í
Monte Carlo. Við sáum góða
fórn hans í gær úr þeirri við-
ureign, og hér er annað
dæmi úr sömu lotu:
Norður gefur; AV á
hættu.
Norður
♠ ÁKD9762
♥ 1093
♦ 5
♣Á8
Vestur Austur
♠ G108 ♠ 43
♥ DG5 ♥ ÁK6
♦ DG73 ♦ K10862
♣KG7 ♣652
Suður
♠ 5
♥ 8742
♦ Á94
♣D10943
Margir toppspilarar nota
Namyats-sagnvenjuna, þar
sem opnun á fjórum laufum
og tíglum sýnir 7-8 slagi með
annan hálitinn. Samuel Stay-
man kynnti þessa hugmynd í
Bandaríkjunum á sínum
tíma og kallaði hana í gríni
„Namyats“, sem er „Stay-
man“ skrifað afturábak!
Þrátt fyrir að orðið sé ekki
þjált í munni hefur það hald-
ið velli. En þetta var út-
úrdúr. Aðalatriðið er þetta:
Spil norðurs eru klæð-
skerasaumuð fyrir opnun á
fjórum tíglum – þéttur sjölit-
ur og ás til hliðar.
Vestur Norður Austur Suður
Fantoni Helness Nunes Helgemo
-- 4 tíglar * Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Tor Helness gerði eins og
kerfið bauð og setti Geir
Helgemo í fjóra spaða. En
það var engin leið að fá tí-
unda slaginn og Helgemo fór
einn niður.
Lauria gat líka opnað á
fórum tíglum eða spöðum, en
hann kaus að fara aðra leið:
Vestur Norður Austur Suður
Sælensmind Lauria Brogeland Versace
-- 1 spaði Pass 1 grand
Pass 2 lauf * Pass 2 grönd
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Hann vakti á einum spaða
og næsta sögn hans á tveim-
ur laufum var margræð og
gat meðal annars innihaldið
sterka opnun (hin sænska
Norn). Versace gaf til kynna
veik spil og stuttan spaða
með tveimur gröndum og þá
lyfti Lauria í þrjú. Níu slagir
og 10 IMPar til Ítala.
BRIDS
Guðmundur
Páll Arnarson
1. c4 c6 2. e4 d5 3. exd5 cxd5
4. d4 Rf6 5. Rc3 g6 6. cxd5
Bg7 7. Bc4 O-O 8. Rge2 Ra6
9. O-O Rc7 10. Rf4 b6 11. a4
Bb7 12. Db3 Rfe8 13. Be3
Rd6 14. Bd3 Dd7 15. a5 b5
16. Hac1 Hfd8 17. Be2 Rf5
18. Rxb5 Rxd5
19. Bc4 a6
Staðan kom
upp í Áskor-
endaflokki
Mjólk-
urskákmóts-
ins sem lauk
fyrir skömmu
á Hótel Sel-
fossi. Jan Vot-
ova (2506)
hafði hvítt
gegn Stefáni
Kristjánssyni
(2403). 20.
Rc7! Dxc7 21.
Rxd5 Db8?!
21...Bxd5
hefði verið
betra þar sem eftir 22. Bxd5
Db8 hefur svartur prýðilega
möguleika á að halda jöfnu
þó að hann eigi undir höggi
að sækja. 22. Rb6 e6 23.
Rxa8 Dxa8 24. d5 exd5 25.
Hfd1 Bf6 26. Bf1 d4 27. Bf4
Bd5 28. Db6 Kg7 29. Dxa6
Dxa6 30. Bxa6 Ha8 31. Bd3
Hxa5 32. Ha1 Hc5 33. Hdc1
og svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
FYRIR ekki löngu las ég
eftirfarandi í Mbl.; „til-
kynnti leiðsögumaðurinn
að við værum komin á
leiðarenda.“ Síðar í frá-
sögninni stóð svo þetta:
„Leiðsögumaður endur-
tók að þetta væri áfanga-
staðurinn.“ Af þessum
dæmum virðist næsta
ljóst, að no. ákvörðunar-
staður og merking þess
er að mestu horfið úr
málinu. Síðar mátti í
sama blaði lesa auglýs-
ingu frá Icelandair, sem
mun víst vera sama fyr-
irtæki og hét áður á
móðurmáli okkar hinu
ágæta nafni Flugleiðir. Í
téðri auglýsingu stóð
m.a.: „Icelandair flýgur
til 21 borgar næsta sum-
ar....... Sjö nýir áfanga-
staðir verða í áætlunar-
flugi Icelandair næsta
sumar. .... Áfangastaðirn-
ir sjö sem bætast við
sumaráætlun félagsins
frá því á síðasta sumri
eru .........“ Af þessum
dæmum má sjá, að hér
er átt við leiðarenda
flugvélanna, þ.e. ákvörð-
unarstað þeirra. Fyrir
rúmum áratug var no.
áfangastaður til umræðu
í þessum pistlum. Þá var
þetta sagt m.a. : „Í seinni
tíð hefur þess mjög gætt,
að ruglað sé saman
merkingum orðanna
áfangastaður og ákvörð-
unarstaður og það svo,
að síðarnefnda orðið hef-
ur nær gleymzt. Líklegt
má telja, að breyttir
þjóðfélagshættir valdi
hér miklu um. Meðan
menn ferðuðust um land-
ið á hestum, voru þeir oft
marga daga á leiðinni í
kaupstað eða hvert svo
sem ferðinni var heitið,
þ.e. til ákvörðunarstaðar-
ins. Ferðin var því farin í
áföngum, svo að menn og
hestar gætu hvílzt um
nætur.
Þeir staðir nefndust
áfangastaðir. Ákvörðun-
arstaður var svo loka-
áfangi ferðarinnar, hvort
sem það var að heiman
eða heim.“ Oft millilenda
vélar Flugleiða á leið til
ákvörðunarstaðarins, og
sá staður er réttnefndur
áfangastaður. - J.A.J.
ORÐABÓKIN
Ákvörðunarstaður