Morgunblaðið - 14.12.2003, Page 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ÞAÐ er langur vegur frá Inuvik á norðvestur-
svæðum Kanada til Reykjavíkur. „Við lögðum af
stað í 36 stiga frosti en þrátt fyrir nokkra flug-
leggi er þetta ekki svo ólíkt – við erum í það
minnsta áfram í einhverri vík,“ segir Georgina
Stefansson, sem er dóttir Alex, sem Vilhjálmur
átti með inúítakonunni Fanný Pannigablúk. Hún
starfar að byggðamálum í heimabæ sínum og
hefur ekki fyrr komið til Evrópu.
Þau hjónin, hún og Frank Thistle, sem er ætt-
aður frá Skotlandi, eru hingað komin í tengslum
við útkomu bókar Gísla Pálssonar, mannfræð-
ings og prófessors, Frægð og firnindi, ævi Vil-
hjálms Stefánssonar, en Georgina og systkini
hennar veittu Gísla upplýsingar um afa sinn
vegna ritunar bókarinnar. „Ég var bara krakki
þegar afi Vilhjálmur dó, sá hann aldrei og þekkti
hann því ekki, en pabbi talaði oft um hann við
okkur og hann tengdist okkur meira þegar for-
síðumynd birtist af honum í tímaritinu Life
skömmu eftir að hann féll frá,“ segir Georgina.
Heilablóðfall dró Vilhjálm til dauða 26. ágúst
1962, en þá var Georgina 15 ára. „Bækurnar
hans voru til heima, greinar og fleira, en pabbi
gerði okkur grein fyrir þessu efni og sýndi okkur
myndir af afa. En við vissum ekki hvað hann var
mikilvægur og frægur fyrr en eftir að hann var
fallinn frá.“
Eðlilegt fjölskyldulíf
Georgina segir að fjölskyldulífið hafi verið
eðlilegt og fjölskyldan hafi ekki rætt mikið um
Vilhjálm dags daglega. Foreldrar sínir hafi
stundað veiðar eins og aðrir, verið góðir veiði-
menn og ekki þurft á utanaðkomandi aðstoð að
halda. „Hann var okkur svo fjarlægur. Hann var
eins og draumur. Við vissum af honum og að
hann var til en sáum hann aldrei. Stundum furð-
uðum við okkur á því að hann skyldi ekki reyna
að ná sambandi við pabba en þetta truflaði okkur
ekki neitt og það var enginn biturleiki. Við þurft-
um ekki á honum að halda. Við hugsuðum ekki
um að við ættum fjarlæga fjölskyldu og það
breytti engu í lífi okkar.“
Í bók Gísla segir Georgina frá fyrstu kynnum
sínum af vesturíslenskum ættingjum, en hún
kynntist fyrst Vilhjálmi Ingimar Josephson á
Vancouvereyju. „Það var áhugavert að hitta ætt-
ingja en það raskaði ekki ró minni. Hins vegar
var ég hissa þegar Gísli hafði fyrst samband og
sagði þá: „Nú, þeir geta þá fundið okkur“.“
Vilhjálmur talaði ekki mikið um inúíta-
fjölskyldu sína og lengi vel var hún ekki almennt
í umræðunni. „Þegar ég var í 4. eða 5. bekk vissi
ég lítið um hann en kennarinn minn vildi að ég
skrifaði um hann í árbókina og ég gerði það, en
þessi skrif kveiktu í Gísla. Bókin segir söguna og
það verður mikil fengur að henni á ensku.“
Georgina virðist vera dæmigerður brúneygður
inúíti. Hún er yngst sex systkina og segir að
stundum hafi verið gantast með uppruna þeirra í
föðurætt. Nú fái hún tækifæri til að kynnast
honum og allt bendi meðal annars til að þau
verði hjá íslenskum ættingjum um jólin, en hjón-
in komu hingað með stuðningi frá kanadíska
flugfélaginu Canadian North, utanríkisráðuneyt-
inu, umhverfisráðuneytinu, kanadíska sendi-
ráðinu á Íslandi, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar,
Háskóla Íslands og Máls og menningar, sem gef-
ur bók Gísla Pálssonar út, . „Einn bróðir minn
og ein systir mín eru ljósari á hörund en gengur
og gerist í Inuvik og auk þess eru þau hávaxnari
en aðrir. Mér fannst þetta skrýtið og stundum
var okkur strítt á upprunanum. Ef við veiktumst
var öðruvísi litarhætti eða þynnra blóði stundum
kennt um.“
Sonardóttir Vilhjálms Stefánssonar, landkönnuðar, á Íslandi í fyrsta sinn
Strítt á litarhætti og þynnra blóði
Fyrir tæplega öld kom
Vilhjálmur Stefánsson, land-
könnuður, á slóðir inúíta á
norðvestursvæðum Kanada,
en þar búa barnabörn hans
og barnabarnabörn. Eitt
þeirra, Georgina Stefansson,
kom til Íslands í fyrsta sinn á
föstudag og Steinþór
Guðbjartsson sat fyrir henni.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Georgina Stefansson með bók Gísla Pálssonar
um afa sinn, Vilhjálm Stefánsson, landkönnuð.
steg@mbl.is
hnöttum sem munu ná yfir allt yf-
irborð jarðar. EGNOS eykur
nákvæmni staðsetninga GPS og
GLONASS og þá eykur kerfið
einnig áreiðanleika staðsetninga
GPS- og GLONASS-kerfanna með
því að tilkynna notendum ef bil-
anir verða í kerfinu á innan við sex
sekúndum.
Flugmálastjórn tók að sér með
samningi, sem undirritaður var
árið 2000, að setja upp kerfið á
Íslandi en samgönguráðuneytið
fjármagnaði verkefnið. Heildar-
verðmæti eftirlitsstöðvanna hér á
landi er um 150 milljónir króna.
Kostnaður af hálfu Íslendinga við
uppsetninguna er um tólf milljónir
nýtast við nákvæmt aðflug að flug-
völlum, þar sem ekki er hefðbund-
inn aðflugsbúnaður á jörðu niðri,
sem þýðir að hægt er að spara
mikla fjármuni í aðflugsbúnaði á
flugvöllum. Þá mun kerfið auka
nákvæmni í staðsetningu skipa,
fólks og farartækja á landi.
Alls eru 34 slíkar eftirlitsstöðvar
í Evrópu ásamt fjórum móður-
stöðvum. Eftirlitsstöðvarnar senda
frá sér merki til EGNOS-kerfisins,
sem kemur sem viðbót við banda-
ríska GPS-kerfið og rússneska
GLONASS-kerfið. EGNOS er
skref í uppbyggingu á evrópska
gervihnattaleiðsögukerfinu Gali-
leo, sem byggt verður á 30 gervi-
TVÆR nýjar eftirlitsstöðvar sem
tengjast EGNOS-gervihnattakerfi
Evrópsku geimferðastofnunarinn-
ar (ESA) voru vígðar á föstudag í
flugstjórnarmiðstöðinni á Reykja-
víkurflugvelli. Eftirlitsstöðvarnar
eru í Reykjavík og á Egilsstöðum
og munu m.a. auka stöðugleika og
nákvæmni GPS kerfisins úr innan
við 20 metrum í innan við 5 metra.
Sturla Böðvarsson, samgönguráð-
herra, vígði stöðvarnar ásamt
Dominique Detain, fulltrúa ESA.
EGNOS-kerfið mun þjóna allri
Evrópu eftir að það verður að fullu
komið í notkun á næsta ári. Í
framtíðinni mun það gagnast á
landi, sjó og í lofti og mun m.a.
króna en Evrópska geimferða-
stofnunin leggur til búnaðinn.
Með EGNOS verður til fyrsta
gervihnattaleiðsögukerfið, sem er
byggt og hannað með þarfir fyr-
irtækja og almennings í huga.
Kostnaðurinn við það er um 300
milljónir evra eða tæpir 27
milljarðar íslenskra króna og er
hann greiddur af ESA og fram-
kvæmdastjórn Evrópusambands-
ins.
Eftirlitsstöðvar tengdar EGNOS-gervihnattakerfi ESA vígðar á Íslandi
Auka nákvæmni og stöð-
ugleika GPS-kerfisins
Morgunblaðið/Þorkell
Sturla Böðvarsson vígði nýju stöðvarnar ásamt Dominique Detain, upplýs-
ingafulltrúa ESA. Þorgeir Pálsson flugmálastjóri fylgdist með.
EFTA-dómstóllinn í Lúxemborg
kvað í dag upp dóm um ráðgefandi
álit vegna 5 spurninga sem Héraðs-
dómur Reykjaness beindi til hans.
Málið varðar skýringu á ákvæðum
EES-samningsins og fríverslunar-
samnings Íslands við Evrópubanda-
lagið frá 1972 um uppruna sjávaraf-
urða.
Spurningarnar risu í tengslum við
meðferð á máli Ríkislögreglustjór-
ans á hendur þremur fyrirsvars-
mönnum fiskvinnslufyrirtækis og út-
flutningsfyrirtækis fyrir Héraðs-
dómi Reykjaness. EFTA-dóm-
stóllinn komst að þeirri niðurstöðu,
að vinnsla á heilfrystum fiski, sem
fluttur var til Íslands frá ríki utan
Evrópska efnahagssvæðisins, fæli
ekki í sér nægilega meðferð þannig
að hægt væri að líta þannig á að
framleiðsluvaran væri upprunnin
innan EES.
Embætti ríkislögreglustjóra segir,
að þetta sé fyrsta refsimálið þar sem
send hafi verið beiðni um ráðgefandi
álit til EFTA dómstólsins. Ríkislög-
reglustjórinn hafi með máli þessu
þurft að bregðast við ört stækkandi
og flóknari málum þar sem skýring á
íslenskum refsiákvæðum dragi dám
af skýringum Evrópuréttar og al-
þjóðlegum samningum eins og EES
samningnum. Af þessum sökum sé
það einnig ánægjulegt að niðurstaða
dómsins um skýringar þeirra reglna
sem í hlut eigi skuli vera í samræmi
við túlkun embættisins á þeim.
EFTA-dómstóllinn
sammála embætti
ríkislögreglustjóra
VARÐSKIPIÐ Óðinn stóð bát að
ólöglegum veiðum í Ísafjarðardjúpi
um þrjúleytið á föstudag. Farið var
með bátinn til Ísafjarðar þar sem
tekin var lögregluskýrsla af skip-
stjóranum. Aflinn var gerður upp-
tækur og settur í kæligeymslu á Ísa-
firði.
Ísafjarðardjúp
Bátur að ólög-
legum veiðum
FJÓRAR tillögur bárust í samkeppni
sem Alcoa og verktakahópurinn
Bechtel-HRV efndu til meðal arki-
tekta hér á landi um hönnun á fyr-
irhuguðu álveri Fjarðaáls í Reyðar-
firði. Fjórir hópar arkitektastofa
höfðu verið valdir í forvali og bárust
tillögur frá Arkitektastofunni OÖ og
Suðaustanátta landslagsarkitektúr,
ATL Design Group, sem Arkís, THG
og Landark standa að, TARK Teikni-
stofunni, Batteríinu og Landslagi og
fjórði hópurinn samanstendur af VA-
arkitektum, Arkitektur.is, Landmót-
un og Holm & Grut Architects.
Stefnt er að því að tilkynna um val
á sigurtillögunni í lok janúar næst-
komandi. Arkitektahóparnir munu
kynna tillögur sínar fyrir sérstakri
valnefnd, sem í eiga sæti fulltrúar Al-
coa, Bechtel-HRV, Fjarðabyggðar og
ráðgjafar Alcoa frá Carnegie Mellon-
háskólanum í Bandaríkjunum. Sá
hópur sem vinnur samkeppnina mun
taka að sér að hanna útlit, umhverfi
og innra rými álversins.
Fjórar til-
lögur að
hönnun ál-
vers Alcoa
♦ ♦ ♦