Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 14
14 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ
Talið er að nú séu um 40milljónir manna í heimin-um smitaðar af HIV-veir-unni. Í tilefni Alþjóðaal-næmisdagsins fyrir
skemmstu komu út fjölmargar
skýrslur um umfang vandans og nýj-
ar tölur voru birtar um útbreiðslu
sjúkdómsins. En Kofi Annan, fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna,
minnti á það í viðtali við BBC að al-
næmisvandinn fælist ekki bara í „töl-
um á blaði“. Á bak við tölfræðina lægi
líf og dauði raunverulegs fólks.
Annan gagnrýndi þjóðir Vestur-
heims fyrir að gefa alnæmisvánni í
þróunarlöndum ónógan gaum. Sagði
hann mikinn ójöfnuð felast í því að
þeir sem greindust HIV-jákvæðir á
Vesturlöndum ættu í flestum tilfellum
kost á heilbrigðisþjónustu og lyfja-
meðferð og hefðu ágætar lífslíkur, en
fyrir íbúa þróunarlanda væri HIV-
smit hins vegar dauðadómur. Annan
kvað næga þekkingu og fjármuni
vera til í heiminum til að veita alnæm-
issjúklingum hvarvetna meðferð, en
sagði pólitískan vilja til þess skorta.
Á þeim tveimur áratugum sem
liðnir eru síðan baráttan gegn alnæmi
hófst hefur áhættuhópurinn gjör-
breyst. Í upphafi breiddist sjúkdóm-
urinn einkum út meðal samkyn-
hneigðra karla og sprautufíkla á
Vesturlöndum. Nú eru ungar konur í
Afríku stærsti hluti HIV-smitaðra og
sjúkdómurinn er orðinn helsta ógnin
við heilbrigði og stöðugleika í þróun-
arríkjum.
Burtséð frá þeim mannlega harm-
leik sem fylgir dauðsföllum af völdum
alnæmis hefur sjúkdómurinn alvar-
legar efnahagslegar afleiðingar á
þeim svæðum þar sem útbreiðsla
hans er mikil. Hann heggur stærstu
skörðin í þá aldurshópa sem ættu að
bera hitann og þungann af atvinnulíf-
inu, með þeim afleiðingum að verð-
mætasköpun minnkar, þekking tap-
ast og þróun stöðvast. Horfur eru til
dæmis uggvænlegar í Botswana, þar
sem líkur eru á að meirihluti kennara
og bænda muni látast úr alnæmi. Þá
hefur sjúkdómurinn gert mikinn
fjölda barna munaðarlausan, en um
11 milljónir barna í Afríku sunnan
Sahara hafa misst að minnsta kosti
annað foreldri sitt af völdum alnæmis.
Auknu fé varið til
alnæmisbaráttunnar
Auknu fé hefur verið varið til bar-
áttunnar gegn alnæmi á allra síðustu
árum, bæði af hálfu ríkisstjórna og
einkaaðila. Það sem af er þessu ári
hafa 4,7 milljarðar dollara runnið til
alnæmisvarna og lyfjagjafa í þróun-
arríkjum, ríflega tuttugu sinnum
meira en árið 1996. Betur má þó ef
duga skal. Samkvæmt mati UN-
AIDS, alnæmisvarnastofnunar Sam-
einuðu þjóðanna, er þörf á 10 millj-
örðum dala til baráttunnar á næsta
ári og áætlað er að þörfin verði 15
milljarðar árið 2007.
En fleira þarf að koma til en auknir
fjármunir. Miklu máli skiptir hvernig
fénu er varið. Í flestum þróunarríkj-
um hefur mikið skort á að viðbrögð
við alnæmisvandanum séu skipulögð
og samræmd. Nú virðist þó vera að
rofa til, því stjórnvöld í ýmsum af fá-
tækari ríkjum heims hafa á undan-
förnum misserum markað sér heild-
stæðari stefnu í alnæmisvörnum. Með
aukinni vitund um sjúkdóminn og al-
varlegar samfélagslegar afleiðingar
hans hafa einkaaðilar einnig í auknum
mæli lagt sitt af mörkum. Sums stað-
ar hafa atvinnurekendur til dæmis
haft frumkvæði að því að uppfræða
starfsfólk sitt og sjá HIV-smituðum
starfsmönnum fyrir lyfjameðferð.
Óhætt er að fullyrða að baráttan
gegn útbreiðslu alnæmis í þróunar-
ríkjum sé næsta vonlaus án fulltingis
ríkisstjórna og samtaka á Vestur-
löndum. En sá böggull fylgir þó oft
skammrifi að styrktaraðilar gera fjár-
gjafir sínar háðar ýmsum skilyrðum.
Einkum á það við um Bandaríkin.
Bush-stjórnin hefur til að mynda tek-
ið fyrir styrkveitingar til samtaka
sem veita upplýsingar um fóstureyð-
ingar, samhliða annarri fræðslu og
hjálparstarfi. Slík skilyrði hafa það í
för með sér að ýmis tækifæri tapast.
Fleiri njóti lyfjameðferðar
Alnæmislyf hafa lengst af verið af-
ar dýr og í dag njóta aðeins um 800
þúsund HIV-smitaðir lyfjameðferðar
af þeim 40 milljónum manna sem
smitaðar eru í heiminum, flestir á
Vesturlöndum. Með aukinni fram-
leiðslu ódýrari samheitalyfja er þó út-
lit fyrir að takast megi að fjölga þeim
til muna sem eigi þess kost að fá lyf.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
hefur hleypt af stokkunum herferð
sem miðar að því að þrjár milljónir
smitaðra fái lyfjameðferð árið 2005.
Sérfræðingar vara þó við því að
aukin notkun alnæmislyfja leysi ekki
vandann, enda lækni þau ekki sjúk-
dóminn.
Fyrst og fremst verði að uppfræða
fólk um smitleiðir HIV-veirunnar og
hvetja það til ábyrgrar hegðunar. Það
sé jafnframt áhyggjuefni ef ótti við
sjúkdóminn minnkar sökum þess að
meðferð standi til boða. Þá hefur ver-
ið bent á að aukin framleiðsla á ódýr-
um eftirlíkingum af lyfjum frá
stærstu lyfjaframleiðendunum letji
þá til að verja fé til kostnaðarsamra
rannsókna og þróunar á nýjum lyfj-
um.
„Ekki bara tölur á blaði“
"#$%&'()*++* ,')-.&'' /
#
0 1
2
3
4
56
7 89: 7
6
!
"
#$ $%
Reuters
HIV-smituð börn bíða eftir hádegismatnum á hjúkrunarheimili í Bangkok í Taílandi á Alþjóðaalnæmisdeginum í upphafi mánaðarins.
Baráttan gegn útbreiðslu al-
næmis hefur nú staðið í tvo
áratugi og hefur aldrei verið
jafn hatrömm. Á þessu ári er
talið að fleiri hafi smitast af
HIV-veirunni en nokkru
sinni fyrr.
FLEIRI eru taldir hafa smitast af HIV-
veirunni á þessu ári en nokkru sinni
fyrr, eða um fimm milljónir manna. Það
þýðir að fjórtán þúsund manns smitast
á degi hverjum. Þá er talið að um þrjár
milljónir hafi látist af völdum alnæmis
á árinu, að því er fram kemur í skýrslu
UNAIDS, alnæmisvarnastofnunar
Sameinuðu þjóðanna, sem birt var í
tengslum við Alþjóðaalnæmisdaginn.
Af þeim fimm milljónum sem smit-
ast hafa á þessu ári eru um 700 þús-
und börn undir fimmtán ára aldri. Og
af þeim þremur milljónum sem létust
af völdum alnæmis á árinu er um hálf
milljón barna.
Sjúkdómurinn breiðist nú ört út í
Austur-Evrópu og Rússlandi og óttast
er að faraldur sé í uppsiglingu á Ind-
landi og í Kína. Sem fyrr er útbreiðsla
alnæmis mest í Afríku sunnan Sahara,
en þar áttu sér stað tveir þriðju hlutar
HIV-smita á árinu og þrír fjórðu hlutar
dauðsfalla af völdum alnæmis. Nokkuð
hefur þó dregið úr útbreiðslunni á
ýmsum svæðum í Afríku sem þegar
eru illa leikin.
Að sögn Peters Piot, yfirmanns
UNAIDS, hefur um 4,7 milljörðum doll-
ara verið varið til forvarna og dreif-
ingar alnæmislyfja á þessu ári í þeim
löndum þar sem neyðin er mest, en
það er um 50% aukning frá síðasta
ári.
14 þúsund smitast
á degi hverjum
TALIÐ er að um ein milljón manna
sé smituð af HIV-veirunni í Kína,
enda þótt stjórnvöld í Peking viður-
kenni einungis að um 80 þúsund
manns hafi greinst jákvæðir. Al-
næmi hefur hingað til verið mikið
feimnismál í Kína og ráðamenn hafa
markvisst kveðið niður umræðu um
sjúkdóminn og útbreiðslu hans. En í
tengslum við Alþjóðaalnæmisdaginn
í byrjun mánaðarins bar á opin-
skárri umræðu en fyrr hefur þekkst
í landinu.
Undanfarið hafa verið sýndir
fræðsluþættir um alnæmi í kín-
verska ríkissjónvarpinu og heil-
brigðisyfirvöld hafa miðlað upplýs-
ingum til almennings í gegnum
fjölmiðla, þar sem meðal annars hef-
ur verið hvatt til notkunar smokka.
Herferðin náði hámarki á Alþjóðaal-
næmisdeginum, þegar forsætisráð-
herra Kína, Wen Jiabao, heimsótti
deild fyrir alnæmissjúka á sjúkra-
húsi í Peking. Sýnt var frá því í aðal-
fréttatímum sjónvarpsstöðva þegar
Wen tók í hendur alnæmissjúklinga
og klappaði þeim hughreystandi.
Forvígismenn í baráttunni gegn
alnæmi í Kína hrósuðu forsætisráð-
herranum fyrir að „brjóta ísinn“
með heimsókninni á sjúkrahúsið og
létu í ljósi von um að hún yrði til
þess að opna umræðuna um alnæmi
í landinu og gefa skýr skilaboð til
lægri stjórnvalda um að aðgerða
væri þörf. En þeir vöruðu jafnframt
við því að táknræn viðleitni væri
hvergi nærri nóg, veita þyrfti mikl-
um fjármunum til baráttunnar gegn
alnæmi og gera gangskör í því að
upplýsa almenning.
Mikil vanþekking ríkir í Kína á
eðli sjúkdómsins og smitleiðum
hans. Í nýrri skoðanakönnun kváð-
ust um 20% aðspurðra aldrei hafa
heyrt á alnæmi minnst. Aðeins
13,4% þekktu hinar þrjár smitleiðir
sjúkdómsins – í gegnum samfarir,
blóðblöndun og móðurmjólk – og
einungis 2,6% svarenda gerðu sér
grein fyrir því að notkun smokka
gæti komið í veg fyrir HIV-smit.
Ógnvænlegur faraldur í uppsiglingu
Óttast er að mikill alnæmisfarald-
ur sé í uppsiglingu í Kína. Í upphafi
breiddist sjúkdómurinn helst út á
meðal sprautufíkla, vændisfólks og
bænda í miðhluta Kína sem smituð-
ust af sýktu blóði, en nú er útbreiðsl-
an orðin hröð í öllum þjóðfélagshóp-
um. Ef svo fer fram sem horfir má
búast við að fjöldi smitaðra tífaldist
fram til ársins 2010, í tíu milljónir
manna.
Forsætisráðherrann hét því á Al-
þjóðaalnæmisdaginn að stjórnvöld
myndu sjá öllum alnæmissjúkling-
um fyrir lyfjum, þeim að kostnaðar-
lausu. Nú þegar fá um 5 þúsund al-
næmissjúklingar ókeypis lyf í
tengslum við alþjóðlegt tilrauna-
verkefni, en sérfræðingar efast um
að takast muni að sjá þeim öllum
fyrir lyfjameðferð í náinni framtíð.
Merki um vitundarvakningu í Kína
Reuters
Forsætisráðherra Kína, Wen Jiabao, heilsar alnæmissjúklingum á sjúkrahúsi
í Peking á Alþjóðaalnæmisdeginum í liðinni viku. Er hann fyrstur kínverskra
ráðamanna til að koma opinberlega fram með alnæmissjúkum.