Morgunblaðið - 14.12.2003, Blaðsíða 21
Halldórs eru ástarsögur og oftar
en ekki er hann að velta því fyrir
sér hvernig hann eigi að skipta
ástinni á milli konu og hugsjónar.“
Efldi snilligáfu sína með dugnaði
og einbeitingu
Að sögn Hannesar reynir hann í
verkinu að bregða ljósi á samtíma
skáldsins og bakgrunn þess. „Ég
segi til dæmis frá foreldrum Hall-
dórs, en segja má að hörmunga-
saga íslensku þjóðarinnar fyrr á
öldum hafi birst mjög skýrt í upp-
runa þeirra og fortíð. Faðir hans,
Guðjón Helgason, kom úr fjöl-
skyldu sem hafði orðið að segja sig
á sveitina. Og móðir hans, Sigríður
Halldórsdóttir, var frá fjölskyldu
þar sem öll börnin höfðu dáið úr
ýmiss konar veikindum og faðir
hennar hafði drukknað.“
Aðspurður hvernig Halldór hafi
orðið að því skáldi sem hann var
svarar Hannes því að ein lítil saga
sem hann segi gjarnan skýri það
að einhverju leyti. „Þeir Tómas
Guðmundsson og Sigurður Einars-
son frá Holti, sem báðir voru
skólabræður og vinir Halldórs
þegar hann var ungur maður, sátu
einu sinni á miðjum aldri saman á
kaffihúsi, Hressingarskálanum í
Reykjavík, og horfðu út um
gluggann í þann mund er Halldór
Laxness gekk framhjá. Og þá
sagði Sigurður við Tómas: „Hvað
heldurðu nú að hefði orðið úr okk-
ur, Tómas minn, ef við hefðum
haft dugnaðinn hans Halldórs.“
Þannig að svarið er á þá leið að
Halldór fæddist með snilligáfu, en
það gera nú margir aðrir. Það sem
gerði Halldór sérstakan var að
hann ræktaði og efldi þessa snilli-
gáfu sína með óhemjulegum dugn-
aði og einbeitingu. Þetta er lykill-
inn að lífi Halldórs,“ segir Hannes.
Hann nefnir einnig að Halldór hafi
heyjað sér efnivið úr mörgum átt-
um. „Hann spann ekki upp úr sér
sögurnar. Hann hlustaði á það sem
aðrir sögðu og skráði það hjá sér
og notaði líka atvik úr eigin lífi.
Hann felldi þetta síðan saman í
haglega heild. Það er mjög fróð-
legt að skoða vinnubrögð Halldórs
og menn geta lært mikið af þessari
tækni sem rithöfundar.“
Á slóðum nóbelskáldsins
Ríkissjónvarpið sýnir í kvöld
þátt eftir Hannes þar sem fylgst
er með ferðum hans á slóðir nób-
elskáldsins víðs vegar um heim.
„Þegar framleiðandi minn heyrði
að ég hygðist heimsækja ýmsa
staði þar sem Halldór dvaldist
langdvölum stakk hann upp á því
að ég hefði tökumann með mér,
enda væru þetta skemmtilegir
staðir sem fólk hefði áhuga á að
sjá.“ Hannes lagði meðal annars
leið sína til Moskvu, Berlínar,
Leipzig, klaustursins í Clervaux í
Lúxemborg, Rómar, Taorminu á
Sikiley, Stokkhólms, Kaupmanna-
hafnar, Winnipeg, Los Angeles og
Lundúna.
„Það var geysilega merkilegt og
fróðlegt að fara á alla þessa staði,
taka upp efni og gera þennan sjón-
varpsþátt, sem verður eins konar
ábætir á bókina. Því að Laxness
var mjög mikill heimsborgari. Eins
og ég segi í þættinum: ef menntun
er skilgreind sem þekking á öðrum
stöðum og öðrum tímum þá var
Laxness mjög vel menntaður mað-
ur, þrátt fyrir stutta skólagöngu.“
adalheidur@mbl.is
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 21
Dömu- og
herranáttföt
Opið virka daga frá kl. 11-18,
laugardaga frá kl. 11-15.
undirfataverslun
Síðumúla 3