Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 8

Morgunblaðið - 14.12.2003, Side 8
Það gat ekki verið að við létum það tækifæri framhjá okkur fara að bæta okkar víkinga-stjörnum á himinhvolfið. FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 2003 MORGUNBLAÐIÐ Armæða og gremja rjúpnaskyttna Við skjótum ekki rjúpu meir Bann við rjúpnaveið-um í vetur ognæstu tvö ár hefur vart farið fram hjá nokkr- um manni. Skotveiðimenn eru flestir ósáttir. Nokkr- ir þeirra hafa gengið fram fyrir skjöldu og gerst mál- svarar hópsins, einn þeirra er Eggert Skúla- son, fyrrum fréttamaður. Hvernig gengur að sætta sig við rjúpnaveiði- bannið? „Það gengur illa. Eigin- lega alls ekki. Ég fer svekktur að sofa á kvöldin og ég vakna svekktur á morgnana. Það er ekki hægt að sætta sig við svona lagað. Þessi ákvörð- un umhverfisráðherrans er illa ígrunduð og illa rökstudd. Mér finnst þetta rjúpnaveiðibann álíka vitlaust og ef banna ætti saumaklúbbum að prjóna af því að lítið væri til af ull í landinu. Ég kaupi ekki þau rök sem lögð hafa verið fram. Fugla- talningarmenn hafa staðfest að rjúpnastofninn er á uppleið, eins og hann átti að vera einmitt nú og mér finnst hér vera um gerræð- islega og vonda stjórnsýslu að ræða.“ Er þetta bara þú, eða er þetta hið almenna geðslag rjúpna- skyttna? „Þetta er ekki bara ég. Þetta er hljóðið í mönnum almennt. Og eftir því sem nær dregur að- fangadagskvöldi, þeim mun meira mun gremjan aukast. Ég bíð þess núna, að sonur minn spyrji mig grátandi, pabbi, hvar er góði maturinn og ég verð bara að segja honum að konan hafi stolið jólunum.“ Hvað borða rjúpnaskyttur og fjölskyldur þeirra í staðinn á að- fangadagskvöld? „Ég á eina sundurskotna gæs í kistunni og ætla að gera henni góð skil með fjölskyldunni. Ég íhugaði að fara í hreindýrakjötið, en finnst gæsin vera nær rjúp- unni að ýmsu leyti. Mér heyrist að svona yfirleitt standi valið á milli gæsar og hreindýrs. Menn vilja villibráð.“ Af hverju ekki bara skoska rjúpu? „Mér er sagt að þetta sé það sem kallað er „grouse“, sem er svo sem hænsfugl, en engin rjúpa. Mér er líka sagt að þessi fugl sé mun bragðminni heldur en rjúpa og það væri bara að kór- óna skömmina að borga 1.400 krónur fyrir stykkið af einhverri gervirjúpu frá útlöndum. Þetta minnir mig eiginlega á það þegar bjórlíkið átti að sinna Íslending- um. Það fór ekki vel í landann og hér er líka um eftirlíkingu að ræða.“ Telurðu að mikið hafi verið um veiðiþjófnað í vetur? „Það er lítið í fréttum um slíkt þótt einhver tilvik hafi verið. Ég hef á tilfinningunni að í ákveðnum landshlutum ríki þögnin, en það er varla þorandi að svara þess- ari spurningu með já-i og það sem ég segi hér byggist á grunsemd- um sem stafa af umtali manna í millum. Sjálfur velti ég því fyrir mér í haust hvort ég ætti ekki bara að læðast til rjúpna. Ég spurði lögmann minn hvað hon- um fyndist um það. Hann svaraði mér með þeim orðum að enginn glæpur sem ég gæti framið væri svo stór að hann myndi ekki taka vörnina að sér. En hann sagði að ég myndi tapa slíku máli.“ Því er fleygt að ótrúlega marg- ir lumi nú á „gömlum“ rjúpum... „Það er nú alveg öruggt að ein- hver slatti veiðimanna á eitthvað eftir af rjúpu síðan í fyrra. En menn hafa talað mikið á þessum línum í tvíræðum skilningi, líkt og gefið sé í skyn að þetta sé ný- veiddur fugl. Það kann að vera í stöku tilvikum. Annars geymist rjúpa fugla best í frosti ef hún er pökkuð rétt og geymd í hamnum. Ég myndi treysta mér til að út- búa dýrindis mat úr 4-5 ára göml- um rjúpum.“ Það er talað um að þessir fugl- ar, gamlir eða nýir, gangi kaup- um og sölum og boðnar séu allt að 10 þúsund krónur fyrir stykkið... „Já, það var frétt um svoleiðis í Morgunblaðinu um daginn. Það hæsta sem ég hef heyrt er þó miklu lægra, eða um 2.500 krónur stykkið. Verðið á þó eftir að hækka verulega þegar nær dreg- ur jólum og örvænting matmanna fer vaxandi.“ Því er líka fleygt að skotveiði- menn hyggi á hefndir, þeir ætli sér að skemma veiðikortakerfið með röngum upplýsingum... „Það er mjög almennt talað svona meðal skotveiðimanna. Ég er þess fullviss að menn munu ekki láta sitja við orðin tóm. Það eru ýmsar leiðir færar til að falsa veiðiskýrslur ef menn vilja fara út í svoleiðis.“ En banninu verður þó aflétt, ekki satt? „Í mínum huga er það klárt mál að við skjótum ekki rjúpu meir. Umhverfissjónarmið eiga vaxandi fylgi að fagna og þeim fylgir að tilfinninga- sjónarmið ráða um of fremur en skynsemi. Maður gæti orðið að flytja til einhvers sið- menntaðs lands eins og Grænlands í framtíðinni þar sem karlmenn geta verið karlmenn í friði.“ Þetta var nú fremur karl- rembuleg athugasemd, vaxandi fjöldi kvenna stundar jú skot- veiði... „Þetta er ekki þannig meint. Guð blessi þær allar sem stunda skotveiði. Ef þær væru fleiri væri þessi staða ekki komin upp.“ Eggert Skúlason  Eggert Skúlason er fæddur 5. apríl 1963 í Reykjavík. Stúdent frá Menntaskólanumm í Hamra- hlíð 1983. Lauk prófi sem verð- bréfamiðlari vorið 2001. Var blaðamaður og fréttastjóri við NT og Tímann 1984-1990, síðan fréttamaður og dagskrárgerð- armaður hjá Íslenska útvarps- félaginu, Stöð 2, frá 1990 til vors 2001. Síðan rekið fyrirtækið Emax ehf. Maki er Anna Guð- mundsdóttir og eiga þau soninn Hafþór, f. 1994. og ég vakna svekktur á morgnana

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.